Fréttablaðið - 12.10.2001, Side 18
12. október 2001 FÖSTUDACUR
HVER ER HLGANGUR UFSINS
Hörður Bragason,
tónlistarmaður
Viska Birgis bróður
„Birgir bróðir minn segir að hann sé að slappa
af og hvíla sig svo vel á eftir."
BLlÐFINHllR e. Þorvald Þorsteinsson____
íleikgerð Hörpu Amardóttur
Frumsýning Lau. 20. okt. kl. 14:00 ÖRFÁ SÆTI
2. sýning sun. 21,okt. kl. 14:00 ÖRFÁ SÆTI
Lau.27. okt. kl. 14:00 ÖRFÁSÆTI
Sun.28.okt. kl. 14:00 ÖRFÁSÆTI
Lau.3. nóv.kl. 14:00 UPPSELT
Sun. 4. nóv. kl. 14:00 N0KKUR SÆTI
KRISTNIHALD UNDIR JÖKLI e. Halldór Laxness
5. sýning lau. 13. okt. kl. 20 -ÖRFÁ SÆTÍ
Sun. 14. okt. kl. 20 -ÖRFÁ SÆTI .
Fim. 18. okt. kl. 20 -NOKKUR SÆTI
Fös. 19. okt kl. 20 -NOKKUR SÆTI
Lau. 27. okt. kl. 20 -NOKKURÝSÆTI
Sun.28. oktkl. 20 - N0KKUR SÆTi
Fim.lnóv. kl. 20 - N0KKUR SÆTI
Fös.2. nóv.kL. 20 - N0KKUR SÆTI
MEÐ VÍFIÐILÚKUNUM e. Rav Coonev
I kvöld kl. 20- ORFA SÆTI
Lau. 20. okt. kl. 20 -ÖRFÁ SÆTI
Fös.26. okt. kl. 20 - NOKKUR SÆTI
Lau.3. nov. kl. 20-LAUSSÆTI
BEÐIÐ EFTIR G0D0T e. Samuel Becketl
Frumsýning sun. 14. okt. kl 17:00 UPPSELT
/41/). bœyttan sýningartima á frumsýningu!
2. sýn fim. 18. okt. kl. 20:00 UPPSELT
3. sýn. fös. 19. okt. kl 20:00 ÖRFÁ SÆTI
4. sýn. lau. 27. okt. kl. 20:00 N0KKUR SÆTI
ÞRIÐJA HÆÐIN
PlKUSÖGUR e. Eva Ensler
Lau. 13. oktkl. 20 -ÖRFÁSÆTI
Fim. 18. okt. kl. 20 - N0KKUR SÆTI
FÖS. 19. okt. kl. 20 - NOKKUR SÆTI
20/10 og 21/10 I Vestmannaeyjum
LITLA SVIÐIÐ
ÖNDVEGISKONUR e. Werner Schwab_
I kvöld kl. 20
Síðasta sýning
MIÐASALA 568 8000
Liósmyndasýning
Marisu Arason:
Árstíðir í
Straumi
ljósiviyndasýning Um helgina er síð-
asta sýningarhelgi hjá Marisu
Navarro Arason sem sýnir ljós-
myndir í Listamiðstöðinni
Straumi. Sýningin ber heitið Árs-
tíðir og er meginhluti sýningar-
innar myndaflokkar sem kenndir
eru við árstíðirnar fjórar. Á
myndunum birtist hamur náttúr-
unnar sem breytist í takti við árs-
tíðirnar. Allar myndirnar á sýn-
ingunni eru teknir í nágrenni
Straums. Ljósmyndirnar eru unn-
INNHVERFUR
HEIMUR
NÁTTÚRUNNAR
IVIyndir Marisu eru
teknar í miklu ná-
vígi við náttúruna,
þara, gróður og
steina, svo eitthvað
sé nefnt.
ar á tölvu og prentaðar á vatns-
litapappír.
