Fréttablaðið - 22.06.2001, Page 18
18
FRÉTTABLAÐIÐ
22. júní 2001 FÖSTUPAGUR
Kirkjudagar á Jónsmessu:
Ævintýraheimur barnanna
á vegum þjóðkirkjunnar
Grasagarðunnn:
Sjötíu reyni-
tegundir
CRójpuR í safni Grasagarðsins í Laugar-
dal eru um 70 mismunandi reyniteg-
undir af rúmlega 100 tegundum sem
finnast í heiminum. Reynitegundir
geta verið bæði tré og runnar og berin
eru ýmist rauð, hvít, bleik eóa appel-
sínugul. Hér á landi vex ein tegund eóa
ilmrevnir, og telst hann því til íslensku
Flórunnar. Hér áður fyrr hvíldi mikil
helgi yfir ilmreyni og talið var að hon-
um fylgdu bæði góðar og vondar nátt-
úrur. Klukkan tíu í fyrramálið verða
reynitegundir í Grasagarðinum skoð-
aðar í fylgd Ingunnar J. Óskarsdóttur
garðyrkjufræðings og Evu G. Þor-
valdsdóttur forstöðumanns. Mæting
er í lystihúsinu sem stendur gegnt
garðskálanum. ■
kirkjudacar Meðan kirkjudagar þjóð-
kirkjunnar á jónsmessu standa yfir,
með málstofum, guðsþjónustum og
tónlistardagskrám, er boðið upp á
viðamikla dagskrá fyrir börn og ung-
linga þar sem allir aldurshópar eiga
að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
„Þetta er ekki bara barnagæsla á
meðan mamma og pabbi eru að gera
eitthvað annaó heldur er verið að
bjóða krökkunum upp á virkilega
spennandi hluti,“ segir Guðlaug
Björgvinsdóttir sem hefur undirbúið
barnastarfið ásamt Magneu Sverris-
dóttur og Guðnýju Hallgrímsdóttur.
Barnastarfið fer fram í Vörðu-
skóla, sem er við hliðina á Austur-
bæjarskóla. Þar verður starfinu skipt
upp í nokkra hópa þar sem miðað er
við ákveðna aldurshópa. Sex til átta
ára börnum verður til dæmis boðið í
kennslustofu sem hefur verið breytt í
neðansjávarheim þar sem börnin búa
til og hengja upp fiska og annað líf í
sjónum.
Hver hópur byrjar á eins konar
innlögn þar sem sögð er saga úr Bibl-
íunni eða á annan hátt minnt á trúna,
en „síðan er þetta annað hvort leikur
eins og í Ljónagryfjunni og Örkinni
hans Nóa eða vinna í höndunum, að
föndra, búa til og skapa,“ segir Guð-
laug.
Á morgun verður jafnframt sér-
stök unglingadagskrá þar sem
kenndur verður Afródans og hljóm-
sveitin Godspeed leikur, svo nokkuð
sé nefnt. ■
TRÚÐACAMAN
Börnum á öllum aldri verður m.a. boðið til
trúðaveislu þar sem þau læra að mála sig
og leika eins og trúðar einir gera.
Sumartónleikar
Jómfrúrinnar:
Ungir
jazzmenn
jazz Á fjórðu tónleikum sumartón-
leikaraðar veitingahússins Jómfrú-
rinnar við Lækjargötu, laugardaginn
23. júní, kemur fram kvartett
trommuleikarans Kára Árnasonar.
Með Kára leika bassaleikarinn Valdi-
mar K. Sigurjónsson og gítarleikar-
arnir Andrés Þór Gunnlaugsson og
Ómar Guðjónsson. Allir hafa meðlim-
ir kvartettsins stundað nám við Tón-
listarskóla FÍH en Andrés Þór er nú
við framhaldsnám í Hollandi.Tón-
leikarnir hefjast kl. 16 og standa til
kl. 18. Tónleikarnir fara fram ut-
andyra á Jómfrúrtorginu ef veður
leyfir, en annars inni á Jómfrúnni.
