Fréttablaðið - 22.06.2001, Qupperneq 1
SYNING
BRETLANP
Fjórir vilja
sœti Hague
bls 10
ÞINGKOSNINGAR
bls 18
Stjórnmálaflokkur
innflytjenda
bls 12
Yfirsýn
listamannsins
FRÉTTABLAÐ
ÖRYCGISMIÐSTÖÐ ÍSUNDS
HEIMAGÆSLA
Sími 530 2400
42. tölublað - 1. árgangur
FÖSTUDAGUR
Hugað
að hugverkum
rAðstefna í tilefni 10 ára afmælis
einkaleyfastofunnar verður haldin
ráðstefna um verndun hugverka á
nýrri öld. Ráðstefnan hefst kl.
13.30 og er á Grand Hótel.
Kórar í kirkjunni
skemmtun Kvöldvaka verður í Hall-
grímskirkju í kvöld kl 20. Karl Sig-
urbjörnsson setur kirkjudaga með
aðstoð ellefu barnakóra. Upplestur,
leikur og tónlist.
VEÐRIÐ I DAC
REYKJAVÍK Hæg suðauslæg átt
og skýjað með köflum. Hiti 7
til 14 stig.
VINDUR ÚRKOMA HITI
fsafjörður Q 5-8 Skýjað Q 11
Akureyri © Léttskýjað ©13
Egilsstaðir © Léttskýjað © 13
Vestmannaeyjar© 5-8 Skýjað © 13
Hús við ylströnd
opnun Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
mun opna nýtt þjónustuhús við yl-
ströndina í Nauthólsvík í dag kl.
13.30. Húsið mun þjóna þeim sem
spóka sig á sólarströndinni.
Stuðmenn
út úr skápnum
tónlist Gömlu Stuðmennirnir stíga
út úr skápnum á Gauk á Stöng í
kvöld og standa fyrir Hýru trippi.
Hýrafár verður með ásamt dj Dag-
ný.
Tveir leikir
í 1. deild
fótbolti í kvöld fara fram tveir
leikir í 1. deild karla í knattspyrnu.
Leiftur tekur á móti KA á Leiftur-
svelli og á Valbjarnarvelli fær
Þróttur Reykjavík, Dalvík í heim-
sókn. Báðir leikirnir hef jast klukk-
an 20.00.
IKVÖLDIÐ í KVÖLD!
Tónlist 18 Bió 16
Leikhús 18 íþróttir 14
Myndlist 18 Sjónvarp 20
Skemmtanir 19 Útvarp 21
NOKKRAR STAÐREYNDIR UM
FRÉTTABLAÐIÐ
Hversu lengi
staldrar fólk
við hverja
opnu í
bíöðunum?
Miðað við þann tíma
sem fólk sagðist verja
til lestrar blaðanna og
stærð þeirra þann tíma
sem könnun Gallup
stóð í maí 2001.
27,5 sek.
70.000 prentuö eir
70% fótks Í€5 blsc
69,2% IBUA HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS A ALDRINUMl
18 TIL 80 ÁRA LESA FRÉTTABLAÐIÐ ALLTAF EÐA OFT
SAMKVÆMT KÖNNUN GALLUP FRÁ MAÍ 2001.
Þverholti 9, 105 Reykjavík — sími 515 7500
Erlent lán
til bj argar
krónunni
Finnur Ingólfsson segir yfirskot hafa verið í uppsigl-
ingu. Dugar varla eitt og sér, segir Margeir Pétursson.
efnahacsmál „Aðgerðirnar í gær eru
ekki vísbending um stefnubreyt-
ingu,“ segir Finnur Ing-
ólfsson, seðlabanka-
stjóri, um inngrip bank-
ans í gengi krónunnar í
gærmorgum. Seldar
voru 24 milljónir dollara
og keyptar krónur í stað-
inn, en í kjölfarið hækk-
aði gengi krónunnar um
3,28%. „Við höfum sagt
það frá því við hurfum
frá vikmörkunum yfir í
flotgengið að engar
efnahagslegar forsend-
ur væru fyrir því að
gengið færi svona langt
niður. Til þess að það
gerist ekki með yfirskoti eins og var
í uppsiglingu þá komum við inn.“
Finnur segir að þróun gengisins í
gær hafi verið sam-
kvæmt þeim væntingum
sem bankastjórnin
gerði. „Við vorum að
vonast til að gengið
myndi styrkjast ef við
kæmum inn og það gerð-
ist allverulega.“ Að-
spurður um hvort bank-
inn muni áfram halda
verndarhendi yfir krón-
unni segir Finnur að
bankinn hafi gott svig-
rúm til þess. Geta til að
fara út í markaðsaðgerð-
ir hafi verið tryggð með erlendri lán-
töku.