Marisa er fædd í Barcelona á
Spáni, og stundaði ljósmyndanám
þar. Hún hefur starfað sem ljós-
myndari hér á landi frá 1987. Efn-
istölc Marisu hafa einkennst af
áhuga á hinum innhverfa heimi
hlutanna, hvort heldur er úr ríki
náttúrunnar eða mannheimum.
Einnig hefur sjórinn verið henni
hugleikinn.
Sýningin verður opin á morgun
og sunnudag milli kl. 14 og 18. ■
Miðasalan er opin kl. 13 -18 alla virka daga og fram að sýningu sýningardaga. Sími miðasölu
opnar kl. 10 virka dag. Fax 5680383 midasala@borgarleikhus.is www.borgarleikhus.is
BORGARLEIKHUSIÐ
NYJA SVIÐIÐ
Musica Antiqua:
Italskir dansar,
söngvar og
kcinsónur
tónlistarhAtíð Tónlistarhátíðin
Musica Antiqua hefst í Hafnar-
borg á morgun kl. 18.Yfirskrift
tónleikanna er: „Le Gratie d’Am-
ore“, ítalskir dansar, söngvar og
kansónur. Gestur hátíðarinnar í ár
er franski listdansarinn og dans-
höfundurinn Véronique Daniels
sem sérhæfir sig í dönsum frá
endurreisnartímanum.
Á tónleikunum mun Véronique
Daniels ásamt nemendum Leik-
listar- qg tónlistardeildar Listahá-
skóla íslands, Tónlistarskólans í
Reykjavík og Listdansskóla ís-
lands sýna dansa við undirleik
söng- og hljóðfærahóps.
Fluttir verða ítalskir dansar,
söngvar og kansónur frá lokum
sextándu aldar og upphafi þeirrar
sautjándu. ■
FÖSTUDAGURINN
12. OKTÓBER
DOKTORSVÖRN______________________
16.00 Fyrsta doktorsvörnin í félagsvís-
indadeild fer fram í Flátíðasal Há-
skóla íslands í Aðalbyggingu. Ár-
elía Guðmundsdóttir ver dokt-
orsritgerð sína í stjórnmálafræði.
Ritgerð Árelíu ber heitið: íslenskur
vinnumarkaður á umbrotatímum:
Sveigjanleiki fyrirtækja, stjórnun
og samskipti aðila vinnumarkað-
arins. Allir velkomnir.
FYRIRLESTRAR_____________________
12.30 Elín Berglind Viktorsdóttir held-
ur fyrirlestur um verkefni sitt til
meistaraprófs í umhverfisfræðum.
Verkefnið heitir: Pátttaka heima-
manna í skipulagsáætlanagerð:
Ferðamál og útivist í Dalabyggð
og Saurbæjarhreppi. Fyrirlesturinn
er haldinn í VR II, stofu 157.
15.30 Breski heimspekingurinn Stephen
Neale, prófessor við Rutgers há-
skóla í Bandaríkjunum, heidur
fyrirlestur á vegum Hugvísinda-
stofnunar. Fyrirlesturinn nefnist
Myths of Meaning og er haldinn í
stofu 301 í Nýja-Garði.
7AFFI
REYKJAVÍK
Vesturgötu 2, sími 551 8900
Papar
í kvöld föstudag
og laugardagskvöld.
Tala minna, gera meira
Á sunnudaginn verður Beðið eftir Godot eftir Samuel Beckett frum-
sýnt á glænýju sviði Borgarleikhússins. Leikstjórinn Peter Engkvist
segir verkið fanga allt um lífið án þess að segja það beint út.
DRAUMALEIKARAR
„Þó að biðin eftir salnum hafi verið spennandi var hún líka erfið fyrir leikarana. Textinn
er erfiður til að leggja á minnið, það eru margar svipaðar aðstæður og setningar byrja
oft eins. En það er allt í lagi, þeir eru gífurlega færir og ástæðan fyrir því að ég er hér I
dag," segir Peter Engkvist leikstjóri.
leikhús Beðið eftir Godot er með
merkari leikverkum síðustu ald-
ar og olli á sínum tíma straum-
hvörfum í sögu leikritunar. Það
verður frumsýnt á sunnudag á
nýju sviði Borgarleikhússins,
sem er til hliðar við það stóra.
