Fréttablaðið - 23.07.2001, Page 18
18
FRÉTTABLAÐIÐ
23. júll' 2001 MÁNUACUR
Ferðaleikhúsið Light Nights:
Fá innsýn í forna menningu
| HVERJU MÆLIR ÞÚ MEÐ?
Stefanía Geirsdóttir
skrifstofumaður
Að fólk láti sér líða vel og
borði góðan mat. ■
leiklist „Við sýnum í Iðnó þetta
árið og komst ég að því að plássið
þar er ekki mikið og því ákvað ég
að taka að mér hlutverkin,“ sagði
Kristín G. Magnús, leikari og leik-
stjóri Light Nights, þegar hún var
spurð að því af hverju hún kysi að
vera sjálf í öllum hlutverkunum.
„Það er samt ekki hægt að
segja að ég standi í þessu alein
þar sem ég hef með mér til að-
stoðar tæknimenn og svo leik ég
mikið á móti leikhljóðum, tali og
tónum og svo eiga það til að birt-
ast tveir draugar á hverri sýn-
ingu,“ Kristín stofnaði leikhúsið
árið 1965 í Reykjavík ásamt Hall-
dóri Snorrasyni.
Sýningarnar leikhússins eru
breytilegar frá ári til árs, efnið er
þó alltaf flutt á ensku að undan-
skildum íslenskum þjóðlagatext-
um og rímum. „Með þessum sýn-
ingum reyni ég að gefa ferða-
manninum innsýn inn í okkar
fornu menningu," sagði Kristín. í
þessari uppfærslu eru sýndir leik-
þættir, unnir úr íslenskum þjóð-
sögum, þar sem draugar, huldu-
fólk, tröll og margskonar kynja-
verur koma við sögu og má sér-
staklega nefna draugasöguna
Djáknann á Myrká og í seinni hlut-
anum eru víkingar á dagskrá.
„Djákninn er mjög vel skrifuð
saga sem hefur að geyma þann
rísanda sem nauðsynlegur er í
góðri draugasögu. Ég verð nú að
viðurkenna að sumar þjóðsögurn-
ar eru ekki kræsilega skrifaðar
enda eru þetta oft munnmælasög-
ur, þá tek ég mér það bessaleyfi að
skálda svolítið inn,“ sagði Kristín.
Sýningar Light Night verða á
sunnudags- og mánudagskvöldum
í júlí og ágúst. Sú nýbreytni hefur
verið tekin upp að gestum er gefin
kostur á að borða íslenskan kvöld-
verð jafnframt því að sjá sýning-
una og sagði Kristín að meðal rétta
væri lambalæri og skyr með ís-
lenskum bláberjum. Leiksýningar
hefjast kl. 20.30 og fyrir gesti í mat
er mæting kl. 19.15. ■
Til leigu
Mjög aðgengilegt 185 fm.
skrifstofu og lagerhús-
næði.
Hagstæð leiga.
Jarðhæð. Innkeyrsludyr.
Sími: 567 4940
Aukakílóin
burt!
Ertu a& leita að mér?
Vantar þig vörur?
Otrulegur órangur!
Ég missti 11 kg á 9 vikum!
Alma Hafsleins.
Sjálfst. Herbalife dreif.
S: 694-9595
MÁNUDACURINN
23. JÚLf
LEIKLIST________________________
Ferðaleikhúsið Light Nights verður
með sýningu fyrir erlenda ferðamenn
í Iðnó í kvöld. Mæting er fyrir matar-
gesti kl. 19.15 en sýningin hefst kl.
20.30. Sýndir eru leikþættir unnir úr
Islenskum þjóðsögum f fyrri hluta
sýningarinnar. í þeim seinni eru vík-
ingar á dagskrá. Kristin G. Magnús
fer með öll hlutverkin í sýningunni.
SÝNINGAR________________________
Handritasýning í Stofnun Árna
Magnússonar stendur í Arnagarði
við Suðurgötu. Sýningunni er ætlað
að minna á þann hlut sem sagnalist
og bókagerð fyrri alda á í vitneskju
okkar um helstu merkisatburði þjóð-
arsögunnar og beina athygii sérstak-
lega að handritum og sögum um fólk
og viðburði sem fyrir rúmum þúsund
árum ollu aldahvörfum, þ.e. kristni-
tökunni og landafundunum. Sýningin
er opin mánudaga til laugardaga til
25. ágúst.
