Fréttablaðið - 23.07.2001, Síða 12
12
FRÉTTABLAÐIÐ
25. júlí 2001 MÁNUAGUR
Kópavogsbær vill bera kostnað við lögreglumann:
Starfsmaður verji skóla
gegn fíkniefnasölum
FORVARNIR Bæjarráð Kópavogs hyg-
gst leita eftir samvinnu við dóms-
málaráðuneytið um ráðningu starfs-
manns sem vinna á gegn útbreiðslu
og neyslu fíkniefna og að fræða
grunnskólabörn í Kópavogi um hætt-
ur fíkniefnanna. Ætlunin er að sá
sem skipar stöðuna hafi stöðu lög-
reglumanns og hafi aðstöðu hjá
sýslumanni í Kópavogi.
„Besta ráðið til að vinna gegn
þessum vágesti er að fræða börn og
unglinga um hræðilegar afleiðingar
neyslu slíkra efna. Sá sem myndi
sinna þessu starfi þyrfti að vera í
fullu starfi við fræðslu í grunnskól-
um svo og að verja skólana fyrir
ágangi fíkniefnasala," segir í greina-
gerð sem lögð var fram í bæjarráði.
Sigurður Geirdal, bæjarstjóri í
Kópavogi, segir bæjarráð ekki hafa
viljað láta peningaleysi hjá lögregl-
unni hindra baráttuna gegn fíkni-
efnaneyslu ungmenna og vilji leggja
fram fá á móti ríkinu til verkefnis-
ins.
„Þetta er ekki árennilegt lið og
kennarar eru oft í vandræðum. Ef
við ætlum að taka þátt í einhverju
eftirliti verður það að vera með aðila
sem hefur eitthvert vald. Við viljum
því samstarf við lögregluna en þegar
talað er um lögreglueftirlit kemur
gjarnan upp umræða um blankheit.
Peningaleysi má ekki vera til fyrir-
stöðu í þessu máli og við vonumst
SIGURÐUR GEIRDAL
„Það eru allir að reyna að klóra i bakkann og
gera eitthvað gagn," segir bæjarstjórinn.
eftir að geta leyst það í samstarfi við
dómsmálaráðuneytið,“ segir Sigurð-
ur Geirdal. gar@frettabladid.is
San
Ekkiha
SPflRNflÐUR Vilhjálmur Bjarnason
viðskiptafræðingur og háskóla
kennari, er formaður Samtakc
fjárfesta, almennra sparifjár- 0£
hlutabréfaeigenda. Vilhjálmui
segir samtökin hafa starfað í rúmí
tvo áratugi og að félagsmenn séi
nú um 1500.
„Sparnaður er mjög merkilegi
hlutur og menn ættu ekki að hæð
ast að honum. í fréttatilkynningi
Seðlabankans frá 12. júlí 1974, er
þá var ég að vinna í bankanum
sagði bankastjóri Seðlabankans at
réttur sparifjáreigenda hefði alltoi
lengi verið fyrir borð borinn. Þettc
_____ Innköllun:
Rafrsen sknáning
hlutabréfa Flugleiöa hf.
fná og meö 30. júlí 2001
Mánudaginn 30. júlí 2001 verða hlutabréf í Flugleiðum hf. tekin til raffænnar
skráningar hjá Verðbréfaskráningu Islands hf. í samræmi við ákvörðun stjómar
Flugleiða hf. þar að lútandi. Þar af leiðandi verða engin viðskipti með hlutabréf
félagsins þann dag. Frá þeim tíma ógildast hin áþreifanlegu hlutabréf í fyrirtækinu
í samræmi við ákvæði laga og reglugerðar um rafræna eignarskráningu verðbréfa.
Nánar tilgreint verða öll hlutabréf í Flugleiðum hf. tekin til rafrænnar skráningar
en þau eru í þremur flokkum, auðkennd raðnúmemm J300001 - J800000;
NOOOOOl - N400000; SOOOOOl - S030000 og gefin út á nafn hluthafa.
Utgáfudags er getið á hveiju bréfi.
Hér með er skorað á alla eigendur ofangreindra hlutabréfa sem telja nokkum vafa
leika á að eignarhald þein'a sé réttilega fært í hlutaskrá Flugleiða hf. að staðreyna
skráninguna með fyrirspurn til hlutaskrár Flugleiða hf., Reykjavíkurflugvelli, 101
Reykjavík, eða í síma 5050-289, netfang: shares@icelandair.is. Komi í ljós við
slíka könnun að eigendaskipti hafi ekki verið skráð ber eigendum að færa sönnur
á þau gagnvart félaginu fyrir áðurnefndan dag.