Það er valinn maður í hverju
rúmi í uppsetningunni. Benedikt
Erlingsson, Hilmir Snær Guðna-
son, Björn Ingi Hilmarsson og
Halldór Gylfason leika, Sten
Sandell sér um tónlistina og sæn-
ski leikstjórinn Peter Engkvist
heldur um taumana.
Þeir hafa þurft að bíða lengi
eftir frumsýningunni, sem átti
upprunalega að vera í vor. „Við
byrjuðum að æfa í janúar og æfð-
um þá út um allt hús,“ segir Pet-
er Engkvist. „Ég veit ekki hvaða
áhrif þessi bið hefur á leikritið.
T.d er sviðið nýtt fyrir okkur öll-
um. Þetta er spennandi óvissa,
mér líkar hún.“
Peter hefur ekki áður sett upp
Beckett en hann hefur þekkt
þetta verk lengi. „Ég las það
fyrst þegar ég var 17 ára. Þá skil-
di ég ekki neitt í því. Ég var undr-
andi á því hvernig væri hægt að
skálda eitthvað, sem er svona
öðruvísi. í gegnum árin hefur
mér oft verið hugsað til þess. Það
fangar allt um lífið án þess að
segja það beint út. Við erum oft í
svipaðri aðstöðu og persónurnar
í verkinu. Þeir eru að bíða eftir
þvi að eitthvað gerist og að ein-
hver taki ákvörðun fyrir þá.
Samt tekst þeim að lifa í núinu.“
Fyrsta innkoma Peter í ís-
lenskan leikhúsheim var þegar
Teater Pero setti upp I-Iamlet í
Borgarleikhúsinu 1992. Þá fór
einn leikari með allt verkið. Pet-
er stofnaði, ásamt félaga sínum
Roger, leikfélagið Teater Pero
árið 1983 í Stokkhólmi. Þá var
hann nýbúinn með þriggja ára
nám í látbragðsleik. „Leikhús-
heimur Stokkhólms var frekar
geldur og við vildum breyta hon-
um. Leikarar voru bara talandi
hausar, sem gengu fram og til
baka á sviðinu. Við vildum stofna
leikhús fyrir leikara, þar sem
hreyfingar líkamans eru jafn-
mikilvægar textanum. Landslag-
ið hefur auðvitað breyst talsvert
síðan þá en meginuppistaðan er
sú sama.“
Peter hefur tvisvar áður leik-
stýrt hérlendis, Birni Inga Iiilm-
arssyni í Lofthræddi örninn Örv-
ar í Þjóðleikhúsinu og Benedikti
Erlingssyni og Halldóru Geir-
harðsdóttur í Ormstungu í
Skemmtihúsinu við Laufásveg.
„Beðið eftir Godot er m.a. áhuga-
vert í uppsetningu vegna þess að
persónurnar tala mjög mikið en
gera lítið. Vinnan er svipuð
Ormstungu að því leytinu að leik-
ararnir verða einnig að segja
sögu með líkamanum. Það er það
sem ég vil. Mér líkar leikhús sem
gerir áhorfandanum kleift að
nota ímyndunaraflið."
halldor@frettabladid.is
16.15 Málþing um rannsóknir, ný-
breytní og þróun á vegum Rann-
sóknarstofnunar Kennarháskóla ís-
lands sett í sal Sjómannaskóla ís-
lands. Jörgen Pind prófessor við
Háskóla íslands heldur inngangs-
fyrirlestur sem hann nefnir: Lestur,
mál og skynjun: Hverju breyta ný-
legar heilarannsóknir fyrir kennara?
