Fréttablaðið - 23.04.2001, Blaðsíða 11
MÁNUPAGUR 23. april
FRÉTTABLAÐIÐ
11
Húseigendur vildu styrk:
Bærinn vill
ekki borga
garðabær Eigendur hússins að Lyng-
móum 2 í Garðabæ, hafa leitað til
bæjaryfirvalda í Garðabæ og óskað
þess að bæjarsjóður greiði rúmar 600
þúsund krónur vegna lagfæringa eft-
ir að svalahandrið féll af einum svöl-
um hússins.
Nauðsynlegar lagféhiúngar kost-
uðu 663 þúsund krónur og hefur bæj-
arráð hafnað óskum íbúanna.
í erindi húseigendanna er getið
um að heildarkostnaður vegna við-
gerða hússins sá langtum hærri - eða
2,5 milljónir króna á hverja íbúð
hússins. ■
LYNGMÓAR 2 í GARÐABÆ HÚSIÐ ÞAR SEM SVALAHINDRIÐIÐ FÉLL
Húseigendurnir leituðu til bæjarins í von um styrk - en var hafnað.
Danskt sjúkrahús flytur út líffæri í trássi við lög:
Danir græða gnótt
á hornhimnum
líffæri Líffærabanki á sjúkrahúsi Ár-
ósa í Danmörku græðir á útflutningi
danskra líffæra á alþjóðlegan mark-
að. Viðskiptin eiga sér stað þrátt fyr-
ir að bannað sé með dönskum lögum
að hagnast af líffærasölu.
í fyrra dreifði líffærabankinn í
Árósum um 200 hornhimnum til
sjúkrahúsa utan Danmerkur og var
verðið á hverri þeirra 1000 dkr., um
11 þús. ísl. kr., hærra en dönsk
sjúkrahús greiddu fyrir himnurnar.
Hornhimna kostar 4000 dkr. á danska
markaðnum en líffærabankinn fær
5000 dkr. fyrir hana á alþjóðlegum
markaði. Niels Ehlers forstöðumaður
bankans telur að gróðinn á ári á sölu
hornhimna úr landi nemi um 200.000
dkr.
Dönsk löggjöf kveður á um að
söluverð líffæris megi ekki vera
hærri upphæð en sc-m neinur kostn-
aði við geymslu, eftirlit og dreifingu
en Ijóst er að ekki er farið að þessum
lögum á sjúkrahúsinu í Árósum. Heil-
brigðisyfirvöld í Árósum hafa farið
fram á skriflega greinargerð um mál-
ið frá stjórn Árósasjúkrahússins. ■
ISLENSKIR NYBUAR
,,Hef sótt um ótal mörg
störf en alltaf verið hafnað“
Salah Karim er 31 árs Kúrdi sem hefur búið á Islandi síðan 1996. Hann er menntaður tæknifræðingur
en hefur ekki fengið starf hér á landi sem tengist menntuninni
nýbúar Fljótlega eftir að Salah Karim
kom til Island sótti hann um inn-
göngu í Tæknifræðingafélag íslands.
Hann fékk sent félagskírteinið sköm-
mu síðar. Síðan þá eru liðin nokkur ár
og enn er Salah að vinna á sama stað
og hann byrjaði, Kassagerðinni.
„Ég hef sótt um ótal störf en alltaf
verið hafnað," segir Salah. „Auðvitað
er það mjög erfitt að fá alltaf neitun
en ég er eigi að síður viss um að þetta
mun ganga að lokum.“ Salah er mjög
látlaus og rólegur þegar hann segir
sögu sína. Ekki gætir beiskju hjá hon-
um þrátt fyrir að svo erfiðlega gangi
að finna vinnu og honum sýnist
reyndar að „íslendingar geti skipt
um vinnu einu sinni í mánuði."
