Alþýðublaðið - 11.03.1960, Page 14

Alþýðublaðið - 11.03.1960, Page 14
ÁVARPJÓNS. • • Framhald af 2. síðu. Ihversu fagurlega sem það kann að vera málað. Þegar hér er talað um grózk una í íslenzku menni'ngarlífi, má með sanni heimfæra það fyrst og fremst á menningar- sviðið í heild. En það er engu síður rétt, þótt litið sé á ein- stakar greinar menningarinn- ar, og hér hefur tónlistarlífið einbum verið haft í huga af eðlilegum ástæðum. — í byrj- un 12. aldar réði Jón biskup Ögmundsson hingað franskan mann til þess að kenna tónlist í Hólaskóla, en miðstöð tón- listarinnar í Evrópu var þá einmitt í París. Allt það merk asta, sem síðan hefur orðið í íslenzkum tónlistarmálum, hefur gerzt á síðustu þremur áratugum. Ekki verður sú saga raki'n hér, en því er ekki að leyna, að brautin hefur hvorki verið slétt né krókalaus. Og þegar litið er um öxl, er ljóst, að ýmislegt hefði mátt betur fara. Er Það sem vænta má, því að hvergi annars staðar í heiminum mun hafa verið ráðizt í önnur eins stórátök til eflingar tónlistarlífi á jafn- skömmum tíma og við sam- bærileg skilyrði. Því hefur ekki, nema að nokku leyti, verið unnt að styðjast við reynslu annarra þjóða, og inn lend reynsla engin til að byggja á í þessu efni. Fyrir okkur, sem næst stöndum Sinfóníuhljómsveit Islands, er þetta 10 ára afmæli hennar ekki nein sigurhátíð, heldur fyrst og fremst sjónar- hóll, þar sem við nemum stað ar litla stund og lítum yfir farinn veg, ekki sízt til þess að glöggva okkur á þeim víxl- sporum, sem við höfum vissu lega stigið, og reyna að draga af þeim einhverja þá lær- dóma, sem til gagns gætu orð ið í framtíðinni. Er hér m'args að gæta, því að starf hljóm- sveitarinnar þennan áratugð er orðið býsna fjöiþætt. Yfir- lit um það, eða nokkra þætti þess, hefur birzt í blöðum und anfarið og er einnig að finna í efnisskrá þessara tónleika, og verður ekki fjölyrt um það hér. En henda má á, að enda þótt hlutverk stofnunar sem þessarar sé það fyrst og fremst að koma fram fyrir almenn- ing, er þó meginhluti starfsins unninn í kyrrþey, á löngum og lýjandi æfingum. Þegar hljóm sveiti'n situr á tónleikasviðinu að loknum tónleikum, er ekki um það spurt, hvað haft hafi verið fyrir hlutunum, heldur um hitt eitt, hver áranguinn hafi' orðið. „Þú sérð hvað af fer, en ekki hvað á er tekið,“ sagði sláttumaðurinn, þegar haft var orð á því, að honum biti ve'l. Það er lélegur hljómsveit- armaður, sem ekki gegnur að verki sínu, þegar út í eldraun- ina er komið, af álíka heilhug og einbeittni og læknir við lífs hættulega skurðaðgerð. Það hefur verið gæfa þessarar hljómsveitar, að hún á í rík- um mæli þann eigi'nleika að hrífast af verkefnum sínum, og því hefur hún valdið ýms- um þeim viðfangsefnum, sem annars mundu hafa verið tal- in henni ofviða- Margi'r er- lendir stjórnendur, sem hér hafa verið, hafa haft orð á þessu. Um hljóðfæraleikar- ana vil ég leyfa mér að segja það, í áheyrn þeirra sjálfra og alþjóðar, að þeir hafa, að mínu vi'ti, reynzt því betur því meiri listrænar kröfur sem til þei'rra hafa verið gerðar. Fyrir þetta, og fyrir samstarf undanfar- inna 10 ára, vil ég vi'ð þetta tækifæri flytja þeim þakkir, —■ bæði- þeim, sem hér sitja nú, og hi'num, sem fjarri eru, en hafa á liðnum árum lagt sinn skerf til