Fréttablaðið - 15.10.2001, Side 6

Fréttablaðið - 15.10.2001, Side 6
SPURNING DAGSINS Hvernig lýst þér á efnahagsástandið? Mér líst bara þokkalega á það. Ég hef engar sérstakar áhyggjur enda þýðir það ekkert þetta reddast alltaf hérna á (slandi. Ég stunda sjálfstæðan atvinnurekstur og hver er sinn gæfusmiður. Ólafur Guðlaugsson auglýsingateiknari RÍKISLÖG- REGLUSTJÓRI Ríkislögreglustj óri: Skírteini með leysitækni ökuskírteini í dag hefur ríkislög- reglustjóri útgáfu nýrra ökuskír- teina sem eiga að vera mun end- ingarbetri og ör- uggari með tilliti til fölsunar en nú- verandi skrtreini. Nýju skírteinin eru unnin með leysitækni þannig að upplýsingar á kortinu og myndin er grafin inní kortið sjálft. Vandamál hef- ur verið með núverandi kort þar sem myndirnar hverfa stundum af skírteinum eða dofna og fólk verður óþekkjanlegt. Þeír sem þannig er ástatt um fá nýtt skír- teini sér að kostnaðarlausu en eldri gerðir skírteina halda gildi sínu. Ljósmynd þar að fylgja um- sókn um nýtt ökuskírteini þar sem ekki er lengur aðgangur að myndabanka Reiknistofu bank- anna. Reiknistofa bankanna hefur séð um framleiðslu á ökuskírtein- unum frá árinu 1997 en ekki er til tækjabúnaður hér á landi til að framleiða nýju skírteinin og hefur verið samið við þýskt fyrirtæki um framleiðsluna. b I HÁSKÓLINN I T Tnglingahreyfingar stjórnar- andstöðuflokkanna hafa sent frá sér sameiginlega ályktun þar sem tíu þúsund króna hækkun innritunargjalda við Háskóla ís- lands, Kennaraháskóla íslands og Háskólann á Akureyri er mót- mælt. Er litið á fyrirhugaða hækkun sem tilraun til að koma á almennum skólagjöldum við skól- ana enda sé hækkunin ætlað að standa undir kostnaði við kennslu samkvæmt nýju fjárlagafrum- varpi. Segir í ályktuninni að hækkunin brjóti gegn lögum. FRÉTTABLAÐIÐ 15. okróber 2001 MÁNUDAGUR Yfirdýralæknir: Atak gegn ólöglegu kjöti landbúnaður Embætti yfirdýra- læknis hefur farið þess á leit að passað sé upp á að óstimplað og ólöglegt kjöt sé ekki tekið inn í eftirlitsskyld fyrirtæki svo sem kjötvinnslur, mötuneyti, stóreld- hús og verslanir. Embættið fór fram á að Hollustuvernd ríkisins beindi tilmælunum til heilbrigðis- eftirlits sveitarfélaganna. Halldór Runólfsson, yfirdýralæknir, segir ástæðu þessar tilmæla vera að sláturtíð standi yfir og líklegra en ella að slíkt kjöt slæðist með. Hann segir þó ekkert sérstakt benda til að ólöglegt kjöt sé frek- ar í umferð nú en áður. „Laga- heimildir til heimslátrunar eru mjög þröngar, en eigandi lögbýlis má slátra eigin fé heima á lögbýli til eigin nota. Það er hins vegar bannað að gefa þetta, selja eða gera nokkuð annað við það en að slátra og éta heim á bænum. Allir sem eru með matvæli í sölu eða vinnslu verða að vera með kjöt úr sláturhúsum og fyrir því eru góð og gild rök,“ sagði yf- irdýralæknir sem jafnframt skrifaði Meistarafélagi kjötiðnað- armanna hvattir þá til að forðast að taka að sér vinnslu á ólöglegu kjöti. Þá óskaði yfirdýralæknir eftir því við dómsmálaráðuneytið að það fari þess á leit við lögreglu- Þessir girnilegu bitar eru örugglega stimpl- aðir og vottaðir í bak og fyrir. stjóra um land allt að aukið verði eftirlit með ólöglegu kjöti. Hall- dór fjallar nánar um þessi mál í grein í næsta eintaki Bændablaðs- ins. ■ Gangandi vegfarendur: Ljós á Hofs- vallagötu samgöngur Kjartan Magnússon og Kristján Guðmundsson, full- trúar Sjálfstæðisflokks í sam- göngunefnd Reykjavíkur, hafa lagt til í nefndinni að sett verði upp gangbrautarljós á Hofsvalla- götu við gatnamót Sólvallagötu. Þeir segja Hofsvallagötu nú vera einu götuna í gamla vesturbænum þar sem 30 km hraðatakmörk gildi ekki. Þar sé ökuhraði því