Á efri hæð Hafnarborgar stendur
Þjóðminjasafn fslands fyrir sýningu á
Ijósmyndum eftir Hans Malmberg frá
því um 1950. Sýningin nefnist ísland
1951. Sýningin er opin alla daga
nema þriðjudaga og henni lýkur 6.
ágúst.
í Sverrissal Hafnarborgar er sýning á
vegum Þjóðminjasafns Islands á skot-
skífum úr fórum Det Kongelige
Kjobenhavnske Skydeselskab og
Danske Broderskab. Sýndar eru um
15 skotskífur frá árunum 1787-1928
með íslensku myndefni eða frá ís-
lenskum félögum skotfélagsins. Sýn-
ingin er opin alla daga nema þriðju-
daga og henni lýkur 6. ágúst.
www.heilsulif.iswww.heilsulif.is
TRÚLOFUNARHRINGAR
ERNA
S k i p h o I t i 3
í Árbæjarsafni standa yfir nokkrar
sýningar. í Lækjargötu 4 er sýningin
Saga Reykjavíkur - frá býli til borg-
ar. I Kjöthúsi er sýningin Saga bygg-
ingatækninnar. I Líkn er sýningin
Minningar úr húsi. Sýningin í Suður-
götu 7 ber yfirskriftina: Til fegurðar-
auka. Sýning á útsaumi og hannyrð-
um. ÍEfstabæ má sjá hvernig tvær
fjölskyldur bjuggu f húsinu um 1930.
( Ljósmyndasafni Reykjavikur stend-
ur Ijósmyndasýning Henri Cartier-
Bresson í Grófarsal, Grófarhúsi,
Tryggvagötu 15. Sýnd eru verk franska
Ijósmyndarans sem nú er á tiræðis-
aldri. Sýningin er opin virka daga frá
kl. 12-17 og um helgar kl. 13-17 og
stendur til 29. júlf.
www.erna.is
Ari Magg sýnir Ijósmyndir á Atlantic í
Eldri borgarar
Skúlagata 40 5. hæð
Tilboð óskast í fallega 63 m2 íbúð
ásamt bílskýli.
Fallegur samkomusalur, sauna og
heitur pottur í sameign.
Húsvörður á staðnum.
Útsýni yfir Reykjavíkurhöfn.
Upplýsingar veitir fasteignasalan
kjörbýli í síma 564-1400
Átján hundruð ára gömul saga, Gullasninn, er komin út:
Asni hugsar
eins og maður
bækur Skáldsagan Gullasninn
sem er ein fyrsta skáldsaga bók-
menntasögunnar er komin út í
fyrsta sinn á ís-
lensku. Sagan er
skrifuð á 2. öld.
Hún var skrifuð
á latínu og hét
uppphaflega
Metamorphose-
on eða Ham-
skiptin. Seinna
var nafni sög-
unnar og naut
hún mikilla vinsælda undir nafn-
inu Gullasninn á fyrri tíð. Höf-
undur sögunnar hét Lucius Apu-
leius. Hann er talinn hafa verið
uppi um það bil á árunum 125 til
180 eftir Krist og var ættaður
frá Norður Afríku. Hann nam
heimspeki í Aþenu og starfaði
sem málafærslumaður í Róm.
Bjarki Bjarnason þýddi bók-
ina og gefur hana einnig út.
„Þetta er saga um mann sem
lendir óvart í því að breytast í
asna. Hann smyr sig með röngu
smyrsli, hafði ætlað að breyta
sér tímabundið í fugl en hann
breytist í asna og sleppir ekki
asnahamnum fyrr en eftir all-
langa hríð og þá er hann búinn
að flakka um og lenda í hinum
ólíklegustu ævintýrum," segir
þýðandinn, Bjarki Bjarnason.
„Hann er venjulegur asni en
hugsar eins og maður og skrifar
söguna. Auk þess hefur hann
mannlegar tilfinningar og
kenndir, meðal annars kenndir
til kvenna."
Eina leið asnans til að tjá sig
er gegnum söguna sem hann
skrifar en að öðru leyti getur
hann ekki tjáð sig nema með
þeim hætti sem asnar tjá sig.
„Svo þykir honum góður matur
sem mönnum þykir góður,“ seg-
ir Bjarki. Sagan er því hin stór-
kallalegasta og afar spaugileg.
„Sagan er skemmtileg og
nútímaleg, finnst mér, full af
gríni og grallaraskap, erótík og
óeðli og allt sem prýða má nú-
tímann."