Aðgangur er ókeypis. ■
—♦—
Hafnarhúsið:
Tuttugu orð
myndlist Á morgun klukkan fjögur
opnar Stella Sigurgeirsdóttir sýningu
í Hafnarhúsinu hafnarmegin, í sýn-
ingarsal íslenskrar grafíkar
TVyggvagötu 17.
Sýningin ber yfirskriftina „Por-
trett landslag - tuttugu orð“. Verkin
sem eru tvívíð, eru unnin í Imageon
filmur og býflugnavax. Þau innihalda
orð, tuttugu og átta ólíkra einstak-
linga sem fengu beiðni um að senda
listakonunni tuttugu orð með rafræn-
um pósti. Orðin máttu vera af ýmsu
tagi, helst þau orð sem komu upp í
hugann hverju sinni eða einhver upp-
áhaldsorð. Verkin innihalda orðin og
heiti verkanna bera nafn viðkomandi
einstaklings, dagsetningu og tíma.
Vegna eiginleika vefsins er auðveld-
lega hægt að tímasetja textann sem
berst þannig. Niðurstaðan er því
„portrett-mynd“ af viðkomandi per-
sónu, eða af því sem fer í gegnum
huga hennar þá stundina.
Hugmynd Stellu er helst sú að
sýna fram á að orð og hugsanir eru
hluti af manneskjunni og eru nánast
jafngild andlitsljósmynd eða por-
trettmálverki, þar sem persónuleiki
hvers og eins kemur fram. ■
—«—
Johnny on the
Northpole:
Vinsælir fyrir
vestan
og í Eyjum
rokk Reykvíska rokkhljómsveitin
Johnny on the Northpole ætlar að
leggja land undir fót um helgina og
spilar á Eyrinni á ísafirði í kvöld en á
Hópinu á Tálknafirði á laugardags-
kvöld.
Meðlimir hljómsveitarinnar eru
þeir Kiddi rokk gítarleikari, Steini
söngvari, en þeir eru báðir Reykvík-
ingar, Jörgen bassaleikari sem er
Færeyingur og Gísli trommuleikari
sem er Vestmannaeyingur.
Johnny on the Northpole er orðin
nokkuð gömul hljómsveit sem mun
njóta nokkurra vinsælda og þá sér-
staklega á Vestfjörðum og í Vest-
mannaeyjum. ■
FÖSTU DAGUR
22. JÚNr
LEIKHÚS______________________________
20.00 írska verðlaunaleikrltið Með fulla
vasa af grjóti eftir Marie Jones er
sýnt á Stóra sviði Þjóðleikhúss-
ins. Þeir Hilmir Snær Guðnason
og Stefán Hrafn Stefánsson fara á
kostum í þessari sýningu.
20.00 Stórfarsinn Með vífið í lúkunum
er sýndur í Borgarleikhúsinu.
Höfundurinn er Ray Cooney og
með hlutverk fara helstu gaman-
leikarar landsins.
SKEiyUVITANIR_______________________
Hljómsveitin Stuðmenn verða á Cauki
á Stöngí kvöld vegna mikill eftirspurnar.
Þetta kvöld er upphaf kvölda sem hald-
in verða á föstudagskvöldum á Gaukn-
um I sumar með yfirskrifitnni Svona er
sumarið og er í samstarfi Skífunnar,
FM-957, Popp Tí Ví og Vísis.is.
Strákarnir í Svörtum fötum ætla að
leika fyrir gesti PlayeFs í Kópavogií
kvöld.
Þeir sem ætlar að bregða sér til Vest-
mannaeyjar ættu að kikja við á bal!
með hljómsveitinni Sóldögg sem haldið
verður i Skvísusundi í kvöld.
Hann Doddi litli verður í góðu glensi í
diskóbúrinu á Club 22 í kvöld. Hann
ætlar að leika fyrir dansi bæði gamalt og
nýtt efni fram undir morgun. Doddi byrj-
ar á miðnætti og er frítt inn til kl. 3.
Handhafar stúdentaskrírteina frá frítt inn
alla nóttina.
SÝNINGAR____________________________
íslenskar þjóðsögur og ævintýri er
þema sumarsýningarinnar sem opnuð
hefur verið í Safni Ásgríms Jónssonar
við Bergsstaðastræti 74 í Reykjavík. Á
sýningunni sem stendur til 1. september
eru margar af frægustu þjóðsagnamynd-
um listamannsins. Þar má einnig sjá
vinnustofu, heimili og innbú hans.
