Fréttablaðið - 27.07.2001, Page 18
18
FRÉTTABLAÐIÐ
27. júlí 2001 FÖSTUDACUR
HVERJU MÆLIR ÞÚ MEÐ?
Áslaug Hauksdóttir
Ijósmóðir
Um helgar yfir sumarmánuðina mæli ég
með því að fólk fari út úr bænum, elti veðr-
ið og verði þar sem er best er hverju sinni.
Ég mæli einnig með því að fóik leyfi sér að
borða góðan mat og njóti Iffsins. Einnig vil
ég mæla með þvf að fólk fari sér hægt í
umferðinni.
PICASSO
Málverkið „Etude pour nu dans une foret,"
sem er eitt verkanna sem boðið verður
upp í New York.
Málverkauppboð í New
York:
Verk Picasso
og Miro
boðin upp
parís. ap. Þann sjötta nóvember
næstkomandi verða málverk eftir
meistara eins og Picasso og Miro
boðin upp á málverkauppboði í
New York í Bandaríkjunum. Á
meðal verkanna sem verða til sölu
er málverk Picasso „Etude pour
nu dans un foret,“ (rannsókn á
nekt í skógi) auk þess sem þó
nokkur fleiri verk sem aldrei hafa
sést opinberlega verða til sölu.
Verkin voru í eigu belgíska við-
skiptajöfursins Rene Gaffe, sem
nú er látinn og er verðmæti þeirra
talið nema um 40 milljónum
Bandaríkjadala. ■
Aukakílóin
burt!
• Ertu að leita að mér?
• Vantar þig vörur?
• Otrulegur árangur!
• Eg missti 11 kg á 9
vikum!
Alma Hafsteinsdóttir
Sjálfst. Herbalife dreif.
S: 694-9595
www.heilsulif.is www.heilsulif.is
Grænlensk alþýðulist:
Tímalaus kynning
á manneskjum
sýninc Sýning á grænlenskum tré-
skurðarmyndum eftir Johannes
Kreutzmann „Ujuaannaat" verður
opnuð í dag kl. 17 í Sjóminjasafn-
inu í Hafnarfirði. Myndirnar sýna
mannfólk og lifnaðarhætti í
Kangaamiut á vesturströnd
Grænlands, heimabyggð lista-
mannsins, fyrir um 100 árum.
Höfundur sýningarinnar er Birte
Hagen mannfræðingur við
Nationalmuseet í Kaupmanna-
höfn.
Sýningin var opnuð 16. janúar
sl. í Handels- og Spfartsmuseet pá
Kronborg en fór síðan til Finn-
lands, Noregs og Færeyja.
Kreutzmann var uppi á árun-
um 1862-1940. Þykja myndir hans
mjög sérstakar en þær eru um 35-
120 cm háar, skornar í rekavið og
málaðar skærum litum. Þær sýna
okkur hvernig fólkið í græn-
lenskri byggð leit út fyrir hund-
rað árum, hvernig það var klætt
og hvað það fékkst við. Fyrir okk-
GRÆNLENSKAR TRÉSKURÐARMYNDIR
Myndirnar sýna fólk að störfum; flá sel, skafa skinn eða mýkja kamíkusóla.
ur sem ekki þekktum þessa ein-
staklinga og sérkenni þeirra er
þetta almenn og tímalaus kynning
á manneskjum og tilveru þeirra.
Sagt er að upphaflega hafi
Kreutzmann gert brúður handa
börnum sínum en fólk sóttist eftir
þeim svo tréskurðarmyndirnar
urðu lífsviðurværi hans á efri
árum. Þær voru sýndar á græn-
lenskum farandsýningum í Róm,
París og New York. ■
Ungir breskir og íslenskir tónlistarmenn:
Flytja tónaljóðið
Geysir eftir Jón Leifs
tónlist Cumbria, sinfóníuhljóm-
sveit ungmenna frá norðvestur-
Englandi, er á leið í vikulanga
tónleikaför til íslands og er þetta
í fyrsta sinn sem þessi sextíu
manna hljómsveit heimsækir
landið. Hljómsveitin heldur tón-
leika í Hallgrímskirkju næst-
komandi sunnudagskvöld og
hefjast þeir klukkan 20.00. Há-
punktur tónleikanna verður
flutningur á sinfóníu nr. 3, ópus
78 eftir Saint Saéns þar sem hinn
ungi og efnilegi organisti Lára
Bryndís Eggertsdóttir kemur
fram sem einleikari. Undir
stjórn gestahljómsveitarstjór-
ans Timothy Redmond mun
hljómsveitin einnig flytja verk
eftir enska tónskáldið Elgar auk
þess sem hún mun í fyrsta sinn
flytja verk Jón Leifs, Geysir.
