Fréttablaðið - 23.07.2001, Qupperneq 22
22
FRETTABLAÐIÐ
23. júlí 2001 MÁNUACUR
Bræður í Mecca:
Hálshöggnir
með sverði
Úrkaína:
35000 fangar
látnir lausir
kiev. UKRAÍNU.flP Leonid Kuchma,
forseti Ukraínu, hefur með til-
skipun veitt 35000 föngum í land-
inu sakaruppgjöf, sem kemur til
framkvæmda í september.
Síbrotamenn, þeim sem gefn-
ar hafa verið upp sakir á síðustu
10 árum, þeim sem gerst hafa
sekir um manndráp af ásetningi
eða hafa framið brot gegn ríkinu
eiga enga miskunn í vændum en
aðrir sakamenn munu njóta góðs
af.
Almenningur í landinu óttast
að sakaruppgjöfin muni stuðla að
úbreiðslu berkla í landinu, en
FRÉTTIRAFFÓLKll
sjúkdómurinn herjar mjög í
fangelsum landsins, þar sem að-
búnaður þykir slæmur og
þrengsli mikil. ■
FORSETINN OG VINUR HANS
Leonid Kuchma, forseti Úkraínu, skrifaði
undir vináttusamning við Jiang Zemin, for-
seta Kína, í Kiev í fyrradag og fengu þeir
sér kampavín í tilefni þess.
RIYADH, SAUPI ARABIU.AP Tveir
bræður voru hálshöggnir í
Mecca á föstudag fyrir að rán,
mannrán og nauðgun.
Saud og Musaid bin Abdul-Ra-
hman al-Auliani ginntu konu inn
í bíl sinn, fóru með hana á afvik-
inn stað þar sem þeir nauðguðu
henni og stálu frá henni pening-
um og skartgripum. f opinberum
upplýsingum kemur ekki fram
hvar eða í hvaða ástandi þeir
skildu við fórnarlamb sitt.
Opinberar aftökur eru tíðkað-
ar í Saudi-Arabíu og hafa sextíu
og fjórir dæmdir glæpamenn
verið hálshöggnir á almannafæri
með sverði það sem af er árinu. í
fyrra hlutu 125 sömu örlög eftir
að hafa verið dæmdir fyrir
alvarlega glæpi.
í landinu er fylgt strangri
túlkun á kennisetningum íslams-
trúar og lögð dauðarefsing við
morðum, nauðgunum, eiturlyfja-
sölu og vopnuðum ránum. ■
Stjórn Stúdentaráðs hefur
ákveðið að ráða Bjarka Val-
týsson £ stöðu ritstjóra Stúdenta-
blaðsins fyrir veturinn 2001-
2002. Umsækjendur um stöðu rit-
stjóra voru fjórir. Bjarki Valtýs-
son er 25 ára og hefur lokið BA.
prófi í bókmenntafræði og ís-
lensku frá Háskóla íslands. Hann
er stúdent frá Menntaskólanum á
Akureyri þar sem hann ritstýrði
tímaritinu Muninn skólaárið 1996
-1997. Bjarki starfar nú sem
textasmiður á markaðsdeild
Stöðvar 2 en hefur áður starfað
m.a. sem prófarkalesari fyrir
bókaforlagið Bjart og Sölku.
Hann mun hefja störf 15. ágúst
n.k.
Aári hverju hefur Árni John-
sen haldið veglega veislu fyr-
ir þingflokk Sjálfstæðisflokksins
á heimili sínu í Breiðholti. Þetta
hafa verið hinar skemmtilegustu
samkomur og
ekkert til sparað
svo að samþing-
menn hans og
makar ættu eftir-
minnilega kvöld-
stund. Nú munu
margir þingmenn
Sjálfstæðis-
flokksins vera uggandi yfir því
að veislukostnaðurinn hafi verið
skrifaður á Þjóðleikhúsið og sé
ef til vill skýringin á nótunni upp
á 170 þúsund fyrir veitingar á
tveggja manna stjórnarfundum
byggingarnefndar Þjóðleikhúss-
ins. Þingmenn Sjálfstæðisflokks-
ins kunna það nefnilega úr frjáls-
hyggjufræðunum að það er ekk-
ert svoleiðis til sem heitir ókeyp-
is hádegisverður.
IVestmannaeyjum eru menn
hnípnir yfir því að hafa misst
pólitískan foringja á þingi, en
A
^5 j
nokkrir eru farn-
ir að svipast um
eftir nýju þing-
mannsefni.
Kjartan Ólafsson
garðyrkjubóndi
og steypustöðvar-
stjóri verður
seint talin fulltrúi
Vestmannaeyinga og kemur af
sama svæði á Suðurlandi og
Drífa Hjartardóttir, sem nú tek-
ur við forystu
sjálfstæðismanna
kjördæmisins á
þingi. í Vest-
mannaeyjum er
þegar tekið að
0 -—. nefna nafn Guð-
jóns Hjörleifs-
■ sonar bæjarstjóra
sem er bæði skel-
eggur, duglegur og geðþekkur
fulltrúi Eyjamanna, og hefur
gengið næst Árna Johnsen í þeim
efnum á síðustu árum.
