Fréttablaðið - 15.10.2001, Side 22

Fréttablaðið - 15.10.2001, Side 22
1 HRAÐSOÐIÐ 22 FRÉTTABLAÐIÐ 15. október 2001 MÁNUDACUR GUÐJÓN ARNGRÍMSSON upplýsingafulltrúi Flugleiða Handtekin vegna sprengju- hótunar HVAÐ gerðist um borð í Flugleiðavél- inni sem var að fara til Minneapolis á föstu- dag? Þrír farþeganna sem voru ölvaðir voru með einhver leiðindi og létu ummæli falla. Mat flugstjóri vélar- innar aðstæður þannig að honum þótti ástæða til að kalla til aðstoðar bandarískra yfirvalda. Þetta voru tveir karlar og kona. HVAÐA ummæii voru þetta? Þetta voru ummæli um sprengjuhót- un um borð í vélinni. HVAÐ gerðist þegar vélin lenti? Bandarísk yfirvöld tóku á móti far- þegunum í Minneapolis. Voru þeir færðir til yfirheyrslu og tók hún nokkra klukkutíma. Að yfirheyrslum loknum var farþegunum sleppt. HAFA verið gefna út einhverjar kærur? Það hafa engar kærur verið gefnar út og málið verður því látið falla nið- ur. MUNU Flugleiðamenn gera eitthv frekar í málinu? Nei. Flugleiðir munu ekki kæra ER einhver titringur meðal islenskra flug- stjóra i kjölfar hryðjuverkanna? Nei, þeir eru nokkuð rólegir í tíð- inni. Þrátt fyrir það er litið á um- mæli um sprengjuhótanir alvarleg- um augum. ER ölvun farþega almennt vandamál um borð i islenskum vélum? Nei, það tel ég ekki heldur hefur þróunin orðið sú að hún hefur farið minnkandi síðustu ár. Cuðjón Arngrímsson er fyrrum blaðamaður og hefur undanfarin ár verið upplýsingarfulltrúi Flugleiða. Frakkland: Sjakalinn giftist lögfrædingnum sínum parís. ap. Isabelle Coutant-Peyre, lögfræðingur Sjakalans svokallaða, staðfesti á föstudag að þau tvö hygðust ganga í hjónaband við fyrs- ta tækifæri, það er að segja um leið og þau væru búin að ganga frá skilnaði við núverandi maka. „Þetta verður hjónaband byggt á ást og virðingu," sagði Coutant-Peyre þeg- ar hún tilkynnti um áform þeirra. Carlos sjakali, heitir réttu nafni Ilich Ramirez Sanchez. Hann er frá Venesúela en situr í fangelsi í Frakklandi fyrir morð sem hann framdi þar á áttunda áratugnum. Hann var um árabil eftirlýstur af yfirvöldum um allan heim fyrir þátt sinn í fjölmörgum ódæðisverk- CARLOS SJAKALI OG COUTANT-PEYRE Hjónaleysin í réttarsalnum í fyrra. um. Hann var handtekinn í Súdan dóm. árið 1994 og framseldur til Frakk- „Það er óramunur á þeirri lands þar sem hann hlaut lífstíðar- ímynd sem fólk hefur af honum og honum í raunveruleikanum," sagði Coutant-Peyre á föstudag. Ramirez Sanchez snerist til ís- lamstrúar þegar hann átti heima í Súdan og kvæntist múslimskri konu. Á níunda áratugnum kvænt- ist hann Magdalenu Kopp, þýskri konu sem tengdist þýskum hryðju- verkasamtökum. Líklegt er talið að giftingin muni eiga sér stað í La Sante fangelsinu þar sem Sanchez er í haldi. Coutant- Peyre sagðist telja að athöfnin myndi eiga sér stað í síðasta lagi í byrjun næsta árs. Hún vildi ekki gefa upp hvernig athöfnin færi fram en sagði bara að hún yrði óhefðbundin. ■ FRÉTTIR AF FÓLKI