Íslendingur - 26.07.1875, Síða 6
70
— Snemma í maí þ. á. dó maður einn (
l’arlsarborg, 109 ára gamall. Hann var
fæddur 16. marz 1766. Nafn hans var
Friðrik Waldeck. ílann var dáti undir for-
ustu Napoieons 1. Hann var einn af þeim,
sem sátu um borgina Touloouse forðum, og
hann fór með hinum frakkneska her til
Egyptalands. Hann var pentari, og hafði
numið þá list af hinum nafnkunna pentara
Davíð. Hann var svo ern, að árið 1869
(103 ára gamall) giörði hann tvö málverk, er
hann Ijet á málverkasýningu í Parísarborg.
— Undir próf á háskólanum í Kaupmanna-
höfn hala eptirfyIgjandi íslendingar gengið
í vor:
Kristján Jónsson frá Gautlöndum, lók
embættispróf í lögfræði, og fjekk l.einkunn;
einnig lók embættispróf í lögfræði Sigurður
Jónsson, fóstursonur Jóns riddara Sigurðs-
sonar í Kanpmannahöfn, og tjekk 2. ein-
kunn.
Próf ( forspjallsvísindum tóku þessir:
Guðmundur Porláksson, ættaðurúr Skagaíirði,
fjekkeink.ágæll.
Einar Tliorlacius frá Saurbæ
i Eyjafjarðars.ýslu — — dável
Ásmundur Sveinsson, ætlaður
úr Múlasýslu — — dável
Sigurður Sigurðss., frá Hjörtsey— — dável
Morilz Haldórsson, úr Rvi'k — — vel.
Undir embættispróf I dönskum lögom gekk
Guðmundur Pálsson, fyrverandi skrifari hjá
amtraanni B. Thorberg; hlaut liann beztu
einkunn.
PÓSTSKIPIÐ.
— Póstskipið «Diana» hafnaði sig hjerað
kvöldi hins 18. þ. m. Með því komu þessir
farþegjar: Fröken Póra Pjetursson, fröken
Anna Melsteð, kandidat í læknisfræði Bogi
Pjetursson, kand. philos. Hallgrimur Melsteð.
Guðmundur Pálsson, examinatus í lögfræði.
Kristján Jónsson, kand. i lögfræði, Propp<•
bakari; auk þessara komu nokkrir Englendingar
er ætla að ferðast hjer um land.
— Meðal þeirra, er sigldu hjeðan til Kaup-
raannahafnar með póstskipinu seinast (17. f
rn.) var gestgjafi N. Jörgeosen úr Reykjavík.
Ætlaði hann að eins snögga ferð til Ilafnar
I verzlunarerindum, og ætlaði hann sjer að
koma hingað aptur með þessari ferð. En
daginn eptir að hann kom til Kaupmanna-
hafnar, var hann að aka i vagni á götu þar,
og sá mann, er gekk fram hjá vagninum, og
sem liann þurfti að tala við. Vagninn fór
ekki hart, og stökk Jörgensen niður úr vagn-
innm, til þess að tala við manninn, en varð
fótaskortnr, og datt svo, að vagninn ók yfir
hann, og marði alveg I sundur annan hand-
legg hans, og skemmdi haun mjög á. höfð-
inu. Læknishjálp var þegar fengin, og var
handleggurinn tekinn af honum; andaðist
hann að tæpum sólarhring liðnum frá því,
að slysið varð. Rænu liafði hann að mestu
lcyli fram í andlátið.
Það er mikil eptirsjón í Jörgensen, því
hann var mesti atorkumaður, hjálpfús og
— í stuttu máli — hinn bezti drengur.
— Slysför. Bátur týndist fyrir skömmu
frá Skarði á Skarðsströnd með 4 mönnum ;
var einn þeirra Ebenezer, elsti sonur Krist-
jáns sál. kammeráðs á Skarði. Voru þeir
að vitja um selanætur. Ebenezer var fyrir-
vinna hjá móður sinni, og var duglegur
maður og vinsæll.
— Við síðustu fjárskoðun í Ölveshreppi er
mælt, að allt fje þar innanhrepps hafi reynzt
heilbrygt, og engin kind hafi þar fundizt með
svo miklu sem kláðavotti — neina ein, og
hún er sögð að hafi verið úr Grindavík.
Ljótt er, ef satt er! hvar er þá heimapöss-
unin? hvernig er vakað yfir að lögunum sje
hlýtt? og er það satt, alþingi ætli að ala
kláðann enn þá? Ekki er von að samlök
sjeu á marga fiska hjá oss íslendingum í
öðrum efnum, þegar vjer enn þá eptir 20
ár getum ekki orðið samtaka í að útrýma
þessari þjóðarskömm og þessum þjóðarfjanda.
Vegurinn til þess að útrýma honum liggur
opinn fyrir; reynslan er búin að sýna hann,
og hún bendir skýrt á hann; en sumir þurfa
að gjöra sig merkilega; sumir aptur eru of
þráir til að játa villu sína, þótt þeir sjái
hana; þess vegna gcta ekki fengizt samtök
í þessu áríðandi máli. Reynslan er þó búin
að sýna, að lækningar eru ekki einhlýtar til