Fréttablaðið - 23.07.2001, Síða 14

Fréttablaðið - 23.07.2001, Síða 14
14 FRETTABLAÐIÐ 25. júlí 2001 MÁNUACUR Heimsmeistaramótið í sundi: Norðurlcindamet hjá Erni í GÓÐUFORMI Örn Arnarson tvíbætti íslandsmetið í 100 metra baksundi á Heimsmeistaramótinu i Fuku- oka í gær. Hann syndir í úrslitum í dag Bikarkeppnin: KA áfram knattspyrna KA lagði úrvalsdeildar- lið Keflavíkur í átta liða úrslitum bik- arkeppninnar í knattspyrnu í gær- kvöld með tveimur mörkum gegn einu. Haukur Ingi Guðnason kom ÍBK yfir á 78. mínútu en Elmar Sig- þórsson jafnaði fyrir KA þremur mínútum síðar og Þorvaldur Makan Sigbjörnsson tryggði norðanmönnum sætan sigur á 87. mínútu. KA er þar með komið í fjögurra liða úrslit eitt 1. deildar liða. I Hafnarfirði báru heimamenn í FH sigurorð af ÍBV með marki Atla Viðars Björnssonar. Á Laugardalsvelli sigraði í A Fram 6-5 eftir vítaspyrnukeppni. Markalaust var eftir framlengingu. Á morgun mætast Grindavík og Fylkir í lokaleik átta liða úrslitanna. ■ sund Örn Arnarson, sundmaður úr Hafnarfirði, tvíbætti fslands- metið í 100 metra baksundi í gær á Heimsmeistaramótinu í sundi, sem nú fer fram í Fukuoka í Jap- an. Örn var með fimmta besta tímann í undanrásum og í undan- úrslitum fékk hann annan besta tímann, þegar hann synti á 55,21 sekúndu, sem er nýtt Norður- landamet. Benedikt Sigurðarson, for- maður Sundsambands íslands, sagði að þetta væri stórglæsileg- ur árangur hjá Erni. Hann hefði bætt sinn eigin árangur um 0,78 sekúndur og væri því greinilega í góðu formi. Úrslitasundið fer fram í dag og verður sýnt beint frá því í Sjónvarpinu og hefst út- sending klukkan 8.55. Láru Hrund Bjargardóttur gekk ekki jafnvel og Erni, en hún keppti í 400 metra fjórsundi um helgina og varð í 21. sæti í und- anúrslitum. Benedikt sagði að hún hefði verið töluvert frá sínum besta árangri. Lára Hrund mun á næstu dögum keppa í 200 metra fjórsundi og 100 metra skrið- sundi. Auk þess að keppa í 100 metra baksundi mun Örn keppa í 200 metra baksundi á mótinu, en í þeirri grein á hann 4. besta tím- ann. Einnig mun hann keppa í 400 metra fjórsundi, en þar á hann 21. besta tímann af 39 kepp- endum. Jakob Jóhann Sveinsson kepp- ir í 50, 100 og 200 m bringusundi á mótinu og hefur keppni á morgun. ■ | MOLAR | Það tók Ruud van Nistelrooy að- eins sjö mínútur að opna marka- reikning sinn hjá Man. Utd, en hann skoraði tvö mörk í 6-0 sigri liðsins gegn stjörnuliði Malasíu. Fyrsta markið skoraði hann á 7. mínútu, eins og áður sagði, eftir góðan undir- búning Dwight Yor- ke og Roy Keane. Van Nistelrooy, sem í leiknum, skoraði annað mark sitt á 36. mínútu með fallegu skoti. Argentínumaðurinn Juan Veron, sem nýlega var keyptur til liðsins frá Lazio, lék einnig vel í leiknum og virtist ná vel saman með Roy Keane á miðjunni. Alex Fergu- son, framkvæmdastjóri Man. Utd. var mjög sáttur við leik sinna manna og sagði að nýju leikmennirnir hefðu strax sýnt hvers þeir væru megnug- ir. Lazio hefur