Fréttablaðið - 23.04.2001, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 23.04.2001, Blaðsíða 4
FRÉTTABLAÐIÐ 23. apríl MÁNUPACUR SVONA ERUM VIÐ GOSÞAMBIÐ EYKST Mjólkurþambið minnkar um leið og gosneysla sækir á samkvæmt tölum um neyslu árin 1990 til 1999. Mjólkurneyslan fellur um 20 lítra á mann tíu árum en gosneysla eykst um nærri 40 lítra á mann. 1990 1205,6 1;( : . I 1995 1194,9 1999 1186.3 Heimild: Hagstofa Islands Neysla á mjólk og gosdrykkjum í litr- um á mann árin 1990, 1995 og 1999 SPRENGJULEIFUM SAFNAÐ israelska lögreglan rannsakar slysstað Israel Sj álfsmorðsárás í Tel Aviv kfar saba (ap) ísraelskur læknir lést og 39 særðust í sjálfsmorðsárás Palestínumanns í gærmorgun á strætisvagnabiðstöð í úthverfi Tel Aviv í ísrael. „Allir voru í uppnámi... ég sá bílstjórann liggja á blóði drif- inni götunni," sagði vitni að atburðin- um. Enginn hefur lýst ábyrgð á til- ræðinu á hendur sér en ríkisstjórn ísrael sakar stjórn Palestínumanna um að gera ekki nægilega mikið til að koma í veg fyrir slíkar árásir. Vonir um að samstarf ísraela og Palestínumanna um samstarf á sviði öryggisgæslu fóru heldur dvínandi í gær eftir atburðinn. fsraelar og Palestínumenn funduðu á laugar- dagskvöld um endurupptöku sam- starfsins sem legið hefur niðri í átök- unum sl. sjö mánuði. Að sögn Palest- ínumanna var einnig rætt um hugs- anlegar friðarviðræður. Danny Na- veh, aðstoðarráðherra í ríkisstjórn ísrael, sagði hins vegar í gær að við- ræðurnar hefðu eingöngu snúist um að binda enda á núverandi deiiur, ekki um friðarviðræður. ■ Bruni við Austurbrún Eldur í ísskáp ELDSVQÐi. Eldur kom upp í eldhúsi blokkaríbúðar á 4. hæð í Austurbrún 4, Reykjavík, á fimmta tímanum í gærdag. Að sögn varðstjóra lögregl- unnar í Reykjavík er talið að kviknað hafi út frá ísskáp en um minniháttar skemmdir er áö ræða. Slökkviliðið var sent á vettvang og gekk greiðlega að slökkva eldinn. ■ Smábátar: Undirskriftir gegn kvóta sjávarútvegur Smábátasjómenn á Norðurlandi hafa verið að safna und- irskriftum til að mótmæla gildistöku laga um kvóta á steinbít, ýsu og ufsa. Búist er við að listarnir verði fljót- lega afhentir stjórnvöldum. Mikil reiði ríkir víða á landsbyggðinni vegna þessara laga og m.a. hafa margar sveitarstjórnir lýst yfir and- stöðu sína við þau. Fyrir skömmu var sjávarútvegsráðherra afhentir undir- skriftalistar með nöfnum rúmlega 2 þúsund kjósenda á Vestfjörðum sem mótmæltu lögunum. Örn Pálsson framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda seg- ir að samkvæmt þessum lögum munu meðalveiðiheimildir 89 báta í svo- nefndu þakkerfi lækka úr 30 tonnum i 9 tonn. Þessutan munu dagafjöldi 219 báta sem hafa leyfi til að veiða í 23 daga á handfæri fækka í 21 dag. Hann segir að menn hafi gríðarlegar áhyggjur af þessu enda hagsmunir LÖNDUN Enn og aftur berjast smábátasjómenn og landsbyggð gegn nýjum kvótalögum, nú eru það Norðlendingar. fjölmargra byggðarlaga í húfi sem eiga allt undir afla smábáta. Búist er við að heitar umræður verði um mál- ið á alþingi. ■ ERLENT Genarannsóknir. Fyrstu niðurstöð- ur rannsóknar spænsks vísinda- manns benda til þess að tengsl séu á milli óvenjulegs afbrigðileika í gen- um og geðshræringar og fælni. Xa- vier Esteviil greindi frá þessu á fundi Erfðamengissamtakanna. Einnig virðist Estevill hafa komist á sporið um erfðafræðilegt samspil sjúkdómsorsaka. . Evrópusambandið. Fjármálaráð- herrar aðildarríkja Evrópusam- bandsins, (ESB) funduðu í Malmö í Svíþjóð um helgina. Þeir segja að væntanleg aðildarríki bandalagsins verði að koma efnahagslífi sínu á réttan kjöl áður en þeim verður veitt aðild. Yfirlýsingin er talin vera n.k. viðvörun til umsóknarríkja en talið er að bandalagið verði stækkað inn- an