Fréttablaðið - 21.09.2001, Síða 15
FÖSTUPAGUR 21. september 2001
FRÉTTABLAÐIÐ
15
Launamál Owen:
Um 14 m.kr. í vikulaun
knattspyrna Búist er við því að
Michael Owen, leikmaður Liver-
pool, geri nýjan samning við liðið
í næstu viku, sem komi til með að
tryggja honum um 8,5 milljónir
króna í vikulaun, en með auglýs-
ingatekjum mun hann þá þéna um
14 milljónir á viku.
Samningaviðræðurnar ganga
vel, en leikmaðurinn hefur verið í
mjög góðu formi í byrjun þessar-
ar leiktíðar og þegar skorað 13
mörk fyrir Liverpool. Owen telur
hins vegar að hann eigi enn mikið
inni.
„Ég er þokkalega ánægður með
frammistöðu mína, sérstaklega
markaskorunina, en á heildina lit- owen
ið get ég enn bætt mig.“ ■ Telur sig eiga mikið inni.
Hermann Maier:
Ólympíumeist-
arinn á batavegi
skípi Læknar hafa sagt Hermanni
Maier, tvöföldum Ólympíumeistara
á skíðum, að hann verði að bíða með
að setja klossana á sig á ný vegna
meiðsla sem hann hlaut er hann
brotnaði á hægri lærlegg í mótor-
hjólaslysi í ágúst. Það er því ekki
víst að hann geti tekið þátt í Ólymp-
íuleikunum í Salt Lake City, sem
hefjast í febrúar, eins og vonast var
til.
Læknarnir munu brátt taka
ákvörðun um hvenær hann getur
hafið æfingar á ný.
„Það er ekki enn farið að ræða
hvenær Maier getur keppt á ný,“
sagði Knut Okresek, talsmaður
kappans.
„Hann er ekki enn farinn að
ræða um skíðin enda einbeitir hann
sér að því að geta gengið á ný.“
Maier fór af spítala í Salzburg á
föstudag eftir að hafa gengist undir
sjö klukkustunda aðgerð en dvelur
nú á heilsuhæli í endurhæfingu.
Okresek segir Maier vera farin
að jafna sig og taki hröðum fram-
förum.
„Hann er jafnvel farinn að taka
nokkur skref án hækjanna." ■
HERMANN MAIER
Ólympíumeistarinn styður sig við
hækjur er hann gengur útaf spít-
alanum þar sem hann gekkst
undir aðgerð.
ATO BOLDON
Spretthlauparinn frá Trinidad og Tobago féll á lyfjaprófi í apríl en Alþjóða frjálsíþróttasam-
bandið fékk ekki að vita af málinu fyrr en nýlega.
Lyfj amisnotkun:
Boldon vil breyta regl-
um um lyfjanotkun
FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR AtO Boldon,
spretthlauparinn frá Trínidad og
Tobago, reynir nú allt sem hann
getur til að verja mannorð sitt en
hann féll á lyfjaprófi í apríl á
þessu ári. í sýni, sem tekið var úr
Boldon eftir mót í Kaliforníu,
fundust leyfar af lyfinu ephedrine
en Alþjóða frjálsíþróttasamband-
ið fékk ekki að vita af málinu fyrr
en fyrir tæpum tveimur vikum.
Boldon fer ekki í keppnisbann þar
sem hann hefur ekki áður gerst
sekur um lyfjamisnotkun.
Ephedrine er örvandi lyf sem
eykur kraft þess sem neytir þess.
Lyfið er leyft í ýmsum fylkjum
Bandaríkjanna en rannsóknir
hafa leitt í Ijós að hjartaáfall get-
ur fylgt notkun þess.
Spretthlauparinn sendi frá sér
yfirlýsingu í gær sem finna má á
vefsíðu hans.
„Ég tek fulla ábyrgð á gerðum
mínum. Þetta mál hefur ekki góð
áhrif á orðstír minn og ég er viss
um að þó nokkrir aðdáendur mín-
ir hafa orðið fyrir vonbrigðum."
Boldon hefur margoft lýst því
yfir að hann sé á móti lyfjanotkun
og segist alltaf vera fús að gang-
ast undir lyfjapróf. Hann segist
hafa tekið lyfið vegna veikinda
sem hann átti við að stríða eftir
langt ferðalag til Suður-Afríku og
segir tíma til kominn að endur-
skoðíi reglurnar.
„Ég held að það þurfi að endur-
skoða reglurnar um lyfjanotkun.
Það gerist of oft að frjálsíþrótta-
menn eru sakaðir um ólöglega
lyfjanotkun þegar það eina sem
þeir eru að réyna er að láta sér
líða vel og ná sér af veikindum." ■
Þjálfaramál Lazio:
Zaccheroni
tekur við
afZoff
knattspyrna Alberto Zaccheroni,
fyrrum þjálfari AC Milan, er tek-
inn við starfi Dino Zoff hjá ítalska
liðinu Lazio. Liðið hefur aðeins
náð þremur stigum úr þremur
fyrstu leikjum ítölsku deildarinn-
ar og tapaði í fyrradag 3-1 gegn
franska liðinu Nantes í Meistara-
deild Evrópu, annað tap liðsins í
keppninni. Zoff fór á fund Sergio
Cragnotti, eiganda liðsins, þar
sem honum var sagt upp störfum.
Zoff, sem er fyrrum markvörð-
TIL LAZIO
Zaccheroni þjálfaði áður AC Milan en var
rekinn þaðan eftir slakt gengi. Hér sést
hann með Silvio Berlusconi eiganda Milan
liðsins.
ur, náði þriðja sæti deildarinnar í
fyrra en hann tók við á miðju
tímabili af Sven Göran Eriksson
sem þjálfar nú enska landsliðið. ■
Netverslun - www.isold.is
Hámarksnýting rýmis
ISOldehf
Umboðs- og heildverslun
Nethyl3-3a -1 lOReykjavík
Sími 5353600- Fax 5673609
Lokadagar
útsölunnar
í dag og á
morgun!
10-40%
tur
ÞINN LEIKUR
ÞIN VERSLUN
i:
Skramng í Golfherminn er hafin.
Hann verður opnaður 8. október.