Fréttablaðið - 27.07.2001, Síða 19
FÖSTUPAGUR 27. júlí 2001
FRÉTTABLAÐIÐ
19
Spænsk listakona í Selinu:
Tekur að sér að
mála og teikna fólk
mynplist Spænska listakonan
Marijo Murillo opnar í dag sýn-
ingu í Selinu, Gallerí Reykjavík,
Skólavörðustíg 16. Hún hefur
fengist við teiknun og málun
módelmynda og skyndiportretta
við menningarmiðstöðina Cir-
kolo de Bellas Artes í Madrid.
Marijo mun taka að sér að mála
og teikna fólk og einnig eftir
ljósmyndum, meðan á sýning-
unni stendur.
Marijo stundaði nám við
Escuela de Arte y Oficio de Mar-
drid þar sem hún sérhæfði sig í
hönnun og myndskreytingu.
Marijo hefur starfað sem graf-
ískur hönnuður frá árinu 1985.
Málverk Marijo má finna í gall-
eríum í Brussel, Barcelona, Ma-
drid, Berlín, Köln, Houston og
fleiri stöðum. Hún býr og star-
far í Reykjavík.
Sýningin er opin frá kl. 13-18
virka daga og frá kl. 13-17 laug-
ardaga til 7. ágúst. ■
MARIJO MURILLO
Árið 1996 hóf hún störf hjá hinum virta
spænska hönnuði Roberto Turegano.
SÝNINGAR___________________________
Sýning á grænlenskum tréskurðar-
myndum hefur verið sett upp í Sjó-
minjasafninu í Hafnarfirði. Myndirnar
sýna mannfólk og lifnaðarhætti í
Kangaamiut á vesturströnd Grænlands,
heimabyggð listamannsins fyrir um 100
árum. Höfundur sýningarunnar er Birte
Hagen mannfræðingur.
Þjóðmenningarhúsið er opið frá
11.00-17:00 alla daga. Þar er fjöldi sýn-
inga m.a. sérsýning á skjölum sem
tengjast Þjóðfundinum 1851, auk þess
sem fundargerð Þjóðfundarins er ein af
föstu sýningum hússins. Aðrar
sýningar í húsinu er m.a. Kristni í 1000
ár, Landnám og Vínlandsferðir, mynt og
ísland á gömlum landakortum.
Handritasýning í Stofnun Árna Magn-
ússonar stendur í Árnagarði við Suður-
götu. Sýningunni er ætlað að minna á
þann hlut sem sagnalist og bókagerð
fyrri alda á í vitneskju okkar um helstu
merkisatburði þjóðarsögunnar og beina
athygli sérstaklega að handritum og
sögum um fólk og viðburði sem fyrir
rúmum þúsund árum ollu aldahvörfum,
þ.e. kristnitökunni og landafundunum.
Sýningin er opin mánudaga til laugar-
daga til 25. ágúst.
Á efri hæð Hafnarborgar stendur Þjóð-
minjasafn íslands fyrir sýningu á Ijós-
myndum eftir Hans Malmberg frá því
um 1950. Sýningin nefnist fsland 1951.
Sýningin er opin alla daga nema þriðju-
daga og henni lýkur 6. ágúsL
í Sverrissal Hafnarborgar er sýning á
vegum Þjóðminjasafns Islands á skot-
skífum úr fórum Det Kongelige
Kjobenhavnske Skydeselskab og
Danske Broderskab. Sýndar eru um 15
skotskífur frá árunum 1787-1928 með
íslensku myndefni eða frá íslenskum fé-
lögum skotfélagsins. Sýningin er opin
alla daga nema þriðjudaga og henni
lýkur 6. ágúst.
í Árbæjarsafni standa yfir nokkrar sýn-
ingar. í Lækjargötu 4 er sýningin Saga
Reykjavíkur - frá býli til borgar. f
Kjöthúsi er sýningin Saga bygginga-
tækninnar. í Líkn er sýningin Minn-
ingar úr húsi. Sýningin í Suðurgötu 7
ber yfirskriftina: Til fegurðarauka. Sýn-
ing á útsaumi og hannyrðum. ÍEfsta-
bæ má sjá hvernig tvær fjölskyldur
bjuggu í húsinu um 1930.
f Ljósmyndasafni Reykjavíkur stendur
Ijósmyndasýning Henri Cartier-
Bresson í Grófarsal, Grófarhúsi,
Tryggvagötu 15. Sýnd eru verk franska
Ijósmyndarans sem nú er á tíræðis-
aldri. Sýningin er opin vírka daga frá kl.
12-17 og um helgar kl. 13-17 og
stendur til 29. júlí.
Ari Magg sýnir Ijósmyndir á Atlantic í
Austurstræti og er þetta er fyrsta einka-
sýning Ara. Þema sýningarinnar á Atl-
antic er íslenski fáninn. Gengið er inn
frá Austurvelli.
