Alþýðublaðið - 20.03.1960, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 20.03.1960, Blaðsíða 3
í GREIN sem Björn Jajkobssoii, framkvæmdla- Stjóri, hefur ritað í tíma- ritið „Frjáls verzlun“, skýr ir hann frá mjög athyglis verðum tillögum sínum varðandi framtíðarrekstur Keflavíkurflugvallar. Til- lögur þessar hafa verið ræddar í atvinnumálá- nefnd og lagðar fyrir flug málastjóra. Verzlunarráð- ið í Japan hefur einnig fengið tillögurnar. Það FUJ í Hafnarfirði heldur málfund á mánudaginn kemur 21. marz í AlþýSuhúsinu við Strandgötu kl. 8.30. Umræðu- efnið er: íþróttir. Frummælend ur verða Þorsteinn Jóhanns- son og Gissur Kristjánsson. sendi þær áfram til flug- félaga þar og fleiri aðila, sem hafa tekið þær til með ferðar. TiUögur Björns um framtíð- arrekstur Keflavíkurflugvall- ar fara hér á eftir: Stefnt verði að því, að Kefla- víkurflugvöllur verði alþjóðleg lendingar- og skiptistöð (Inter- nati'onal Transit Center) á flug- leiðunum Austur-Asía — Norð- ur-Ameríka annars vegar og Evrópa hins vegar. Með það fyrir augum verði eftirfarandi atriði rannsökuð: 1. Keflavíkurflugvöllur verði gerður að aliþjóðlegri' fríhöfn. 2. Að leitað verði eftir undir- tektum japanskra stjórn- valda og flugfélaga um jap- ansk-íslenzka samvinnu um rekstur flugleiðar til farþega og vöru-flutninga á leiðinni Tókio—New York og Tokio —Norður-Evrópa um Norð- urpólinn með „transit“-(þjón- ustu og bækistöð á Keflavík- urflugvelli' eða flugleiðina Tokio—Keflavík, íþar sem Sigga Vigga ,.Í>ER ER AIVARA? Í>U ERT EKKERT At> PLATA ? VEISTUAÐ ÞÁ ERTU FYRSTI MAt>URINN SEM ÍO HRyGöBRÝr/" N or ður-Atlantshaf sflugleið- in tæki við farþegum og vör- um áfram til Norður-Ame- ríku og Evrópu. 3. Athugaðir yrðu möguleikar á, með tilli'ti til hinnar öru þróunar á vöruflutningum í lofti; að bjóða japönskum út- flutningsfyrirtækj um að- stöðu til starfsemi sinnar á Keflavíkurflugvelli með hli'ð sjón af mörkuðum þeirra í Ameríku og Evrópu. 4. Athugaðir yrðu hugsanlegir möguleikar á aðstöðu ís- lenzkra verzlunarfyrirtækja til endur-útflutnings (re-ex- port) á japönskum iðnaðar- vörum frá Keflavíkurflug- velli' sem frílhöfn. 5. Með hliðsjón af ofangreind- um atriðum yrði látin fara fram athugun á byggingu fullkomi'nnar bifreiðabrautar mi'lli Reykjavíkur og Kefla- víkurflugvalar með það fyr- ir augum að gera fyrirhug- uðum gistihúsum í Reykja- vík fært að annast þá starf- semi í farþegaþjónustu Keflavíkurflugvallar. VIGFÚS BO APARTHEIT aðskilnaðar- og hvítra, af Skíðamót um pásskana FORYSTUMENN siglfirzkra skíðamanna vinna nú að mikl- um dugnaði að undirbúningi Skíðalandsmótsins, sem fer hér fram um páskana. Skíða- félag Siglufjarðar — Skíða- borg, hefur starfað með mikl- um ágætum í vetur. Formaður félagsins er Guðmundur Árna- son. VIGFÚS Guðmundsson, gest gjafi og ferðalangur, flutti er- indi um Suður-Afríku í útvarp- ið í fyrrakvöld, og boðaði „apartheit“ — stefnu svartra miklum innileik. Taldi hann líklegt, að hann væri eini mað- urinn á íslandi, sem aðhylltist þessa stefnu, og hefði hann snúizt við að kynnast aðstæð- um af eigin raun. Vigfús hefur orðið mjög hrifinn af Búum, afkomendum hinna hollenzku frumbyggja, en er minna um þá brezku af- komendur í Höfðakaupstað. Taldi 'Vigfús blökkumönnum flest til lasts, þeir mundu til fárra hluta færir enn, enda hrá soðnir úr villimennsku. Mundi þeim bezt borgið sem þjónum hinna hvítu. Svo gjörólíkir væru þeir hvítum mönnum, að kynstofnarnir ættu að búa að- skildir hvor frá öðrum. Vigfús var ekki hrifinn af svörtu fólki, vill helzt ekki láta það bera sér mat, er minna um það en gula, brúna eða hvíta. Hann lýsti berum brjóst- um blökkustúlknanna, en bjóst ekki við að sér mundi líða vel, þótt hann hallaði sér að þeim. Hann kvaðst hafa hitt blökkumenn, sem áttu margar konur, og teldu þeir það skemmtilega tilbreytingu, en nokkuð erfitt. Erindi Vigfúsar var fróðlegt eins og ferðapistlar hans venju lega eru — en vonandi er það rétt hjá honum, að hann sé einn um skilnaðarstefnu Bú- anna hér uppi á íslandi. Alltaf uppselt á „Hjónaspil GAMANLEIKURINN „Hjóna- spil“ er sýndur við mikla hrifn ingu leikhúsgesta í Þjóðleik- húsinu um þessar mundir. Upp selt hefur verið á öllum sýn- ingum fram að þessu. Þetta er gleðileikur, sem kemur öllum í gott skap. Næsta sýning verð ur á miðvikudagskvöld. MER VARÐ EKKI UM SEL ... þegar ég las verðlags- pistil Tímans í gær. Eg man ekki eftir að hafa séð hann svartari. Þýzkar ískökur í pökkunt hafa hækkað um 135 aura. Tekst þeim að sjóða Sés- íaiistaflokkinn saman KLOFNINGURINN í Sósí- alistaflokknum er svo alvar- legur, að Einar Olgeirsson viðurkenndi hann í setning- arræðu sinni á XII þingi flokksins í fyrradag. Hann sagði: „Sjóða þarf flokkinn santan í slíka baráttuheild, að hann verði bitrasta vopn, sem íslenzk alþýða hefur nokkru sinni haft í hendi sinni“. Ein- ar sagði einnig, að hlutverk þeirra, sem þingið sitja, sé, „að gera Sósíalistaflokkinn hæfan til að valda því hlut- verki, sem íslenzk alþýða ætl- ar honum“. Af þessu verður að ætla, að það sé nteira en lítið klof- inn flokkur, sem nú þarf að „sjóða santan“. Af þessunt orðum verður einnig að ráða, að Einar telji flokkinn í dag EKKI HÆFAN til að gegna því hlutverki, sem hann tel- ur íslenzka alþýðu ætla hon- um, og hann sé ekki það „bitra vopn“, sem hann þyrfti að vera. m Það vakti meðal annars at- hygli, að Hannibal Valdintars son sendi flokksþinginu árn- aðaróskir frá „málfundafé- lagi jafnaðarntanna“, en þess félagsntenn mun ntega telja á fingrum. Það verður spennandi að sjá, hvernig himti hörðu valdabaráttu ntilli gantla Brynjólfsliðsins og hinna yngri manna lýkur, en það kemur væntanlega í ljós e|t- ir helgina. Alþýðublaðið — 20. marz 1960 J

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.