Fréttablaðið - 23.07.2001, Blaðsíða 10
I KI I ! ABI A1 >11 >
10
FRÉTTABLAÐIÐ
23. júlí 2001 MÁNUDAGUR
Takmörk á völd ogjjárráð stjórnmálamanna
Útgáfufélag: Fréttablaðið ehf.
Útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson
Ritstjóri: Einar Karl Haraldsson
Fréttastjóri: Pétur Gunnarsson
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing:
Þverholti 9, 105 Reykjavík
Aðalsími: 515 75 00
Simbréf á fréttadeild: 515 75 06
Rafpóstur: ritstjom@frettabladid.is
Simbréf á auglýsingadeild: 515 75 16
Rafpóstur: auglysingar@frettabladid.is
Setning og umbrot: Fréttablaðið ehf.
Plötugerð: iP-prentþjónustan ehf.
Prentun: Isafoldarprentsmiðja hf.
Dreifing: Póstflutningar ehf.
Fréttaþjónusta á IMetinu: Vlsir.is
Fréttablaðinu er dreift ókeypis til allra heimila á höf-
uðborgarsvæðinu. Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn
greiðslu sendingarkostnaðar; kr. 1.100 é mánuði.
Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni
blaðsins 1 stafrænu formi og 1 gagnabönkum
án endurgjalds.
siðvendi Ragnar Aðalsteinsson
hefur sagt, eftir að Árni Johnsen
boðaði afsögn sína sem þingmað-
ur, að málið sýni að nauðsynlegt sé
að opna bókhald stjórnmálaflokk-
anna. Það má vel vera ágæt ábend-
ing en umræðan hér á landi hefur
verið helst til
hræsnisfull á köfl-
um. Og það eru
ekki síst þeir sem
hæst láta sem falla
af siðferðisstallin-
um í þeim efnum.
Fyrrverandi
flokksmenn Al-
þýðubandalagsins hafa spurt opin-
berlega hvernig standi á því að
skuldir flokksins voru mun hærri
en greint var frá á landsfundi
hans. Líka var spurt hvort þáver-
andi formaður hefði „notað ávís-
anahefti flokksins eins og sitt eig-
ið“. Þessum flokksmönnum hefur
ekki verið svarað þrátt fyrir hróp
um siðavendni í fjármálum stjórn-
málaflokkanna.
Aðrir flokkar hafa í gegnum
tíðina kallað á opið bókhald og
viljað sýna gott frumkvæði. Það
frumkvæði hefur falist í því að
dingla fram einhverjum blöðum
með tölum á og það hefur verið
skýrt opið bókhald. Þetta er það
sama og aðrir flokkar hafa gert,
bara mun betur, í áratugi á sínum
landsfundum.
Og svo er það umræðan um
styrki frá fyrirtækjum og hags-
munatengsl - það þurfi reglur þar
...Má.l...roanna
Björgvin Guðmundsson
fjallar um opið bókhald
um. En bíðum við! Hverjir voru
það sem þáðu styrk frá Islenskri
erfðagreining þegar fyrirtækið
var mikið til umræðu m.a. á Al-
þingi? Allir flokkar þáðu styrk
nema annar stjórnarflokkurinn.
Erlendis þrífst víða spilling þar
sem reglur eru strangar. Lausnin
felst ekki í reglunum heldur að
fjarlægja freistingarnar. Það
verður að takmarka verulega völd
og fjárrráð stjórnmálamanna og
leyfa fólkinu sjálfu að halda eftir
sem mestu af sínum fjármunum.
Eins og við vitum öll þá fer fólk
betur með eigið fé en annarra.
—♦—
„Umræðan
hér á landi
hefur verið
helst til
hræsnisfull á
köflum."
—«—
VESTMANNAEYJAR
Ungir sjálfstæðismenn 1 Vestmannaeyjum
fordæma fjölmiðlafárið.