Enn fremur er skorað á alla þá sem eiga takmörkuð réttindi til ofangreindra
hlutabréfa, s.s. veðréttindi, að koma þeirn á framfæri við fullgilda reikningsstofnun,
þ.e. banka, verðbréfafyrirtæki eða sparisjóð sem gert hefur aðildarsamning við
Verðbréfaskráningu Islands hf., fyrir skráningardag.
Athygli hluthafa er vakin á að hin áþreifanlegu hlutabréf félagsins verða ógild
sjálfkrafa og því er ekki þörf á að skila þeim til félagsins. Jafnframt er vakin athygli
á að ferli rafrænnar skráningar hefur engin áhrif á möguleika hluthafa til að eiga
viðskipti með hluti sína í félaginu að undanskildum sjálfum skráningardeginum.
Að lokinni rafrænni skráningu þurfa hluthafar að fela reikningsstofnun umsjón
með eignarhlut sinum í félaginu til að geta framselt hluti sína svo sem vegna sölu
eða skipta. Reikningsstofhun mun i þessu skyni stofha VS-reikning i nafni
viðkomandi hluthafa. Hluthöfum félagsins hefur verið kynnt þetta bréfleiðis.
Stjóm Flugleiða hf.
ENGAR PREDfKANIR!
„Ekki stendur til að messa yfir ungmennum á
landsbyggðinni, mun heldur að vekja þau til um
hugsunar og fá þau til þess að ræða um skadsenti
vímuefna á jafningjagrundvelii," sögðu aðstand
endur lafningjafræðslunnar á föstudaginn. Alls
inunu 18 starfsmenn Fræðsiunnar heimsækja
ungmenni frá 14 stöðum á landsbyggðinni.
Ungur nemur
Unga fólkið í Jafningjafræðslunni leggur í dag af
Til stendur að vekja fólk til umhugsunar um skaðse
jflFNiNGJAFRÆÐSLflN Forvarnarverk-
efnið Jafningjafræðslan er að leggja
í hringferð um landið í dag þar sem
til stendur að færa ungu fólki á
landsbyggðinni sannleikann um
skaðsemi vímuefna. Undanfarin ár
hefur Jafningjafræðslan starfað á
höfuðborgarsvæðinu við að fræða
fólk í Vinnuskólanum um afleiðingar
notkunar vímuefna. Fræðslan bygg-
ist upp á því að ungur fræðir ungan
og segja aðstandendur Fræðslunnar
að „best sé að ná til [ungs fólks] ef
umræður-fara fram á jafningja-
grundvelli."
„Það kom upp tvær hugmyndir í
byrjun sumars sem við ákváðum að
framkvæma af krafti: annars vegar
götuhátíð sem við vorum með um
miðjan júlí og tókst stórvel, og hins
vegar ferð hringin í kringum land-
ið,“ sagði Sylvía Kristín Olafsdóttir,
starfsmaður Jafningjafræðslunnar,
þegar hringferðin var kynnt fyrir
fréttamönnum á sl. föstudag. Sylvía
segir að þátttaka sveitarfélaga hafi
verið mjög góð þó svo að nokkur hafi
kosið að fá ekki Jafningjafræðsluna í
heimsókn.
„Forsvarsmenn Eskifjarðar hafa
Bresk rannsókn:
Sá sem fæðist á sumrin
er líklegri til sjálfsvígs
HEiLSfl. Þeir einstaklingar sem fæð-
ast á sumrin gætu verið líklegri en
aðrir til að fremja sjálfsvíg þegar
þeir verða eldri, að því er kemur
fram í breskri rannsókn. í rann-
sókninni voru 152 sjálfsvíg einstak-
linga sem voru 55 ára og eldri borin
saman við hóp jafngamalla einstak-
linga sem dáið höfðu af eðlilegum
orsökum. Að því er kemur fram á
heilsuvef Reuters kom í ljós að
sterk tengsl voru á milli fæðingar-
dags og hverjar líkurnar voru á
sjálfsvígi. Flestir þeirra sem fröm-
du sjálfsvíg voru fæddir í ágúst og á
meðal þeirra karlmanna sem fædd-
ir voru í ágúst, september eða janú-
ar voru líkur á sjálfsvígi óvenju
háar. í rannsókninni kom einnig
fram að þeir einstakiingar sem tóku
eigið líf á ofbeldisfullan hátt voru
líklegri til að hafa fæðst um sumar-
tímann. Rannsókn þessi, sem unnin
var af vísindamönnum við Hollins
Park sjúkrahúsið í Warrington,
styður eldri niðurstöður rannsókna
um að tengsl séu á milli þess á
hvaða tíma ársins fólk fæðist og
hversu heilsuhraust það verði þegar
það eldist. ■