fárra ára. Umsjón með lyfj agj öf geðfatlaðra er vanrækt Mörg alvarleg aðfinnsluefni í skýrslu vinnuhóps um stuðningsþjónustu við geðfatlaða. velferðarþjónusta. Það er harður dóm- ur sem felldur er í skýrslu vinnuhóps um framkvæmd Stuðningsþjónustu Geðhjálpar. Framkvæmdastjóri Geð- hjálpar, Sveinn Magnússon, segir annarsstaðar hér í blaðinu að hann hafi þungar áhyggj- ur af þessu ástandi. Vinnuhópurinn var skipaður full- trúum frá Geð- hjálp, Félagsþjón- ustunni í Reykjavík og Svæðisskrif- stofu málefna fatl- aðra í Reykjavík. Meðal athuga- semda í skýrslu vinnuhöpsins segir: „Ákvæði skortir í samningunum um húsnæði og er það í mjög mismunandi ástandi. Aðeins sjö af þrjátíu íbúum í þjónustukjörnum Stuðningsþjónustunnar hafa eigin sal- ernis- og eldunaraðstöðu. Að meðaltali eru 34 fermetrar húsnæðis á hvern íbúa. Þetta ástand er óviðunandi. Gerð er m.a. athugasemd við að yfirstjórn daglegs starfs Stuðnings- þjónustunnar skuli ekki vera í hönd- um fagmenntaðs starfsmanns. Um- sjón með mikilvægum þáttum þjón- ustunnar, svo sem lyfjagjöf, hefur verið vanrækt. Ljóst er að eftirliti með þjónust- unni hefur verið ábótavant. Athuganir vinnuhópsins benda til að Stuðningsþjónusta Geðhjálpar Athuganir vinnuhópsins benda til að Stuðnings- þjónusta Geð- hjálpar hafi ekki veitt nema hluta þeirrar þjónustu sem greitt var fyrir. .—4— VINNUHÓPUR GEÐHJALPAR í janúar síðastliðinum stofnaði Geðhjálp í samstarfi við Félagsþjón- ustuna í Reykjavík og Svæðisskrif- stofu málefna fatlaðra í Reykjavík vinnuhóp vegna samninga þessara aðila um Stuðningsþjónustu Geð- hjálpar. Verkefni hópsins var að yfir- fara samninga með hliðsjón af lög- um, efndir þeirra og gera ítarlega greiningu á þörfum varðandi rétt- indi og skyldur. hafi ekki veitt nema hluta þeirrar þjónustu sem greitt var fyrir. Athuganir benda til að þörf íbúa sem eru í þjónustu Stuðningsþjón- í vinnuhópnum voru: Gunnhildur Bragadóttir, sjúkraliði, Halldór Kr. Júlíusson, sálfræðingur, Halldór Kolbeinssön, geðlæknir, Hrefna Haraldsdóttir, trúnaðarmaður fatlaðra, Sigríður Kristinsdóttir, sjúkraliði, Sigtryggur Jónsson, sálfræðingur, og Sveinn Magnússon, framkvæmdastjóri Geðhjálpar. ustu Geðhjálpar sé meiri en gengið er út frá í samningum. Vinnuhópurinn telur það hlutverk eignaraðilans, Geðhjálpar, að ákveða stjórnfyrirkomulag þeirrar þjónustu sem hann hefur með höndum." ■ VESTURGATA 17 OG 17a Það er í þessum húsum sem skjólstæðing- ar Geðhjálpar búa við hvað hrikalegastar aðstæður. Vesturgata 17 að ofan, Vesturgata 17a að neðan. Unnu verðlaun í kórakeppni Graduale Nobili í öðru sæti í keppni í Kalundborg í Danmörku. “Ég er geysilega stoltur,” segir Jón Stefánsson, kórstjóri. Opið í Austurveri frá 8:00 á morgnana til 2:00 eftir miðnætti C^Lyf&heilsa -T',;' ^ | | ,. . . , . ^ - < . . r . « - menning Graduale Nobili varð í 2. sæti í flokki kven- na- og barnakóra í keppni evrópskra æskukóra sem haldin var í Kalunborg í gær. Níu kórar kepptu í flokknum og varð ung- verskur kór í fyrsta sæti. Graduale Nobili var stofn- aður í haust sem leið og er úrvalskór eldri félaga í Gradualekór Langholts- kirkju. Kórinn fékk 22,8 stig af 25 mögulegum og aðeins munaði hálfu stigi á honum og vinningskórn- um. „Ég er geysilega stolt- ur af stelpunum,“ segir Jón Stefánsson stjórnandi kórsins. „Þær voru alveg frábærar." Verðlaunaféð nemur um 170.000 kr. ■ STOLTUR STJÓRNANDI Jón Stefánsson er stjómandi Graduale Nobili sem hélt fyrstu tónleika sína 7. apríl við góðar undirtektir áheyrenda og gagnrýnenda. Kórinn veitti ungverskum unglingakór sem stofnaður var á 7. áratugnum harða samkeppni í keppni evrópskra æskukóra sem haldin var f Danmörku i gær.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.