Sólarplús
í tvær vikur
Mallorca
20. ág.
nýtt 3 • sept
-------------------- miðað við ferð fyrir 2 fullorðna og 2 börn 2ja -11 ára.
Mnifalið er flug, gisting (staðfestur gististaður viku fyrir brottför), ferðir til
oo frá flugvelli erlendis, íslenskir fararstjórar og allir flugvallarskattar.
! ? 'srðast saman er verðið 62.555 kr.
www.plusferdir. is
"wEf
Blönduós Borgarnes Isafjörður Sauðárkrókur Akuroyri Egilsstaðir Solfoss Vestmannaeyjar Koflavik Grindavík
I S: 452 4168 S: 437 1040 S: 456 5111 S: 453 6262 585 4200 S: 471 2000 S: 462 1666 S: 481 1450__S: 585 4250 S: 426 8060
Söluskrifstofur Plúsferða: Faxafeni
Sími 535 2100 • Fax 535 2110 • Netfan
%
108 Reykjavík og Hliðasmára 15 • 200 Kópavogi
lusf@plusferdir.is • Veffang www.plusferdir.is
Gefur sorg-
inni forgang
Helmut Kohl fellur frá þátttöku í baráttu
gegn kommúnistum í Berlín og dregur sig í
hlé í kjölfar andláts eiginkonu sinnar.
berlín.ap Helmut Kohl, fyrrver-
andi kanslari Þýskalands, mun
ekki koma fram opinberlega á
næstunni í kjölfar fráfalls eigin-
konu sinnar, Hannelore, sem
stytti sér aldur fyrir skömmu.
Kohl, sem er 71 árs, mun gefa sér
tíma til að syrgja eiginkonu sína
og draga sig í hlé frá opinberu lífi
um skeið.
Hann dvelst nú á heimili sínu í
Ludwigshafen, að sögn Lutz
Stroppe, talsmanns hans.
Kanslarinn átti m.a. að vera
heiðursgestur við athöfn, sem
flokkur hans, Kristilegir
demókratar, ætla að halda 13.
ágúst næstkomandi til að minn-
ast þess að fjörutíu ár verða þá
liðin frá því að kommúnista-
stjórnin í Austur-Þýskalandi
hófst handa við að reisa Berlínar-
múrinn, sem skipti höfuðborg
Þýskalands í tvennt í um 30 ára
skeið.
Kohl, sem hvarf úr sviðsljósi
stjórnmálanna eftir hneykslis-
mál tengd fjáröflun Kristilegra
demókrata, fór að láta kveða að
sér í stjómmálalífi Þýskalands í
síðasta mánuði eftir að Jafnaðar-
menn, Græningjar og fyrrver-
andi kommúnistar úr austurhluta
landsins tóku saman höndum um
að koma hægri sinnuðum borgar-
stjóra Berlínarborgar frá störf-
um, binda endi á langvarandi
samstarf um stjórn borgarinnar
og koma jafnaðarmanninum
Klaus Wowereit til valda fram að
kosningum í haust. Kohl steig þá
fram á sviðið og lýsti því yfir að
hann hyggðist leggja sitt af
mörkum í baráttu Kristilegra
demókrata til að hindra það að
HELMUT KOHL
Kanslarinn, sem ríkti yfir Þýskalandi í 16
ár, sameinaði það eftir kalda stríðið og
var lykilmaður í evrópskum stjórnmálum
á nú erfiða tíma. Svo virtist sem rofa
væri til eftir að hneykslismál höfðu
bundið enda á stjórnartíð hans en þá
reið annað áfall yfir. Eiginkona hans styt-
ti sér aldur, buguð af sjaldgæfum og
ólæknandi sjúkdómi
fyrrverandi kommúnistar
kæmust til valda í Ráðhúsi
Berlínarborgar. Athöfnin vegna
múrsins var liður í þeirri baráttu.
Það virtist því vera að birta til
í lífi Kohl eftir hneyklismálin,
sem hrakið höfðu hann frá völd-
um, og varpað rýrð á orðstír hans
sem mannsins sem sameinaði
Þýskaland að loknu kalda stríð-
inu og átti ríkan þátt í vexti og
viðgangi sameinaðrar Evrópu.
En þá dimmdi yfir að nýju.
Eiginkonan Hannelore, sem hafði
þjáðst af sjaldgæfum sjúkdómi
sem lýsti sér í ofnæmi fyrir sól-
arljósi, stytti sér aldur. ■
ÞRUÐA
E(sk(J ívyaivyrvya 03 þaf>f>í!
/»eHa er sióasM itoínn í
sotv>aróo<3onoto. Bídííoí t>ara þangað
*i( þió sjáið Mjfrf
£3 rtazkkaði oiv> 1
f>oMon^a, és er
ko(t>rúr)r) os ég
hef hvr)9%\ (íka!
íakið a Mótí »v>ér
oMferáalv)ídl'
£3!
(/0na aó
ió kannist
V/(dí
ytödíínnb éf s/er<J í raoóköflóttri
skyrto 03 í þláoto
3a((at>oxoivy 03 f»v/i>orv» sokkoto - það
s/erdíor és-ykkar jonorí
Ástarífs/ed[ýa, Crawfor<í xx