Alþýðublaðið - 09.04.1960, Page 2
'á
Útgefandi: AlþýSuflokkurinn. — Framkvæmdastjóri: Ingólfur Kristjánsson.
— Ritstjórar: Gísli J. Ástþórsson (áb.) og Benedikt Gröndal_____ Fulltrúar
ritstjórnar: Sigvaldi Hjálmarsson og Indriði G. Þorsteinsson. ■— Fréttastjóri:
Björgvin Guðmundsson. — Símar: 14900 — 14902 — 14903. Auglýsingasimi:
14906. — Aösetur: Alþýðuhúsið. — Prentsmiðja Alþýðublaðsins. Hverfis-
gata 8—10. — Áskriftargjaid: kr. 45,00 á mánuði. í lausasölu kr. 3,00 eint.
Alþingi í páskaleyfi
ALÞINGI er nú farið í páskaleyfi. Varð það
samkomulag milli stjórnar og stjórnarandstöðu,
að hafa leyfið svo rúmt, að þingmenn geti farið
Iheim til sín, enda eðlilegt að þeir, sem f jarst búa,
geti heimsótt kjördæmi sín, þegar þing er langt.
Ríkisstjórnin er enn ekki misseris gömul. Þó
'Jhefur hún komið fram mörgum og-veigamiklum
málum, þannig að alþingi hefur verið athafna-
samt, þegar miðað er við fyrri þing. Alls hafa
tæplega 130 mál verið flutt á þinginu og mörg
þteirra þegar afgreidd.
Veigamestu mál þingsins hafa verið þessi:
Efnahagsmálin,
Fjárlög 1960,
Almannatryggingar,
Tekjuskattur,
Jöfnunarsjóður sveitárfélaga,
Lánasjóður námsmanna,
Útsvör,
Ferskfiskmat,
f Vernd fiskistofna á úthafinu,
Framleiðsluráð landbúnaðar ofl, ofl.
1 I heild mun stefna stjórnarinnar, sem fram
jkemur í þessum frumvörpum og fleirum, valda
miklum breytingum á háttum þjóðarinnar. Nái
stefnan tilgangi sínum munu efnahagsmál komast
á.fastan kjöl og áframhaldandi verðbólguþróun
verða áfstýrt. Skilyrði eiga að skapast fyrir heil-
brigðari atvinnurekstri, minni skriffinnsku og
'Spillingu, þannig að þjóðin geti — eins og nágrann
ar hennar — gert sér vonir um batnandi lífskjör og
aukið frelsi einstaklinganna.
Ekki gerist þetta án mikilla erfiðleika og fórna
í svipinn. Ef hin nýja stefna nær árangri þeim, sem
vonir standa til, munu þær fórnir fljótt gleymast
og þjóðin eiga betri og farsælli framtíð.
Aðalfundur Félags Samelnuðu
Þjóðanna á íslandi
verður haldinn í I. kennslustofu Háskóla íslands,
laugardaginn 9. apríl kl. 2.1,00 e. h.
Dagskrá:
1. Erindi; UNESCO, flytjandi: Birgir Thorlacius,
ráðuneytisstjóri.
I 2, Aðalfundarstörf.
3. Önnur mál.
Áhugamenn um starfsemi S. Þ.
eru velkom’nir á fundinn.
S t j ó r n í n .
■
H
R _ _ _ __
ae
g
H
H
H
H
H
| í þúsundafali
H
H
B
H
| Glœsilegt úrval -
£ verð við allra hœfi
H
HBHHHHHHHHHKHHHHBHHHHHHHHiaaHHHHHHHHHHHHHHHHHSIISHHESI
Hannes
'fo Skaðleg skrif á
hættustund.
Ú' Gefa brezkum blöð-
um tilefni til getsaka
og árása.
Uppbætur og stjórn-
arfarið.
ENN ER ATHYGLI almenn-
ings vakin á siðleysi íslenzkra
síjórnmála, og enn er það í sam-
bandi við takmarkalaust á-
byrgðarleysi stjórnarandstöðunn
ar. Það er svo sem ekki nýtt fyr-
irbrigði. Meðan íslenzka sendi-
nefndin situr suður í Genf, um-
kringd óvinum, sem gæta fyrst
og fremst sinna eigin hagsmuna,
láta sér fátt um finnast þó að
bjargræðið sé tekið frá munnin-
um á eyþjóðinni í norðurhöfum,
skrifa blöð Framsóknar og kom-
múnista um svik forustumamta
nefndarinnar.
ÞAU GEFA í SKYN að nefnd
in sé klofin í afstöðu sinni, að
forustumenn Alþýðuflokksins og
Sjálfstæðisflokksins fari sínu
fram gegn mótmælum forustu-
manna hinna flokkanna. Hvað á
svona framkoma að þýða? Vitan-
lega berast fréttir af þessum
skrifum á ráðstefnuna, enda
hvíla augu heimsins á íslandi út
af þessum deilumálum, sem fyrst
og fremst hafa risið af tilefni
þess að við höfum krafizt óskor-
aðs réttar okkar. Og vitanlega er
leikur óvinanna léttari ef þeir á-
líta að þjóðin sé sundruð í af-
stöðu sinni, j
ÓMINN AF ÞESSU máttl
heyra í leiðara brezka blaðsins
Daily Telegraph, sem birtur var
útdráttur úr eitt kvöldið. Þar
var talað um að efnahags- og
stjórnmála-ástandið á Íslandí
mundi þróast í þá átt á næstu
árum, að íslendingar myndui
telja heppilegra að koma sér vél
við Breta. — Skrifin í Þjóðvilj-
anum og Tímanum eru undirrót
in að þessum skrifum.
LEIKURINN ER ILLUR. Til-
gangurinn er slæmur. Skrifin
eru skaðleg. Mennirnir, sem
standa að þeim, ættu að vera
óalandi og óferjandi. Þeir fara
með staðlausa stafi, enda hefur
utanríkisráðherra lýst yfir a3
nefndin starfi saman í ein-
drægni. — Og skrifin eru alls
ekki til annars og geta ekki orð-
ið til annars en að skaða þjóðina
á hættustund.
GAMALL BÓNDI skrifar:
„Það er nú kannski ekki rétt af
Framhald á 10, síðu. ,
^ 9, apríþ 1960 — AJþýðuhlaðið