boðið Valencia fram- herjann Marcelo Salas í skiptum fyrir miðvallarleikmanninn Kily Gonzales. Valencia hefur náð sam- komulagi við Salas en Jaime Orti, forseti Valencia, sagði að ekkert yrði úr leikmannaskiptunum fyrr en Salas hefði sæst við Lazio, en sam- skipti hans við félagið hafa ekki ver- ið góð undanfarin misseri, m.a. neit- aði hann að fara til Parma á síðustu leiktíð, þrátt fyrir að félögin hefðu náð samkomulagi um kaupin. Ef Salas fer frá Lazio til Valencia verða það önnur viðskipti félaganna á inn- an við viku, en á föstudaginn keypti Lazio Gaizka Mendieta frá Valencia fyrir 4 milljarða króna. ■ ........ Loks sigraði David Duval David Duval kom sá og sigraði á Opna breska meistarmótinu sem lauk í gær. Þetta er fyrsta stórmótið sem hann sigrar á og hann er sjötti Bandaríkjamaðurinn sem vinnur elsta golfmót heims á sjö árum. golf Bandaríkjamaðurinn David Duval sigraði á Opna breska meist- armótinu í golfi sem lauk í gær á Lytham vellinum í Englandi. Duval hefur verið einn besti golfleikari heims undanfarin ár en hefur aldrei unnið á stórmóti. Þegar keppni hófst í gærmorgun, voru fjórir kylfingar jafnir en Duval sýndi það og sannaði að hann getur unnið slíkt mót. Hann fékk fugl á öllum þremur, par fimm holunum í gær og sló hringina fjóra á 274 höggum, tju höggum undir pari vallarins. í öðru sæti var Niclas Fasth frá Svíþjóð, sjö höggum und- ir pari, í þriðja sæti urðu sex kylfingar, þeir Darren Clarke, Ern- ie Els, Billy Mafair, Miguel Angel Jimenez, Ian Woosnam og Bern- hard Langer, allir sex höggum und- ir pari. Ian Woosnam var sá kylfingur sem hefði getað veitt Duval mestu keppnina og hann byrjaði daginn vel og sló næstum því ofan í á fyrstu holu. Áður en hann sló af öðrum teig uppgötvaði hann að hann var með fimmtán kylfur í pok- anum en samkvæmt reglum Opna breska er einungis heimilt að spila með fjórtán kylfur. Hann fékk því tvö högg í víti og í stað þess að fá fugl á fyrstu, fékk hann skolla. Hann endaði í þriðja sæti. Tiger Woods byrjaði og fékk fugl á þrjár holur í röð en á 7. holu missti hann stutt pútt og á þeirri tólftu fór hann þremur höggum yfir pari og þar með voru möguleikar hans taldir. Skotinn Colin Montgomerie, sem leiddi mótið eftir fyrsta dag, spilaði ekki sem skildi og kláraði síðasta Lokastaða efstu manna Nafn Höggafjöldi Heildarskor David Duval 69-73-65-67 274 Niclas Fasth 69-69-72-67 277 71-71-67-69 278 Darren Clarke 70-69-69-70 278 Míguel A Jimenez69-72-67-70 278 Billy Mayfair 69-72-67-70 278 lan Woosnam 72-68-67-71 278 Bernhard Langer 71-69-67-71 278 Mikko llonen 68-75-70-66 279 Kevin Sutherland 75-69-68-67 279 Sergio Garcia 70-72-67-70 279 Nafn Höggafjöldi Heildarskor Jesper Parnevik 69-68-71-71 279 Vijay Singh 70-70-71-69 280 Loren Roberts 70-70-70-70 280 Des Smyth 74-65-70-71 280 Billy Andrade 69-70-70-71 280 Retief Goosen 74-68-67-71 280 C Montgomerie 65-70-73-72 280 R Jacquelin 71-68-69-72 280 Alex Cejka 69-69-69-73 280 Davis