„Reynslan almennt af svona inn-
gripum, þegar mönnum finnst gjald-
miðlar vera rangt skráðir og lýsa
ekki undirliggjandi efnahagsástæð-
um, er oftar en ekki góð
ef góðar fréttir eru með-
fylgjandi. En þegar farið
er á móti leitni markað-
arins og engar sérstakar
fréttir í gangi þá getur
inngripið allt eins komið
út sem veikleikamerki,1 11
segir Margeir Péturs-
son, eigandi M.P. verð-
bréfa, um inngrip Seðla-
bankans í gær. Segir
hann vel geta verið að
jákvæð tíðindi muni fyl-
gja í kjölfarið, Seðla-
bankinn sé ábyrg stofn-
un sem hljóti að hafa
hugsað málið til enda.
„Það er auðvitað mjög gott að þeir
hafi komið inn og hjálpað þeim sem
komnir voru j vandræði
vegna falls krónunnar.
Hinsvegar er gengisfall
jákvætt fyrir atvinnulíf-
ið í heild.“ Segir Margeir
að markaðurinn fari
gjarnan fram úr sjálfum
sér, eins og raunin varð
á síðasta ári. Vísbend-
ingar séu um það nú að
örvæntingin sé nægi-
lega mikil til að botn sé
kominn á gegnissigið.
„Kannski er botninn
ekki langt undan þegar
sumir tala óvarlega um að krónan sé
ónýtur gjaldmiðill."
Sjá nánar bls. 2
matti@frettabladid.is
FINNUR INCÓLFSSON
Segir gengisþróun verða að
vera í samræmi við efnahags-
lega forsendur.
MARGEIR PÉTURSSON
Frjálsi markaðurinn er ekki
alltaf dans á rósum, segir
Margeir.
Grænfriðungar:
Kyrrsetja togara
sem fer ekki á sjó
þorskveiðar Grænfrið-
ungar komu í gær í veg
fyrir að breskur togari
færi úr höfn í Tromsö í
Noregi, til að mótmæla
veiðiaðferðum hans og
stefnu norskra yfir-
valda í fiskveiðimál-
um. Eigandi togarans
segir að ásakanir Grænfriðunga séu
byggðar á misskilningi. Togarinn á að
fara til þorskveiða á Barentshafi.
Ellefu Grænfriðungar fóru um
borð og umkringdu togarann með
gúmmíbátum. Eigandinn segir þetta
hálf tilgangslaust þar sem skipið eigi
ekki að fara af stað fyrr en eftir tvær
vikur hvort sem er.
Grænfriðungar ásaka
togarann um að veiða of
smáan fisk og ógna þar
með þorskstofninum.
Eigandi skipsins segir
hins vegar að veiðar tog-
arans séu fullkomlega
löglegar.
„Satt best að segja held ég að þeir
hljóti að hafa ráðist á rangt skip,“
segir hann. Eigandinn segir jafn-
framt að lögregla verði ekki kölluð
til fyrst í stað til að fjarlægja mót-
mælendurna. „Okkar vegna mega
þeir gjarnan vera áfram um borð,“
sagði hann. ■
Föstudagurinn 22. júní 2001
CARÐASTRÆTI
Götusteinarnir eru teknir upp og notaðir að Bessastöðum, Viðey eða við Hóladómkirkju.
Mikil verðmæti eru í steinunum.
Gatnaframkvæmdir í Garðastræti:
Götusteinar
eru gersemi
vecavinna Starfsmenn borgarinnar
eru við framkvæmdir í Garðastræti
þar sem þeir taka upp tilhöggna brú-
steina við götukantinn.
Þetta er gert til að bæta malbikun
við götuna - þannig að malbikið nái
alveg að gangstéttinni. Gömlu til-
höggnu steinarnir eru fjarlægðir og
þeir geymdir. „Þar til rík ástæða er
til að nota þessi verðmæti," segir Sig-
urður Skarphéðinsson gatnamála-
stjóri. Hann segir steinana vera í
misjöfnu ástandi.
„Á sumum stöðum eru þeir orðnir
mjög slitnir því það er búið að keyra
mikið yfir þá og þeir steinar eru því
ekki nothæfir. Hinsvegar eru til
steinar, sem við erum að grafa upp og
hafa fyrir löngu farið undir yfirborð-
ið. Malbikið hefur varið þá og þeir
eru mjög heillegir. Þeir steinar hafa
til að mynda verið notaðir í Viðey,
Bessastöðum og Hóladómkirkju. En
þegar marga nothæfra steina vantar í
hleðslur - þá eru þeir höggnir til úr
grágrýti. Þeir eru síðan lagaðir til að
með svipuðum hætti og hér áður
fyrr.“ ■
1 ÞETTA HELST |
Refsing Engihjallamorðingjans
var þyngd í Hæstarétti í gær um
tvö ár. bls. 12
—
Annars konar afplánun brotafólks
en fangelsisvist eykur ekki ít-
rekunartíðni og er mun ódýrari kost-
ur. bls. 4
—«—
Krónan kostar okkur 120 millj-
arða á ári að mati Samtaka at-
vinnulífsins. Vaxandi stuðningur við
að taka upp evru. bls. 2
Borgarstjóri vill stórefla löggæslu
í miðborginni. Ætlar að ræða
málið við fulltrúa ríkisstjórnarinnar.
bls. 11