Fréttablaðið - 27.07.2001, Page 6

Fréttablaðið - 27.07.2001, Page 6
SPURNING DAGSINS Hefur þú smakkað hvalkjöt? Já, já, hrefnukjöt getur verið mjög gott, ef það er vel matreitt er hægt að gera góðar steikur úr því. Það þarf að láta það liggja i mjólk þvi það er ekkert varið í það ef lýsis- bragð er af því. Hins vegar er höfrungurinn ekki mjög góður og heldur ekki rengi, sem er spiklagið af hvalnum súrsað. Þorsteinn Tómasson, gælunafn Steini Flipper Hann er öryggisvörður hjá Securitas U mferðaröryggi: Notkun bílbelta ábótavant ÖRYGGI Þriðji hver ökumaður not- ar ekki bílbelti í þéttbýli sam- kvæmt könnun lögreglunnar og Umferðarráðs. Á smærri þéttbýl- isstöðum úti á landi er bílbelta- notkun mun minni eða allt niður í 30%. Á þjóðvegum landsins er notkun bílbelta talsvert meiri eða um 90%. Vanræksla á notkun bílbelta eru ein meginástæða þess að fólk lætur lífið í umferðarslysum. Á síðasta ári létust 21 karl og 11 konur og voru 40% þeirra ekki í beltum. Meirihluti umferðarslysa átti sér stað í dreifbýli, eða 74% á móti 26% í þéttbýli. Algengustu tegundir banaslysa í umferðinni á síðasta ári voru þegar ekið var framan á bíl og við útafakstur. í ár eru þegar 10 einstaklingar látnir í umferðarslysum. ■ ♦ RÆNINGJADROTTNING SYRGÐ Harmi slegnir syrgjendur við lík Phoolan Deví. Hún átti sér fjölmarga stuðnings- menn, einkum á meðal fátækari stétta Indlands. Indland: Óeirðir við bálför ræningja- drottningar lucknow, ap. Stuðningsmenn Phoolan Devi, ræningjadrottning- arinnar svokölluðu sem myrt var í fyrradag, lentu í átökum við lög- reglu í Varanasi í norðurhluta Ind- lands þar sem bálför hennar mun fara fram. Að minnsta kosti einn liðs- manna flokks Devis lést í átökun- um og nokkrir lögreglumenn særðust. Stuðningsmenn hennar kröfðust sólarhrings verkfalls í mótmælaskyni við dáðleysi stjórnvalda við verndun Devi. Lögreglan hefur ekki haft upp á morðingjunum en Devi var skotin fyrir utan heimili sitt. ■ 6 FRÉTTABLAÐIÐ 27. júlí 2001 FÖSTUDAGUR Grikkland: Eriginn slasaðist í öflugum jarðskjálfta AÞENA. GRIKKLANDI. AP. Öflugur neðansjávarjarðskjálfti reið yfir Grikkland í gærnótt. Jarðskjálft- inn, sem mældist 5,7 á Richter, olli skemmdum á um 60 heimil- um auk þess sem fólk flúði úr húsum sínum í almenningsgarða og út á strendur. Átti skjálftinn upptök sín rétt fyrir dögun nálægt eyjunni Skyros í Eyjahafi en engar meiri- háttar skemmdir urðu á nær- liggjandi eyjum. Skjálftinn fannst hann einnig í Tyrklandi og Búlgaríu. Seint á miðvikudags- kvöld reið jarðskjálfti sem var 4,4 á Richter yfir Grikkland og átti hann upptök sín norðan við Skyros eyju, en um 3000 manns búa á eyjunni, sem einnig er fjöl- BÍLL f RÚST Þessi sjónvarpsmynd náðist eftir að gríðar- stór steinn féll úr kastala fyrir ofan bílinn á eyjunni Skyros. sótt af ferðamönnum. Síðast reið stór jarðskjálfti yfir Grikkland fyrir tveimur árum og mældist hann 5,9 á Richterskvarða. 143 manns létu þá lífið. ■ Bandarísk yfir\'öld: Fresta ekki eldflauga- vörnum moskva. ap. Condoleezza Rice, ör- yggisráðgjafi Bandaríkjanna sagði í gær að Bandaríkin og Rússland væru að undirbúa strangar viðræður um vopnamál á komandi mánuðum, en viðræð- urnar myndu ekki hafa áhrif á áform Bandaríkjanna um að byg- gja upp öflugt eldflaugavarnar- kerfi. „Þær nýju hættur sem við stöndum frammi fyrir.munu ekki bíða eftir okkur og við höfum þegar ákveðið að leggja hart að okkur í því að vinna í málinu næstu mánuði,“ sagði Rice. ■ V‘ i weÉmm EKKI f LOFTINU Fyrirtækið Halló - Frjáls fjarskipti býður nú upp á fjórar mismunandi tegundir þjónustu: símtöl til útlanda, símtöl innanlands, Nettengingu fyrir heimili og fyrirtæki og mintkort sem not- ast í farsíma erlendis. Lárus Jónsson, stjórnarmaður hjá Halló, segir Ijóst