í sögunni er asnanum fylgt
eftir. Hann gengur kaupum og
sölum og fær mjög misgóða
meðferð. Inn í söguna er svo
Austurstræti og er þetta er fyrsta
einkasýning Ara. Þema sýningarinnar á
Atlantic er fslenski fáninn. Gengið er inn
frá Austurvelli
í Byggðasafni Hafnarfjarðar standa yfir
sýningarnar Blóðug vígaferli og Götulíf
vikinganna í York . Um er að ræða
tvær sýningar, annars vegar endurgerð
á götu í víkingaþorpi og hins vegar sýn-
ingu þar sem má sjá beinagrind og
hauskúpur víkinga sem féllu í bardög-
um. Sýningarnar eru opnar alla daga frá
13 til 17 og standa til 1. október.
Ljósmyndasýning grunnskólanema
sem í vetur hafa unnið undir hand-
leiðslu Marteins Sigurgeirssonar
stendur yfir í Gerðubergí. Opnunar-
tími sýningarinnar er virka daga frá 12
til 17 og stendur sýningin til 17.
ágúst.
MYNDLI5T_______________________
Guðný Rósa Ingimarsdóttir heldur
sýningu á galleri@hlemmur.is. Þetta
er hennar sjötta einkasýning. Sýningin
Austurrískur fjöllistamaður vekur athygli:
Lét hauslausa
kú falla úr þyrlu
BERLIN. ÞÝSKALANDI. AP. AuStUTrískÍ
fjöllistamaðurinn Wolfgang
Flatz framdi óvenjulegan gjörn-
ing í miðborg Berlínar nýlega
þegar hann lét hauslausa og
blóðuga kú falla 40 metra til
jarðar úr þyrlu. Áður en kýrin
var látin falla hékk listamaður-
inn hreyfingalaus úr krana,
allsnakinn og blóðugur með út-
rétta krosslagða handleggi. Á
meðan á sýningunni stóð ómaði
iðnaðartónlist frá nærliggjandi
verksmiðju. Gjörningnum, sem
kallaðist „Fleisch," eða „kjöt,“
lauk síðan með því að strengja-
kvartett spilaði lagið „Blue
Danube Waltz.“
Hundruð áhorfenda fylgdust
með sýningunni, sem hefur verið
gagnrýnd harðlega í Þýskalandi,
m.a. af dýraverndunarsinnum.
Aðeins nokkrum klukkustund-
um fyrir gjörninginn úrskurðaði
hæstirréttur í Berlín að ekki
væri hægt að koma í veg fyrir að
hann yrði framkvæmdur, eftir að
beiðni hafi borist yfirvöldum um
að hætta skyldi við hann sökum
þess að gjörningurinn væri ekki
list heldur væri tilgangur hans
einungis sá að reyna að hneyksla
fólk. Flatz, sem þekktur er fyrir
umdeildar uppákomur sínar, vís-
aði allri gagnrýni á bug og sagði
að með gjörningnum væri hann
að reyna að fá fólk til að hugsa
um samband sitt við náttúruna. II
KRISTÍN G. MAGNÚS
Síðar á þessu ári verða haldnar þrjár sýn-
ingar á Light Nights í Scandinavia House í
New York.
fléttað allmörgum innskotssög-
um sem brjóta upp frásögnina.
„Einhver er þá að segja sögu
inni í sögunni og hún getur verið
ansi löng og algerlega óskyld
söguþræðinum sjálfum. Fræg-
ust þessara innskotssagna er hin
þekkta ástarsaga af Amor og
Psyche, sagan af konunni sem
verður ástfangin af ástarguðin-
um sjálfum. „Það er kona sem
segir ungliingum söguna, hún
lifir þarna sjálfstæðu lífi á ein-
um 20 blaðsíðum og er svo bara
búin, og asninn heldur áfram.“
Það er forvitnilegt fyrir ís-
ber yfirskriftina Tognuð tunga en þar
ferðast listakonan á milli nokkurra
augnablika með aðstoð verka frá
þessu og síðasta ári.
Opnunartími galleri@hlemmur.is er
frá fimmtudegi til sunnudags, kl. 14-
18. Sýningunni lýkur 12. ágúst.
Ólöf Björk Bragadóttir, Lóa, hefur
opnað myndlistarsýningu í sal
félagsins íslensk grafík í
Hafnarhúsinu,
hafnarmegin. Á sýningunni eru Ijós-
ÖSKUR
Wolfgang Flatz framkvæmir ógurlegt öskur
í mynbandsupptöku, skömmu áður en
gjörningurinn átti sér stað.