Fréttablaðið - 15.10.2001, Blaðsíða 2
FRÉTTABLAÐIÐ
KIÖRKASSINN
FARI HVERCI
Tveir þriðju hlutar
kjósenda á visi.is
eru andvígir hug-
myndum mennta-
málaráðherra um
flutning Rásar 2 til
Akureyrar.
Á að flytja Rás 2 til Akureyr-
ar?
Niðurstöður gærdagsins
ý www.visir.is
Já
Nei
Spurning dagsins í dag:
Er niðurstaða landsfundar Sjálfstæðis-
flokksins grundvöllur sáttar i landinu
um fiskveiðistjórnina?
Farðu inn á vísi.is og segðu
þína skoðun
________
Stækkun Hótel Esju:
Byggingarleyfl
ekki enn verið
gefið út
skipulacsmál Framkvæmdir við
stækkun Hótel Esju eru þegar
hafnar þrátt fyrir að ekki liggi
fyrir byggingarleyfi af hálfu
borgaryfirvalda
vegna fram-
kvæmdanna.
Þyrping hf.,
sem á Hótel Esju,
hyggst reisa átta
hæðir ofan á
fyrstu hæð aust-
urhluta hússins
fyrir fundar- og
hótel esja hótelstarfsemi og
Undirbúningur að lyftuhÚS Og fleira
stækkun Hótel við vesturendan.
Esju er hafinn fyr- Sunnan hÚSS á að
rr nokkru en leyf- byggja einnar Og
ið fyrir fram- ag hjllta tveggja
kvæmdunum er * ,____; JEl..
enn ekki fengið. ^æða byggingu
fyrir raðstefnur
og heilsurækt. Jafnframt á að
breyta innra fyrirkomulagi hót-
elsins og samræma útlit alls húss-
ins.
Þá ætlar Þyrping að byggja
tveggja hæða 626 fermetra opið
bílgeymsluhús fyrir 49 bíla vest-
an hótelbyggingarinnar. Stækkun
hótelsins að öðru leyti nemur 6678
fermetrum.
Sótt hefur verið um leyfi fyrir
þessari stækkun Hótel Esju hjá
byggingarfulltrúanum í Reykja-
vík en afgreiðslu málsins var
frestað í síðustu viku vegna þess
að gögn skorti með umsókninni. ■
Á VESTURBAKKANUM
Palestínsk böm fylgjast með ísraelskum
skriðdreka á leið um borgina Hebron á
Vesturbakkanum.
Vesturbakkinn:
Einn forsprakka
Hamas skotinn
til bana
jerúsalem. ap Palestínumaður, sem
sakaður hafði verið um að standa
á bak við sjálfsmorðsárás á diskó-
tek í Tel Aviv sem varð 22 að bana,
var skotinn til bana af ísraelskum
hermönnum í gær. Maðurinn,
Abed-Rahman Hamad, var svæð-
isleiðtogi Hamas, róttækra sam-
taka múslima. Spenna jókst í kjöl-
farið og Hamas-samtökin hafa
hótað því að gera hefndarárás.
Þúsundir Palestínumanna fyl-
gdu Hamad til grafar í gær. ísra-
elsk stjórnvöld höfðu farið fram á
það við stjórn Palestínumanna að
hún tæki Hamed höndum. Honum
var sleppt lausum fyrir mánuði
síðan, eftir stutta fangavist. ■
2
15. október 2001 MÁNUDAGUR
Pakistan:
Mannskæð mótmæli gegn árásum
islamabad. ap Til harðra átaka
koma í gær á milli herskárra músli-
ma og pakistönsku lögreglunnar í
borginnig Jacobabad í suðurhluta
Pakistan í gær. Þeir fyrrnefndu
höfðu efnt til mótmæla gegn afnot-
um Bandaríkjamanna af flugvelli
borgarinnar. Lögregla og hersveitir
beittu táragasi í tilraun til að leysa
upp mótmælin en mörg hundruð
múslimar voru á leið til flugvallar-
ins. Þúsundir mótmælenda voru
samankomnir á vegum fyrir utan
borgina en pakistanska óeirðalög-
reglan kom í veg fyrir að þeir
kæmust inn í borgina, sem hefur
verið lokað af. Eftir nokkra tíma
féllust þeir á að halda leiðar sinnar.
Einnig kom til átaka í tveimur þorp-
Næsta einkavæðing
á orkumarkaði
Landsfundi Sjálfstæðisflokks lauk í gær. I stjórnmálaályktun er hröð
vaxtalækkun sögð meginforsenda uppbyggingar í atvinnulífi. Stefnt að
12 mánaða fæðingarorlofi sem verður að fullu millifæranlegt.
um í útjaðri borgarinnar.
Að sögn lögreglunnar í Jac-
obabad lést einn og 24 særðust í
átökunum og voru nær 400 manns
handteknir vegna mótmælanna.
Einn lést í átökunum fyrir utan
borgina. Margir Pakistanar eru
mjög andsnúnir þessari ákvörðun
stjórnvalda og hvöttu sumir for-
sprakka mótmælanna í gær til þess
að stjórnvöldum yrði steypt af stóli.
