Alþýðublaðið - 13.04.1960, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 13.04.1960, Blaðsíða 2
Útgefandi: Alþýðuflokkurjpn. — Framkvæmdastjóri: Ingólfur Kristjánsson. — Ritstjórar: Gísli J. Ástþórsson (áþ.) og Benedikt Gröndal. — Fulltrúar ritstjórnar: Sigvaldi Hjálmarsson og Indriði G. Þorsteinsson. — Fréttastjóri: Björgvin Guðmundsson. — Símar: 14900 — 14902 — 14903. Auglýsingasími: 14906. — Aðsetur: Alþýðuhúsiö. — Prentsmiðja Alþýðublaðsins. Hverfis- fiata 8—10. — Áskriftargjald: kr. 45,00 á mánuði. í lausasölu kr. 3,00 eint. * . * Hverjh borga? Alþýðublaðinu er síður en svo kært að ræða ! stjórnmál á persónulegum grundvelli, hvað þá að \ draga inn í þau atriði, sem eiga að vera einkamál, ! eins og skattgreiðslur manna. Þó er svo komið, j vegna rætinna árása stjórnarandstöðunnar á ein- ; staka menn, að ekki verður hjá þessu komizt. Það ] er ekki hægt að sitja þegjandi undir því, að kom- ; múnistar reiti æru og tiltrú af heiðvirðum mönn- i tim, enda hafa þeir komizt nógu langt í þeim efn- j um ,nú þegar. Þjóðviljinn ræðst í gær á Gylfa Þ. Gíslason j í sambandi við tekjuskattinn og heldur því fram | -að Gylfi muni hagnast á honum um 25.000 kr. j Fjárhagsástæður Gylfa mega heita opin bók. — ,] Hann hefur starfað fyrir hið opinbera sem pró- ] íessor eða ráðherra, haft venjulegt þingfararkaup I og gegnt nokkrum aukastörfum. Allar hans tekjur ] íaafa verið gefnar upp og hann hefur því endur- I •] ;greitt stórar upphæðir í sköttum til ríkisins. Eins § ’j er ástatt um f jölmarga menn, sem helga hinu opin 1 3 foera krafta sína, t. d. fjármálaráðherra, Gunnar i í j'rhoroddsen, sem Þjóðviljinn hefur ráðist sérstak- { lega á. Þeir eru meðal hæstu einstaklinga í skatt- j jgreiðslum. En eru þeir hinir einu hátekjumenn j þjóðfélagsins? Tekjuskatturinn hefur orðið að launaskatti. j Hinir, sem ekki hafa há, uppgefin laun, sleppa. j Þess vegna er þessi skattur orðinn úreltur og '\ jcanglátur. Til að sýna þetta með einföldum dæm- j um, birtir Alþýðublaðið hér með lista yfir nokkra ■ .stóreignamenn og tekjuskatt þeirra til saman- ' fourðar. í þessu felst engin árás á viðkomandi ) jmenn eða efasemdir um að skattgreiðslur jfeirra | | fíéu fyllilega samkvæmt lögum. Athugum þetta : J Tekjaskattur: ! Gunnar Thoroddsen ..................... 52.065 kr. 1 Gylfi Þ. Gíslason ..................... 33.037 — í Björn Ólafsson stórkaupm. ............. 18.033 — Sveinn Valfells iðnrekandi ............ 16.897 — • Tryggvi Ófeigsson útgerðarmaður ....... 11.822 — I Carl Olsen stórkaupm.................... 7.819 — ■ Egill Vilhjálmsson kaupmaður ........... 5.797 — f Kalldór KjartanVon stórkaupm............ 4.696 — 1 Kjartan Thors framkvæmdastjóri ......... 1.494 — 1 Skúli Thorarensen útgerðarm................. 0 — Vilhjálmur Þór aðalbankastjóri ............. 0 — Ei'nar Sigurðsson útgerðarmaður .... 0 — Getur nokkur sanngjarn eða hugsandi maður Italdið því fram, að það tekjuskattskerfi, sem kem- ’nr svona út, sé réttlátt eða viðunandi? Þetta er það kerfi, sem kommúnistar og framsóknarmenn nú verja af oddi og egg. i Áskriftarsíminn er 14900 2 13. apríl 1960 — Alþýðublaðið "iv-u „Si — 'éVmmffvfct, Genf, 7. apríl 1960. ÞAÐ er aprílmorgun, sólskin ■og logn í Genf ,og blátt Genfar- vatnið gárast ekki, Mont Blanc er enn hulinn mitsri en hvít kalksteinslögin í Salve-fjallinu sjást greinilega. Fyrir utan Hot- el de al Paix stendur gljáfægð, svört bifreið með Kanadaveifu, Mr. George A. Drew, hinn stór- myndarlegi formaður Kanada- nefndarinnar á annarri sjórétt- arráðstefnunni er í þann veginn að leggja af stað upp í