Fréttablaðið - 13.07.2001, Blaðsíða 6
6
FRÉTTABLAÐIÐ
13. júlí 2001 FÖSTUPAGUR
SPURNINC DACSINS
Hvers konar sumarieyfi
heillar þig mest?
Þar sem ég get verið með nánustu fjölskyldu
minni og kem endurnærður til nýrra verka á
eftir. Staðsetningin er ekki aðalatriðið, ég hef
verið í fríi í öllum heimsálfum; en félagsskap-
urinn og það að njóta öryggis er mér mikil-
vægt
Magnús Oddsson er ferðamálastjóri
ÁSDÍS HLÖKK THEODÓRSDÓTTIR
Skipulagsstofnun hefur tillögu um aðal-
skipulag til óformlegrar umsagnar.
Aðstoðarskipulagsstjóri
um flugvallarskipulag:
Unnið sam-
kvæmt skoð-
anakönnun
FLUGVALLARSKIPULAG „Við höfum
fengið frá borgarskipulagi drög
að aðalskipulagi til óformlegrar
umsagnar," segir Ásdís Hlökk
Theodórsdóttir, aðstoðarskipu-
lagsstjóri, en tekur fram að skip-
an mála á flugvallarsvæðinu fari
einnig eftir svæðisskipulagi höf-
uðborgarsvæðisins sem unnið
hefur verið nánast samhliða aðal-
skipulaginu. „Báðar þessar tillög-
ur eru í anda skoðanakönnunar-
innar sem gerð var meðal borgar-
búa, þá best ég veit. Það síðasta
sem ég vissi var að miða ætti við
að flugvöllurinn væri farinn árið
2016,“ segir Ásdís Hlökk.
Hún segir vinnuna við svæðis-
skipulag höfuðborgarsvæðisins
vera á svipuðu róli og aðalskipu-
lagið og ákvörðun um framtíð
flugvallarins, og þar með hvort
farið verði eftir skoðanakönnun-
inni, verði samtengd ákvörðun
þessara aðila. Nefndin fari nú um
þessar mundir ásamt stjórnum
sveitarfélaganna yfir síðustu
drög tillagna sem stefnt er á að
verði auglýstar í haust. „Þar verð-
ur markaður sá rammi sem aðal-
skipulagi borgarinnar er ætlað,
samkvæmt reglum, að útfæra
nánar,“ segir Ásdís Hlökk. ■
Um helgina:
Fínt veður
í bænum
veður Sigrún Karlsdóttir, veður-
fræðingur á Veðurstofunni, segir
að veðrið um helgina líti þokka-
lega út víðast hvar. Best verður
það sunnan- og vestan lands og
búast má við síðdegisskúrum á
stökum stað inn til landsins á
laugardag og sunnudag. Eitthvað
þykknar upp á sunnudag. Hlýjast
verður sunnanlands og spáð er
10-17 gráðum hita yfir daginn.
Sjálf ætlar Sigrún að vera
heima yfir helgina enda að vinna.
„Það verður líka fínt veður í bæn-
um,“ segir Sigrún Karlsdóttir. ■
Ung hjón í Þýskalandi:
Handtekin fyrir
hrottafengið morð
BERLÍN. ÞÝSKALANDI. AP. LÖgreglan í
austurhluta Þýskalands handtók í
gær ung hjón sem grunuð eru um
hrottafengið morð á 33 ára göml-
um manni, sem talinn er hafa ver-
ið samstarfsfélagi annars hinna
ákærðu. Illa leikið lík mannsins
fannst fyrr í vikunni í íbúð pars-
ins í bænum Witten í vestanverðu
Þýskalandi. Alls fundust 66 sár á
líkinu og eru þau sögð vera eftir
hnífsstungur og hamarshögg.
Morðið er talið tengjast djöfla-
dýrkun, en í íbúðinni fannst svört
líkkista auk krossa sem sneru á
hvolf. Hjónin ungu, sem heita
Manuela og Daniel Ruda, eru 22
og 25 ára gömul og eru þau nú í yf-
irheyrslu í borginni Bochum.