Nornaveiðar
x fjölmiðlum
Linkind við lyjjaeftirlit
Lyfjaeftirlit sýndarmennska og sóun. Fjögur lyfjamisnotkunarmál innan KKI skoðuð.
lyfjanotkun „Það hefur oft verið
ágreiningur, sérstaklega út af
lyfjamálum, þegar komið hafa
upp erfið mál og hafa margir vilj-
að toga í spotta," segir Birgir
Guðjónsson, fyrrverandi formað-
ur heilbrigðisráðs ÍSÍ, eftir að
hann sagði af sér vegna dóma
sem féllu vegna lyfjanotkunar
íþróttamanna. í dómunum hlutu
íþróttamenn væga eða enga refs-
ingu fyrir notkun lyfja.
Birgir nefnir máli sínu til
stuðnings fjögur mál innan
Körfuknattleikssambands ís-
lands. í einu þeirra var íþrótta-
kona staðin að því að nota astma
lyf í keppni án þess að hafa und-
irritað yfirlýsingu um notkun
þeirra fyrirfram, eins og reglur
segja til um.
„Eftir að búið er að undirrita
skjal, sem fer víða um heim, um
að menn séu ekki á neinum lyfj-
um og það mælist jákvætt í próf-
um þá eru menn í helvíti miklum
vanda,“ segir Birgir. „Ef hægt er
að koma eftir á með læknisfræði-
legar afsakanir, sem eru haldlitl-
ar í svona máli, og sleppa við all-
ar refsingar þá á það að eiga við
alla aðra.“
Birgir stóð í bréfaskriftum við
Alþjóða ólympíunefndina og KKÍ
til að fá blessun fyrir því að leik-
maðurinn slyppi mildilega. Heil-
brigðisráð ÍSI stóð með honum en
átök voru um málið innan fram-
kvæmdastjórnar. Dómstóll ÍSÍ
dæmdi stúlkuna ekki og segir
Birgir að þeim hefur líklega ver-
ið gefin góð ráð áður en dómur
var upp kveðinn. Niðurstaða
dómsins stenst ekki alþjóðar-, ís-
lenskar né FIBA reglur.
Birgir telur íþróttamenn ekki
sitja við sama borð. „Ákveðna
hópa hefur ekki átt að prófa, aðra
ekki ákæra fyrir brot né fylgja
eftir dómum hjá sumum," segir
hann í greinagerð til Fram-
kvæmdastjórnar ÍSÍ. „ÍSÍ hefur
fengið milljónir króna frá stjórn-
völdum til lyfjaeftirlits. Um-
ræddir dómar sýna að eftirlit er
sýndarmennska og útgjöld sóun.
Ég tel því rétt að hætta því.“
BIRGIR GUÐJÓNSSON
Þetta er spuming um jatnræði eða gefa
þessu lausan tauminn.
Stjórn Eyverja, ályktar:
umræða „Eyverjar, félag ungra
sjálfstæðismanna í Vestmannaeyj-
um, vilja koma eftirfarandi á fram-
færi:
Eyverjar harma þann mannlega
harmleik og það fjölmiðlafár sem
einkennt hefur málefni Árna John-
sen 1. þingmann Suðurlandskjör-
dæmis síðastliðna daga. Eyverjar
taka ekki upp hanskann fyrir þing-
mannin í málefnum hans við ís-
lensku þjóðina og verður hann að
gjalda fyrir gjörðir sínar sem hann
hefur og gert með afsögn sinni sem
þingmaður.
Eyverjar fordæma hins vegar
það fjölmiðlafár sem einkennt hef-
ur málefni þingmannsins síðustu
daga sem oft og tíðum hefur ein-
kennst af nornaveiðum heldur en
fagmannlegum vinnubrögðum. Svo
virðist sem umfjöllun um málið
hafi miðast við það að hengja þing-
manninn áður en sekt er sönnuð og
oftar en ekki hefur verið sparkað í
liggjandi mann. Er það óafsakan-
legt.
Við búum í lýðræðisþjóðfélagi
og eigum heimtun á réttmætri og
gagnrýninni umræðu en ekki um-
ræðu sem miðast við að sakfella
mann áður en sekt er sönnuð.
