Fréttablaðið - 23.05.2001, Síða 12
12
FRÉTTABLAÐIÐ
23. maí 2001 MIÐVIKUDAGUR
Skaðabætur til nasistaþræla:
Styttist í greiðslur
bewlin. «p Þýsk fyrirtæki sögðust í
gær loks vera reiðubúin til þess að
greiða sinn helming af tíu milljón
marka skaðabótum sem eiga að
renna til fólks sem þýskir nasistar
hnepptu í þræla- og nauðungarvinnu
á árum seinni heimsstyrjaldarinnar.
Ákvörðun bandarísks dómara á
mánudag um að vísa frá máli gegn
þýskum fyrirtækjum veldur því að
þýsku fyrirtækin telja miklar líkur á
því að um frekari málaferli verði
ekki að ræða. Hugsanlega gætu
greiðslur því hafist í júlí.
Enn eru nokkur skaðabótamál á
hendur þýskum fyrirtækjum vegna
nauðungarvinnu á nasistatímanum
yfirvofandi í Bandaríkjunum, en frá-
vísunin á mánudag er talin vísbend-
ing um að aðrir dómarar í Bandaríkj-
unum hraði því að vísa frá sambæri-
legum málum.
Skilyrði fyrir því að skaðabætur
verði greiddar er sú að þýska þingið
gefi út yfirlýsingu um að það reikni
ekki með frekari iögsókn á hendur
fyrirtækjunum sem á nasistatíman-
um nutu góðs af þrælavinnunni. ■
ÁRALÖNG BARÁTTA SKILAR ÁRANGRI
Þýskir nasistar hnepptu Karl Brozik í
nauðungarvinnu fyrir þýsk fyrirtæki. Nú er
hann fulltrúi kröfuhafa á hendur þýskum
fyrirtækjum.
STUTT
Farþegum Flugleiða fjölgaði um
4,4% í apríl, miðað við sama mán-
uð í fyrrra og sætanýting batnaði um
1%. Hins vegar fækkaði farþegum í
innanlandsflugi Flugfélags Islands um
tæp 17%. Frá áramótum hefur farþeg-
um í millilandaflugi f jölgað um 6,5 %
en samdráttur er í innanlandsflugi á
sama tímabili upp á tæp 3%.
—♦—
Víðtæk rannsókn lögreglu hefur
farið fram í álverinu í Straumsvík
vegna láts karlmanns um fertugt fyrir
tæpum tveimur vikum. Maðurinn
fannst látinn í vinnutæki í kerskála. í
fréttum RÚV kom fram að ekkert hafi
komið fram sem bendir til að rekja
megi lát mannsins til vinhuaðstæðna
en endanlegar niðurstöður úr krufn-
ingu liggja ekki fyrir. Maðurinn hafði
verið við góða heilsu.
ELDAR ÁSTÞÓRSSON
Varaformaður félagsins Ísland-Palestína segir mikinn fjölda fólks hafa bæst í hóp félagsmanna að undanförnu, sérstaklega ungt fólk úr Háskólanum.
Börn 40% særðra í Palestínu
Israel braut Oslóarsamkomulagið frá 1993. Palestína herlaust land eins og ísland, segir varaformaður íslands-
Palestínu. Reynt að gera fórnarlömbin ábyrg.
Grunnskólar:
5.000
verða fyrir
einelti
börn í niðurstöðum starfshóps um
einelti í grunnskólum kemur fram að
líklega verði fimm þúsund nemend-
ur fyrir einelti í íslenskum grunn-
skólum á hverju ári. Starfshópurinn
hefur sent samráðsnefnd mennta-
málaráðuneytis, Sambands íslenskra
sveitarfélaga og samtaka kennara og
skólastjóra tillögur um samræmda
aðgerðaáætlun fyrir grunnskóla um
hvernig skuli brugðist við einelti ef
og þegar það kemur upp.
Hópurinn bendir á að einelti sé
tengt skólabrag einstakra skóla og
því samskiptamynstri sem viðgengst
í skólanum. Því sé mikilvægt að
stefnumótun í eineltismálum sé
tengd heildarumhverfi skólans og
hafi það að markmiði að tryggja
skólaumhverfi þar sem nemendum
líði vel og þeir búi við öryggi. Góður
bekkjarandi sé lykilatriði við að byg-
gja upp góðan skólabrag.
í skýrslunni kemur fram að
starfshópurinn hallast að hugmynd-
um Dan Olweus, prófessors, sem
starfar í Noregi. Hann hefur þróað
sérstakt átaksverkefni gegn einelti í
grunnskólum sem byggist á niður-
stöðum viðamikilla rannsókna sem
skilað því að úr einelti dró um 50%
auk þess sem skemmdarverk urðu
mun sjaldgæfari en áður. ■
——
Samfélagsgreinar:
Samræmt
próf 2003
crunnskóu Menntamálaráðherra hef-
ur ákveðið að fresta samræmdu
þrófi í samfélagsgreinum í 10. bekk
til vorsins 2003.
