Alþýðublaðið - 20.03.1960, Side 2

Alþýðublaðið - 20.03.1960, Side 2
| ÉTtgelandi: Alþýðuflokkurinn. — Framkvæmdastjóri: Ingólfur Kristjánsson. — Ritstjórar: Gísli J. Ástþórsson (áb.) og Benedikt Gröndal. — Fulltrúl ritetjómar: Sigvaldi Hjálmarsson. — Fréttastjóri: Björgvin Guðmundsson. — Símar : 14 900 — 14 901 — 14 902 — 14 903. Auglýsingasími 14 906 — Að- BErtur: Alþýðuhúsið. — Prentsmiðja Alþýðublaðsins. Hverfisgata 8—10. —• • Áskriftargjald: kr. 35,00 á mánuði. r O, jbessar rafmagnsperur! | ÞAÐ er sitthvað, sem mæðir á okkur íslend- ingum í skammdeginu, kvefpest í mannfólki, óða- , p&st í stjórnmalum og vaxandi bráðapest í sauðfé. - Og svo bætist ofan á allt þetta ein plágan enn: ; sprengipest í rafmagnsperum. ; Þegar verkamaðurinn hefur stritað liðlangan daginn, gætt sér á soðningu með söluskatti og hlust t að á kvöldfréttir, óskar hann einskis frekar en setj j ast niður og lesa bók eða blöð í friði. Þá heyrist allt í einu suð. Ekki er það fluga á þessum tíma árs! ,; Hann lítur í kringum sig. Svo sér hann hvers kyns ; er. Rafmagnsperan er farin að suða. Svo blikkar hún örlítið. Og rétt þegar komið er að spennandi | kafla í bókinni: Rúmmm. Peran er sprungin. Þær eru undur þrifnar húsmæðurnar okkar og i;B hamast í kringum krakkana, matreiðsluna og þvott ; inn allan daginn, unz kemur að síðasta uppþvott- ■ inum, rétt fyrir hvíldarstund að kvöldi. Þá spring , rur peran í eldhúsinu. Það liggur við að blessuð konan láti út úr sér ljót orð. i Hvað veldur þessari pest í ljósaperunum? Lið || inn er mannsaldur og vel það, síðan hann Edison gamli fann upp Ijósaperuna. Mikil vísindaafrek ; hafa verið unnin og menn eru farnir að trúa því, ' | að kynslóð, sem getur sent spútnika í geim, geti . framleitt sæmilegar Ijósaperur, sem hafa eðlilegt i lífsskeið og d’eyja ekki fyrir aldur fram. Við Íslendingar verðum að kaupa mikið af okkar vörum frá þeim þjóðum, sem sýna okkur þann sóma að éta fiskinn okkar. Það er ekki nema gott og blessað. Auk þess eru þetta annálaðar vits . muna- og dugnaðarþjóðir eins og Tékkar og Aust : ur-Þjóðverjar, sem ætla mætti, að ekki stæðu úr- kynjuðum og hnignandi auðvaldsríkjum að baki ; í svo einfaldri list sem að framleiða ljósaperur. Það er langt og hvimleitt skammdegið okkar, en því miður duga norðurljósin ekki til að lesa á bók eða þvo upp. Þess vegna var rafmagnið, birtan frá ljósperunni, ein dýrmætasta gjöf, sem ; tækni og snilld síðustu tíma hefur fært okkur. Við viljum helzt ekki perur, sem syngja og springa. Okkur þætti vænt um að losna við þann peru- skatt, sem það kostar að kaupa nýjar perur fyrir ; þær, sem deyja 'háværum dauðdaga fyrir aldur fram. Við vitum, að ráðamenn okkar og verzlunar menn hafa í mörgu að snúast. En sloknar ekki á perunni hjá þeim líka? Er það ekki nóg hvatning >: til þeirra um að taka þetta mál föstum tökum. Það hefur verið skrifað eða sent skeyti um minna. Það hefur farið sendinefnd til útlanda í ómerki- í> legri erindum. í guðanna bænum, útvegið okkur Jsómasamlegar perur, sem lýsa okkur þegjandi og jistórslysalaust! 