að ekki fengjust 625 manns til þess að manna höfuðstöðvar þjónustuvers MintTelecom hér á landi. Ekki til tveir millj- arðar fyrir Halló Halló - Frjáls Qarskipti segja að ekki séu til þeir tveir milljarðar sem þurftu til þess að stofna GSM-kerfi. Höfuðstöðvar þjónustuvers MintTelecom ekki á Islandi, segir stjórnarmaður. Skýrist með haustinu, segir sölustjórinn. fjarskipti Fyrirtækið Halló - Frjáls fjarskipti, sem sagði við stofnun fyrirtækisins að ísland yrði „miðstöð alþjóða GSM-fjar- é skipta MintTel- ecom“, segir að ekki sé til það fjár- magn sem til þurfti til þess að hleypa af stokkun- um GSM-þjónustu sinni. Guðlaugur Magnússon, sölu- stjóri hjá Halló, samsinnir því að íslenski farsímamarkaðurinn sé mettur. Hann bætir því við að til standi að bjóða lægri kjör en Um 625 manns áttu að vinna í mið- stöðinni sem enn hefur ekki verið komið á laggirnar. ——. landsmenn hafa hingað til kynnst á farsímagjöldum - rétt eins og nú sé boðið á símtölum til útlanda - þegar einstaklingar geti fært símanúmer sín frá einu símafyr- irtæki til annars. Þann 9. maí 2000 sögðu for- svarsmenn Halló að þeir áætluðu að fjárfestingar fyrirtækisins hér á landi vegna nýs farsímakerfis yrðu um 2020 milljónir króna og að hingað til lands myndu „tugir sérfræðinga" koma. „Þessir peningar eru ekki til, það gefur alveg auga leið að ef þeir væru til yrði þeim fljótt eytt,“ sagði Guðlaugur. Þegar hann var spúrður að því hvernig Halló hyggðist snúa sér í þessu máli sagði hann að það væri „spurning hvað við gerum, það er margt í gangi, og ég ætla ekki að segja neitt um það á þessari stun- du. Það er ýmislegt sem skýrist með haustinu." Til stóð að Halló og MintTel- ecom myndu sameinast og að höf- uðstöðvar þjónustuvers MintTel- ecom myndu flytjast til íslands og í kjölfarið á því yrði rekin hér alþjóðlega símamiðstöð sem átti að þjóna fimm milljónum við- skiptavina. Um 625 manns áttu að vinna í miðstöðinni sem enn hefur ekki verið komið á laggirnar. „Það hefur ekkert orðið úr því enn þá. Það er í uppbyggingu það fyrirtæki [MintTelecom] og er í Bretlandi. Ekkert varð af sam- einingunni en við eignuðumst 50 prósent í MintTelecom og þar af leiðandi breyttist landslagið," sagði Guðlaugur og bætti því við að erfiðara hefði reynst að fá fjármagn inn í fyrirtækið MintTelecom heldur en búist var við. Talsmenn MintTelecom í London segja að gert sé ráð fyrir því að á næstu fjórum árum verði viðskiptavinir fyrirtækisins fimm milljónir en nú þegar hlaupi þeir á hundruðum þús- unda. omarr@frettabladid.is Hægt að sækja tilbúna lyíjaskammta í apótekið: Vandamál vegna ruglings úr sögunni lyf Þeir sem taka lyf að staðaldri geta nú fengið þeim pakkað þannig að skammtað verði fram í tímann til allt að 28 daga í sérstaklega merktar umbúðir. Lyf & heilsa samdi í gær við Lyfjaver um slíka tölvustýrða lyfjaskömmtun sem sögð er hafa í för með sér aukið öryggi við inn- töku og hagræðingu fyrir neytend- ur ^g heilbrigðiskerfið. í fréttatilkynningu segir að við handtalningu lyfja í skömmtunar- box fylgi hætta á ruglingi, auk þess sem það sé tímafrekt og kom- ið hafi upp dæmi um tvískömmtun. „Hér eftir verða þessi vandamál úr sögunni," segir í tilkynningunni. TILBÚNIR SKAMMTAR Aðstandendur langveikra og hjúkrunar- fólk verja miklum tíma við að útbúa ná- kvæma lyfjaskammta fyrir sjúklingana. Nú verður hægt að sækja skammtana tilbúna í apótekið. „Tölvustýrð lyfjaskömmtun er ör- uggasta aðferð við skömmtun lyfja sem völ er á.“ Boðið verður upp á þessa þjónustu í 25 apótekum Lyf & heilsu um land allt, eða tæplega helmingi allra apóteka á landinu og geta neytendur sótt eða fengið senda tilbúna skammta á tveggja eða fjögurra vikna fresti. ■

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.