Love III 73-67-74-67 281 Nick Price 73-67-68-73 281 mmiM b6nus m Öryggiskerfi-ISDN og analog ORYGGISKERFI: Stöð og hnappaborð-Hreyfiskynjari Hurðaseglar-Fjarstýring-Bjalla og uppsetning. Kr. 65.00 eða 5.417 x 12 mánuðir. ISDN tenging: NT box ásamt stofngjaldi símans ISDN sími með tvo analog útganga uppsetning á NT boxi og síma. Kr. 29.000 eða 4.833 x 6 mánuðir. RAFLAGNIR ISLANDS ehf. VERSLUN - HEILDSALA Hamarshöfða 1-110 Reykjavík - Sími 511 1122 - Fax 511 1123 Verkstæði og vörulager: 511 1124 - ris@simnet.is - www.simnet.is/ris SÁTTUR Duval kyssir hér verðlaunagripinn eftir- sótta. Þetta er fyrsta stórmótið sem Duval sigrar á. hringinn á 72 höggum, samtals 280 höggum sem skilaði honum þrett- ánda sæti. Sömu sögu var að segja af Svíanum Jesper Parnevik sem fékk skolla á þriðju og fimmtu holu. Duval fékk 858,000 dollara fyrir sigurinn, sem samsvarar um 85 milljónum íslenskra króna en auk þess fékk hann silfurbikarinn eftir- sótta. Þetta er langþráður draumur hjá Duval sem hefur þó nokkrum sinnum fengið tækifæri til að sigra á stórmóti, tvisvar á Opna banda- ríska meistaramótinu og í fyrra á St. Andrews svo einhver mót séu nefnd. „Þetta er mikill léttir fyrir mig,“ sagði Duval að loknu móti. „Það er mjög mikill þrýstingur á keppend- BESTUR Davis Duval sést hér á átjándu og síðustu holunni. Hann spilaði best allra keppenda og fór á tiu höggum undir pari vallarins. um á svona stórmóti. Og á golfvelli sem þessum, verða smávægileg mistök risastór og fyrir vikið verð- ur þrýstingurinn meiri. Maður má bara ekki láta undan og ég hélt það út í dag.“ Hann er sjötti Banda- ríkjamaðurinn á síðustu sjö árum sem vinnur elsta golfmót heims. ■ SÍMAPEILPIN Lið Leikir U J T Mörk Stig Fylkir 10 6 3 1 18 : 5 21 ÍA 10 5 2 3 15 : 9 17 Valur 10 5 2 3 14 : 12 17 ÍBV 10 5 2 3 7 : 8 17 FH 9 4 3 2 9 : 7 15 Keflavík 10 4 2 4 14 : 15 14 Grindavík 8 4 0 4 H : 13 12 KR 9 3 2 4 8 : 10 11 Breiðablik 10 2 1 7 8 : 17 7 Fram 10 1 1 8 10 : 18 4 SIMADEILD KVENNA Úrslit í 9. umferð Stjarnan-Þór/KA/KS Grindavík-FH KR-Breiðablik ÍBV-Valur PEILP KARLA Næstu leikir: 26. júlí kl. 20.00 Kaplakriki: FH-ÍBV Grindavíkurvöllur: Grindavík-Valur Fylkisvöllur: Fylkir-Keflavík 29. júlí kl. 20.00 Akranesvöllur: ÍA-KR Laugadalsvöllur: Fram-Breiðablik SÍMADEILD KVENNA Lið Leikir u J T Mörk Stig KA 10 7 2 i 26 : 9 23 Þór Ak. 10 7 1 2 26 10 22 Stjarnan 10 5 4 1 19 11 19 Þróttur 10 5 2 3 13 10 17 Víkingur 10 3 4 3 16 n 13 |R 10 2 6 2 17 21 12 Tindastól! 10 3 3 4 18 25 12 Leiftur 10 3 1 6 12 17 10 Dalvik 10 2 1 7 10 26 7 KS 10 0 2 8 6 : 23 2 Lið Leikir U J T Mörk Stig Breiðablik 9 7 1 1 31 :11 22 KR 9 6 0 3 44 : 14 18 Ibv 9 5 3 1 32 : 10 18 Stjarnan 9 4 1 4 12 : 12 13 Grindavik 9 3 2 4 10:26 11 Valur 9 2 3 4 16 : 13 9 FH 9 2 2 5 7 :22 8 Þór/KA/KS 9 1 0 8 5 : 49 3 1. DEILD KARLA KS-ÍR 1-3 Leiftur-Þór Ak. 0-2 KA-Dalvík 3-1 Víkingur-Þróttur 0-2 Stjarnan-Tindastóll 5-2

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.