20. marz 1960 — Alþýðublaðið Dráttarbraut Framhald a£ 13. síðu. Smíði hússins stjórnuðu Reynir Sigurðsson, Hreinn Júlíusson og Kári Eðvaldsson. Uppsetning á mótorfesting- um og raflögnum sáu um þeir Gústav Nílsson, Hjálmar Ste- fánsson, Sverrir Sveinsson og Kristinn Þorkelsson. Þess má geta, að 'fram- kvæmdastjórar síldarverk- smiðja ríkisins voru Skíðafé- laginu ómetanleg hjálp og svo einnig rafmagnsstjóri. Abalfundur Fráfarandi formaður flutti skýrslu stjórnarinnar frá fyrra ári og lýst var reikni'ngum fé- lagsisn og þeir samiþykktir. f stjórn fyrir árið 1960 voru eftirtaldir menn kosni'r: AÐALFUNDUR Sveinafél. pípulagningamanna var hald- inn sunnudaginn 6. marz s. 1. að Freyjugötu 28. Form.: Rafn Kristjánsson, varaform.: Sigurður Grétár Guðmundsson, ritari: Borgþór Jónsson, gjaldk. félagssjóðs: Guðmundur Gíslason, gjaldk. sjúkrasjóðs: Ásgeir Magnússon, Varastjórn: Hilmar Ásmunds- son, Guðjón Júlíusson, Ólafur M. Pálsson. FJÁRSÖFNUN þjóðkirkj- unnar til hjálpar flóttamönn- um er lokið að þessu sinni. Hún er liður í flóttamanna- hjálp Líknarmáladeildar Lút- herska heimssambandsins og mun framlagi íslendinga varið til kaupa á Jýsi og skreið, er ráðstafað verður þangað, sem þörf er mest fyrir slík matvæli. Eins og við mátti búast hafa íslendingar brugðist vel við og látið mikið fé af hendi rakna í þessa söfnun. Skila- grein fyrir gjöfum, sem borizt hafa, hefur, jafnan verið birt í blöðum hvað eftir. Alls hafa safnazt kr. 247.486,08. Vil ég hér með þakka ágætar undirtektir almennings, öllum þeim mörgu, prestum og öðr- um, sem með starfi og fram- lögum hafa stuðlað að því, að Endurnýjum gömlu sæng- urnar. — Eigum fyrirliggj- andi hólfuð og óhólfuð dún- og fiðurheld ver. Fljót afgreiðsla. Dún- og fiðurhreinsunm Kirkjuteig 29. — Sími 33301 þessi fjársöfnun yrði þjóð vorri til sóma og til nokkurrar hjálpar í sárri neyð. Biskup íslands, Sigurbjörn Einarsson. Genfardaguí VIÐ sýndum ykkur fisl? í gær og við sýnum ylrk- ur fisk í dag. Það heyrir þessum Genfarráðstefnu- dögum til að okkar dómi. í gær var það karlmaður að draga fiskinn, í dag er það stúlkan (ein af fjöl- mörgum), sem tekur við honum. Myndin var tekin hjá Bæjarútgerð Hafnar- fjarðar í gærdag. Stúlkan heitir Sigurbjörg Lárus- dóttir, og hún er 14 ára. j Á TÓNLEIKUM Sinfóníu- hljómsveitarinnar í Þjóðleik- húsinu næsíkomandi þriðju- dagskvöld verður meðal ann- ars flutt Sinfónía nr. 4 í Es- dúr, nefnd „Rómantíska sin- fónían“, eftir austurríska tón- skáldið Anton Bruckner. Önn- ur viðfangsefni eru forleikur að óperunni „Brúðkaup Fíga- rós“ og píanókonsert í d-moll eftir Mozart. Stjórnandi hljóm sveitarinnar er dr. Róbert Abraham Ottósson og einleik- ari Gísli Magnússon píanóleik- Fjórða sinfónía Bruckners er erfiðasta listrænt viðfangs* efni, sem SinfóníuhljómsveiU in hefur færzt í fang til þessa og hefur kostað óvenjumikla undirbúningsvinnu á æfingum, Hún er ein hin allra glæsilegi asta af sinfóníum Brucknerss og má frurnflutningur hennar hér teljast mikill viðburður. Aðgöngumiðar að þessun® tónleikum eru seldir á venju-í legu verði, kr. 35,00 í sal og á neðri svölum og kr. 25,00 á efrí svölum. ,_J

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.