Leiðtogar pakistanskra múslima
hafa hvatt til þess að allsherjar-
verkfall verði í dag. ■
ÁRÁSUM MÓTMÆLT
„Bush hundur, Tony hundur" stendur á
dúkkunni sem Pakistanar, andsnúnir
árásum á Afganistan, brenndu í mót-
mælum í borginni Peshawar í gær.
---+----
Þá var sam-
þykkt að legg-
ja til að opin-
ber birting
álagninga- og
skattskráa
verði lögð af.
——
LANDSFUNDUR SJÁLFSTÆÐISFLOKKS I
stjórnmálaályktun á 34. lands-
fundi Sjálfstæðisflokksins, sem
lauk um helgina í Laugardalshöll,
voru efnahagsmál í forgrunni.
Fram kemur að hröð vaxtalækkun
sé ein af meginforsendum nýrra
fjárfestinga og uppbyggingar í at-
vinnulífinu, eink-
um vegna mikils
vaxtamunar milli
íslands og annarra
landa um þessar
mundir. Aðilar að
gerð kjarasamn-
inga eru hvattir til
að hafa baráttu
gegn verðbólgu að
leiðarljósi. Þá er lýst yfir einörð-
um stuðningi við áform um upp-
byggingu nýrrar stóriðju á Aust-
urlandi og við Hvalfjörð en drög
að ályktun um orkumál voru sam-
þykkt svo að segja mótatkvæða-
laust. Almenningur er hvattur til
að kaupa hlut í ríkisfyrirtækjum
við einkavæðingu þeirra og lagt
er til að næstu stóru aðgerðir í
einkavæðingarmálum á eftir sölu
Landssímans og eignarhlutum
ríkissjóðs í Landsbankanum og
Búnaðarbankanum verði á orku-
markaði. í ályktun um skattamál
var samþykkt að
tekjuskattur á fyr-
irtæki yrði lækk-
aður í 10% en ekki
15% eins og fram
kom í upphaflegu
tillögunum. Fram
kom að endur-
skoða þyrfti
stjórnkerfi Há-
skólans þannig að
ákvarðanataka
yrði virkari. í
tengslum við
hryðjuverkin í
Bandaríkjunum
98% ATKVÆÐA
98% landsfundarfulltrúa endurkusu Davíð Oddsson til formennsku í flokknum. Geir H.
Haarde hlaut 89% atkvæða til áframhaldandi varaformennsku. Þegar hann sleit lands-
fundinum sagðist Davið vona að niðurstaða fundarins um hóflega veiðileyfagjald væri til
þess fallin að setja niður illvigustu deilur um fiskveiðistjórnina.
Á landsfundinum var samþykkt
að stefna að 12 mánaða fæðingar-
var bent á að íslendingar þyrftu
að gera áætlanir um viðbrögð ef
hryðjuverkahópar veldu ísland til
óhæfuverka sinna. Þá var sam-
þykkt að halda áfram á braut sam-
einingar sveitarfélaga og auka
einkavæðingu í starfsemi sveitar-
félaga.
MIDSTJÓRN SJÁLFSTÆÐISFLOKKS
Alls greiddu 803 landsfundar fulltrúar atkvæði í kosningu um 11 manna 1
miðstjóm Sjálfstæðisflokks. Eftirtaldir hlutu kosningu í miðstjórnarkjöri:
Ásta Þórarinsdóttir hagfræðingur 486 atkvæði.
Birgir Ármannsson lögfræðingur 418 atkvæði.
Birna Lárusdóttir fjölmiðlafræðingur 633 atkvæði.
Elínbjörg Magnúsdóttir verkalýðsforingi á Akranesi 57Ö atkvæði.
Ellen Ingvadóttir löggiltur dómtúlkur og skjalaþýðandi 506 atkvæði.
Guðjón Hjörleifsson bæjarstjóri 610 atkvæði.
Jón Helgi Björnsson framkvæmdastjóri 442 atkvæði.
Jón Magnússon verkfræðingur 418 atkvæði.
Magni Kristjánsson skipstjóri og framkvæmdastjóri 447 atkvæði.
Magnús Þór GyÍfason framkvæmdastjóri SUS 457 atkvæði.
Ragnar Sær Ragnarsson sveitarstjóri 553 atkvæði.
orlofi sem yrði millifæranlegt að
fullu milli foreldra. Þá var sam-
þykkt að leggja til að opinber birt-
ing álagninga- og skattskráa verði
lögð af. Tillaga um aðskilnað ríkis
og kirkju var felld og sömuleiðis
tillaga um lækkun
sjálfræðisaldurs úr
18 í 16 ár. Ályktun um
að Ríkisútvarpinu
verði breytt í hlutafé-
lag var hins vegar
samþykkt. Sérstök
vísindanefnd var
skipuð í fyrsta sinn á
landsfundinum.