mun meiri en annars staðar í hverfinu með tilheyrandi slysa- hættu fyrir gangandi vegfarend- ur, ekki síst skólabörn og eldri borgara. ■ Enginn staður á íslandi á heimsminjaskrá UNESCO A sjöunda hundrað menningar- og náttúruminjar eru nú á alþjóðlegri heimsminjaskrá. Enn er enginn staður hér á landi á listanum en unnið er að því að tilnefna Skaftafell og Þingvelli. Ekki er talið að barrskógur á Þingvöllum eða lúpína í Skaftafelli muni koma í veg fyrir það. heimsminjar Samningur um vernd- un menningar- og náttúi-uarfleifðar heims varð til á þingi UNESCO árið 1972. World Heritage List, eða heimsminjaskráin, er listi yfir þá staði sem vernda á samkvæmt samningnum. Tæplega 700 staðir í 122 löndum eru nú á heimsminja- skránni og teljast flestir þeirra til menningarminja. Dæmi um staði eru Kínamúrinn, gömlu miðbæir borganna Prag, Havana og Vilnius, Dómkirkjurnar í Hróarskeldu og Durham, Galapagoseyjar og fjöldi þjóðgarða. ísland hefur verið aðili að þess- um samningi frá 1996. Síðan þá hef- ur verið unnið að því að íslenskir staðir kæmust inn á menningarminja- skrána en enginn staður er þó kom- inn þangað enn. Árið 1996 gaf nor- ræna ráðherra- nefndin út skýrslu um heimsminjar á Norðurlöndum. Skýrslan var unnin af þverfaglegum vinnuhópi á árun- __ um 1993-1996 og eru í henni gerðar tillögur um 21 mögulegt heimsminjasvæði á Norðurlöndum. Af þessu 21 svæði eru fimm ís- lensk, Þingvellir, Surtsey, Mývatn, Snorralaug í Reykholti og Víðimýr- arkirkja í Skagafirði. Nú er starfandi fjögurra manna íslandsnefnd sem er skipuð fulltrú- um frá menntamálaráðuneyti og Island hefur verið aðili að samningnum frá 1996. Síð- an þá hefur verið unnið að því að íslensk- ir staðir kæmust inn á menning- arminjaskrána en enginn staður er þó kominn þang- að enn. BARRIÐ EKKI FYRIRSTAÐA Þingvellir er annar tveggja staða á islandi sem unnið er að, að komist á heimsminja- skrána. Hinn er Skaftafell í öræfum. m FYRIRTÆKJASALA ISLANDS SSlSASo .■YrilRTÆKI TIL SOLU SÝNISHORN ÚR SÖLUSKRÁ Gissur V. Kristjánsson hdl. og lögg. fasteigna- og fyrirtækjasali SÖLUSTJÓRI GUNNAR JÓN YNGVASON HUSGAGNAVERSLUN sérhæfð mjög þekkt verslun í vönduðum klassa húsgögn- um ásamt húsbúnaði, Besti tíminn fram- undan SPQRTBAR með veitingasölu í úthverfi , 15 ár sami eigandi, mikil traffik og góð af- koma ÖFLUGT ÞEKKT VERKTAKAFYRIRT í KJARNABQRUN STEYPUSÖGUN og fl ársvelta 90 millj næg verkefni framundan LÍTIL HEILDSALA á matvörumarkaði , hentug viðbót eða sem aukavinna verð 1,2m GULLSMÍÐASTQFA á Laugavegi BAKARÍ. brauð, kökur, kaffi, flott fyrirtæki með góða vinnuaðstöðu, mjög góð af- koma. VEITINGAST.VIDEOLEIGA.SJOPPA , við stóran framhaldsskóla í Hafnarfirði, allar innréttingar, tæki og búnaður nýr og mjög vandaður, 2 bílal, velta 80milj verð 19 milj HEILDSALA MEÐ BYSSUR QG FL mjög þekkt umboð, fín velta , besti timinn er núna SERHÆÐ VIDEQL TQPP AFKQMA eða ca 4 n 5 millj á ári, góður þægilegur rekstur BÓKA.RITFANGA OG DÓTAVERSLUN í miðbæ Garðabæjar, 30 ára fyrirtæki. FRAMLEIÐSLA Á FISKRÉTTUM öflugt vel búið fyrirtæki í góðum rekstri. HEF KAUPANDA AÐ GÓÐRI SÉR VERSLUN EÐA STÓRRI HEILDSÖLU GÓÐ SALA NÚNA VILT ÞÚ SELJA ? VANTAR FYRIRTÆKI SEM MÁ FLYTJA ÚT Á LAND STÓR OG SMÁ Atvinnuhúsnæði SMIÐSHÖFÐI 276 fm, hurð 3,75 m bjart gott húsnæði, laust mjög fljótlega. AKRALIND 500m í Smáralind 300 fm 120/180 bjart nýtt húsnæði með 2 innkh VANTAR 100 -200 fm HÚSEIGN MEÐ INNK.HURÐ TIL LEIGU EÐA SÖLU l NÁTTÚRUARFLEIÐ[ Náttúrufyrirbæri sem samanstanda af eðlisfræðilegum og lífrænum mynd- unum eða þyrpingum slíkra myndana sem hafa sérstakt alþjóðlegt gildi frá fagurfræðilegu eða vísindalegu sjónar- miði; Jarðfræðilegar