Fréttablaðið - 23.05.2001, Blaðsíða 19
MIÐVIKUDAGUR 23. maí 2001
FRÉTTABLAÐIÐ
19
Áhugaverðasta áhugaleiksýning ársins:
A fj alirnar í miðjum
prófönnum
leikust „Við erum himinlifandi yfir
þessu, þetta er mikill heiður," segir
Hlynur Páll Pálsson formaður Stúd-
entaleikhússins, en sýning þess á
leikritinu Ungir menn á uppleið eftir
Sigríði Láru Sigurjónsdóttur var val-
in besta áhugaleiksýning ársins.
„Við urðum að hætta sýningum
vegna prófanna og ritgerðarskila.
Flest okkar eru nemendur í Háskól-
anum. Það er mjög tímafrekt að
standa í þessu,“ segir Hlynur Páll.
„Við erum ákveðin í að halda
áfram í sumar. Þetta var svo lítill sal-
ur í Stúdentakjaliaranum, en við telj-
um að leikritið eigi erindi til margra
og höfum gert samning við Kaffileik-
húsið um sýningar á þessu verki. Þá
getur fólk komið og keypt sér mat
með sýningunni, fína tapasrétti."
Stúdentaleikhúsið var endurvakið
síðasta vor eftir að hafa legið í dvala
í fjögur til fimm ár. „Við sýndum í
haust leikritið Stræti eftir Jim
Cartwright. Við vorum líka með litla
sýningu á síðasta vori, Tartuffe. Sú
hugmynd kviknaði reyndar í kúrs hjá
Terry Gunnell í leiklistarfræði, að
reyna að setja upp lítið leikrit sem
við vorum að lesa hjá honum.“ ■
DÆMIGERÐUR FARSI
Með vífið í lúkunum þar sem þræl-
skipulagður blekkingarvefur leigubíl-
stjórans hrynur einn góðan veðurdag.
Hann hefur leikstýrt verkunum sín-
um sjálfur og jafnvel leikið í þeim.
Hann er leikari að upplagi og hefur
leikið þennan leigubílstjóra sjálfur í
einhver skipti." ■
sýning Ara. Þema sýningarinnar á Atlant-
ic er íslenski fáninn. Gengið er inn frá
Austurvelli.
í Byggðasafni Hafnarfjarðar standa yfir
sýningarnarBlóðug vígaferli og Götulíf
víkinganna í York . Um er að ræða
tvær sýningar, annars vegar endurgerð á
götu í víkingaþorpi þar sem hægt er að
sjá fólk við vinnu sína og hins vegar sýn-
ingu sem heitir „Skullsplitter" á frum-
málinu, þar má sjá beinagrind og haus-
kúpur víkinga sem féllu í bardögum. Á
sýningunni eru raunverulegar líkamsleif-
ar sem geta valdið óhug. Sýningin er
opin alla daga frá 13-17, kostar 300
krónur, frítt fyrir börn, unglinga og ellilíf-
eyrisþega. Miðin gildir einnig í hin hús
safnsins, Sýningarnar standa til 1. októ-
ber.
MYNPLIST_____________________________
Sumarsýning Listasafns fslands nefnist
Andspænis náttúrunni. Sýnd eru verk
eftir ísendinga í eigu safnsins og fjallar
hún um náttúruna sem viðfangsefni ís-
lenskra listamanna á 20. öld. Verkin á
sýningunni eru eftir marga af helstu
listamönnum þjóðarinnar á nýliðinni
öld, frá Þórarni B. Þorlákssyni til Ólafs El-
íassonar. Opið er frá kl. 11 til 17 og er
aðgangur er ókeypis í dag sem aðra
miðvikudaga. Sýningin stendur til 2.
september.
Svipir lands og sagna nefnist sýning á
verkum Ásmundar Sveinssonar sem
stendur í Listasafni Reykjavíkur, Ás-
mundarsafni. Á sýningunni eru verk
sem spanna allan feril listamannsins og
sýna þá þróun sem varð á list. Safnið er
opið daglega 10-16 og stendur sýningin
til 10. febrúar á næsta ári.
í Hafnarborg stendur sýning á verkum
Messíönu Tómasdóttur. I Sverrissal eru
sýndir plexiskúlptúrar í sem unnir eru á
japanpappír og plexígler með akríllitum.
Sýningin kallast selló og vísar til hinna
gegnsæju og launhelgu tóna sellósins. í
Apótekinu eru myndir, búningar, grímur
og brúður úr barnaóperunni Skuggaleik-
hús Ófelíu sem væntanlega verður
frumsýnt í íslensku Óperunni á
komandi hausti.
Sigurbjömsson, Bjarna Þorsteins-
son, Inga T. Lárusson, J. Berthier,
Kabalevski, Franz Schubert, Samu-
el Wesley, og J. S. Bach. Stjórnandi
kórsins er sem fyrr Friðrik S. Krist-
insson og undirleikari á píanó og
orgel er Peter Maté. Raddþjálfari
er Björk Jónsdóttir.
Ropi er yfirskrift myndlistarsýningar sem
opnuð hefur verið í Nýlistasafninu. í
SÚM sal er Anna Líndal að velta fyrir
sér gjaldföllnu gildismati, í Gryfju safns-
ins sýnirólöf Nordal skúlptúr og gagn-
virk myndverk og í Forsal safnsins sýnir
Valka (Valborg S. Ingólfsdóttir) leirstyttur
og vatnslitamyndir.
SKEMMTANIR_______________________
21.30 Haldnir verða tónleikar á Club 22
þar sem fram koma hljómsveitirn-
ar Lúna, Innvortis og dægurlaga-
pönksveitin Húfa. Að tónleikunum
loknum verður DJ Johnny ! búrinu.