Lára Bryndís er rúmlega tví-
tugur orgelleikari. Hún lauk
námi í píanóleik árið 1998 frá
Tónlistarskólanum í Reykjavík
og vorið 2001 lauk hún kantors-
prófi frá Tónskóla Þjóðkirkj-
unnar með hæstu einkunn sem
gefin hefur verið. Kennari
hennar var Hörður Áskelsson.
Lára hefur verið aðstoðar-
organisti í Hallgrímskirkju frá
síðasta hausti. I stuttu spjalli
við Fréttablaðið sagðist Lára
hlakka til að takast á við Orgels-
infóníuna. „Ég er búin að vera
með tónlistina í eyrunum dag-
inn út og inn og mér finnst þetta
LARA BRYNDfS EGGERTSDÓTTIR
„Þriðji þátturinn í orgelsinfóníunni er sólóatriði og þá fæ ég að yfirgnæfa hljómsveitina
og skemmta mér svolítið."
alveg svakalega flott stykki."
Lára sagði verkið rúmlega
hálftíma langt og að mest mæddi
á henni í 1. og 3. þætti. „Þriðji
þátturinn er sólóatriði og þá fæ
ég að yfirgnæfa hljómsveitina
með orgelinu og skemmta mér
svolítið." Þess má geta að Lára
verður einnig með hádegistón-
leika kl. 12 á morgun í Hallgríms-
kirkju.
Aðalstjórnandi Cumbria Youth
Orchestra er Noel Bertram.
Hann segir svo um efnisvalið.
„Eftir að ég sá uppfærsluna á
verkinu „Baldur“ á Listahátíð
Reykjavíkur vildi ég að kynna
mér tónlist tónskáldsins betur. í
framhaldi af því ákvað ég að það
gæti orðið mikil áskorun fyrir
hljómsveitina að flytja verkið
„Geysir. Noel segir meðlimi
hljómsveitarinnar hlakka mikið
til að flytja tónlist Jóns sem bæði
sé spennandi og mikilúðleg.
Bætti hann því við að eftir tón-
leikana á íslandi muni hljóm-
sveitin flytja „Geysi“ á Englandi
en tónlist hans hefur ekki verið
oft flutt þar. Á meðan á viku-
langri dvöl hljómsveitarinnar hér
á landi stendur mun hún einnig
halda tónleika í herstöð NATO í
Keflavík auk þess sem fluttir
verða einleikstónleikar í breska
sendiráðinu. ■
FÖSTUDAGURINN
27. JÚLÍ
LEIKHÚS__________________________
20.30 Söngleikurinn Hedwig er sýndur
i Loftkastalanum f kvöld. Aðal-
hlutverkið er í höndum Björgvins
Franz Gíslasonar en Magnús Geir
Þórðarson leikstýrir sýningunni.
Höfundur er John Cameron
Mitchell.
20.00 Stórfarsinn Með vífið í iúkunum
er sýndur í Borgarleikhúsinu.
Höfundurinn er Ray Cooney og
með hlutverk fara helstu gaman-
leikarar landsins. Þess má geta
að þetta er síðasta sýningin í
sumar.
TÓNLEIKAR_________________________
20.00 Breska harðkjarnahljómsveitin
Stampin ' Ground verður með
tónleika í kvöld í Tónabæ. Um
kvöldið koma einnig fram hljóm-
sveitirnar I adapt, Klink og
Snafu. Miðaverð er 1.000 kr.
SKEMMTANIR__________________________
Á Vídalíns bistró í kvöld leikur hljóm-
sveitin Fiðringurinn með Edda Lár í
fararbroddi. Á efnisskránni er akústík
blús/rokk.
Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar
ætlar sjá um fjörið á veitingastaðnum
Player's í Kópavogi.