eða eðlislandfræðilegar myndanir, og vel afmörkuð svæði sem eru heimkynni dýra- og plöntuteg- unda í útrýmingarhættu, sem hafa sérstakt alþjóðlegt gildi frá sjónarmiði vísinda eða náttúruverndar; Náttúruvætti eða vel afmörkuð svæði í náttúrunni sem hafa sérstakt alþjóð- legt gildi frá sjónarmiði vísinda, nátt- úruverndar eða náttúrufegurðar. Skilgreining á menningararfleifð i samningi um verndun menningar- og náttúruarfieifðar heimsins. umhverfisráðuneyti, forstjóra Náttúruverndar ríkisins og þjóð- minjaverði. Nefndin vinnur að því að undirbúa íslenskan tillögulista en þegar er ákveðið að sótt verði um að þjóðgarðurinn í Skaftafelli og Þingvellir fari inn á heimsminja- skrána. Gert er ráð fyrir allt að tveggja ára vinnu við að undirbúa það að Skaftafell og Þingvellir fari á .heimsminjaskrána. Meðal þess sem"þarf að gera til undirbúnings er að vinna kort yfir náttúrufar og menningarminjar á báðum svæðun- um, semja lýsingar af þeim og taka ljósmyndir. Alþjóðleg nefnd fer yfir umsóknir og var hluti nefndar- innar hér á ferðinni fyrir nokkrum árum. Helstu fyrirstöður eru taldar að sandarnir til sjávar frá Skafta- felli tilheyra ekki þjóðgarðinum og að Þingvallasvæðið sé varla talið nógu stórt. steinunn@frettabladid.is MENNINGARARFLEIÐ MINNISVARÐAR: Verk á sviði bygging- arlistar, höggmyndir og málverk, hvers kyns fornminjar, áletranir, hellahíbýli og samsetning þátta sem hafa sér- stakt alþjóðlegt gildi frá sögulegu, list- rænu eða vísindalegu sjónarmiði; PYRPINGflR BYGGINGA: Þyrpingar aðskilinna eða tengdra bygginga, sem vegna byggingarlistar, heildstæðs yfir- bragðs eða hvernig þær falla að landslagi, hafa sérstakt alþjóðlegt gildi frá sögulegu, listrænu eða vísindalegu sjónarmiði; STflÐIR: Mannvirki eða sameiginleg verk manna og náttúru, og svæði með fornum menjum sem hafa sérstakt al- þjóðlegt gildi frá sögulegu, fagurfræði- legu, þjóðfræðilegu eða mannfræði- legu sjónarmiði Skilgreining á menningararfleifð i samningi um verndun menningar- og náttúruarfleifðar heimsins. Árni Þór Sigurðsson: Ekki glatað fé þótt skipt hafi verið um skoðun FLUGVÖLLUR „Það var ekki búið að negla neitt niður varðandi flugvöllinn," segir Árni Þór Sigurðsson, for- maður skipulags-og bygg- inganefndar Reykjavíkui'- borgar. „Sett var fram um- ræðutillaga í vor sem gerði ráð fyrir því að eftir árið 2016 yrði einungis pláss fyrir eina flugbraut í Vatns- mýrinni og það yrði norður- suðurbrautin. Við höfum snúið þessu við í endanlegri tillögu og höldum rými fyr- ir austur-vestur brautina." Breytingarnar, segir Árni ÁRNIÞÓR SIGURÐSSON Ekki hefur verið sérstakt tilefni til að ræða við sam- gönguráðherra varðandi það að önnur flugbraut verði notuð. Þór, vera byggðar á athuga- semdum við fyrri tillög- unni, meðal annars frá íbú- um í Þingholtum og bæjar- yfirvöldum í Kópavogi. Ný- búið er að leggja fé í endur- nýjun norðui'-suðurbrautar- innar, sem gert er ráð fyrir, í tillögum skipulags-og bygginganefndar, að verði lögð niður. „Það eru ekki glataðir fjármunir, þótt búið sé að leggja fé í endur- bætur á norður-suðurbraut- inni, því flugvöllurinn verð- ur eins og hann er til ársins 2016,“ segir Árni Þór. FLUGVÖLLURINN Breytingar á því hvaða flugbraut skuli not- uð byggja á athugasemdum frá íbúum. Hann segir að brautin hefði ekki getað dugað þar til hún yrði aflögð þar sem að ástand hennar hafi verið orðið mjög slæmt. „Við höfum ekki rætt þetta sérstaklega við samgönguráðherra," segir Árni Þór. „Ekkert sérstakt tilefni er til þess, þar sem að eingöngu er verið að skipta um skoðun varð- andi hvaða braut verður áfram.“>

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.