Fréttablaðið - 27.07.2001, Page 8
Flugsamgöngur:
Farþegum í milli-
landaflugi íjölgar
SAMCðNCUR Farþegafjöldi til og
frá íslandi er svipaður fyrstu
sex mánuði ársins og í fyrra.
Hins vegar hefur farþegum í
millilandflugi almennt fjölgað
um 2,5% þar sem mest munar
um 5% fjölgun farþega á leið um
ísland yfir Norður-Atlantshafið.
Á þessu tímabili hefur sætanýt-
ing aukist um rúm 3% og hefur
verið 71%. Sætaframboð var
1,5% minna en í fyrra og sala
jókst um rúm 3%.
Farþegafjöldi hjá Flugfélagi
íslands hefur dregist saman um
tæp 11% frá því á sama tíma í
fyrra. ■
FRÉTTABLAÐIÐ
Ariel Sharon, forsætisráðherra Israels :
27. júll 2001 FÖSTUPACUR f
Verst hugscinlegri
málsókn í Belgíu
jerúsalem. ap. Ariel Sharon, forsæt-
isráðherra ísrael, hefur ráðið
belgískan lögfræðing til að fást við
hugsanlega lögsókn þar í landi að
því er ísraelsk dagblaðið Ha’aretz
greindi frá í gær. Lögð var fram
kæra á hendur Sharon í Belgíu í
júní sl. vegna meintrar ábyrgðar
hans á fjöldamorðunum í Líbanon
árið 1982, en Sharon var varnar-
málaráðherra þá. Samkvæmt
belgískum lögum er hægt að leggja
fram kærur á hendur stríðsglæpa-
mönnum, hverrar þjóðar sem þeir
eru. Belgískir dómstólar hafa ekki
ákveðið hvort að málið verður tekið
fyrir dómstóla en ráðningin bendir
til þess að Sharon ætli að beita sér
gegn því. Talsmenn Sharons neit-
uðu að svara hvort rétt væri að
hann hefði ráðið lögfræðing.
ísraelsku embættismaður sagði
blaðamanni AP í gær að þarlend
stjórnvöld hefðu sett saman lista
yfir lönd þar sem ráðamenn þeirra
eiga á hættu að verða sóttir til saka
fyrir stríðsglæpi. Listinn er gerður
að beiðni embættismanna sem vilja
Nýjasta farartækið í
Malasíu:
Með eiginleika
þyrlu og hraða
flugvélar
putrajaya. malasíu. ap. Um þessar
mundir stendur yfir í Malasíu
sérstök—leikfangasýning fyrir
stóra stráka (the Big Boys Toys
Exhibition) í bænum Putrajaya
skammt frá Kuala Lumpur. Þar
gefur m.a. að líta frumgerð frem-
ur óvenjulegs farartækis sem
nefnt hefur verið Moller flugbíll-
inn. Hann býr yfir eiginleika
þyrlu og hraða flugvélar, og getur
hann ferðast á 350 mílna hraða á
klukkustund í 25 þúsund feta
hæð. ■
SKILUR EKKI DANI
Shimon Peres, utanrlkisráðherra fsrael,
undrast viðbrögð Dana að þvl er Politiken
hefur eftir Israelsku dagblaði.
Sendiherradeilur:
Danir handtaka
ekki sendiherra
JERúsalem. ap. Frank Jensen, dóms-
málaráðherra Dana, sendi frá sér
yfirlýsingu í gær þar sem segir að
næsti sendiherra ísraela í Dan-
mörku, Carmi Gilons, verði ekki
handtekinn þegar hann kemur til
Danmerkur eins og áður hefur
verið látið að liggja. Gilon nýtur
friðhelgi sendiherra. Útnefning
Gilons er umdeild í Danmörku
vegna frásagna hans um að hann
hafi lagt blessun sína yfir pynt-
ingar á aröbum þegar hann var yf-
irmaður ísraelsku leyniþjónust-
unnar. ■
23 þeirra sem lifðu af fjöldamorðin I flóttamannabúðunum I Sabra og Shatila standa að
kærunni á hendur Sharon.
vera vissir um að þeim sé óhætt á
ferðum sínum. Auk hugsanlegrar
málsóknar á hendur Sharon hefur
mál væntanlegs sendiherra ísraels
í Danmörku verið í sviðsljósinu.
Eftir að Carmi Gilon viðurkenndi
að hafa lagt blessun sína yfir pynt-
ingar á aröbum hafa danskir þing-
menn hótað að höfða mál á hendur
honum. ■
Smáralind:
MacDonalds
dregur sig
tilbaka
SmAralind Veitingastaðurinn
MacDonalds, sem áður hafði
ákveðið að opna veitingastað í
Smáralind í haust, hefur dregið
þá ákvörðun til baka.