Aferðamálaráðstefnu Ferða- málaráðs íslands sem haldin verður seinni hluta vikunnar verður meðal annars fjallað um hvaða áhrif árás hryðjuverka- manna á Bandaríkin mun hafa á íslenskan ferðamannaiðnað. Svör- in við þeirri spurningu eru ef- laust margþætt en meðlimir í net- klúbbi Flugleiða fengu eitt þeirra sent í tölvupósti á dögunum. í póstinum sem bar heitið Banda- ríkin á betra verði var félögum boðin fargjöld til Bandaríkjanna á afar hagstæðu verði og hafa margir velt fyrir sér hvort að skýring þessa sé ekki sú hversu mikið hefur dregið úr ferðalögum Bandaríkjamanna. Opnun Smáralindar verður Sig- urði Péturssyni, Kremlverja, efni til vangaveltna í nýjum pistli á síðu Kremlverja. Ekki það að Sigurður hafi brugðið undir sig betri fætinum og farið í Smáralind- ina heldur ber hann saman það sem honum stend- ur til boða í sínum heimabæ, ísafirði, og fær þá niður- stöðu að hann sé ekki að missa af neinu. Sigurður flutti ásamt konu sinni, Ólínu Þorvarðardóttur, til ísafjarðar síðastliðið sumar en hún tók eins og kunnugt er við stöðu rektors Menntaskólans á ísafirði. Ef marka má pistil Sig- urðar láta þau hjónin engan menningaratburð á ísafirði fram- hjá sér fara og eru þau mjög ánægð með framboðið. Bók Pálma Jónassonar, frétta- manns á fréttastofu Utvarps, íslenskir auðmenn, á eflaust eftir að gleðja margan forvitin náung- an. Að því er frá greinir er mark- mið bókarinnar að varpa ljósi hverjir séu efnuðustu menn þjóð- arinnar og hvernig þeir hafi kom- ist til auðs og valda. Pálmi kemst að þeirri niðurstöðu að íslenskir milljarðamæringar séu rúmlega 50 talsins. Pálmi segir að verðmat á eignum milljarðamæringa hafi verið gert með aðstoð sérfræð- inga, sem „eðli málsins sam- kvæmt“ vilji ekki láta nafngreina sig. Nokkrir milljarðamæringanna eru íslendingar sem hafa „meikað það“ í útlöndum. Þar á meðal er Björk Guðmundsdóttir. Pálmi segir þó engan vita hver- su efnuð hún sé, en flestir séu sammála um að auðæfi hennar séu langt yfir milljarðinum. Annar íslending- ur í útlandinu er Ólafur Jóharm Ólafsson, hann hefur „auðgast vel“ segir Pálmi sem segir ljóst að auðæfi hans séu sömuleiðis langt yfir millj- arðinum fræga. Meðal íslendinga Sem hafa hagnast í útlöndum og eru ekki eins þekkt og Björk og Ólaf- ur er Sonja Wendel Benjamins- Sjúkraliðar víðar en í heilbrigðisþjónustu Kristín Á. Guðmundsdóttir, Formaður Sjúkraliðafélags íslands, hefur unnið að félagsmálum sjúkrjaliða um langa hríð. Kristín útskrifaðist sem sjúkraliði árið 1982 og starfaði um 15 ára skeið á skurðdeild Landspítala. I dag hófst önnur þriggja daga verkfallslota sjúkraliða. VERKFALL SJÚKRALIÐA „Starfið er fyrst og fremst fólgið í að hjúkra fólki, meðal annars á skurðdeild- um og lyf- og handlækninga- deildum. Þar eru störf sjúkraliða fólgin í að sinna þeim sjúku. Störfin eru mjög nátengd þeirri klínísku hjúkrun sem fram fer á deildinni og í rauninni er starf- vettvangur sjúkraliða fyrst og