Fréttablaðið - 15.10.2001, Síða 14

Fréttablaðið - 15.10.2001, Síða 14
1 Michael Owen Thierry Henry Liverpool Arsenal 13 9 Ruud van Nistelrooy Man Utd 9 Bellamy Newcastle 8 Jimmy Floyd Hasselbaink Chelsea 8 David Beckham Man Utd 7 Laurent Robert Newcastle 7 Nolberto Solano Newcastle 7 ]4 Epson deildin: Annar sigur Þórsara körfuknattleikur Um helgina fór fram önnur umferð Epson deild- arinnar í körfuknattleik. íslands- meistararnir úr Njarðvík unnu sinn annan sigur í röð þegar þeir lögðu Breiðablik með 101 stigi gegn 84. Þór Akureyri lagði Hauka að velli með 98 stigum gegn 85 fyrir norðan. Nýliðarnir í Stjörnunni í Garðabæ töpuðu fyr- ir Keflavík með 85 stigum gegn 93. Á Sauðárkróki tóku heima- menn í Tindastóli á móti Hamri frá Hveragerði og var um jafnan og spennandi leik að ræða. Heimamenn fóru með sigur af hólmi 88-86. FRETTABLAÐIÐ |R SIGUR ÍR vann sinn fyrsta sigur í Epson deildinni þegar liðið lagði Skallagrim að velli I Breið- holtinu í gær. ÍR lagði Skallagrím frá Borga- nesi að velli með 86 stigum gegn 69 og Grindvíkingar töpuðu öðr- um leik sínum í röð, nú fyrir KR 90-94. ■ 15. október 2001 MÁNUDAGUR Gerard Houllier: A batavegi eftir aðgerð knattspyrna Gerard Houllier, stjóri Liverpool, er á batavegi eft- ir hjartaaðgerð sem hann gekkst undir um helgina. Houllier féll niður á meðan leikur Liverpool og Leeds fór fram í ensku úrvals- deildinni á laugardaginn var. „Aðgerðin gekk mjög vel og Gerard er á batavegi," sagði með- al annars í tilkynningu frá Liver- pool. „Eins og venja er eftir slíkar aðgerðir verður fylgst með hon- um í ákveðinn tíma.“ Ekki er vitað hvenær eða hvort Houllier snýr aftur til starfa en Phil Thomasson, aðstoðarmaður hans, mun stjórna liðinu þegar GERARD houllier Franski stjóri Liverpool hefur náð ótrúlega góðum árangri með liðið og kom því með- al annars í Wleistaradeildina. það mætir Dynamo Kiev í Meist- aradeild Evrópu á morgun. ■ ÍDróttir áSýn 15.-21. október mán- Heklusport fim kl. 22.30 mán Tottenham - Derby Enski boltinn kl. 18.50 Þri Arsenal - Panathinaikos Meistarakeppnin kl. 18.35 Dynamo Kylv - Liverpool Melstarakeppnin kl. 20.40 mið Man Utd. - Deportivo Melstarakeppnin kl. 18.40 Bayem M. - Spartak Moskva Meislarakeppnin kl. 20.40 fim Leeds - Troyes Evrðpukeppni félagsliða kl. 18.45 ig fös, fau Spænski boltinn kl. 19.25 ..... - 23.45 ítalsld hoitinn sun Leeds Chelsea Enski boltinn www.syn.is eða I slma 515 6100 Tyson er kominn á kreik á ný Mike Tyson sigradi Brian Nielsen á laugardaginn var. Bardaginn var flautaður af í sjöundu lotu Tyson segist ætla að ná heimsmeistaratitlinum þótt hann sé svolítið ryðgaður. HÖGGÞUNGUR Brian Nielsen fékk að kynnast höggþunga Mike Tyson á laugardaglnn þegar þeir áttust við í Kaupmannahöfn. Hér ýtir dómari leiksins Tyson út í horn eftir að hann var búinn að slá Nielsen niður I þriðju lotu. hnefaleikar Mike Tyson sigraði hinn danska Brian Nielsen, á tæknilegu rothöggi í sjöundu lotu í hörkuviðureign í Kaupmannahöfn á laugardaginn var. Tyson segist þurfa að liðka sig aðeins til en þetta var fyrsti bardagi hans í heilt ár, frá því hann lagði Andrew Golota í Las Vegas í október á síð- asta ári. Tyson olli nokkrum vonbrigðum í bardaganum, þótt hann hefði sigr- að í öllum lotunum. Þetta var lengsti bardagi sem hann hefur þreytt í fimm ár en hann hefur aldrei verið þyngri, rúm 108 kíló. Hann byrjaði