Árna Johnsen hefur orðið illi-
lega á og hefur nú ákveðið að taka
ábyrgð á gjörðum sínum með af-
sögn. Árni hefur gert margt gott
fyrir Eyjarnar á löngum og farsæl-
um þingferli og verður að hafa það
í huga þegar pólitískt starf hans er
skoðað.
Að endingu skulum við hafa orð
Frelsarans að leiðarljósi því þau
eiga svo sannarlega vel við núna.
„Sá yðar sem syndlaus er kasti
fyrsta steininum.
Vestmannaeyjum 19.07.01'
Tilhæfulausar aðdróttanir Birgis. Dómstóllinn átti ekki að veita undanþágu
heldur heilbrigðisráð.
lyfjanotkun „Ef hann er að segja að
þetta sé sýndarmennska þá er það
áfellisdómur yfir honum sjálfum því
hann hefur verið aðalmaðurinn i
lyfjamálunum og aðalhöfundurinn
að þessari reglugerð. Ég vísa því á
bug að þetta sé sýndarmennska þvi
lyfjaeftirlitið hefur sýnt aðhald,"
segir Ellert B. Schram, formaður
framkvæmdastjórnar ÍSÍ, um orð
Birgis Guðjónssonar að lyfjaeftirlit
og dómar á íslandi séu sýndar-
mennska ein. Hann segir það með
öllu tilhæfulaust að framkvæmda-
stjórnin hafi afskipti af lyfjaeftir-
liti.
íslendinga eru með sínar lyfja-
reglur sem eru samdar að mestu
leyti af Birgi Guðjónssyni sjálfum,
segir Ellert. Hann veit ekki betur en
reglugerðin sé meira og minna í
samræmi við það sem gildir í al-
þ jóðasamböndunum.
Hvað varðar málaferli vegna
lyfjanotkunar körfuknattleikskonu
segir Ellert það ljóst að reglum var
ábótavant. Það þurfi að skýi-a betur
málatilbúnað, viðurlög og áfrýjun.
Birgir hafnaði þátttöku í nefnd til að
endurskoða þessa reglugerð.
„Að því er varðar stúlkuna þá er
hún samkvæmt læknisráði að taka
astma innöndunarlyf," segir Ellert.
Hann staðfestir að hún hafi ekki gef-
ið upp lyfið þegar hún var spurð að
því við lyfjapróf. „Hún lagði fram
vottorð þegar málið var dómtekið og
það segir í reglugerð að það megi
veita undanþágu þegar verið er að
taka lyf samkvæmt læknisráði.“
Ellert segir að dómurinn hafi lit-
ið svo á að þar sem það lægi ekki
fyrir hvort það ætti að leggja fram
vottorð fyrir eða eftir lyfjapróf þá
væri nægilegt að það hafi verið lagt
fram þegar það var tekið til dóms.
„Þetta er niðurstaða dómsins. Það er
hann sem tekur þessar ákvarðanir.
Sumir eru sáttir með niðurstöðuna,
aðrir ekki. Ég hef sagt við Birgi að
viðbrögð okkar hljóta að vera þau að
breyta reglugerðinni eins og við
teljum að réttlætinu verði fullnægt
en ekki fara í fýlu,“ segir Ellert.
ELLERT B. SCHRAM
Rétt að breyta reglugerðinni í stað þess að
fara í fýlu.
Ellert bendir á að það megi gagn-
rýna að dómstóllinn hafi veitt þessa
undanþágu því samkvæmt reglum
ÍSÍ þá geti heilbrigðisráð eitt veitt
þessa undanþágu. ■
ORÐRÉTT
Lög og hefðir og ábyrgð stjórnmálamanna
stjórnmál „Eftir að Árni Johnsen
sagði af sér þingmennsku er at-
hyglinni beint að öðrum stjórn-
málamönnum og þar á meðal mér.