...^... Salah segir að
honum hafi oft
„Stundum hefur verið tekið mjög
verið sagt við ve] þjá þeim fyrir-
mig að ég eigi tækjum sem hann
75°/o líkur á starf- hefur sótt um
inu sem ég er að vinnu hjá. „Stund-
sækja um en á um hefur verið
endanum hef ég sagt við mig að ég
ekki fengið það." eigi 75% líkur á
starfinu sem ég er
að sækja um en á
endanum hef ég ekki fengið það.“
Aðspurður hvort að hann telji að
hann fái ekki vinnu vegna þess að
hann er nýbúi og talar ekki lýta-
lausa íslensku segir Salah að sú
skýring sem vinnuveitendur gefi
honum ávallt sé sú að hann hafi
enga reynslu í faginu, þeir hafi
margir sagt honum að þeir hafi
áður verið með útlendinga í vinnu
hjá sér, sum fyrirtæki krefjist
reyndar þekkingu á Norðurlanda-
málum vegna samstarfs við fyrir-
tæki þar í landi.
Aðrir benda honum á að bæta við
sig námi í háskólum hér á landi. „Ég
var í tveggja mánaða fríi í vinnunni í
vetur og fór á tölvunámskeið," segir
Salah sem segist vissulega hafa
áhyggjur af því að hann gleymi ein-
hverju því sem hann lærði í háskólan-
um. „Ég held samt í vonina um að
þetta muni ganga að lokum, að mér
verði gefið tækifæri, þannig var
þetta hjá bróður mínum, sem einnig
er tæknifræðingur, hann kom hingað
á undan mér og fékk eftir margra ára
leit vinnu á Orkustofnun." Salah fet-
aði nefnilega í fótspor bróður síns á
sínum tíma þegar hann flutti til ís-
lands. Flúði er kannski réttara því
ekki á hann afturkvæmt á heimaslóð-
ir sínar sem eru í þeim hluta Kúrdist-
an sem lýtur stjórn íraka.
SALAH KARIM
Hann heldur I þá von að fái að lokum starf
þar sem menntunin nýtist. Bróðir hans
kom hingað nokkru á undan honum og
eftir nokkurn tíma fékk hann starf.
Á síðasta ári kom eiginkona hans
svo til landsins, hún er menntaður
enskukennari en vinnur eins og
stendur við hlið eiginmanns síns, í
Kassagerðinni.
sigridur@frettabladid.is
Kóreumenn stefna Islend-
ingum fyrir meiðyrði
Þeir segja Heilsuverslun Islands ekki aðeins hafa nýtt kóreskt eðalginseng -
heldur einnig oflofað kínverkst ginseng. Löngum hefur ágæti þessarar
jurtar valdið deilum hér á landi - nú fer mál í fyrsta sinn fyrir dóm
dómsmAl Hrafnkell Ásgeirsson
hæstaréttarlögmaður hefur stefnt
forráðamönnum Heilsuverslunar ís-
lands til að fá ummæli dæmd dauð
og ómerk. Það er að ósk kóreska fyr-
irtækisins, Korea Ginseng Corp.,
sem Hrafnkell stefnir. Ástæða máls-
ins er að í auglýsingu, sem birtist í
Morgunblaðinu 11. febrúar, kom eft-
irfarandi fram:
í Kóreu er notuð svokölluð Nin-
tensivei ræktun sem þýðir að jurtin
vex f 4-6 ár til að ná hæstu gæðum
áður en hún er tekin og unnin. Þá
líða önnur 2-3 ár áður en nýjum
fræjum er sáð en biðtíminn stafar af
hreinsun jarðvegsins sem hefur
skaðast af völdum eiturefna sem
ginsengrótin gefur frá sér. Hins
vegar er ekki nóg að aðeins líði
nokkur ár til þess að lífrænn jarð-
vegur öðlist örverufræðilegt jafn-
vægi aftur. í Kóreu er jarðvegurinn
því oft á tíðum bættur með kemísk-
um efnum, bæði skordýrareitri og
tilbúnum áburði þar sem örveru-
fræðilegt jafnvægi er ekki til staðar
verður ginsengið mun viðkvæmara
fyrir skaða af völdum skordýra og
sveppa og kallar það á enn frekari
notkun skordýraeiturs.
Þetta segja Kóreumenn vera örg-
ustu öfugmæli og krefjast þess að
þessi ummæli verði dæmd dauð og
ómerk. Þetta er reyndar ekki allt.
