Fréttablaðið - 23.04.2001, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 23.04.2001, Blaðsíða 2
KJÖRKASSINN ÞÓRÐUR FRIÐJÓNSSON Netverjar vilja ekki leggja hann niður Á að leggja Þjóðhagsstofnun niður? Niðurstöður gærdagsins á wvw.vísir.is Kannski Spurning dagsins í dag: Á að setja lög á sjómannaverkfall? 61% Farðu inn á vísi.is og segðu þína skoðun msBUM; DÝRAHRÆ BRENND Yfir 1400 tilfelli gin-og klaufaveiki hafa ver- ið staðfest í Bretlandi Gin og klaufaveiki: Dýrin grafin en ekki brennd london Yfirvöld í Cumbria-héraði í norðausturhluta Englands afréðu í gær að grafa dýrahræ, sem slátrað hafði verið vegna ótta gin- og klaufa- veikifaraldursins. Hræjunum hafði verið safnað í haug til brennslu en ótti hefur vaknað í Bretlandi að reyk- urinn sé heilsuspillandi. í grein bres- ka dagblaðsins The Indipendent í gær segir að reykurinn frá brennslu hræjanna sé eitraðri en frá verstu verksmiðjur landsins. Talsmaður landbúnaðarráðuneytisins sagði að ekki yrðu brennd hræ fyrr en ríkis- stjórnin hefði fulla vissu að öllu væri óhætt. ■ I ERLENT I Tveir geimfarar á geimskutlunni Endavour fengu sér geimgöngu í gær, sunnudag, og komu fyrir 17 metra háum róbót við geimstöðina Alpha. Róbótinn er framlag Kanada- manna til alþjóðlegu geimstöðvar- innar Alpha og mun verða notaður til uppbyggingar stöðvarinnar. Alpha hefur verið í smíðum síðan árið 1998 og er áætlað að verkinu ljúki árið 2006. Rólegheit einkenndu 75. afmælis- dag Elísabetar Englandsdrottn- ingar á laugardag. Hún kaus að verja deginum með eiginmanni sín- um, Filip prins, og höfðu þau hjón hægt um sig í Windsorkastala. Hefð er fyrir því í Bretlandi að gera lítið úr afmælisdegi drottningar en al- menningur heldur upp á daginn fyrsta laugardag í júní. FRÉTTABLAÐIÐ 25. apríl MÁNUPACUR Valfrjáls samræmd próf í grunnskólum hefjast í dag: Langflestir nemend- ur þreyta prófin If-Y-rM—’BBMa. menntamál Samræmd próf 10. bekkj- ar í grunnskólum hefjast í dag. Próf- in eru fjögur, í dag er prófað í ís- lensku, á morgun í ensku, á miðviku- daginn í dönsku og á föstudaginn í stærðfræði. f ár er valfrjálst að taka prófin í fyrsta sinn. Hægt er að velja að taka öll prófin, ekkert þeirra og allt þar á milli. Framhaldsskólar munu eftir sem áður taka mið af einkunnum á samræmdum prófum við inntöku nemenda. , Á næsta ári fjölgar samræmdu prófunum um tvö en þá verður einnig prófað í raungreinum og samfélags- greinum og getur þá val grunnskóla- nemenda á greinum sem þeir taka samræmd próf í byggt á því í hvers konar nám þeir stefna að loknum grunnskóla. Að sögn Sigurgríms Skúlasonar sviðsstjóra samræmdra prófa hjá Námsmatsstofnun hafa frá 92,7 til 96,3% nemenda í 10. bekk skráð sig í samræmd próf, eftir greinum, en við- búið er að nokkuð færri þreyti prófið. í fyrra þreyttu 94,7 til 96% nem- enda próf. Ástæðan fyrir að nemend- ur þreyttu ekki próf voru að hægt var að fá undanþágu frá próftöku í sér- stökum tilvikum, veikindi og fjarvist- ir án skýringa. ■ UNDIRBÚNINGUR UNDIR PRÓF Guðmundyr Sighvatsson skólastjóri Aust- urbæjarsköla var i óða önn að gera klárt fyrir prófin seinni partinn í gær. Prófin eru geymd í innsigluðum kössum sem opnaðir eru undir eftirliti skömmu áður en hvert próf hefst. ■CaMM ÍSLENSKT GRÆNMETI I RÆKTUN í dag er nánast ómögulegt að selja erlent grænmeti hér á landi - eftir að tollar voru stórhækkaðir. Þetta á sérstaklega við um tómata. Innflutningur á tómötum stöðvast í dag Með tollabreytingu í dag tekur ríkið 240 krónur í sinn hlut af verði hvers kílós af erlendum tómötum. Tilbúin verðmyndun fyrir innlenda framleiðslu, segir framkvæmdastjóri Bónus. neytendur Með því að fjórfalda tolla á tómata á rúmum mánuði kemur ríkið í veg fyrir að innflutningur borgi sig. í dag hækkar verðtollur úr 22,5 í 30 prósent og magntollur fer úr 148 krónum í 198 krónur á kílóið. Ljóst er að erlendir tómatar munu ekki geta veitt íslensku framleiðslunni sam- keppni, en hún kemur í búðir í dag. Hlutur ríkisins hefur verið hækk- aður kerfisbundið að undanförnu með skörpum tollabreytingum. Sú krónutala sem neytendur þurfa