Fréttablaðið - 15.10.2001, Blaðsíða 1
MENNING
Rafmagn
í stað pappírs
FOLK
Sjúkraliðar
viðar en í
heilbrigðisþjónustu
bls 22
AFENGI
Astand
meðferðarmála
aldrei jafnslœmt
bls 8
fcaiNGHOLT
LYKIU. AÓ OatSHl LlOf)
533-3444
%
FRETTABLAÐIÐ
1 1
122. tölublað - 1. árgangur Þverholti 9, 105 Reykjavík — sími 515 7500 Mánudagurinn 15. október 2001
Sjúkraliðar fella
niður vinnu
verkpall Sjúkraliðar
hafa boðað á ný til
verkfalls í dag og á
það að standa til
miðvikudags. Allt
stendur fast í deilu
sjúkraliða við við-
semjendur sína.
Rjúpnaveiðin
byrjar
skotveiði Rjúpnaveiðitíminn hefst í
dag og stendur til 23. desember.
Búast má við að rjúpnaskyttur fjöl-
menni til fjalla en óvíst er um afla-
brögð þvf víða þykir mönnum sem
fuglinn sé með minnsta móti.
VEÐRIÐ í DACI
REYKJAVÍK Austan og síðar
norðaustan 5-10 m/s og
rigning öðm hverju.
Hiti 5-10 stig.
VINDUR ÚRKOMA HITI
ísafjörður Q 13-18 Skúrir 06
Akureyri (5 8-13 Skúrir Q8
Egilsstaðir © 8-13 Skúrir O7
Vestmannaeyjar Q 8-13 Skúrir O7
Kirkjan þingar
kirkiuþing Kirkjuþing verður sett í
dag og stendur næstu 10 daga í
safnaðarheimili Grensáskirkju.
Þingið er öllum opið. Mörg mál
verða til umræðu en nú verður
hægt að fylgjst með afgreiðslu
máia á netfanginu: www.kirkj-
an.is/kirkjuthing.
Marilyn í bíó
kvikmyndir Filmundur sýnir gaman-
myndina Some Like It Hot með
Marilyn Monroe, Jack Lemmon og
Tony Curtis í Háskólabíó kl. 22.30.
Keflavík og Akur-
eyri fá Fréttablaðið
fréttablaðið. Frá og með
deginum í dag geta
Akureyringar og Kefl-
i 1 víkingar nálgast
! * Fréttablaðið samdægurs
í verslunum Hagkaups.
KVÖLD IðTkV Ö L D |
Tónlist 18 Bíó 16
Leikhús 18 Iþróttir 14
Myndlist 18 Sjónvarp 20
Skemmtanir 18 Útvarp 21
NOKKRAR STAÐREYNDIR UM
FRÉTTABLAÐIÐ
Hvaða blöð
lesa íbúar
höfuðborgar-
svæðisins?
Meðallestur 18 til 67
ára á virkum dögum
samkvæmt könnun
PriceWaterhouse-
Coopers frá
september 2001
70.000 eintök
78% fólks les blaðið
IFJOLMIÐLAKUNNUN PRICEWATERHOUSECOOPERS VAR
FRAMKVÆMD DACANA 17. TIL 28. SEPTEMBER 2001.
Mikill ótti við hryðju-
verk í Bandaríkjunum
Bush hafnar umsvifalaust tilboði talibana um framsal bins Ladens til þriðja lands gegn sönnunum
á sekt hans og því að hætt verði við frekari loftárásir. „Við vitum að hann er sekur,“ segir
Bandaríkjaforseti. Tengsl miltisbrandstilfella við bin Laden ósönnuð. Talibanar örvæntingarfulbr.
washincton. ap George W. Bush,
Bandaríkjaforseti, hafnaði um-
svifalaust tilboði stjórnar talibana
sem buðust til þess í gær að fram-
—— selja Osama bin
Laden, ef að
Bandaríkjamenn
hættu árásum á
Afganistan. For-
setinn, sem var ný-
kominn frá Camp
David eftir helgar-
dvöl, sagði að árás-
unum myndi ekki
ljúka nema að tali-
banar „framseldu hann, samverka-
menn hans og alla gísla.“
Bush bætti við að sekt eða sak-
leysi Osama bin Ladens væri ekki
Mikill ótti hefur
gripið um sig !
Bandaríkjunum
vegna miltis-
brandstilfella og
hættunnar á
nýjum hryðju-
verkum.
til umræðu „Við vitum að hann er
sekur.“ Haji Abdul Kabir, aðstoðar-
forsætisráðherra stjórnar talibana,
tilkynnti blaðamönnum að taliban-
ar væru reiðubúnir að framselja
bin Laden, til þriðja lands, svo
framarlega sem þeir fengju sann-
anir um sekt hans. Tímasetning til-
boðsins þykir jafnvel benda til þess
að talibanar séu orðnir örvæntinga-
fullir vegna árása Bandaríkja-
manna sem hafa staðið í viku.
Blaðamennirnir voru staddir á yf-
irráðasvæði talibana í Afganistan, í
boði þarlendra stjórnvalda sem
sýndu þeim ummerki árása Band-
ríkjamanna.