SÝNINGAR_________________________
Ari Magg sýnir Ijósmyndir á Atlantic i
Austurstræti og er þetta er fyrsta einka-
Bj argræðiskvartettinn:
Kominn
í bæinn
tónlist Bjargræðiskvartettinn hefur
verið á tónleikaferðalagi um Norður-
land með hina geysivinsælu dagskrá
sína með textum Ómars Ragnarsson-
ar við lög hinna ýmsu höfunda. Nú er
kvartettinn kominn til Reykjavíkur
og ætlar að gera allt vitlaust í Kaffi-
leikhúsinu annað kvöld klukkan níu.
Lögin eru flest vel þekkt en fá hér
nýjan hljóm í sérstæðum Bjarg-
ræðisútsetningum.
Bjargræðiskvartettinn skipa þau
Anna Sigríður Helgadóttir, Gísli
Magnason, Örn Arnarson og Aðal-
heiður Þorsteinsdóttir. Öli syngja
þau og öll spila þau á allskonar hljóð-
færi. ■
Hlíf Ásgrímsdóttir sýnir í Galleríi Sæv-
ars Karis. Á sýningunni eru vatnslita-
myndir, Ijósmyndir og skúlptúr. Þetta er
fimmta einkasýning Hlífar. Sýningin
stendur til 23. maí.
Viltu stunda nám í
tannlækningum?
Kennarar og nemendur
sitja fyrir svörum um nám
í tannlækningum á hæð-
inni sem gengið er inn á
í Læknagarði v/Vatns-
mýrarveg í dag
miðvikudaginn 23. maí
kl. 15:00 -18:00
Sjá nánar: www.hi.is
UNGUR MAÐUR Á UPPLEIÐ
Hlynur Páll Pálsson er formaður Stúdentaleikhússins sem vaknaði úr dvala síðastliðið
vor og hefur náð glæsilegum árangri.
Stúdentaleikúsið:
Spreytir sig á
Stóra sviðinu
áhugaleikhús Á sunnudaginn fær
Stúdentaleikhúsið að spreyta sig á
Stóra sviði Þjóðleikhússins. Sýningin
á leikritinu Ungir menn á uppleið
undir leikstjórn Bergs Þórs Ingólfs-
sonar var valin áhugaverðasta
áhugasýning ársins, en þetta er í átt-
unda skipti sem Þjóðleikhúsið efnir
til samkeppni meðal áhugaleikhúsa.
Þetta er „skemmtileg sýning, þar sem
fer saman metnaðarfullt verkefnaval,
hugmyndaauðgi í útfærslu og jafn og
góður leikur," segir í umsögn dóm-
nefndar. Hvatning Stúdentaleikhúss-
ins til ungra höfunda er sagt lofsvert,
„og stendur verk Sigríðar Láru fylli-
lega undir væntingum." ■
Kirkjulistahátíð 2001:
„Og múrar
falla...!“
24. maí
17.00 Setning Kirkjulistahátíðar.
Uppstigningaróratóría Bach.
Opnun myndlistarsýningar
Valgarðs Gunnarssonar.
Opnun sýningar á verkum úr
Listasafni Hallgrímskirkju
í Ásmundarsal
25. maí
12.00 Tónlistarandakt: Lára Bryndís
Eggertsdóttir
17.00 Setning málþings um
Kirkjuarkitektúr
26. maí
10.00-15.00 Málþing um
Kirkjuarkitektúr
12.00 Laudes - hádegistíðagjörð
18.00 Vesper - aftansöngur
27. maí
11.00 Hátíðarmessa á Kirkju-
listahátíð
18.00 Vesper - aftansöngur
20.00 Tónleikar - Jósúa eftir Hándel
28. maí
12.00 Tónlistarandakt
29. maí
12.00 Tónlistarandakt
20.30 Das Orchester Damals
und Heute frá Köln
30. maí
12.00 Tónlistarandakt: Úr myndinni
„Allir heimsins morgnar"
31. maí
12.00 Kyrrðarstund í hádeginu
á Kirkjulistahátíð
20.30 Orgeltónleikar: Gillian Weir
frá Bretlandi
1. júní
12.00 Tónlistarandakt
21.00 Kórtónlist við miðnætursól:
Nordic voices flytur kórverk
2. júní
15.00 Listasafn Einars Jónssonar:
Leiðsögn um listasafnið
18.00 Klukknakonsert í Hallgríms-
turni: Hátíð heilags anda
hringd inn
18.00- 24.00 Listavaka unga fólksins
3. júní
11.00 Hátíðarmessa á hvítasunnudag
4. júní
11.00 Hátíðarmessa
20.30 Lokatónleikar: „Frá Tallinn
til Vancouver"
Léttur og meðfærilegur
GSM posi
með innbyggðum prentara
C
m
B
|g
®point
Hlíðasmára 10
Kópavogi
Sími 544 5060
Fax 544 5061
Les allar tegundir greiðslukorta
sem notuð eru á Islandi.
Er með lesara fyrir snjallkort
og segulrandarkort.
Hraðvirkur hljóðlátur prentari.
Tekur einnig Diners og VN kort.
Gott úrval
af góðum buxum
Erum beint
á móti
Sparisjóði
Kópavogs Hliðarsmára 17.200 Kópavogi. S 554-7300
Opið frá 10-18 virka daga 10-16 laugardaga
Bill Boume og KK
Tónleikar í Salnum Kópavogi
Miðvikudag 23. maí kl. 20:00
• Miðapantanir: 5700400
kr. 1.500. -
Ótrúlegt tækifæri!
Þúsund þjalir ehf. - umboðsskrifstofa listamanna www.1000th.is