að greiða til ríkisins fyrir hvert tómat- kíló hefur aukist jafn og þétt frá miðjum mars. Innkaupsverð ákveð- ins heildsala á einu kílói af tómötum eftir 16. mars var um 60 krónur fyrir utan tolla, en eftir að 7,5 prósent verðtolli og 50 krónu magntolli hafði verið bætt við var neytandinn að greiða 55 krónur í ríkiskassann af hverju keyptu kílói af tómötum. Við bætist svo heildsölu- -og smásöluá- lagning sem er mismunandi eftir verslunum auk 14% virðisaukaskatts. Eftir 2. apríl hækkaði verðtollur í 15 % og magntollur í 99 krónur á kíló- ið. Þá varð neytandinn að greiða rík- inu um 110 krónur fyrir hvert kíló auk virðisaukaskatts. Eftir 16. apríl hækkaði svo verðtollur í 22,5 prósent og magntollur í 148 krónur sem þýddi að ríkið tók þá 165 krónur af hverju tómatkflói auk virðisaukaskatts. Með tollabreytingunni í dag taka íslenskir tómatar að mestu leyti við af þeim er- lendu, segja innflytjendur. Verðtoll- urinn hækkar í 30% og á hvert kíló verða lagðar 198 krónur. Miðað við fyrri verð má því ætla að neytendur GUÐMUNDUR MARTEINSSON iBÓNUS „Tilbúin verðmyndun" fyrir Islenska framleiðslu þyrftu að greiða ríkinu um það bil 240 krónur í tolla fyrir hvert kíló af inn- fluttum tómötum, en eins og áður sagði kemur ekki til þessa. Krónutal- an sem ríkið fær frá neytendum fyr- ir innflutta tómata hefur því hækkað um 400 prósent síðan 16. mars. Verð á grænni papriku hefur ein- nig hækkað umtalsvert á sama tíma- bili. Að sögn Guðmundar Marteins- sonar framkvæmdastjóra Bónuss skýrist sú hækkun þó aðeins að hluta til af tollahækkunum. Ástæðan sé einnig sú að innflytjendur urðu um miðjan mars sl. að skipta úr spænskri í hollenska papriku sem er umtals- vert dýrari. Verðtollur á papriku lækkar í dag úr 30% í 15% en við bætist 199 króna magntollur á hvert kíló sem ekki var áður. Guðmundur segir að almennt sé um „tilbúna verð- myndun" að ræða sem ríkið noti ís- lenskri framleiðslu til hagsbóta. mattinfrettabladid.is Islensk Auðlind L æ k j a r t o r g i Hafnarstræti 20. 2h 101 Reykjavík 561-4000 www.audlind.is íslensk Auðlind óskar landsmönnum og starfsmönnum Fréttablaðsins til hamingju með útgáfuna. < Megi framtíð beggja vera björt. Fylgist með auglýsingum, frá okkur, hér á mánudögum. Gengið 6% lægra en í mars Launafólk situr uppi með verðbólguna, segir Halldór Björnsson, varaforseti ASI Fyrirtækjasala i Fasteignasala 1 Leigumiðlun I Lögfræðiþjónusta efnahagsmál Gengi íslensku krónunn- ar hefur lækkað um 6 prósent á ein- um mánuði. Veiking hennar hefur aukið á verðbólguna vegna hærra verðs á innfluttum vörum. Talið er að ekki séu forsendur fyrir frekari gengis- lækkun en óróinn nú skapi óvissu. Verðstöðugleiki var ein af forsendun- um sem síðustu kjarasamningar byg- gðu á. Halldór Björnsson, varaforseti ASÍ segist hafa áhyggjur af þessari þróun. „Það er mjög slæmt mál að verðbólgan skuli fara af stað því hún var á niðurleið þegar kjarasamningar voru endurskoðaðii' í febrúar s.l. 'én er nú á uppleið aftur," segir Halldór. Hann bendir á að launafólk situr uppi með verðbólg- una bótalaust í heilt ár þangað til ákvæði kjara- samninganna er endur- skoðað í febrúar á næsta ári. Aðspurður sagði hann ASÍ fylgjast með þróun mála en ekki hefur verið rætt innan hreyfingarinn- ar hvort einhverra aðgerða verði krafist. „Ég tek undir áhyggjúr manna um lækkun krón- unnar og kemur fram í þessari verðlagsbólu, en ég tel algjörlega ástæðulaust að setja það í það samhengi að kjarasamning- HALLDÓR BJÖRNSSON Verðbólga var á niður- leið við gerð kjara- samninga í tebrúar en er aftur á uppleið ar kynnu að vera í hættu síðar vegna þess. Mér finnst það vera ótíma- bært,“ sagði Ari Edwald, framkvæmdarstjóri SA, þegar Fréttablaðið spurði hann álits á þróun verð- lags síðustu vikurnar. Ari sagði það skipta miklu máli að ríkisstjórnin beitti hagsstjórninni í því skyni að viðhalda verðstöðug- leika og Seðlabankinn ynni samkvæmt kynntum mark- miðum um verðbólgu, sem miði að því að hún verði innan sömu marka og er viðskipta- löndum okkar. ■

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.