Að sögn Kjartans Arnar
Kjartanssonar, annars tveggja
eigenda MacDonalds á íslandi,
er þetta þeirra viðskiptalega
ákvörðun. Hann vildi halda
ástæðum hennar innan fyrirtæk-
isins og vildi ekki tjá sig um þau
rök sem búa þar að baki. ■
Reykjavíkurborg og SI:
Skuldbinding
sem hlutafé
REYKJAVÍKURBORC Við stofnun
hlutafélagsins íþrótta- og sýn-
ingarhöllin hf. var ákveðið að
endurvekja skuldbindingu
Reykjavíkurborgar til sýningar-
samtaka atvinnuveganna um
niðurfellingu gatnagerðargjalda
vegna sýningarhúsnæðis við hlið
Laugardalshallar. Hlutafélagið
er í eigu Reykjavíkurborgar og
Samtaka iðnaðarins, sem eiga S
milljónir hvort £ félaginu.
Niðurfelling gatnagerða-
gjaldanna er metin á 23,7 millj-
ónir króna og verður litið á sem
hlutafjárframlag Samtaka iðn-
aðarins í íþrótta og sýningahöll-
inni hf. þegar stjórn félagsins
tekur ákvörðun um hækkun
hlutafjár.
Verið er að vinna að kostnað-
aráætlunum og gerð rekstrar- og
viðskiptaáætlunar vegna sýn-
ingarhallarinnar. Unnið hefur
verið að hönnun hússins, tengi-
byggingar við Laugardalshðll,
UIKUIK UJUKOVINSbUN
Sjómenn standa I eilífri baráttu til að baeta kjör sjómanna á erlendum hentifánaskipum þar sem borguð eru smánarlaun og réttindi öll eru brotin.
Stríð er hafið ge
sj ór æningj askipum
Alþjóðaflutningamannasambandið herðir tökin. Rússneskt skemmtiferðaskip verður stöðvað í
Reykjavík. Fylgst með öllum olíuskipum. Atlantsskip er á kortinu.
sjómenn „Þetta er eilíf baráttá,
ekki bara fyrir eðlilegum launum,
heldur ekki síður fyrir þær þjóðir
sem búa við þetta þrælahald,"
sagði Birgir Hólm Björgvinsson
hjá Sjómannafélagi Reykjavíkur.
En hann, ásamt fleirum, undirbúa
nú, í nafni Alþjóðaflutningmanna-
sambandsins, að kyrrsetja rúss-
neska skemmtiferðaskipið, Clipp-
er Adventure, sem á að koma til
Reykjavíkur 7. ágúst.
Birgir segir að þetta skip sé
það síðasta á aðgerðarskrá Al-
þjóðaflutningamannasambands-
ins. Útgerðir flestra skemmti-
ferðaskipa hafa gert samninga
um laun sjómanna - en þær út-
gerðir sem það hafa ekki gert -
eiga von á aðgerðum ámóta þeim
sem skipulagðar eru í Reykjavík
7. ágúst.
„Við stöðvuðum erlent olíuskip
um daginn og það er alveg klárt að
öll þau skip sem hingað koma og
sigla með olíu á ströndina verða
stoppuð. Við sjáum enga ástæðu til
annars en að herða tökin. Það eru
miklir hagsmunir undir, bæði fyr-
ir íslenska sem erlenda sjómenn,“
sagði Birgir Hólm Björg-
vinsson.
Hann segir að óðum
styttist í að farið verði í
aðgerðir gegn Atlants-
skipum, en það félag hef-
ur með meirihluta flutn-
inga fyrir bandaríska her-
inn að gera. Það er sam-
kvæmt samningi um að ís-
lenskt skipafélag hafi
meirihluta flutninganna.
Barátta gegn
Atlantsskipum
er framundan
en sjómönn-
um þykir lang-
lundargerð yf-
iivalda til fyrir-
tækisins með
ólíkindum.
—«—
Fram hefur komið að Atlantsskip
gerir ekki út neitt skip - heldur
eru flutningarnir á vegum er-
lendrar útgerðar sem Atl-
antsskip kaupir þjónustu
af. „Það er kominn tími á
aðgerðir. Við höfum beðið
alltof lengi,“ segir Birgir.
Hann segist undrast að ís-
lensk stjórnvöld skuli láta
rekstur Atlantsskipa óá-
reittan þar sem fyrirtæk-
ið starfi ekki samkvæmt
ákvæðum í samningi ís-
lands og Bandaríkjanna
um flutninga frá Bandaríkjunum
til herstöðvarinnar á Keflavíkur-
flugvelli. |
SYNINGARHÖLL FRAMTlÐARINNAR
Samtök íðnaðarins og Reykjavlkurborg
hafa sameinast um byggingu sýningarhall-
ar við Laugardalshöll.
lóðarinnar og bílastæða. Gert er
ráð fyrir að innan tíðar verði £t-
arleg göng kynnt fyrir eigendum
hlutafélagsins áður en frekari
ákvarðanir verða teknar. ■