Lagði hún meðal ann-
ars til að hlutverk rík-
isins í vísindarann-
sóknum yrði eflt enn
frekai’. kristjangeir@
frettabladid.is
Blaðamenn í Afganistan:
Formannskjör:
Davíð fékk
98% atkvæða
landsfundur Davíð Oddsson var í
gær endurkjörinn formaður Sjálf-
stæðisflokksins með 98% at-
kvæða á landsfundi
Sjálfstæðisflokksins. Hann hlaut
849 atkvæði Aðeins 20 lands-
fundafulltrúar greiddu öðrum en
Davíð atkvæði til formennsku.
Geir H. Haarde fjármálaráð-
herra var endurkjörinn varafor-
maður flokksins með 89,4% at-
kvæða eða 761 atkvæði alls. Alls
tóku 851 landsfundarfulltrúi þátt í
varaformannskjörinu. 27 þeirra
greiddu Birni Bjarnasyni atkvæði
sem varaformanni. ■
SJALDSÉÐ A SLÉTTU
Elstu menn á Melrakkasléttu muna ekki
eftir jafnlítilli rjúpu og nú.
Rjúpnaveiði hefst í dag:
Stofn í sögulegu
lágmarki á
Melrakkasléttu
RJÚpan „Hann er í sögulegu lág-
marki, það er mjög lítið af rjúpu
hérna,“ segir Brynjólfur Sigurðs-
son, fyrrverandi skytta og fuglaá-
hugamaður á Kópaskeri, um
rjúpnastofnin á Melrakkasléttu.
Rjúpnaveiði hefst í dag. „Það var
óvenju lítið strax í vor og núna sést
hún ekki. Ég fór upp í fjöllin í gær
og ég sá ekki eitt einasta kvikindi.
Ég var með góðan kíki og kíkti í
allar áttir.“ Brynjólfur segir að þar
sem jörðin sé enn auð, en rjúpan
orðin hvít, gætu þær leynst ofar á
hálendinu. Hann segir að fólk hafi
orðið vart við örfá rjúpnapör í
sumar en nú óttist hann að fálkinn
hafi sótt hart að þeim. Brynjólfur
segist t.d. á göngum sínum um
sléttuna hafa séð mikið fiður úr
rjúpum sem hafði verið sundrað.
„Ég hefði nú mælst til þess að
skera framan af rjúpnatímanum
eða þá bara að hún yrði alfriðuð.
Það hefði verið mikið vit í því. Mér
líst ekki á það að senda menn á
stofninn eins og hann er núna.“
Brynjólfur segist ekki vita hvernig
ástandið sé lengra upp til heiðanna
en að hann hafi þó heyrt að það
væri svipað allsstaðar. ■
|erlent|
Þýska flugfélagið Lufthansa
ætlar að leggja til fjögurra
daga vinnuviku hjá fyrirtækinu.
Tillagan er viðbrögð við tapi sem
flugfélagið hefur orðið fyrir síð-
an hryðjuverkaárásirnar áttu sér
stað. Framkvæmdastjóri Luft-
hansa, Júrgen Weber, sagði að
Lufthansa væri í samvinnu við
verkalýðsfélög og fulltrúa starfs-
manna að leita leiða þannig að
ekki þyrfti að grípa til uppsagna.
Hitta fórnarlömb loftárásanna
karam. ap Reiðir þorpsbúar gerðu
aðsúg að erlendum blaðamönnum
í þorpinu Karam í Afganistan í
gær. Blaðamönnunum hafði verið
hleypt inn í landið af talibönum til
að líta á afleiðingar loftárása
Bandaríkjamanna. „Þeir ætla að
drepa okkur! Þeir eru komnir til
að leita upplýsinga, til að segja
flugvélum hvar á að varpa
sprengjum!" kölluðu reiðir þorps-
búar.
Ferð blaðamannanna í þorpið
Karam, í fjöllum í austurhluta
Afganistan, er sú fyrsta inn á yfir-
ráðasvæði talibana síðan árásir
Bandaríkjamanna á Afganistan
hófust, 7. októbei'. Talibanar, sem
fylgdu blaðamönnum til þoi-psins,
halda því fram að 200 íbúar hafi
látist í loftárásum þar á fimmtu-
dag. Ef svo er árásin sú mann-
skæðasta hingað til.
„Það er saklaust fólk sem býr
hér,“ sagði einn þorpsbúa, Gul
Mohammed, „Ilér er engin her-
stöð. Hverju eru þeir að leita að í
Afganistan? Hvar er Osama bin
Laden. Hann er ekki hér. Hvers
vegna vörpuðu þeir sprengjum á
okkur?“ Blaðamönnum reyndist
erfitt að henda reiður á hversu
margir hefðu látist í árásinni en
sögðu að minnsta kosti 18 nýtekn-
ar grafir hefðu verið í þorpinu.
Þorpsbúar sögðu flest fórnar-
lömbin hefðu verið grafin í fjöll-
unum í kring. ■
Á myndinni sjást blaðamenn í heimsókninni i þorpinu Karam.