bardagann af miklum krafti og blóðgaði Danann strax í annarri lotu og sló hann niður í þeirri þriðju. Nielsen neitaði hins- vegar að gefast upp og kom Tyson á óvart með þrautseigju. í sjöundu lotu þurfti Daninn hinsvegar að játa sig sigraðann þegar dómarinn blés bardagann af þar sem vinstra augað á honum var orðið svo bólgið að hann var hættur að sjá. „Ég prófaði hann en hann sá ekkert," sagði Steve Smoger, dóm- ari, sem i kjölfarið ræddi því við Mike Hall, þjálfara Nielsen og ákvað að hætta bardaganum. „Ég vildi heyra Nielsen segja það og spurði hvort hann væri bú- inn að gera sér grein fyrir ósigrin- um. Hann svaraði því játandi.“ Þetta er í annað sinn sem Niel- sen er sleginn niður en hann hefur aldrei verið rotaður. „Augað á mér sökk bara dýpra og ég var hættur að sjá þegar síð- ustu höggin komu,“ sagði Nielsen eftir bardagann. „Ég gerði mitt besta en varð fyrir miklum vonbrigðum. Ég vona að fólk fari nú að sýna mér virð- ingu því ég er alvöru hnefaleika- kappi." Tyson segir að Nielsen hafi komið sér á óvart. „Hann átti nokkur góð högg og gerði þetta að alvöru bardaga," sagði Tyson. „Ég var svolítið ryðgaður en ég vissi ekki að hann væri svo góður. Þetta var ekki auðvelt kvöld og ég reyndi að kýla hann í allan skrokk- inn.“ Þótt Tyson hafi ekki staðið und- ir þeim væntingum sem gerðar voru til hans hefur hann einsett sér að ná aftur heimsmeistaratitl- inum í þungavigt. Hann er efstur á heimslistanum og geri sér vonir um að mæta sigurvegaranum úr bardaga Hasim Rahman og Lennox Lewis, sem fer fram þann 17. nóvember. „Ég mun berjast við hvern sem er en ég þarf tvo alvöru bardaga áður en ég fer að keppa um titil. Tveir bardagar í viðbót og ég er tilbúinn," sagði heimsmeistarinn fyrrverandi kokhraustur. ■ LokahófKSI: Gunnlaugur og Olga best knattspyrna Gunn- laugur Jónsson úr ÍA og Olga Færseth úr KR voru kosin bestu leikmenn Símadeildar karla og kvenna árið 2001 á lokahófi Knatt- spyrnusambands íslands á föstudag- inn. Skagamenn unnu öll verðlaunin í karlaflokki, en auk verðlauna Gunn- laugs var Grétar Rafn Steinsson val- ÞAU BESTU OG EFNILEGUST Gunnlaugur Jónsson og Olga Færseth voru valin bestu leik- menn Símadeildarinnar. Dóra Stefánsdóttir og Grétar Rafn Steinsson voru valin þau efnilegustu. inn efnilegasti leikmaðurinn og Hjörtur Hjartason var marka- hæstur og fékk fyrir vikið gull- skóinn. Dóra Stefánsdóttir úr Val var valin efnilegasti leikmaðurinn í Símadeild kvenna en Olga Fær- seth varð markahæst. Kristinn Jakobsson var valinn besti dómarinn. Ólafur Þórðarson þjálfari ís- landsmeistara Skagamanna var valinn þjálfari ársins í vali íþróttafréttamanna en þeir völdu einnig úrvalslið Síma- deildar karla. ■ EMU-19: Góður árangur hjá strákunum knattspyrna íslenska karlalands- liðið skipað leikmönnum 19 ára og yngri sigraði Úkraínu með einu marki gegn engu í undankeppni Evrópumótsins. Hannes Þ. Sig- urðsson, leikmaður FH, skoraði eina mark leiksins. Tékkar sigr- uðu Andorra 12-0 og tryggðu sér þar með sigur í riðlinum með hag- stæðara markahlutfall en íslend- ingar. Þetta er aldeilis góður ár- angur hjá íslenska liðinu og óhætt að segja að framtíðin sé björt. ■ LOKASTADAN í RIDLINUM Lið Leikir U J T Mörk Stig Tékkland 3 2 1 0 17 : 3 7 Island 3 2 1 0 10 : 2 7 Úkraína 3 1 0 2 4:4 3 Andorra 3 0 0 3 0 : 22 0

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.