í Byggðasafni Hafnarfjarðar standa yfir
sýningarnar Blóðug vígaferli og Götulíf
víkinganna í York . Um er að ræða
tvær sýningar, annars vegar endurgerð
á götu í víkingaþorpi og hins vegar sýn-
ingu þar sem má sjá beinagrind og
hauskúpur víkinga sem féllu i bardög-
um. Sýningarnar eru opnar alla daga frá
13 til 17 og standa til 1. október.
Ljósmyndasýning grunnskólanema
sem í vetur hafa unnið undir hand-
leiðslu Marteins Sigurgeirssonar
stendur yfir í Gerðubergi. Opnunartími
sýningarinnar er virka daga frá 12 til 17
og stendur sýningin til 17. ágúst.
MYNPLIST____________________________
Guðný Rósa Ingimarsdóttir heldur
sýningu á galleri@hlemmur.is. Þetta
er hennar sjötta einkasýning. Sýningin
ber yfirskriftina Tognuð tunga en þar
ferðast listakonan á rriílli nokkurra
augnablika með aðstoð verka frá
þessu og síðasta ári.
Opnunartími galleri@hlemmur.is er frá
fimmtudegi til sunnudags, kl. 14-18.
Sýningunni lýkur 12. ágúst.
Ólöf Björk Bragadóttir, Lóa, hefur
opnað myndlistarsýningu i sal
félagsins Islensk grafik í
Hafnarhúsinu,
hafnarmegin. Á sýningunni eru Ijós-
myndir í lit teknar á flóamarkaðnum í
borginni
Montpellier í Suður- Frakklandi. Á
myndunum má finna hluti sem teknir
eru úr sínu vanalega samhengi.
Sýning franska myndlistarmannsins
Paul-Armand Gette Mind the vol-
cano! - What volcano? stendur nú í
Ljósaklifi vestast í Hafnarfirði. Aðkoma
að Ljósaklifi er frá Herjólfsbraut.
Sýningin stendur til 6. ágúst og er opin
daglega frá kl. 14.00 til 18.00.
í Listhúsi Ófeigs að Skólavörðustíg 5,
stendur sýning á teikningum eftir Erlu
Reynisdóttur van Dyck. Erla notar auk
blýants ýmis óhefðbundin áhöld eins
og reyrstifti, fjaðrir og fingurna Hún
notar einnig báðar hendur jafnt í list-
sköpun sinni. Sýningin er opin á verslu-
nartíma og stendur til 8. ágúst.
Líf og dauði. Hvaðan komum við -
hvert förum við? Heiga Birgisdóttir
og Olga Pálsdóttir sýna í listasalnum
Man, Skólavörðustíg 14. Listakonurnar
hafa nýlokið námi frá Listaháskóla
íslands og tengist yfirskrift sýningarin-
nar þema sem þær unnu að í
lokaverkefnum sínum. Sýndir eru
leirskúlptúrar og grafísk verk. Sýningin
er opin virka daga kl. 10 til 18 og kl.
14 til 18 um helgar. Henni lýkur 29.
júlí.
Ungur Norðmaður, Stian Rönning,
sýnir nú í Gallerí Geysi við Ingólfstorg.
Sýningin hefur yfirskriftina Sérð Þú
það sem Ég sé. Hann sýnir Ijósmyndir
sem eru teknar á Thailandi, Laos,
Noregi og
(sland á árunum 1999 til 2001.
Sýningin stendur til loka ágúst.
Þóra Sígurþórsdóttir leirlistarkona
sýnir í Gullsmiðju Hansínu Jens að
Laugavegi 20b.
í Listasafni Reykjavíkur -
Kjarvalsstöðum er sýning sem ber
nafnið Flogið yfir Heklu.
Sýningarstjóri er Einar Garibaldi
Eiríksson myndlistarmaður og prófes-
sor við Listaháskóla (slands. Á
sýningunni getur að líta mismunandi
myndir Heklu sem sýndar eru hlið við
hlið. Sýningin stendur til 2. september.
( miðrými Kjarvalsstaða er sýning
sem ber yfirskriftina 1461 dagur. Þar
sýnir Grétar Reynisson vaxtarverkefni
af þeirri tegund sem á ensku væri
kallað „work in progress." Sýningin
stendur til 19. ágúst.
Hafliði Sævarsson sýnir i Gallerí
Geysi í Hinu húsinu. Sýninguna nefnir
hann Kínakrakka og sýnir hann aðal-
lega málverk en einnig skúlptúra og
teiknaðar skissur.
Yfirlitssýning Errósafnsins stendur í
Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi.
Málverkasýning Lárusar H. List,
Vitundarástand stendur í Veislugallery
og Listacafé í Listhúsinu í Laugardal.
Sýningin er opin alla daga frá kl. 9.00
til 19.00 og stendur til 31. júlí.
Sýningin List frá liðinni öld stendur
yfir í Listasafni ASÍ. Á sýningunni eru
öndvegisverk úr eigu safnsins.
Sýningin stendur til 12. ágúst.
Svipir lands og sagna er yfirskrift
sýningar á verkum Ásmundar
Sveinssonar í Listasafni Reykjavíkur,
Ásmundarsafni. Á sýningunni eru verk
sem spanna allan feril listamannsins.
Safnið er opið daglega 10-16 og sten-
dur sýningin til 10. febrúar á næsta ári.
