Fréttablaðið - 28.08.2001, Síða 6
SPU-RN1NG DAGSINS 6
FRÉTTABLAÐIÐ
28. ágúst 2001 PRIÐJUDAGUR
Hverjír eru óvinir skattgreið
enda?
fé skattgreið-
enda en þeir
sjálfir og veita
þeim í áhuga-
mál sín, sem
þeim finnst merkilegri en áhugamál skatt-
greiðenda, og vilja hafa vit fyrir þeim.
Skattgreiðendur eiga fáa talsmenn og með
þessu er réttur þeirra til afraksturs eigin
vinnu vanvirtur.
Það eru þeir
sem telja sig
fara betur með
Gunnlaugur Jónsson er 25 ára framkvæmdastjóri
hugbúnaðarfyrirtækis.
BÍLFLAKIÐ
Spænskur lögreglumaður fylgist með á
meðan dráttarbíll dregur bílflakið í burtu.
Enginn slasaðist alvarlega í sprengingunni
og ekki þurfti að fresta neinu flugi.
Öflug bílsprengia
sprakk í Madría:
ETA lýsti yfir
- ábyrgð á
verknaðinum
MAÐRID.5PÁNI.AP KrÖftUg bíl-
sprengja sprakk á bílastæði við
alþjóðlega flugvöllinn í Madrid í
gær, aðeins nokkrum mínútum
eftir að viðvörun barst til lögregl-
unnar frá ETA, aðskilnaðarhreyf-
ingu Baska. Einn lögreglumaður
slasaðist lítillega í sprengingunni
en lögreglunni tókst að rýma
svæðið rétt áður en sprengjan
sprakk. Talið er að sprengjan hafi
innihaldið 50 kíló af sprengiefni.
Ekki þurfti að fresta neinu flugi
vegna sprengjunnar, sem talin er
vera hluti af herferð ETA gegn
vaxandi ferðamannaiðnaði á
Spáni, en um þessar mundir er há-
annatími í geiranum. í síðasta
mánuði aftengdi spænska lögregl-
an m.a. öfluga bílsprengju við
flugvöllinn í Malaga á suðurhluta
Spánar eftir viðvörunarhringingu
fráETA. ■
Pólskur vinnukraftur:
Bandarísk rannsókn:
Greinilega lögreglumál
atvinnuleyfi Þetta er greinilega
lögreglumál," sagði Gissur Pét-
ursson, forstjóri Vinnumálastofn-
unar, um málefni Pólverjans sem
skýrt var frá í Fréttablaðinu í
gær en þar kom fram að Pólverj-
inn, sem einungis hefur ferða-
mannaleyfi, stundi málningar-
vinnu hjá verktakafyrirtæki hér í
borg. Sagði annar eigandi fyrir-
tækisins störf Pólverjans einung-
is hafa verið unnin í sjálfboða-
vinnu.
Gissur var spurður að því
hvort útskýringar á borð við þær
sem eigandi lét í té séu að hans
mati trúanlegar og sagði hann svo
ekki vera. „Þessi maður hefur
greinilega ekki dvalarleyfi og
hvað þá atvinnuréttindi og er
þetta sennilega brot á hegningar-
lögum að ráða menn með þessum
hætti. Sagðist hafa vita af svip-
uðu dæmi þar sem pólskir ferða-
menn hefðu verið ráðnir til vinnu
til fyrirtækis úti á landi. Sagði
hann það tilfelli hafa orðið að lög-
reglumáli. ■
GISSUR PÉTURSSON
Telur útskýringar eiganda verk-
takafyrirtækisins um sjálfboða-
vinnu Pólverjans ekki trúanlegar.
Insúlínpillur
væntanlegar
chicaco.ap Bandarískir vísinda-
menn telja sig nú hafa fundið út
leið til að gefa sykursjúklingum
insúlín í pilluformi, en hingað til
hafa þeir þurft að sprauta sig með
lyfinu daglega. Pillan hefur þegar
verið prófuð á hundum og rottum
með góðum árangri. Efnið sem er
í pillunni er þannig úr garði gert
að pillan stendur af sér áhrif frá
sýrum í meltingarveginum og
kemst insúlínið þannig inn í blóð-
ið. Rannsóknin var birt á ráðstefn-
unni „American Chemical Soci-
ety“ sem haldin er um þessar
mundir í Chicago í Bandaríkjun-
um. ■
Mótorkrossbraut veldur
fjaðrafoki á Kjalcirnesi
Framkvæmdir sem hafnar voru án leyfis við lagningu mótorkrossbrautar á Kjalarnesi hafa verið
stöðvaðar eftir kæru nágranna sem telja mótorhjólakappakstur ekki fara saman við hænsnfugla-
rækt sína. Eigandinn segir brautina til einkanota og hann hafi ekki órað fyrir því að hann þyrfti
leyfi fyrir henni.
MÓTORKROSS
Undirritaðan óraði aldrei fyrir því að slíkar jarðvegsframkvæmdir, sem stuðla að uppgræðslu og skógrækt væru leyfisskyldar", segir eig-
andi Dalsmynnis sem hefur verið skikkaður til að stöðva lagningu mótorhjólabrautar í landi sínu.
skipulacsmál Byggingarfulitrú-
inn í Reykjavík hefur stöðvað
gerð mótorkrossbrautar á jörð-
inni Dalsmynni á Kjalarnesi.