fremst við rúm sjúklinganna," segir Kristín Á. Guðmundsdóttir, formaður Sjúkraliðafélags ís- lands, spurð í hverju starfið felist. Fyrstu sjúkraliðarnir á ís- landi voru útskrifaðir á Akur- eyri í maí árið 1966. Fagfélag sjúkraliða var stofnað 21. nóv- ember sama ár. Kristín segir margt hafa breyst á þeim tíma og störf sjúkraliða hafi verið að dreifast víðar en innan heil- brigðisþjónustunnar. Meðal ann- ars hafi þeir tekið að sér störf innan félagsþjónustu. Sjúkra- liðanám á Islandi er sjö anna nám í fjölbrautakerfinu. Sá sem lært hefur sjúkraliðun þarf að fá leyfi heilbrigðisráðuneytisins til að starfa innan heilbrigðiskerf- isins. Hann fær til þess leyfis- bréf sem hann kaupir líkt og hjúkrunarfræðingar, læknar og aðrir sem hafa löggildingu ráðu- neytisins. Kjarnaskóli heilbrigð- isgreina er Ármúlaskólinn en sjúkraliðar eiga kost á því að taka viðbótarnámskeið til að við- halda menntun sinni. „Vel flestir sjúkraliðar eru komnir með í kringum 200 kennslustundir í námskeiðum. Þá eru mjög margir búnir að fara í hálfs árs viðbótarnám. Og nokkrir hafa tekið það á fleiri en FORMAÐUR FRÁ UPPHAFI Kristín Á. Guðmundsdóttir, formaður Sjúkraliðafélags íslands, hefur gegnt formennsku frá stofnun félagsins árið 1992. einu sviði,“ segir Kristín. Hún segir að til standi að bjóða upp á 1 árs viðbótarnám fyrir sjúkra- liða í tengslum við öldrunar- hjúkrun. Flest námskeiðin, sem í boði eru, eru innan fjölbrauta- kerfisiris en einnig í Endur- menntunarstofnun Háskóla ís- lands. Kristín er útskrifaðist sem sjúkraliði árið 1982. Hún starf- aði fyrst um sinn á lungnadeild á Landspítalanum og fór þaðan á skurðdeild þar sem hún starfaði næstu 15 árin. Kristín þekkir vel til verkfallsmála en hún hefur verið formaður Sjúkraliðafé- lagsins frá stofnun þess árið 1992. Þar á undan var hún vara- formaður fagfélags sjúkraliða 1984 - ‘86 og formaður frá ‘86. Að sögn Kristínar er þetta ekki fyrsta skiptið sem félagsmenn leggja niður vinnu í skamman tíma. Árið 1992 lögðu þeir niður vinnu í 2 sólarhringa eftir að hafa verið samningslausir í 15 mánuði. Það nægði þeim til að knýja á um kjarasamning. kristjang@frettabladid.is son. Sonja, sem fædd er 1916, giftist Argentínumanningum Vitt- oriano Alberto Zorilla, sem var sterkefnaður. Ilún sá hins vegar um að margfalda auðinn með út- sjónarsömum verðbréfaviðskipt- um. Að sögn Pálma bjuggu þau í New York og umgengust þotulið- ið. Sonja mun vera skráð til heim- ilis á Seltjarnarnesi í dag. * Avefsíðu Frétta í Vestmanna- eyjum var gerð skoðanakönn- un meðal bæjarbúa hvort rétt hafi verið hjá bæjaryfirvöldum að taka á móti íslandsflugi en ekki flugfélaginu Jórvík með blómvendi. Af þeim 183 bæjarbú- um sem tóku afstöðu kom í ljós að yfirgnæfandi meirihluti fannst það ekki rétt eða 81,42%. Fengu bæjaryfirvöld því greinilega skömm í hattinn með því að hafa gert upp á milli flugfélaga með þessu móti.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.