Bílasýning hjá B&L:
Gestir fá að reynsluaka jepplingi
bIlasýninc B&L gengst fyrir sýn-
ingarhelgi dagana 28. og 29. júlí
nk. Auk þess sem sýningargest-
um býðst að kynna sér það
nýjasta frá Land Rover, BMW,
Hyundai og Renault, verða ýmis
tilboð á boðstólum, m.a. á
Renault Mégane.
í upplýsingum fi'á B&L kem-
ur fram að sem fjölskyldubíll
þyki Mégane sameina öryggi og
þægindi og sem áhugavert dæmi
þess megi nefna, að f jarstýringu
fyrir útvarp og hljómtæki er
komið fyrir í stýri bílsins, auk
þess sem öll fimm bílbelti séu
búin út með sérstökum dempara.
Þeir sem mæta á sýninguna eru
hvattir til að reynsluaka Santa
Fe jepplingi frá Hyundai sem
umboðsaðilar segja að hafi hvar-
vetna hlotið lofsamlega dóma
fyrir hönnun, verð og gæði. ■
SANTA FE JEPPLINGUR
Gestir fá að spreyta sig í akstri á jepplingi frá Hyundai
Hreyfing:
Laugardalslaug
heilsa Ilmur af bakkelsi á morgn-
ana og pylsum á einhverjum öðrum
tímum dagsins, er líklega það sem
greinir aðkomu við Laugardalslaug
frá flestum öðrum laugum á höfuð-
borgarsvæðinu.
En á móti kemur að laugin er
meira krefjandi, sé sundíþróttin
notuð sem líkamsrækt, en flestar
aðrar laugar á svæðinu, þar sem
hún er 50 metra löng, en hinar 25
metrar. Fyrir yngri kynslóðina og
þá sem frekar kjósa að slaka á í
heitum pottum, er aðstaðan og val-
kostir góðir; stór rennibraut er fyr-
ir hina fyrrnefndu eða jafnvel ung-
ar sálir í eldra hulstri. Með „góðum
vilja“ má ef til vill finna lauginni
það til foráttu að vera ekki sérlega
hentug ungbarnalaug en það kemur
varla að sök, því aðrar laugar á höf-
uðborgarsvæðinu geta uppfyllt
slíkar þarfir. Hvað búnings- og
sturtuaðstöðu varðar, þá fullnægja
þær í það minnsta mínum kröfum
og það er hægt að hafa val um að
fara úr og í flíkurnar sínar utan eða
innan dyra. Ég verð þó að játa vits-
munalega takmörkun mína að því
leyti sem ég skil ekki skífusystem-
ið til hlítar. Er ekki bara einfaldara
að hafa venjulega lykla að fata-
skápum svo maður losni við að
biðja um aðstoð baðvarða við að
leysa skífuvandamál?
Bryndis Valsdóttir
BORGARSKIFULAG REYKJAVÍKUR
BORGARTÚN 3-105 REYKJAVÍK • SlMI 563 2340 • MYNDSENDIR 562 3219
Auglýsing um
deiliskipulag í Reykjavík
Grafarvogur, Spöng, tillaga að breytingu á deili-
skipulagi Spangarinnar varðandi lóðina nr. 3-5
(merkt eining G í gildandi deiliskipulagi).
í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr.
73/1997, með síðari breytingum, er hér með auglýst
til kynningar tillaga að breytingu á deiliskipulagi
Spangarinnar í Grafarvogi varðandi lóðina nr. 3-5
(merkt eining G í gildandi deiliskipulagi). Um er að
ræða lóð á móts við Dísarborgir.
Tillagan gerir m.a. ráð fyrir að byggt verði
kvikmyndahús á lóðinni með 4 sölum er rúmi um 950
manns. Jafnframt er gert ráð fyrir að í húsinu verði
veitingasala og bankaútibú. Byggingin getur orðið allt
að 4000 fermetrar á þremur hæðum skv. tillögunni og
nýtingarhlutfall allt að 0,45. Mesta hæð útveggja má
vera 11 m yfir gólfkóta aðalgólfs.
Tillagan liggur frammi í sal Borgarskipulags og
byggingarfulltrúa í Borgartúni 3, 1. hæð, virka daga
kl. 10.00 - 16.00 frá 27. júlí til 24. ágúst 2001. Þeir
sem telja sig eiga hagsmuna að gæta eru hvattir til að
kynna sér tillöguna. Ábendingum og athugasemdum
skal skila skriflega til Borgarskipulags Reykjavíkur
eigi síðar en 7. september 2001.
Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins
frests, teljast samþykkja tillöguna.
Reykjavík, 27. júlí 2001.
Borgarskipulag Reykjavíkur
OataUna
Stórdansleikur með ARA JÓNSSYNI
og HILMARI SVERRISSYNI á
CATAUNU Hamraborg 11 Kópavogi
Föstudags- og laugardagskvéld 27. og 28. júlí
FRITT INN.
LaMmmkkL bw&ið deyja a vcrum hennar
Ökum varlega!
IUMFERÐAR r.
IRAÐ www.umferd.is