Fréttablaðið - 23.04.2001, Blaðsíða 6
FRETTABLAÐIÐ
23. apríl MÁNUOACUR
VIÐ SPYRJUM
Matthildi Hólmbergsdóttur
Ertu sátt við þá ráðstöfun stjórnvalda að
setja magntolla á innflutt grænmeti?
Nei, ég er ekki sátt við það að verið sé að
setja tolla á innflutning á erlendu grænmeti
til þess að vernda innlenda framleiðendur
fyrir samkeppni. Það verður til þess að
hækka vöruverðið til okkar neytenda og það
vil ég alls ekki.
Matthildur Hólmbergsdóttir er að vestan. Hún er
uppalin á Suðureyri við Súgandafjörð en flutti suð-
ur fyrir 17 árum og býr í Vogunum i Reykjavík.
Hafnarfj arð arb ær
Verkfall boðað
hafnawfjörðuw Verkalýðsfélagið Hlíf í
Hafnarfirði hefur boðað til vinnu-
stöðvunar 30. apríl n.k. hafi ekki
samningar tekist vegna félagsmanna
sem vinna hjá Hafnarfjaðarbæ. Sig-
urður T. Sigurðsson formaður Hlífar
segir að krafist sé keimlíkra launa-
hækkana og Starfsgreinasambandið
samdi um við Launanefnd sveitarfé-
laga fyrir skömmu. Fundað hefur
verið í þessari deilu hjá ríkisátta-
semjara að undanförnu og um helg-
ina var ekki útilokað að samningar
mundu takast áður en boðað verkfall
kæmi til framkvæmda. ■
Dönsk rannsókn:
Læknar eru
lélegir sjúklingar
danmörk Læknar eru menntaðir til að
hjálpa veiku fólki en ráða ekki vel við
að veikjast sjálfir. Læknar leyna
sjúkdómum til að halda ímyndinni
gagnvart sjúklingum sínum og öðr-
um læknum. Þetta er meðal niður-
staðna rannsóknar sem danskur
læknir, Bodil Nielsen, hefur fengið út
úr sex ára rannsókn sem nefnist
„Læknirinn sem sjúklingur“.
„Að læknirinn geti sjálfur veikst
og þurft á læknisaðstoð að halda er
nokkuð sem við tölum sjaldan um og
tökum ekki alvarlega," segir Bodil, í
samtali við fréttaritara CNN í Dan-
mörku. ■
Eldur á veitingastað
Kviknaði
í feiti
bruni Engan sakaði þegar eldur kom
upp í veitingahúsi við Laugalæk um
tólfleytið í gær þegar kviknaði í potti
með feiti og læsti eldurinn sig í viftu
sem var þar fyrir ofan.
Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu
réði niðurlögum eldsins en reykræs-
ta þurfti síðan húsnæðið og urðu tölu-
verðar skemmdir. Veitingahúsið var
opið þegar eldurinn kom upp. ■
6
Foreldrar varaðir við
notkun blautservíetta:
Eiturefni
valda skaða
danmörk Dönsk umhverfissamtök
vara foreldra ungbarna við notkun
blautservíetta. Að minnsta kosti tvær
algengar tegundir innihalda eiturefn-
ið iodopropynyl butylcarbamate sem
valdið getur ofnæmi og hugsanlega
lifrarskaða. Efnið má ekki komast í
snertingu við varir og er m.a. notað í
plöntueitur.
Mælt er með að foreldrar noti
vatn, þvottapoka og hugsanlega sápu
í stað blautservíetta, að blautserví-
ettur séu aldrei notaðar í andlit barna
og þær séu eingöngu notaðar þegar
vatn og þvottapoki er ekki tiltækt. ■
Sj álfseignarstofnanir
munu ráða sparisjóðunum
Eignarhlutur stofnfjáreigenda lítill. Þorri hlutaQár án eigenda. Markmiðið að gera hlutabréf eftirsóknarverð.
Sjálfseignarstofnarirnar verða að minnka eignarhlut sinn með tímanum'
Árni Þór vill samstarf í borgarstjórn
Aðild VG að R-lista
mun skýrast í maí
BORCARMÁL Það má jafnvel bú-
ast við því að Vinstri grænir
muni taka afstöðu til þess í
næsta mánuði hvort þeir
verða með R-listanum í
næstu borgarstjórnarkosn-
ingum að ári eða ekki. f það
minnsta telur Árni Þór Sig-
urðsson varaborgarfulltrúi
og formaður skipulags- og
byggingarnefndar að það fari
að styttast í ákvörðun þeirra.
Sjálfur telur hann eðlilegt að
Vinstri grænir reyni að ná
STEINGRÍMUR
J. SIGFÚSSON
Framtíð R-listans
er mál á lands-
vísu fyrir VG
samkomulagi við R-listann og
segist ekki sjá neitt sem eigi
að geta komið í veg fyrir það.