Hafði lögreglan leitað að þeim síð-
an líkið fannst í íbúðinni og bar
leitin loks árangur í borginni Jena
í austanverðu Þýskalandi þar sem
þau voru handtekin. ■
EKKI FRÝNILEG
Morðið er talið tengjast djöfladýrkum og ekki
er annað að sjá en að hjónin ungu hneigist
meira í átt að hinum myrkari öflum.
Erlend Náttúruverndar-
samtök:
Ahyggjur
vegna skil-
yrða Islands
hvalveiðiráðið Náttúruverndarsam-
tök um allan heim hafa lýst yfir
áhyggjum sínum yfir væntanlegri
inngöngu íslands inn í Alþjóða Hval-
veiðiráðið eftir tíu daga. Ahyggjurn-
ar beinast að skilyrðum íslands fyrir
inngöngunni en þau eru að ísland
mun ekki gangast undir ákvarðanir
sem teknar voru fyrir inngöngu fs-
lands í ráðið. Náttúruverndarsamtök-
in segja að ef skilyrðin verði sam-
þykkt mun það gera Hvalveiðiráðið
valdalaust. Stöð 2 greindi frá. ■
Breyttar adstæður í
rekstri tónskóla
Einsetning grunnskóla hefur gjörbreytt starfsumhverfi tónskóla. Opnar fyrir ný tækifæri að flét-
ta tónlistarnám meira inn í skólastarfið. Skólagjöld munu hækka ef stuðningur við tónskóla
dregst saman.
tónlistarnám „Við erum þegar
farin að finna fyrir því að ein-
setning grunnskóla hafi áhrif á
starfsemi tón-
skóla", segir Edda
Borg, skólastjóri
Tónlistar skóla
Eddu Borg.
Starfsumhverfi
tónskóla hefur
tekið miklum
breytingum að
undanförnu. Auk
þeirra áhrifa sem
einsetning grunn-
skóla hefur á
starfsemi þeirra
hefur úrskurður
Samkeppnisráðs
um að borgaryfir-
völd skuli endur-
skoða úthlutun
styrkja til tón-
skóla valdið óvis-
su um rekstrar-
Þegar einsetn-
ingin tók gildi
fóru börnin að
vera lengur í
skólanum á
daginn en
áður var. Því
geta tónlistar-
kennarar ekki
hafið kennslu
fyrr en á milli
tvö og þrjú á
daginn og
þurfa að vera
að til níu á
kvöldin til að
Ijúka fullum
vinnudegi
——
grundvöll þeirra.
„Þegar einsetningin tók gildi
fóru börnin að vera lengur í skól-
anum á daginn en áður var. Því
geta tónlistarkennarar ekki hafið
kennslu fyrr en á milli tvö og
þrjú á daginn og þurfa að vera að
til níu á kvöldin til að ljúka full-
um vinnudegi.“ Þessu fylgja
mörg vandamál að sögn Eddu.
Erfiðara verður að setja saman
stundaskrár, kennurum gefst síð-
ur kostur á yfirvinnu en áður og
ekki sé æskilegt að ung börn séu
að koma í tónlistarnám á kvöldin.
Edda segist þó vonast til þess
að í framtíðinni verði hægt að
flétta tónlistarnám inn í grunn-
skóla í meira mæli en gert hefur
verið hingað til. Þegar séu til-
EDDA BORG
Telur þörf á því að vlnna stefnumótun í tónlistarkennslu til lengri tíma en gert hefur verið hingað til. Stefnuna þarf að móta mörg ár fram
I tfmann en á því hefur oft verið brestur.
raunaverkefni í gangi í nokkrum
skólum þar sem forskólanám í
tónlist standi nemendum til boða
í aukinni viðveru í skólum. Þetta
segir hún að geti auðveldað börn-
um að gera upp við sig hvort þau
vilji leggja stund á tónlistarnám
eða njóta tónlistar einvörðungu
sem áheyrendur.
