Fréttablaðið - 23.07.2001, Qupperneq 15
MÁNUPAGUR 25. júlí 2001
FRÉTTABLAÐIÐ
15
Tour de France:
Armstrong
heldur forystunni
hjólreiðar Texasbúinn Lance
Armstrong heldur gulu treyjunni
eftir síðastu fjallaleiðina í Tour
de France keppninni en hann
kom fjórði í mark í gær á fjórt-
ándu leið af tuttugu.
Spánverjanum Roberto
Laiseka var vel fagnað af heima-
mönnum í Luz Ardidien, í Baska-
landi, þegar hann kom fyrstur í
mark eftir að hafa hjólað frá Tar-
bes. í öðru sæti varð ítalinn Wla-
dimir Belli. Armstrong náði
fjórða sætinu, rétt á eftir Jan Ul-
rich frá Þýskalandi, hans helsta
keppinauti. Texasbúinn fékk
sama tíma og Ulrich og heldur
því forystunni í samanlagðri
keppni, en hann leiddi keppnina
með fimm mínútum og þrettán
sekúndum fyrir mótið í gær. Ul-
rich og Armstrong hjóluðu fram-
arlega í litlum hópi en þegar
minna en kílómetri var eftir gaf
Þjóðverjinn í. Armstrong elti
hann uppi, en ólíkt fyrri leiðum,
náði hann ekki að stela sætinu af
Þjóðverjanum. Leiðin á sunnu-
Viera áfram
hjá Arsenal?
Viera mun að öllum líkindum spila áfram hjá
Arsenal. Wenger segir að Viera verði um kyrrt.
knattspyrna Samkvæmt netmiðl-
um ytra hyggst miðvallarleikmað-
urinn Patrick Viera gefa út til-
kynningu þess efnis að hann ætli
að spila áfram með enska úrvals-
deildarliðinu Arsenal. Viera hefur
oftar en einu sinni lýst því yfir að
hann vilji fara frá Lundúnarliðinu
og spila með betra liði en hann
hefur m.a. verið orðaður við
Manchester United og Real Ma-
drid. Undanfarna daga hefur hann
hinsvegar átt í viðræðum við
Arsene Wenger, stjóra liðsins og
David Dein, varaformann og búist
er við að hann gefi út yfirlýsing-
una innan nokkura daga.
„Ég vil að þessu rugli linni,“
sagði hinn 25 ára gamli miðvallar-
leikmaður í samtali við Sunday
People. „Ég vildi aldrei að þetta
gengi svona langt. Ég er hungrað-
Formúla 1:
Fara bílarnir
of hratt?
kappakstur Helstu vélaframleið-
endur heims hittust á fundi eftir
Silverstonekappaksturinn, fyrir
viku síðan, til að ræða breytingar
á vélum í Formúlu kappakstri. Al-
þjóðasamtök Formúlunnar, FIA,
hafa áhyggjur af því að bílarnir
fari hraðar með hverju mótinu
sem líður og þótt nýjar reglur um
vindmótstöðu hafi verið settar
fyrir þetta keppnistímabil fóru
bílarnir tveimur sekúndum hrað-
ar að meðaltali í kappakstrinum í
Ástralíu nú í ár en í fyrra. Ástæð-
an fyrir hraðaaukningunni er m.a.
vegna betri dekkja frá Michelin
og Bridgestone. Samkvæmt
Concorde samkomulaginu má
ekki hrófla við vélunum fyrr en
ur í að spila með Arsenal og í
ensku deildinni og ég vil vinna
titla með liðinu.“
Wenger hefur alltaf sagt að
leikmaðurinn yrði áfram á Hig-
hbury. „Patrick er leikmaður með
Arsenal og verður það áfram. Ég
hef alltaf haft það á tilfinningunni
að hann yrði hér áfram og hún
hefur ekki breyst. Hann er ekki til
sölu, sama hvað yrði boðið í
hann.“
Sögusagnir segja að Arsenal
hafi boðið Viera nýjan samning
eftir að hann lýsti því yfir að vilja
hætta. Talsmaður félagsins sagði
að allar líkur bentu til þess að
Viera yrði kyrr. „Það stefnir allt í
að Viera verði kyrr. Þetta er nið-
urstaða sem við vonuðumst eftir.