Palais des Nations, Höll þjóðanna, en þar á fundur ráðstefnunnar að ihef jast eftir rúma klukkustund. í miðbænum er orðið þröngt á igötunum, því að Genfarbúar eru árrisulir, umferðarljósin duga ekki, en lögregluþjónar í gráum einkennisbúningi og með hvíta hjáima standa á kross götum og stjórna umferðinni. Hermann Jónasson kemur skálmandi yfir Rué du Mt Blanc. Þeir hafa sammælzt Lúð- vík Jósefsson og hann og ætla að venju að ganga upp í „höll- ina“, en þangað er drjúgur spotti úr miðbænum, þeirra per sónulegt met er- víst 30 mínút- ur. Á Hotel du Rhone eru þeir Guðmundur í. Guðmundsson ut anríkisráðherra og Bjarni Bene diktsson dómsmálaráðherra að skrafa við nokkra aðra fulltrúa í forsalnum og dr. Helgi Briem sendiherra kemur þar að hvatur í spori. Á öðrum gistihúsum um alla Genfarborg eru fulltrúar á sjóréttarráðstefnunni að drekka morgunkaffið sitt eða að leggja af stað á vinnustaðinn. Höll þjóðanna er geysimikil bygging í fögru umhverfi, — reist á árunum 1929 til 1937. •— Þar eru um 500 skrifstofur, —• fundarsalir 15 og flestir skreytt ir málverkum, sem ýmsar þjóð ir hafa gefið, og þar að auki er svo fundarsalurinn mikli, þar sem fundir sjóréttarráðstefnunn ar eru haldnir. Þar er dökkblátt teppi á gólfi ,bekkirnir gerðir úr brúnum viði, stórar áhorf- endasvalir. Fundarstjóri og rit arar hans sitja hátt og sjá vel yfir salinn, sem alltaf er full- skipaður, enda eru fulltrúarnir yfir 400 að tölu. Sjaldnast er margt fólk á áheyrendasvöl- um. Aðrir hlutir hafa meira að- dráttarafl fyrir fólk í þessu landi, sem hvergi nær að sjó. Klukkan er orðin tíu og starfs- mennirnir eru að raða skjölum og búa allt undir fundinn. —• Túlkarnir eru enn ekki komn- ir í kompur sínar til hliðar uppi undir lofti, enda er hálf- tími þangað til fundurinn á að byija og allir vita þar að auki að hann byrjar aldrei á réttum tíma, hvort sem það er Dr. Jose A. Correa frá Ecuador, Respresentante Permanente ante las Naciones Unjdas, for- maður heildarnefndar xáð- stefnunnar, eða varaformaður- inn prófessor Max Sörensen frá Danmörku, sem stjórnar fundi. Úti í forsalnum eru fyrstu full- trúarnir að lesa morgunblöðin eða rabba saman, og nú rennur hver bifreiðin af annarri upp að fjórtándu dyrum hallarinn- ar, sem er 400 metra löng, og álmur þá ekki taldar með. — Starfið á skrifstofunum er alls staðar í fullum gangi, og hvar sem farið er um höllina heyr- ist ritvélarhljóðið álengdar. — Úti eru garðyrkjumenn að gróðursetja fyrstu vorblómin í blómabeðin og páfugiarnir ylja sér sunnan undir vegg. Hávaxinn maður og herða- breiður er að ganga inn um dyrnar á áttunda fundarsaln- um, en þar er afvopnunarráð- stefnan haldin fyrir luktum dyrum. Þetta er Jules Moch, aðalfulltrúi Frakka á ráðstefn- unni en hann hefur lengi hald- ið á málstað Frakklands við af- vopnunarumræður. Þarna ber einnig Zorin að, aðalfulltrúi Rússa. Á þessari ráðstefnu tala fulltrúgr venjulega við frétta- ipenn, þegar hverjum fundi er lokið og segja þeim frá sínum ræðum, eða þeir halda sérstaka blaðamannafundi, og ævinlega er orðið fullt af fréttamönnum á ganginum fyrir framan, þeg- ar lok náígast. Þar er aðalfrétta efnið frá Genf þessa dagana, snúast þeir áður en atkvæða- greiðslan fer fram. Arthur H. Dean, formaður bandarísku nefndarinnar, stígur í stólinn og tilkynnir sameiginlega til- lögu Bandaríkjanna og Kanada. „Þessi tillaga," segir hann, „uni víðáttu landhelgi og fiskveiði- takmörk hefur verið samin hér á ráðstefnunni í samráði vi8 aðrar sendinefndir, — bæði frá strandríkjum og þeim, sem fiska á fjarlægum miðum, — til þess að fullnægja