Skiptar skoðanir eru innan
félags Vinstri grænna í borg-
inni til framboösmála með R-
listanum. Sterk staða þeirra í
skoðanakönnunum hefur ýtt
undir skoðun margra félags-
manna að þeir eigi að bjóða
fram undir eigin nafni í kosn-
ingunum næsta vor. Árni Þór
segir að þótt ákvörðun um
þetta sé málefni Reykjavíkur-
Arni þór sigurðsson
Sér ekkert sem komi í veg fyrir aðild
að R-lista
félagsins þá skiptir það einnig máli á
landsvísu. Af þeim sökum sé þetta
ekki einvörðungu mál félagsins í
borginni. Hann segist því reikna með
að ákvörðun um framhaldið muni þvi
koma inn á borð Steingríms J. Sigfús-
sonar formanns Vinstri grænna og
forystu þeirra á landsvísu. ■
frettaskyring
Ef frumvarp sem nú liggur fyrir
Alþingi verður að lögum er stjórn-
endum sparisjóða heimilt að breyta
rekstri þeirra í hlutafélag. Mikill
meirihluti hlutafjársins mun renna í
sjálfseignastofnanir, sem stjórnend-
ur sparisjóðanna ráða yfir þrátt fyr-
ir að vera með lítið fé bundið í
rekstrinum. Nauðsynlegt er fyrir
sparisjóðina að finna þessu fé eig-
endur ef þeir ætla að nýta sér hluta-
félagaformið til fulls.
Nokkrir hafa orðið til þess að
gagnrýna þá leið sem felst í frum-
varpinu. í dag fara stofnfjáreigend-
ur með æðsta vald í málefnum
sparisjóðanna og koma fram sem
eigendur þeirra í krafti stofnfjár
sem þeir hafa lagt inn í rekstuiúnn.
Ef sparisjóðir hlutafélagavæðast fá
stofnfjáreigendur hlutabréf sem
samsvarar núverandi verðmæti
eignar þeirra í sparisjóðunum. Það
hlutafé, sem ekki rennur til þeirra,
fer í sjálfseignarstofnun en stofn-
fjáreigendur munu stjórna henni í
krafti stofnfjár síns.
í samtali við Fréttablaðið sagði
Valgerður Sverrisdóttir, viðskipta-
ráðherra, að efasemdir hefðu verið
uppi í sambandi við sjálfseignar-
stofnanirnar, sem munu ráða yfir
miklum meirihluta hlutafjársins
VALGERÐUR SVERRISDÓTTIR
„[ einhverjum tilfellum gætu það verið fáir
aðilar sem ráða þarna yfir miklu fjármagni"
verði rekstrarformi sparisjóðanna
breytt. „f einhverjum tilfellum
gætu það verið fáir aðilar sem ráða
þarna yfir miklu fjármagni,“ sagði
Valgerður.
Pétur Blöndal sagði við fyrstu
umræðu á Alþingi að hann hefði
miklar efasemdir um þá leið sem
valin er í frumvarpinu. Gagnrýni
hans beinist fyrst og fremst að eign-
arhaldi sjálfseignarstofnana, sem
hann segir að muni ráða yfir miklu
fjármagni sem engin eignaraðild
væri að. í gegnum þessar stofnanir
yrðu völd stofnfjáreigenda mikil í
krafti lítils eignarhlutar. „Þetta þýð-
ir að fólk sem ekki hefur beina hags-
muni, ekki prívathagsmuni, er að
ráðskast með 90% af 15-20 milljörð-
um,“ segir Pétur.
Ef frumvarpið vei’ður að lögum
munu stofnfjáreigendur fara áfram
með tögl og haldir í stjórnun spari-
sjóðanna. Menn velta því fyrir sér
hver þróunin verður með hlut sjálfs-
eignarstofnananna og hvort skýr
eignarréttur myndist með tímanum.
Ljóst er að með aukningu hlutafjár
mun hlutur sjálfseignarstofnananna
minnka. Einnig er stofnununum
heimilt að selja eignarhlut sinn og
draga sig úr rekstrinum.