Kóreska fyrirtækið vill einnig að
dæmd verði dauð
og ómerk orð í
sömu auglýsingu
þar sem segir: Mun-
urinn er hins vegar
sá að í Kína notum
alls engan áburð og því engin köfn-
unarefni, í flestum tilfellum ekkert
skordýraeitur en ef þurfa þykir
skordýraeitur, þá í algjöru lágmarki.
Kóreumenn telja sig vita betur
og vilja þess vegna að hvoru tveggja
verði dæmt dautt ómerkt - hrakyrð-
in sem þeir segja vera viðhöfð um
þeirra vöru og oflof sem þeir segja
vera um samkeppnisvöru frá Kína.
Auk ómerkingarinnar vilja þeir
fá málskostnað greiddan svo og 250
UMDEILD HOLLUSTA
Langvinnar deilur um gæði kóresks og kín-
versks ginsengs eru nú komnar til dóm-
stóla að frumkvæði kóresks fyrirtækis.
þúsund krónur til að standa straum
af kostnaði við birtingu dómsins í
fjölmiðlum.
-sme@frettabladid.is
Demantar í Kongó:
Umdeildum
samningi rift
KINSHASA (AP) Ríkisstjórn
Kongó tilkynnti um helgina að hún
hefði ógilt einokunarsamning um
demantaútflutning sem fyrrverandi
forseti, Laurent Kabila, gerði í júlí á
síðasta ári. Samingur Kabila, sem
myrtur var í janúar, við fyrirtækið er
einn sá umdeildasti sem hann gerði í
embættistíð sinni. Kongó, er þriðji
stærsti demantaútflytjandi heims.
Talið er að fyrirtækið, sem er ísra-
elskt, hafi fallist á að greiða ríkis-
stjórn Kabila andvirði tæplega 2
milljarða ísl. kr. fyrir samninginn.
Samkvæmt skýrslu SÞ var samning-
urinn „stórslys" fyrir demantaversl-
un í Kongó. ■
Heimsókn fyrrverandi
forseta Tævan til Japans:
Kínverjar
reittir til reiði
Lee Teng-hui, fyrrverandi forseti
Tævan, kom til Japans í gærkvöld að
staðartíma. Hætta er á að heimsókn-
in muni hafa alvarleg áhrif á tengsl
Japan og Kína en kínversk stjórnvöld
hafa gagnrýnt japönsk harðlega fyrir
að veita Lee vegabréfsáritun. Þau
saka Lee um að hafa staðið í vegi
gegn því markmiði að sameina Tæv-
an Kína. Lee leitar sér lækninga í
Japan. Ríkisstjórn Japan klofnaði í
afstöðu sinni til leyfisveitingarinnar
vegna andstöðu Kínverja. ■
IlögreglufréttirI
Andrésar andar leikunum var slit-
ið á laugardag og að sögn lög-
reglunnar á Akureyri urðu engin
óhöpp á fólki og fóru leikarnir í alla
staði vel fram. Annars var helgin ró-
leg hjá lögreglunni og að sögn eins
lögreglumanns þótti honum líklegt
að fólk væri enn að jafna sig eftir
páskahelgina.
Lögreglan á Eskifirði rannsakar
lát tvítugrar stúlku sem fannst
um miðjan dag síðastliðinn miðviku-
dag í einbýlishúsi á Neskaupstað.
Dánarorsök er talin lyfjaofneysla.
Ekki fékkst staðfest um hvaða lyf
hafi verið að ræða en enn er beðið
réttarfræðilegra rannsókna.
Að sögn lögreglunnar á Eskifirði
er málið vel á veg komið og að ekkert
bendi til þess að stúlkan hafi fengið
lyfið með ólöglegum hætti á sjúkra-
húsinu þar sem hún starfaði.
Bensínsprengju eða Molotov-kok-
teil var varpað á Sendiráð
Bandaríkjanna við Laufásveg að-
faranótt laugardagsins. Lögreglan
handtók tvo menn á fimmta tíman-
um sem grunaðir voru um verknað-
inn. Skemmdir urðu óverulegar.
Að sögn lögreglunnar í Reykjavík
hefur mönnunum verið sleppt úr
haldi en lokayfirheyrsla yfir einum
þeirra átti að fara fram í gær. Málið
telst að fullu upplýst.