þess, að hljóm- sveitin hefur náð þeim árangri í starfi, sem raun er á. Mjöa margra einstakra manna væri ástæða til að geta sérstaklega í þessu sambandi, en sú upptalning mundi verða of löng hér. Hitt er réttogskylt að taka fram, að án stuðnings ríkisins oa Reykjavíkurbæjar og án samstarfs við Ríkisút- varp og Þjóðlei'khús hefði sin- fóníuhljómsveit á íslandi ekki minnzt 10 ára afmælis síns í dag. Hér eiga fjölmargir menn hlut að máli, stjórnmála- menn og embættismenn og stuðni'ngsmenn ýmsir. Þessum mönnum öllum vil ég í nafni hljómsveitarinnar færa aiúð- arþakkir fyrir þann skilning og áhuga, sem þeir hafa sýnt málum hljómsveitarinnar. Sinfóníulhljómsveit íslands vill ekki vera baggi á þjóðinni. Hún vill, á sinn hátt, vi'nna fyrir hverjum þeim eyri, sem til hennar rennur. Hún vill, eftir beztu getu, fylla þann sess, sem henni ber og hún hefur nú um sinn reynt að skipa í gróandi íslenzku menn ingarlífi. GUÐMUNDUR SIGURÐSSON, Grjótagötu 12. aadaðist að 'heimili sínu í gær. Fyrir hönd aðstandenda. Ólafur Jónsson. Veðrið: A.-gola eða kaldi; úrkomu laust; frostlaust. Slysavarðstofan er opin all an sólarhringinn. Læknavörð ur LR fyrri vitjanir er á sama stað frá kl. 18—8. Sími 15030. o----------------------o Gengið: 1 sterlingspund .... 106,84 1 Bandaríkjadollar . 38,10 100 danskar krónur 550,95 o----------------------o Föstudagur 11. marz: 18.30 Mannkyns- saga barnanna. — 18.50 Framb.k. í spænsku. 19.00 Þingfréttir. Tón- leikar. 20.30 Ald- arafmæli Valtýs Guðmundssonar, erindi (Kristján Albertsson rith.). 20.55 Kórsöngur: Gömul, íslenzk alþýðulög. 2120 Lestur fornrita: Þorsteins þáttur stangarhöggs (Óskar Halldórsson cand. mag.). — 21.40 Rímnaþáttur (Valdimar Lárusson og Kjartan Hjálm- arsson). 22.10 Passíusálmur (22). 22.20 Upplestur: „Óska- hringurinn“, ævintýri eftir Richard Volkmann-Leander, í þýðingu dr. Fríðu Sigurðs- son. (Baldur Pálmason). 22.35 í léttum tón. — 23.05 Dag- skrárlok. -o- Hafnarfjörður: Kvenfélags- konur, Hafnarf jarðarkirkju. Munið skemmtifundinn í Alþýðuhúsinu í kvöld kl. 8,30. Til skemmtunar: — Kvikmynd, kaffi, spil. — Félagskonur fjölmennið og takið gesti með. -o- ÆSKULÝÐSRÁÐ RVÍKUR: Tómstunda- og félagsiðja — föstudaginn 11. marz 1960: Lindargata 50: Kl. 7,30 e. h. Bast- og tága- vinna. Laugardalur: (íþróttahúsn.) Kl. 5,15, 7,00 og 8,30 e. h. Sjóvinna. -o- Mæðrafélagskonur: Munið að- alfundinn í kvöld kl. 8,30 að Hverfisgötu 21. -o- Frá Guðspekifélaginu: Dög- unarfundur í kvöld kl. 8,30 í Guðspekifélagshúsinu. — Fimm manna symposíum um hamingjuna. — Kaffi í fundarlok. Aðalfundur Kvenfél. Líkn í Vestmannaeyjum, var hald- inn 3. febr. s .1. Stjórnin var endurkosin. Forstöðu- kona félagsins er frú Jóna Vilhjálmsdóttir. — Á fund- inum var kosin fjáröflunar- nefnd, og í henni eru 3 kon- ur. Nefndin vinnur að fjár- öflun til að búa hið vænt- anlega sjúkrahús bæjarins, sem bezt úr garði. Fjáröflun arnefndin hefur á prjónun- um hlutaveltu. -o- Breiðfirðingafélagið heldur spilakvöld í kvöld (föstud.) í Breiðfirðingabúð kl. 8,30. Fjölmennið. -o- Tímarit ísl. esperantista, Voco de Islando ( = Rödd íslands) er fyrir nokkru komið út, og er það des.