Önnur af sumarsýningum Listasafns
Reykjavíkur - Kjarvalsstaða ber nafnið
Flogið yfir Heklu. Sýningarstjóri er Ein-
ar Garibaldi Eiríksson myndlistarmaður
og prófessor við Listaháskóla íslands. Á
sýningunni getur að líta mismunandi
myndir Heklu sem sýndar verða hlið við
hlið. Sýningin stendur til 2. september.
Hin sumarsýningin er [ miðrými Kjar-
valsstaða og ber hún yfirskriftina 1461
dagur. Þar sýnir Cretar Reynisson verk-
efni sem hann hefur unnið að frá 1. jan-
úar 1997 og sér ekki fyrir endann á enn.
Þetta er vaxtarverkefni af þeirri tegund
sem á ensku væri kallað „work in
progress." Sýningin stendur til 19. ágúst
I Stöðlakoti við Bókhlöðustíg 6 stendur
yfir sýning á útsaumsverkum Kristínar
Schmidhauser. Sýningin er opin dag-
lega kl. 14-18 og lýkur 24. júní.
Ljósmyndasafn Reykjavíkur hefur opn-
að sýninguna Henri Cartier-Bresson í
Opnunarsýning Errósafnsins:
Myndirnar
verða sífellt
flóknari
myndlist Erró er kominn til landsins
með fríðu föruneyti þekktra lista-
manna, fræðimanna og athafna-
manna á sviði lista sem mun ferðast
með honum vítt og breitt um landið
næstu daga. Tilefnið er yfirlitssýn-
ing á verkum Errós allt frá sjötta
áratugnum til síðustu ára sem jafn-
framt er opnunarsýning Errósafns-
ins.
Erró segir að þetta sé stærsta yf-
irlitssýningin á verkum hans til
þessa, enda fæst þarna góð yfirsýn
yfir allan feril listamannsins. „Það
hafa verið þematískar sýningar, eins
og stóra sýningin í París sem er
núna í Helsinki en var í Riga áður og
Brussel. En þetta er sú stærsta, já,“
segir hann.
„Ég er sérstaklega ánægður með
að þeir samþykktu að taka nýjustu
myndirnar með tii að sýna þær
hérna. Þær hafa aldrei verið sýndar
áður og aldrei verið strekktar upp.
Við strekktum þær upp í París rétt
áður en ég fór heim þannig að ég hef
aldrei séð þær strekktar sjálfur,11
segir Erró.
„Fyrsta myndin er svona fimm til
sex ára gömul, en það tók mörg ár að
ákveða að fara í þessa syrpu. Þetta
var orðið svo mikið, ég var kominn
með heilt tonn af teiknimyndabók-
um og þurfti bara að ákveða að fara
í að gera klippimyndir upp úr því.“
„Annars verður kannski mest
gaman fyrir mig að sjá hvernig fólk-
ið sem kemur að utan lítur á þetta,
margt af því hefur aldrei séð þessar
gömlu myndir mínar, ekki eina
mynd,“ bætir hann við.
Á sýningunni er meðal annars að
finna myndverkið „Stríð" sem Erró
vann aðeins 14 ára gamall og má þar
greinilega sjá rætur þess sem Erró
hefur verið að fást við fram á síð-
ustu ár, bæði hvað varðar myndefni
og efnistök, þótt listsköpun Errós
hafi annars tekið margvíslegum
breytingum á ferlinum.
„Þetta er nú orðið svo mikið af
stórum myndum. Ég hugsa að ég
fari nú að kippa mig svolítið niður í
starfinu, einfalda verkin. Það er
erfitt að geyma þessar myndir og
erfitt að flytja þær og annað,“ segir
hann. „Þetta verður líka alltaf flókn-
ara og fióknara með hverju árinu. Ef
,£&é
ég mála finnst mér að ég verði að
gera þetta eins flókið og hægt er, en
að það standist á sama tíma í mynd-
byggingu og öðru.“
- Þú vilt hafa þetta sem flóknast?
„Já, þetta er nokkurs konar
Grófarsal, Grófarhúsi, Tryggvagötu 15.