Aðspurð um hvaða áhrif úr-
skurður Samkeppnisráðs um
styrkjaveitingu Reykjavíkur-
borgar til tónskóla hafi á starf-
semi þeirra segir Edda að því sé
erfitt að svara og velti á því
hvernig borgin bregst við.
„Skólagjöld munu koma til með
að hækka verulega ef úrskurður
Samkeppnisráðs verður til þess
að þeir skólar sem hafa starfað í
tíu ár eða lengur fá skert fram-
lög“, segir Edda og telur óráðlegt
að miklar breytingar verði gerð-
ar á stuðningi borgarinnar við
tónlistarnám. Slíkt kunni að
verða til að tónskólum fjölgi,
stuðningur við þá minnki og graf-
ið verði undan þeim árangri sem
hefur náðst í tónlistarnámi.
binni@frettabladid.is
Aíturvirk lán nemenda
Lögregluskólans:
Formlegt
erindi berist
lögregluskólinn „Það er ekki dóms-
málaráðuneytisins að hafa forgöngu
um það að námslánin verði afturvirk,
þá værum við að fara inn á verksvið
menntamálaráðherra," segir Ingvi
Hrafn Óskarsson, aðstoðarmaður Sól-
veigar Pétursdóttur, dómsmálaráð-
herra, varðandi kröfu núverandi
nema skólans um afturvirk námslán
vegna vorannar skólans. Frá mennta-
málaráðuneytinu fengust þau svör
frá Guðríði Sigurðardóttur að nem-
endurnir verði að snúa sér til stjórnar
LÍN, en ráðuneytinu hafi ekki borist
formlegt erindi vegna málsins. Stein-
grímur Ari Arason, framkvæmda-
stjóri LÍN, segir að í erindinu sem
sjóðnum barst frá dómsmálaráðu-
neytinu hafi ekki verið fjallað sér-
staklega um núverandi nemendur
skólans.
„Það liggur fyrir að stjórnin hefur
samþykkt að fyrsta
önnin í Lögreglu-
skólanum sé láns-
hæf frá og með
næsta námsári,"
segir Steingrímur,
en tekur fram að
reglur sjóðsins
heimili þeim ekki að
svo stöddu máli að
veita núverandi
nemendum aftur-
virk lán. í víðtali við
Öldu Baldursdóttur,
einn nemendanna, í
STEINGRlMUR ari
ARASON
Ekki hefur verið fjall-
að sérstaklega um
rétt núverandi nem-
enda Lögregluskól-
ans til afturvírkra
lána.
Fréttablaðinu í gær kom fram að þau
hafi sjálf komið því í gegnum kerfið
að námið verði gert lánshæft. Nýja
reglan gengur hinsvegar ekki í gildi
fyrr en á næsta skólaári og sitja þeir
því eftir með sárt ennið. ■
Skipulags- og byggingarmál:
Scimeinuð stofnun
undir borgarstjóra
borgin Árni Þór Sigurðsson for-
maður skipulags- og byggingar-
nefndar Reykjavíkurborgar segir
að með sameiningu embætta bygg-
ingarfulltrúa og Borgarskipulags
muni stofnunin heyra beint undir
borgastjóra. Á fundi nefndarinnar
í fyrradag var frestað afgreiðslu á
tillögu meirihlutans um samein-
ingu þessara tveggja embætta til
næsta fundar vegna kröfu sjálf-
stæðismanna sem vildu fá meiri
tíma til að skoða málið. Á fundin-
um kom m.a. fram af þeirra hálfu
að ekki lægju nógu ítarleg rök fyr-
ir þessari grundvallarbreytingu.
Formaður skipulags- og bygg-
ingarnefndar bendir á að eins og
nú háttar heyrir embætti bygging-
arfulltrúa undir embætti borgar-
verkfræðings. Með áformaðri
sameiningu sé því verið færa
þennan hluta skipulagsþáttarins
ofar í stjórnsýslunni en verið hef-
ur. Af sökum telur hann að með
þessum breytingum sé verið að
styrkja þennan hátt, gera hann
skilvirkari og efla þessa þjónustu
við borgarbúa, arkitekta og hönn-
uði. ■