Gaukur á Stöng er með lifandi tónlist
eins og svo oft áður. I kvöld leikur stór-
hljómsveitin Land og synir í samstarfi
við Promo, Skifuna, FM-957, Popp Tí Ví
og Visir.is.
í kvöld ætlar Doddi litli að taka sér
stöðu í búrinu á Club 22 á miðnætti
og halda uppi villtri partístemningu að
hætti hússins alla nóttina og fram und-
ir morgun. Fritt inn til klukkan 2 og frítt
inn alla nóttina fyrir handhafa stúd-
entaskírteina.
í Kópavogi er skemmtistaður sem
heitir Catalína og er f Hamraborg.
Staðurinn býður upp á lifandi tónlist
og í kvöld ætla þeir félagar Ari Jóns-
son og Hilmar Sverrisson að leika fyr-
ir dansi.
Gullöldin í Grafarvogi ætlar að sjá
gestum sinum fyrir miklu stuði í kvöld
en þá leikur hljómsveitin Léttir sprett-
ir.
Nikkabar er íbúum Breiðholts að góðu
kunnur. í kvöld ætlar Kolbeinn Þor-
steinsson, trúbador, að leika fyrir gesti
staðarins.
Hljómsveitin Dans á rósum spilar í
kvöld á Kaffi Reykjavík. Dj. Elliot spil-
ar í hléum.
Þeim sem ætlar norður um helgina er
ráðlagt að skella sér á dansleik með
Stuðmönnum í kvöld. Þessi lífsseiga
hljómsveit leikur f Miðgarði í Skaga-
firði í kvöld.
Og fyrir hina sem stefna í austurátt er
tilvalið að reka niður tjaldhælana á
Vopnafirði þar sem hljómsveitin Butt-
ercup verður með dansleik.
I Vestmannaeyjum nánar tiltekið á
Lundanum sér Skugga-Baldurum tón-
listina í kvöld.
Tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens
leikur á miðnæturtónleikum í kvöld á
veitingastaðnum Kristjáni X., Hellu.
Tónleikarnir hefjast kl. 23.
Hljómsveitin Hafrót ætlar að vera í
banastuði á Ránni í Keflavík í
kvöld.
FRANSKIR DAGAR
Albert Eiríksson lætur ekki sitt eftir liggja með að auglýsa Franska daga. Uppátækjum Al-
berts eru engin takmörk sett, og þeir sem leggja leið sína um Fáskrúðsfjörð og sjá skreyt-
ta rúllubagga eða blómumprýtt WC, geta verið vissir um að þar hefur Albert verið að
verki.
Franskir dagar á Fáskrúðsfirði:
Búist er við að íbúð-
arfjöldi margfaldist
hátíð Bæjarhátíðin Franskir dagar
verða haldnir um helgina á Fá-
skrúðsfirði og er þetta sjötta árið í
röð sem þeir eru haldnir. Einn af
þeim sem koma að skipulagningu
daganna er Albert Eiríksson. „Það
sem er svo skemmtilegt við þessa
daga er að bærinn lifnar við meira
en venjulega og hamast heima-
menn við að snurfusa í kringum og
mála jafnvel húsin sín.“ Albert
sagði margt í boði um helgina. „Hér
ætla ofurhugar að sýna listir sínar
á sjóskíðum og svo má geta þess að
hún Guðrún Einarsdóttir, sem er
íbúi hér og heldur upp á sjötugsaf-
mæli sitt, ætlar að halda sína fyrstu
málverkasýningu en hún tók upp á
því á gamalsaldri að fara í listnám."
Albert sagði hefðbundna dag-
skrárliði einnig verða og nefndi
varðeld sem verður í kvöld, boðið
verður upp á akstur á heyvögnum,
harmonikudansleik og svona mætti
lengi telja.
Albert sagðist búast við fjölda
manns. „Þetta verður að öllum lík-
indum stærsta hátíðin sem haldin
hefur verið og mun íbúafjöldi
margfaldast. Til dæmis vei'ður hér
um 300 manna ættarmót og svo
hittast gamlir skólaárgangar alltaf
um þetta leyti og í ár eru þeir fimm
talsins." Albert vildi geta þess að
lokum að hátíð á borð við þessa
gæti aldrei gengið ef ekki kæmi til
aðstoðar heimamanna og sagði
hann þá vei'a um 100 talsins. ■