Sýnd eru verk þessa franska Ijósmynd-
ara sem nú er á tíræðisaldri og hefur
oftast verið kenndur við stílinn „hið af-
gerandi augnablik". Sýningin er opin
virka daga frá kl. 12-17 og um helgar kl.
13-17 og stendur til 29. júlí.
Sænski Ijósmyndarinn Lars Erik Björk
sýnir Ijósmyndir frá Færeyjum í anddyri
sænska sendiráðsins í Lágmúla 7 sem
hann nefnir Leiftur frá Færeyjum. Sýn-
ingin verður opin virka daga kl. 9-16 til
22. júní.
Ari Magg sýnir Ijósmyndir á Atlantic í
Austurstræti og er þetta er fyrsta einka-
sýning Ara. Þema sýningarinnar á Atlant-
ic er íslenski fáninn. Gengið er inn frá
Austurvelli.
í Byggðasafni Hafnarfjarðar standa yfir
sýningarnar Blóðug vígaferli og Götulíf
víkinganna í York . Um er að ræða tvær
sýningar, annars vegar endurgerð á götu
í víkingaþorpi þar sem hægt er að sjá
fólk við vinnu sína og hins vegar sýningu
sem heitir „Skullsplitter" á frummálinu,
þar má sjá beinagrind og hauskúpur vík-
inga sem féllu í bardögum. Á sýningunni
eru raunverulegar líkamsleifar sem geta
valdið óhug. Sýningin er opin alla daga
frá 13-17, kostar 300 krónur, frítt fyrir
börn, unglinga og ellilífeyrisþega. Miðinn
gildir einnig I hin hús safnsins. Sýning-
arnar standa til 1. október.
I Sjóminjasafninu í Hafnarfirði stendur
handverkssýning Ásgeirs Guðbjartsson-
ar. Frá 1. júní til er Sjóminjasafnið opið
alla daga frá kl. 13 til 17. Sýningin stend-
ur til 22. júlí.
Ljósmyndasýning grunnskólanema
stendur yfir í Gerðubergi. ( vetur hafa
þeir unnið undir handleiðslu hugsjóna-
mannsins Marteins Sigurgeirssonar og
afraksturinn hangir á veggjum Gerðu-
bergs. Sumar myndanna eru Ijóðskreytt-
ar aðrar segja sjálfar allt sem segja þarf.
Opnunartími sýningar er virka daga frá
12 til 17 og stedur sýningin til 17. ágúst.
Handritasýning stendur í Stofnun Árna
Magnússonar, Árnagarði við Suðurgötu.
Á HÝRU TRIPPI
Stuðmenn verða á Gauknum í kvöld.
Stuðmenn stíga út úr skápnum:
Páli Óskari verður refsað
skemmtun Stuðmenn hafa verið á
landsreisu undanfarið en hyggjast
með eftirminnilegum hætti stíga út
úr skápnum nú um helgina, bæði
sunnan heiða og norðan.
Hljómsveitin stendur fyrir Hýru
trippi í kvöld á Gauk á Stöng þar sem
dj Dagný kemur fram ásamt Stuð-
mönnum og hljómsveitinni Hýrafári.
Daginn eftir, laugardaginn 23.júní
ætlar hljómsveitin að eggja Norð-
lendinga og örva með æsilegu Hýr-
arki í samvinnu við Pál Óskar.
,4 báðum stöðum munu Stuðmenn
draga hvern annan út úr skápnum
með valdi, auk þess sem Páli Óskari
verður refsað líkamlega fyrir það að
vera hálfgerður Drag-bítur á hljóm-
sveitinni, þó að hljómsveitarmenn
séu vissulega sammála um að hann sé
alveg kýrhýr í kollinum. Trommu-
leikarinn Geiri Óskars mun koma
fram um helgina sem Gayi Óskars,
Addi Rokk verður Addi Frock og
Bjarni Bö verður Bjarni Budda.
Kynnir bæði kvöldin verður hinn
kokhrausti Herra Borgarfjarðar- og
Hýrasýsla, Bóas Daði, en hann er
bæði glæhýr (nýkominn út úr skápn-
um) og ránhýr (mjög gay). ■