óskum, sem margir hafa látið í ljós, að fram komi ein tillaga, sem náð gæti allsherjarstuðningi ráð- stefnunnar". Hann rekur svo efni tillögunnar, en þar er gert ráð fvrir sex mílna landhelgi og fiskveiðilögsögu að auki, — sem nái lengst 12 mílur frá grunnlínum. Enn fremur segir, a ðsérhvert ríki, sem stundað hafi fiskyeiðar á ytra sex mílna svæði strandríkis í fimm ár næst fyrir 1. ianúar 1958, megi halda því áfram um tíu ára skeið frá 31. október 1960 að telja. Ákvæði samnings um og frásagnir af öðrum ráðstefn- um í Genf verða að þoka fyrir fréttum af afvopnunarráðstefn- unni í heimsblöðunum. Fundir sjóréttarráðstefnunn- ar eru hins vegar opnir almenn ingi svo að þar geta blaðamenn hlýtt á umræður að vild. — Fréttastofurnar stóru hafa sína fulltrúa þar jafnaðarlega, — brezku blöðin eru líka mjög passasöm og hafa gott samband við fulltrúana í brezku nefnd- inni, en um aðra er það helzt að segja, að þeir koma á vett- vang, þegar fulltrúi frá þeirra landi talar, en sinna annars öðr um ráðstefnum. Hingað til hefur heildarnefnd in setið að störfpm, en nú er skotið á stuttum allsherjar- fundi til að ákveða, hvenær eigi að ljúka störfum. Upphaf- lega átti ráðstefnunni að Ijúka 14. apríl, en það er löngu séð að ekkert verður úr því, og lýst hefur verið yfir af hálfu skrif- stofunnar, að húsakynni séu til reiðu fram að helginni eftir páska. Menn ákveða í skjmdi að reyna að liúka at.kvæða- greiðslum föstudaginn 22. apr- íl og þá er laugardagurinn á að hlauna, ef eitthvað dregst enn. Allsherjarfundi er slitið og skotið á fundi í heildarnefnd. Allir eða flestir vita hvað til stendur. Bandaríkjanefndin hefur verið miög ötul undan- farna daga að bræða saman siónarmið manna eða telia á sit.t. og nú hefur Kanada fall- izt á að levfa söguleg réttindi svonefnd að minnsta kosti eitt- hvað stiitt tímabil og Bretar hafa, óglaðir þó. fallist á þetta sjónarmið. svo að biargað verði þó sex mílna landhelgi. Frakk- ar eru hins vegar harðir og yið- skotaillir og yilia ekki vita af neinum afslætti, en kannski fiskveiðar og verndun lífrænna auðæfa hafsins, sem samþykkt- ur var í Genf vorið 1958, skulu _gilda, ef ágreiningur rís um framkvæmd einhverra atriða í tillögunni. Mr. Dean undirstrikar það margsinnis, að þessi tillaga sé málamiðlun og i henni felisfc miklar fórnir af hálfu ríkja, sem fiskað hafa á fjarlægum miðum, og strandríkja, sem sjálf vilja sitja að fiskinum við strönd sína. Tíu ára tími- bilinu verði ekki haggað, —■ þar komi engin frekarj mála- miðlun til greina. Strandríkin ljái ekki máls á því að hafa þaði tímabil lengra, og þjóðir þær0 sem stunda fiskveiðar á fjar- lægum miðum, megi ekki heyra á það minnzt að' hafa skemmri tírna til að laga sig eftir breytt- um aðstæðum. Strandríki ættu að geta fallist á tillöguna vegna þess, að þar er í fyrsta skipti sett í alþjóðalög mikilvægt grundvallaratriði um fiskveiði- lögsöguna. Það væri því ekki nema sanngjarnt, að strandrík- in, sem hagnast svo mjög á þessari nýju reglu, færu sér gætilega og reyndu að léttá byrðar þeirra, sem skaðast á reglunni. Mr. Dean lét falla nokkur orð í ræðu sinni. sem auglj ós- lega geta átt við ísland. Hann sagði: „Undantekning er þó ó- venjuleg aðstaða, þegar þjóð er •yfirgnæfandi háð fiskveiðum innan tólf mílna markanna, og eins og ég hef vikið að áður„ þarf ráðstefnan iað athuga slílc tilvik með samúð“. Mr. Ðrew aðalfulltrúi Bandá ríkjanna tók undir röksemdir Mr. Deans og ræddi sérlega landhelgina sjá|faj, taldi sex mílur meira en nægar hverju Framhald á 14. síðu. j

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.