-hefti 1959. Það hefst á grein um . dr. L. L. Zamenhof, höfund esp eranto, en að öðru leyti er efni þess íslenzkt, enda er það fyrst og fremst hugsað sem landkynningarrit. Með þessu hefti lýkur fjórða ár- gangi ritsins. -o- Farsóttir í Rvík vikuna 21.— 72. febr. 1960, samkvæmt skýrslum 51 (52) starfandi lækna. Hálsbólga .... 153 (144) Kvefsótt ........ 249 (211) Iðrakvef ......... 33 (43) Influenza....... 44 (33) Hvotsótt ...... 1 (1) Kveflungnabólga 12 (19) Munnangur .... 1 (3) Kikhósti .......... 6 (4) Hlaupabóla .... 20 (12) Ristill ........... 1 (0) -0- Á myndinni sést ný teg- und af barnavagni, sem kom á markaðinn í Þýzkaiandi fyrir skömmu. Vagninn hef- ur það til síns ágætis, að ekki þarf að lifta honum upp ef beygja þarf. ALÞÝÐUBLAÐINU hefur borist bréf frá 28 ára gömlum Japana. Hann óskar eftir bréfaviðskiptum við íslending. Aoki, en það heitir maðurinn er giftur og er að læra þýzkar bókmenntir við háskóla í Japan. Hann óskar eftir skiptum á póstkortum, frímerkjum, myndum og öllu því, sem gæti kom- ið honum að gagni við það að kynnast íslandi og íslendingum. Aoki er sama hvort honum er skrifað á ensku eða þýzku, og einnig er honum sama hver gerir það. Heimilisfangið er — Yoshinobu Aoki. Fujikawa-machi. Shizuoka Pref. Japan. — Þeir, sem vilja, geta fengið bréfið hans á ritstjórn Alþýðu- blaðsins. :S>. .... *'••*♦*• X /AfAwJg SSs Flugfélag fslands h.f.: Millilandaflug: Hrímfaxi fer til Oslo, Kmh. og Hamb. kl. 08.30 í fyrra- málið. Innan- landsflug: í dag er áætlað [ Ak ureyrar, Fagur hólsmýrar, —■ Hornafjarðar, Kirkjubæjar- klausturs og Vestm.eyja — Á morgun er áætlað að fljúga til Akureyrar, Blönduóss, Eg- ilsstaða, Sauðárkróks og Vest- mannaeyja. -o- Eimskipafélag íslands h.f.: Dettifoss fór frá Amsterdam 8.3. til Tönsberg, Lyse kyl, og Rostock. Fjallfoss fór frá Hamborg 8.3. til Rvk. Qoða- foss fer frá Raufarhöfn í dag 10.3. til Norðfjarðar, Eskifj., Vestm.eyja, Faxaflóahafna og Rvk. Gullfoss fór frá Kmh. 8.3. til Leith og Rvk. Lagar- foss fór frá New York 9.3. til Rvk. Reykjafoss fer frá Rott- erdam 10.3. til Antwerpen, Hull og Rvk. Selfoss fer frá Vestm.eyjum í dag 10.3. til Amsterdam, Rostock og Rúss- lands. Tröllafoss fór frá Rvk 9.3. til New York. Tungufoss fer frá Rvk kl. 06.00 í fyrra- málið 11.3. til Akraness, — Keflavíkur og Hafnarfjarðar. Hafskip h.f.: Laxá er í Gautaborg. •• it i Skipaútgerð ríkisins: Hekla er á Akureyri á aust urleið. Herðubreið er á Aust- fjörðum á norðurleið. Skjald- breið fór frá Rvk í gær vestur um land til Akureyrar. Þyrill er á leið frá Vopnafirði til Fredrikstad. Herjólfur fer frá Rvk kl. 21 í kvöld til Vestm.- eyja. Baldur fór frá Rvk í gær til Sands og Grundarfj. Jöklar h.f.: Drangajökull átti að fara frá Ventspils í fyrrakvöld á leið hingað til lands. Langjök ull er væntanlegur til Rvk. í dag. Vatnajökull er í Rvk. Skipadeild S.Í.S.: Hvasafell er á Akureyri. — Arnarfell fór 7. þ. m. frá Rauf arhöfn áleiðis til Árósa, Ham- borgar og Hollands. Jökulfell fór 9. þ. m. frá Rostock áleið- is til Hornafjarðar. Litlafell er í olíuflutningum í Faxa- flóa. Helgafell fór í gær frá Sauðárkróki til Keflavíkur og Borgarness. Hamrafell fór 7. þ, m. frá Rvk áleiðis til Aru- ba. LAUSN HEILABRJÓTS 19 km. 2—1—4—7—4—5 6—9—6—3—-2—5—8—11 —12—9—8—7—10—11. £4 11. marz 1960 — Alþýðublaðið

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.