Það er eins og sólin sé farin að
skína á ný hér á Highbury." ■
HRAÐI
Ef allir vélaframleiðendur leggjast á eitt
getur farið að Concorde samkomulaginu
verði hnekkt.
árið 2007 en fari svo að allir véla-
framleiðendur leggist á eitt getur
verið að FIA láti undan. „Það má
ekki breyta vélarstærðinni fyrr
en Concorde samningurinn renn-
ur út árið 2007. Við ætlum að hitt-
ast til að ræða málin frekar til að
lausn fáist í málinu," sagði Mario
Theissen, yfirmaður tæknimála
hjá BMW. ■
Sodexba
dag lá yfir þrjár erfiða fjallgarða
og var 141,5 kílómetri að lengd.
Keppendur fórur yfir Col du To-
urmalet, hæsta punkt keppninnar
sem er 2,115 metrum fyrir ofan
sjávarmál. Þetta er talið hafa
verið síðasta tækifæri keppi-
nauta Armstrongs til að saxa á
forskotið því það er alltaf erfið-
FÉLAGAR
Lance Armstrong frá Austin, Texas, til vin-
stri, og Jan Ulrich frá Þýskalandi heilsast
eftir að hafa lokið fjórtándu leið í Tour de
France keppninni.
ara að vinna tíma á jafnsléttu en
í fjallaleiðunum. Keppendur hvíl-
ast í dag en á morgun hefst kepp-
ni aftur. ■
NBA-deildin:
Mutombo
semur við
Sixers
körfubolti Dikembe Mutombo,
besti varnarleikmaður NBA-
deildarinnar, hefur gert nýjan
fjögurra ára samning við Phila-
delphia 76ers. Samningurinn er
metin á um 650 milljónir króna.
Mutombo, sem lék með Atl-
anta Hawks, kom til 76ers á síð-
asta leiktímabili í skiptum fyrir
Theo Ratliff, Toni Kukoc og Nazr
Mohammed. Margir efuðust um
að Larry Brown, þjálfari 76ers,
væri að gera rétt en í dag efast
enginn um það því Mutombo átti
stóran þátt í að koma liðinu í úr-
slitaleik NBA í fyrsta skiptið í 18
ár.
Chris Webber hefur framlengt
samning sinn við Sacramento
Kings, en um helgina undirritaði
BESTI VARNARMAÐURINN
IVIutombo hefur undirritaði fjögurra ára
samning við Philadelphia 76ers, sem met-
inn er á um 650 milljónir króna.
hann nýjan 7 ára samning, sem
metinn er á um 1,3 milljarða
króna. Um tíma var talið að
Webber myndi fara frá Kings,
enda hafði hann sjálfur sagt að
hann vildi fara til stærra liðs ,en
eftir að Kings buðu honum þenn-
an risasamning ákvað hann að
vera kyrr í Sacramento. ■
mðn Grlndavík - Fylklr
Coca-Cola bikarlnn kl. 19.40
mán 8 llða úrsltt
Suður-Ameríku bikarinn Kl. 22.25
mið 4 liða úrsltt
Suður-Ameríku blkarinn Kl. 00.40
fim fijax - AC Mllan
Amsterdam-mðtið kl. 16.50
fim 4 liða úrslit
Suður-Ameríku bikarinn Kl. 00.35
lau AC Mllan - Valencia
Amsterdam-mðtlð kl. 16.15
lau fijax - Uverpool
Amsterdam-mðtið kl. 19.40
....
au Rov Jones JR-JWio Gonzalez
inefaleikar kl. 01.00
sun ÍA-KR
Símadeildin kl. 19.40
sun úrslitaleikur
Suður-Ameríku bikarinn Kl. 22.00
www.syn.is
eðalslma 515 6100
IVIarc O’Polo
Kringlunni
Útsala 50%
aíslattur