Jónas Kristjánsson, ritstjóri DV,
fullyrðir í forystugrein í blaði sínu
í dag, að í nágrannaríkjum okkar
væru ráðherrar menntamála og
fjármála búnir að segja af sér, enn
fremur embættismenn ráðuneyt-
anna, sem höfðu með Árna að gera,
svo og forstjóri Framkvæmdasýslu
ríkisins. Hér beri hins vegar enginn
neina ábyrgð og allra síst stjórn-
málamenn.
Fullyrðingar af þessu tagi eru
innantómar enda settar fram til að
heimta meira pólitískt blóð af rit-
stjóra, sem löngum hefur fylgt
þeirri stefnu, að hann selji blað sitt
því meira sem hann geti traðkað
meira á stjórnmálamönnum. Upp-
hrópanir um að ráðherrar segi af
sér eru þess vegna ritstjóranum
tamar. Forvitnilegt væri að vita,
hvort hann vissi um nokkurt sam-
bærilegt mál og það, sem hér hefur
verið til umræðu síðustu daga, í ná-
grannaríkjunum. Veit hann um
það?“...
.. „Margir hafa heiður að verja,
þegar rætt er um mál eins og þetta,
ekki aðeins stjórnmálamenn heldur
einnig þeir, sem sækja að þeim. Ég
hef verið spurður, hvort Svanur
Kristjánsson, prófessor í stjórn-
málafræði, sé að verja heiður sinn
sem fræðimanns, þegar hann setur
upp spekingssvip í sjónvarpssal og
kemst að þeirri niðurstöðu í beinni
útsendingu, að það séu helst þing-
menn Sjálfstæðisflokksins, sem
tengist ámælisverðri framgöngu
með opinbert fé. Þessari spurningu
gat ég ekki svarað, enda veit ég
ekki hvaða fræðilegum grunni nið-
urstaða prófessorsins byggist.
Stjórnmálamenn eiga vafalaust
eftir að takast á um þetta mál
næstu daga og vikur. Ef menn eiga
að víkja úr embættum vegna sam-
anburðar við það, sem gerist í út-
löndum, hlýtur þó í stjórnmálaum-
ræðum á heimavelli að vera tekist á
um mál af þessu tagi í ljósi ís-
lenskra laga og hefða. Verði miklar
stjórnmálaumræður eftir afsögn
Árna Johnsens og í framhaldi af því
að mál hans er upplýst, hljóta þær
að ná til fleiri mála af svipuðum
toga frá fyrri tíð og hvernig við
þeim var brugðist."
Af bjorn.is 21/7 2001
Engar afsak-
anir eftir á
lyfjapróf Við lyfjapróf er íþróttamað-
ur beðinn um að skýra frá öllum Iyfj-
um og fær þannig tækifæri til að upp-
lýsa um sjúkdóma og lyfjatöku hafi
vottorð gleymst. Undirriti íþrótta-
maðurinn hins vegar yfirlýsingu um
að engin lyf séu notuð og síðan finn-
ast lyf á bannlista í þvagsýni telst
lyfjaprófið jákvætt. Niðurstaða já-
kvæðs lyfjaprófs er einnig send til
IOC [Alþjóðaólympíunefndin] og við-
komandi alþjóðasérsambands og
verður því aldrei lítið prívatmál. Al-
þjóða-sérsamböndin hafa lokaorð um
refsingar í viðkomandi íþróttagrein.
Það vakti nokkra furðu þegar
reyndum íþróttamanni og forystu-
mönnum KKÍ var skýrt frá fundi Ter-
butalíns í þvagi að þeir vissu ekkert
um lyfjareglur eigin sérsambands.
íþróttamaðurinn sagði þá fyrst frá
astma og viðurkenndi notkun lyfsins.
Könnuð voru viðhorf nokkurra al-
þjóðasérsambanda og IOC til slíkrar
stöðu og var svarið afdráttarlaust, af-
sakanir eftir á eru ekki teknar til
greina.
Úr greinagerð Birgis Guðjónssonar vegna lyfja-
mála
BJÖRN BJARNASON
Umræður hljóta að ná til fleiri mála af svipuð-
um toga frá fyrri tíð.