Ábúendur tveggja nágranna-
jarða, Melgerðis og Melavalla,
kærðu framkvæmdina til borgar-
yfirvalda. Þeir segja m.a. að mót-
orkross geti ekki farið saman við
þann viðkæma búskap sem rek-
inn sé á landi þeirra en á Mela-
völlum er hænsnabú og í Mel-
gerði er útungunarstöð. Þeir
segja brautina vera á milli búa
sinna og í aðeins 200 til 300 metra
fjarlægð frá hvoru búi.
Eigendur Meigerðis og Mela-
valla segjast hafa það eftir
starfsmanni við brautarlagning-
una að þar eigi að vera starfsemi
flesta daga, æfingar á virkum
dögum og keppnir um helgar.
„Umbjóðendur mínir telja að
þetta sé starfsemi sem óhugsandi
sé að hafa svo nálægt búunum
vegna ýmis konar truflunar, t.d.
af hávaða og útblæstri auk þess
sem keppni muni verða til þess að
umferð aukist og enn frekari
truflun verði,“ segir iögmaður
kærendanna í bréfi til byggingar-
fulltrúans í Reykjavík
Eigandi Dalsmynnis segir hins
vegar í bréfi til byggingarfulltrú-
ans að brautin, sem eigi að verða
1000 metar löng, sé ekki ætluð
undir atvinnustarfsemi heldur til
einkanota hans enda sé hann
áhugamaður um „hjólreiðar",
sem hann reyndar nefnir mótor-
kross innan sviga. Hann segir
ennfremur að hluti framkvæmd-
anna felist í að græða upp melinn
sem brautin liggur í og bendir á
að enginn mannvirki eigi að
reisa.
„Undirritaðan óraði aldrei fyrir
því að slíkar jarðvegsframkvæmd-
ir, sem stuðla að uppgræðslu og
skógrækt og þ.m.t. auka notkunar-
möguleika landsins til hvers konar
tómstundaiðkunar væru leyfis-
skyldar,“ segir eigandi Dalsmynn-
is í bréfi til byggingarfulltrúans og
óskar um leið eftir samþykki fyrir
„jarðaumbótunum".
Umrætt svæði á Kjalarnesi er
ætlað til landbúnaðar samkvæmt
skipulagi og með vísan til þess
hefur byggingarfulltrúi um sinn
stöðvað framkvæmdirnar.
gar@frettabladid.is
ILÖGREGLUFRÉTTIR
Leysa varð upp unglingateiti í
heimahúsi í Vesturbænum um
miðnætti á sunnudag. Meðal
veislugesta voru sex ungmenni
um fjórtán ára aldur og voru þau
keyrð heim. Á sama stað lagði
lögregla hald á tvær haglabyssur
og 150 haglaskot sem lágu á
glámbekk. Lögreglan vill koma
þeim ábendingum á framfæri að
það sé ábyrgðarhluti að foreldrar
samþykki veisluhöld unglinga án
þess að nokkur fullorðinn sé á
staðnum.
Brotist var inn í nýbyggingu á
Kjalarnesi og þaðan stolið
vélum og verkfærum.
Maður var sleginn niður á Ing-
ólfstorgi rúmlega fjögur að
morgni laugardags. Hann var
fluttur á slýsadeild en ekki er vit-
að hver árásarmaðurinn var.
Svangir feðgar á ferð:
Ekki tilbúnir að borga
fyrir matvörurnar
INNBRQT Afskipti þurfti að hafa af
feðgum eftir þjófnað og líkams-
árás. Höfðu feðgarnir farið í mat-
arinnkaupaleiðangur síðdegis á
sunnudag en voru ekki á því að
greiða fyrir vörurnar sem þeir
týndu í pokana. Þegar starfsmað-
ur verslunarinar fann að hátterni
feðganna gerði sonurinn sér lítið
fyrir og sló hann í andlitið. Kalla
þurfti á lögregluaðstoð og í ljós
kom að vörurnar sem feðgarnir
svöngu höfðu týnt til voru að verð-
mæti rúmlega 30 þúsund krónur.
Um helgina var tilkynnt um
tuttugu innbrot til lögreglunnar í
Reykjavík og voru flest þeirra í
bifreiðar sem staðsettar voru á
nokkrum stöðum í borginni og þá
aðallega við útivistarsvæði, al-
menningsbílastæði eða bíiageymsl-
ur. Þá var brotist inn á heimili í
Breiðholti og þaðan stolið verð-
mætum, skartgripum og fleira.
Á laugardagsmorgun var karl-
maður handtekinn inni í fyrirtæki
í Hlíðunum en mannsins varð vart
þegar öryggiskerfi fór í gang.
Maðurinn gat ekki gert grein fyr-
ir veru sinni í fyrirtækinu og var
því færður til yfirheyrslu. ■
KEYPT í MATINN
Óhætt er að fullyrða að fólkið á
myndinni hafi greitt fyrir matvörurn-
ar, en svo var ekki um feðgana sem
ákváðu að birgja sig upp.