SKEMIVITANIR__________________________
14.00 Gleðigjafamir með Guðmund
Magnússon við píanóið koma
saman til að taka lagið í félags-
heimilinu Gullsmára, Gullsmára
13. Félagsstarf aldraðra í Kópa-
vogi stendur fyrir þessari skemmt-
un. Að loknum söngnum verða
veitingar seldar á sanngjörnu verði.
TÓNLEIKAR
20:00 Föstudagsbræðingur í Hinu húsinu.
Tonik, DJ. John „Mastermind" Johns-
son, Ubik og sérstök leynihljómsveit
spila. 16 ára aldurstakmark.
LEIKRIT_______________________________
20.00 Syngjandi í rigningunni. Sýnt á
stóra sviði Þjóðleikhússins.
20.00 Með vífið í lúkunum. Sýnt á
stóra sviði Borgarleikhússins.
20.00 Öndvegiskonur. Sýnt á litla sviði
Borgarleikhússins.
20.00 Englabörn. Sýnt í Hafnarfjarða-
leikhúsinu.
MYNDLIST____________________________
Sýningin "Hver með sínu nefi" stendur
yfir í Gallerí Skugga, Hverfisgötu 39. Að
sýningunni standa fimm myndlistar-
menn. Galleríið er opið milli klukkan 13
og 17, frá þriðjudegi til sunnudags. Sýn-
ingin stendur til 21. október.
Vera Sörensen listamaður hefur opnað
málverkasýningu í sýningarsal Gallerí
Reykjavík. Sýningin er opin virka daga frá
kl 13 - 18 og laugard. frá 11 - 16.
Finnskættaða myndlistarkonan Sari
Maarit Cedergren, hefur opnað mynd-
listarsýnínguna "Veðrabrigði" í Gryfju
Listasafns ASÍ. Sari sýnir lágmyndir úr
gifsi sem endurspegla samspil íslensks
landslags og ýmissa veðrabrigða. Sýning-
in er opin frá 14 - 18 alla daga nema
mánudaga og stendur til 14. október.
Harpa Árnadóttir hefur opnað sýningu í
Ásmundarsal Listasafns ASÍ á málverk-
um sem unnin eru sem teikningar. Sýn-
ingin er opin frá 14-18 alla daga nema
mánudaga og stendur til 14. október.
Sigurbjörn Jónsson hefur opnað sýningu
á málverkum í Hafnarborg. Sýningin er
opin alla daga nema þriðjudaga frá kl 11
til 17 og stendur til 15. okt.
Jón Valgard Jörgensen sýnir í Félagsstarfi
Gerðubergs. Sýndar eru landslagsmyndir,
fantasíur, portrait teikningar og dýra-
myndir. Sýningin stendur til 9. nóvember.
Opnunartímar sýningarinnar: mán. - fös.
kl. 10-17 og um helgar kl. 13-16.
Kristjáns Davíðsson hefur opnað sýn-
ingu á verkum sínum í galierí i8. Sýning-
in stendur til 27. október. Opið þriðju-
daga til laugardaga frá kl. 13-17.
Friðrika Geirsdóttir sýnir grafíkverk og
litljósmyndir í sýningarsal félagsins íslensk
grafík f Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17 (
inngangur hafnarmegin). Sýningin er
opin fimmtudaga til sunnudags frá kl.
14.00 til 18.00. Aðgangur er ókeypis.
Sýning á verkum Gísla Sigurðssonar
stendur yfir í Listasafni Kópavogs. Yfir-
skrift sýningarinnar er RÆTUR. Sýningin
er opin daglega nema mánudaga milli
11- 17.
Sýning á verkum Hjörieifs Sigurðssonar
listmálara stendur yfir í Listasafni Kópa-
vogs. Sýndar eru vatnslitamyndir sem
hvila að mestu leyti á sérkennum japön-
sku pappírsarkanna. Sýningin er opin
daglega nema mánudaga milli 11-17.
Kristján Guðmundsson liefur opnað
einkasýningu í Listasafni Reykjavíkui,
Kjarvalsstöðum. Sýningin er opin 10 -
17 alla daga nema miðvikudaga 10 - 19.