Guðmundur Hauksson, spari-
GUÐMUNDUR HAUKSSON
SPRON mun klárlega skoða möguleika
hlutafélagaformsins.
sjóðsstjóri í SPRON, átti sæti í
nefnd viðskiptai’áðherra sem samdi
frumvarpsdrögin. Hann telur nauð-
synlegt að ef breyta á fyrirtæki í
hlutafélag og skrá það á verðbréfa-
þingi verði að gera það af fullri al-
vöru. „Ef sparisjóðir ákveða að
breyta sér í hlutafélag, skrá það á
verðbréfaþing og skapa gi’undvöll
fyrir mikil viðskipti með hlutabréf-
in þá þarf þessi sjálfseignarstofnun
að selja frá sér hlutabréf," segir
Guðmundur. Að hans sögn er líklegt
að stofnanirnar selji, taki peningana
og leggi í viðkomandi sparisjóð. Að-
spurður segir hann Sparisjóð
Reykjavíkur klárlega einn þeirra
sparisjóða sem munu skoða mjög
vandlega þann möguleika sem
hlutafélagaformið getur gefið þeim.
Ekki er talið líklegt að virkur
markaður myndist með bréf í spari-
sjóðunum ef vægi sjálfseignar-
stofnana í stjórnun þeirra er mikið.
Guðmundur bendir á að það sé ekk-
Eigendur sex stærstu sparisjóðanna ef þeir hlutafélagavæðast
Áætlað markaðsvirði* Eignarhlutur stofnfjáreigenda Eignarhlutur sjálfseignarstofnunar Stofnfjáreigendur fjöldi meðaleign
Sp. Reykjavíkur og nágrennis 3.295.800 589.948 (17,9%) 2.705.852 (82,1%) 908 650
Sp. Hafnarfjarðar 3.207.600 9.623 (0,3%) 3.197.977 (99,7%) 45 214
Sp. vélstjóra 2.507.400 45.133 (1,8%) 2.462.267 (98,2%) 533 85
Sp. f Keflavík 1.726.200 624.884 (36,2%) 1.101.316 (63,8%) 510 1.226
Sp. Kópavogs 1.179.000 753.381 (63,9%) 425.619 (36,1%) 610 1.235
Sp. Mýrasýslu** 1.234.800 4.939 (0,4%) 1.229.861 (99,6%) 2 2.470
Allar upphæðir f þús. króna. * Miðað er við hlutfall markaðsvirðis og eigin fjár viðskiptabankanna (V/E hlutfall) en það þó haft lægra eða 1,8 ** Sveitafélög erua
einu stofnfjáreigendur Sparisjóðs Mýrasýslu
Skráning stendur
nú yfir í
Sumarbúðirnar
Ævintýraland
Av%. ’’ UM
Bæklingur sumarbúðanna með ítarlegum upplýsingum var gefin út og dreift
í gegnum flesta skóla á landinu.
0 Sumarbúðirnar eru algjörlega óháðar og leggja mikla áherslu á að ýta undir
sjálfstraustið hjá börnunum og efla sjálfstæða og skapandi hugsun.
5 Fagfólk ser um námskeið í kvikmyndagerð, leiklist, myndlist, grímugerð, tónlist og íþróttum.
Afþreyingarefnin eru óteljandi, börnin hafa alltaf val og fjölbreytni er mikil.
Sundlaug er á staðnum ásamt íþróttahúsi -
og er aðstaða öll mjög góð jafnt úti sem inni. Ævintyrwlnnd
Listamenn í ölgerðarhús
Egils við Njálsgötu
Unnið er að málinu hjá Borgarskipulagi. Borgin hefur einnig eignast hús á baklóð,
Grettisgötumegin, sem verið er að skipuleggja í tengslum við hugmyndina
miðborgin Svo getur fai’ið að gamla
Egils ölverksmiðjan við Njálsgötu
vei’ði breytt í aðstöðu fyrir lista-
menn. Engin starfsemi er í þessu
húsnæði sem borgin keypti á sínum
tíma. Þá eru einnig uppi hugmyndir
að breyta hluta húsnæðisins í íbúðir.
Þetta er meðal þess sem verið er að
huga að í lengslum við vinnu við gerð
deiliskipulags fyrir miðborgina hjá
borgarskipulagi í samræmi við sam-
þykkta þróunaráætlun um verndun
og uppbyggingu miðbæjarins.
í þeim þreifingum sem fram hafa
farið um aðkomu listamanna að
framtíðarnýtingu á aðalhluta verk-
smiðjuhúsnæðisns hefur verið geng-
ið út frá því að þeir kaupi þessa að-
stöðu af borginni fremur en að boi’g-
in fari út í einhvern rekstur á hús-
næðinu. Engar ákvarðanir hafa þó
enn vei’ið teknar í þessum efnum
enda er fi’amtíðarnýting húsnæðisins
enn á hugmyndastigi. Þá liggur ekki
fyrir hvað þetta muni kosta né heldur
hvaða hópar listamanna muni hafa
þar vinnuaðstöðu. Innan borgai’kerf-
isins er hinsvegar mikill á hugi á
þessu máli, enda talið að þaö mundi
hleypa nýju og fersku lít'i í þeita