Mikill ótti hefur gripið um sig í
Bandaríkjunum vegna miltis-
brandstilfella og hættunnar á nýj-
um hryðjuverkum. Heilbrigðisráð-
herra Bandaríkjanna, Tommy
Thompson sagði að það væri klár-
lega hryðjuverk að senda miltis-
brand með pósti, eins og gert hefur
verið. John Ashcroft, dómsmála-
ráðherra sagði að verið væri að
rannsaka hvort að Osama bin
Laden bæri ábyrgð á sendingunum
en of snemmt væri að segja til um
það. Ashcroft vísaði á bug orðum
talsmanns talibana í Pakistan, sem
sagði það mistök að einblína á bin
Laden í rannsókn á miltisbrandin-
um. Hann gagnrýndi harðlega ný-
legar hótanir stuðningsmanna bins
Ladens um frekari hryðjuverk og
ráðleggingar þeirra til múslima í
Á AFGÖNSKUM SPÍTALA Lala Bidal heldur á Hazrat, fjögurra ára gömlum syni sínum á spítala I borgínni Jalalabad í Afganistan. Tali-
banar segja þá báða hafa særst I árás Bandaríkjamanna sl. fimmtudag. Talibanar buðu blaðamönnum I gær að skoða ummerki árásanna
I fyrsta skipti síðan þær hófust fyrir viku síðan. Meira bls. 2.
Ný þriggja daga verkfallslota hjá sjúkraliðum hefst í dag:
Undirbúa nú allsherjarverkfaU
kjaradeila „Engin tilboð hafa borist
frá ríkinu til að koma í veg fyrir
þetta verkfall þannig að ríkissátta-
semjari sá ekki ástæðu til annars
en að boða til fundar 18. október,"
sagði Kristín Á. Guðmundsdóttir,
formaður Sjúkraliðafélags íslands,
en í dag hefst annað þriggja daga
verkfall sjúkraliða sem stendur til
17. október. Kristín sagði að ef
samkomulag næðist ekki tólf dög-
um frá þessu verkfalli kæmi til
annars verkfalls. Styttist þá í að
enn fleiri sjúkraliðar færi út af
Landspítala vegna uppsagna og
framundan væru svartir dagar fyr-
Bandaríkjunum um að forðast flug-
vélar og háar byggingar.
Loftárásir Bandaríkjamanna á
Afganistan héldu áfram í gær. Á
meðal skotmarka voru Kabúl og
aðrar borgir í Afganistan. Einn yf-
irmanna flugmóðurskipsins USS
Enterprise sagði samtali við blaða-
menn að verið væri að Ijúka við að
eyðileggingu skotmarka sem flug-
mönnum hefði mistekist að eyði-
leggja í fyrri árásum. Þúsundir
heittrúaðra Pakistana efndu til
mótmæla í gær og reyndu að ráðast
að flugvelli sem talið er að Banda-
ríkjamenn hafi afnot af. Leiðtogar
heittrúaðra Pakistana hvetja til
þess að ríkisstjórninni verði steypt
af stóli. ■
Alþjóðlegt fjársvikamál:
Tugmilljóna
bankasvik
fiársvik Tali hefur verið gert að
afhenda Ríkislögreglustjóra upp-
lýsingar um farsímanotkun er-
lends manns, sem er í gæsluvar-
haldi hér á landi, vegna gruns um
tugmilljóna fjársvik.
Hæstiréttur kvað upp úrskui'ð
þessa efnis á föstudag.
Að sögn Jóns H. Snorrasonar,
saksóknara og yfirmanns efna-
hagsbrotadeildar Ríkislögreglu-
stjórans, tengir málið anga sína til
nokkurra landa en það kom upp
fyrir rúmlega tveimur vikum.
Tveir Nígeríumenn eru í haldi
vegna brota framinna hér á landi.
Um er að ræða tilraunir til að
selja innistæðulausar ávísanir og
aðra pappíra í bönkum og koma
ágóðanum úr landi. Heildarum-
fang málsins skiptir tugum millj-
óna króna en brotin hérlendis ná
aðeins til hluta þeirra upphæða. ■
SJUKRALIÐAR í VERKFALLI
Engar skurðaðgerðir verða gerðar af
biðlistum á sjúkrahúsunum.
ir heilbrigðisþjónustuna í landinu.
Kristín sagði í undirbúningi að
senda atkvæðaseðla til allra
sjúkraliða á landinu um hvort boða
eigi til allsherjarverkfalls sem
hæfist um miðjan nóvember. Þetta
yrðu þrjú verkföll þrjá daga í senn.
Anna Stefánsdóttir, hjúkrunar-
forstjóri Ríkisspítalanna, sagði
engar sérstakar ráðstafanir verið
gerðar umfram undanþágulista
sem sjúkraliðarfélagið samþykkti
að unnið væri eftir. „Við þurfum að
loka aftur þeim deildum sem við
opnuðum eftir síðasta verkfall.
Þetta eru þrjár deildir á skurðsviði,
barnadeild og ein á lyfjasviði."
Anna sagði engar skurðaðgerðir
framkvæmdar af biðlistum heldur
einungis bráðaaðgerðir og aðgerðir
á krabbameinssjúklingum. ■
| ÞETTA HELST |
Davíð Oddsson hlaut 98% at-
kvæða í formannskjöri á
landsfundi Sjálfstæðisflokksins í
gær. Geir H. Haarde hlaut 89% í
varaformannskjöri. bls. 2.
Markús Möller sagði sig úr
Sjálfstæðisflokknum vegna
niðurstöðu landsfundar um sjáv-
arútvegsmál. bls. 23.
Reiðir þorpsbúar gerðu aðsúg
að erlendum blaðamönnum í
þorpinu Karam í Afganistan í
gær. Blaðamönnunum hafði verið
hleypt inn í landið af talibönum
til að líta á afleiðingar loftárása
Bandaríkjamanna. bls. 2.