í frétt frá menntamálaráðuneyt-
inu segir að þessi ákvörðun byggi á
niðurstöðum könnunar Námsmats-
stofnunar á kennslu samfélags-
greina á unglingastigi sem gerð var
haustið 2000. Könnunin hafi leitt í
ljós að aðlögun skóla að aðal-
námskrá grunnsköla væri ekki að
fullu lokið í samfélagsgreinum enda
um verulegar breytingar að ræða
frá fyrri námskrá. Nemendur sem
ljúka 8. bekk í grunnskólum í vor
verða því fyrstir til að fá kennslu í
samfélagsgreinum miðað við aðal-
námskrá grunnskóla frá 1999 og er
því fyrsti árgangurinn sem hægt er
að leggja fyrir samræmt próf í sam-
félagsgreinum. ■
miðausturlönd. Safnast hafa um 400
þúsund krónur í neyðarsöfnun fé-
lagsins Ísland-Palestína síðan átökin
blossuðu upp á Gaza og Vesturbakk-
anum síðasta haust, að því er kemur
fram á nýrri heimasíðu þess,
www.palestina.is. Þá hafa Palestínu-
menn verið studdir um samtals 4
milljónir af ríkissjóði og Rauða
krossinum á íslandi. Eldar Ástþórs-
son, varaformaður félagsins, segir að
starfsemi þess hafi styrkst mikið að
undanförnu og séu meðlimir nú á
milli 190 og 200. Sjálfur hefur Eldar
verið í félaginu í 6 ár og segist hann
smám saman hafa fundið sig knúinn
til að styðja Palestínumenn í verki.
Honum hafi ofboðið þegar ísrael
braut Oslóarsamkomulagið frá 1993
sem kvað á um að Palestínumenn
fengju smám saman að snúa aftur.
„Það er slæmt ástand á mörgum stöð-
um á jörðinni, en fáir hafa búið við
ofríki jafn lengi og Palestínumenn,
nú þegar rúm 50 ár eru síðan stórum
hluta þeirra var vísað burt úr landi
sínu,“ segir Eldar. Bendir hann á að
Palestínumenn séu herlaus þjóð, eins
og fslendingar, og eigi í höggi við of-
urefli: „Oft berast fréttir af Palest-
ínumönnum sem berjast með grjót-
kasti gegn fullkomnum vopnum."
Segir Eldar að samkvæmt fréttum
frá mannúðarsamtökum múslima,
Rauða hálfmánanum, skipti fjöldi lát-
inna hundruðum síðan í október á síð-
asta ári og fjöldi limlestra og særðra
sé að nálgast 25 þúsund, en þar af séu
40% 18 ára og yngri. Áðspurður um
hvort eitthvað sé hæft í þeim ásökun-
um ísraelsmanna að Palestínumenn
stilli börnum og unglingum upp í
fremstu víglínu til að öðlast samúð
alþjóðasamfélagsins svarar hann því
til að þannig sé reynt að gera „fórn-
arlömbin ábyrg,“ en það sé „rasismi
af verstu tegund.“ Þá segir hann fé-
lagið ekki hafa mikla trú á að friðar-
tillögur að undanförnu skili árangri,
ljóst sé að ísraelsmenn ætli sér ekki
að láta af „landráninu" á Vesturbakk-
anum og Gaza-svæðinu í bráð.
í nýrri ályktun félagsins er minnt
á ákvörðun íslenskra stjórnvalda frá
árinu 1989 um að viðurkenna rétt
Palestínumanna til þess að snúa aftur
til heimalands síns, og segir orðrétt í
ályktuninni: „Félagið skorar á íslensk
stjórnvöld að slíta stjórnmálasam-
bandi við ísrael á meðan ríkið telur
sig hafið yfir alþjóðalög og sam-
þykktir Sameinuðu Þjóðanna." ■
SAGA PALESTÍNU
■ 1947
S.Þ leggur til að samtök síonískra
gyðinga frá Evróðu stofni sértrúar
ríki I Palestlnu, gegn vilja heima
manna, sem eru I meirihluta.
■ 1948
Hersveitir reka 750 þúsund
Palestínumenn frá heimkynnum
slnum. Aðfluttu fólki afhentar
jarðir, hlbýli og eigur flóttamann
anna.
■ »949
Lög sett I (srael um sérréttindi
gyðinga.
■ 1967
(srael ræðst á Egyptaland, Jórdan
íu og Sýrland og sigrar heri
arabarlkjanna á nokkrum dögum.
Vesturbakkinn og Gaza-svæðíð
tekin hernámi.
■ 1987
Palestínumenn gera uppreisn
gegn Israel. 6 ára ófriður hefst.
■ 1993
Yasser Arafat gerir samning við
(srael um takmarkaða sjálfsstjórn
Palestlnumanna á Gaza-svæðinu
og Jerlkó. Margir Palestlnumenn
eru andsnúnir samkomulaginu og
telja að um uppgjöf sé að ræða.
■ .1.993
Skrifað undir samkomulagið I
Osló. Aðilarnir viðurkenna tilveru
rétt hvors annars. Frestur til að
komast að samkomulagi um her
teknu svæðin og heimkomu
flóttamanna gefinn til 1999.
■ 2QOO
Ófriður hefst 29. september.
TIL HAMINGJU! ÞU VANNST NYTTWEBERJS
TAKK FYRIR AÐ REYNSLUAKA SUZUKIWAGON R
FJÖLNOTABÍLNUM SEM KEMUR SVO SKEMMTIL
VINNINGSHAFI LUKKUPOHSINS I GÆR ER:
Eva Thorstensen, Hörðarlandi 20, Reykjavík
ins skal vitja í Garðheimum, Stekkjarbakka
L
3VART i
SUZUKI BILAR HF
Skeifunni 17. Sími 568 51 00.
www.suzukibilar.is