Fréttablaðið - 30.11.2001, Qupperneq 1
TÓNLEIKAR
Guru
í Reykjavík
bls 18
S M Á R I N N
Fasteignasala
SÍMI 564 6655
ÍÞRÓTTIR
Trezeguet
til Liverpool
bls 14
FRETTABLAÐIÐ
156. tölublað - 1. árgangur Þverholti 9, 105 Reykjavík — sími 515 7500 Föstudagurinn 30. nóvember 2001
FÖSTUDAGiUIR
Kosið um tilraun
lanpbúnaður í dag er von á niður-
stöðu í NRF-kosningu Bændasam-
takanna. Fram hefur komið að góð
þátttaka hafi verið í kosningunni
meðal bænda en atkvæði hafa verið
að skila sér i pósti undanfarna
daga. Sendir kjörseðlar voru 1.639.
Kosið var um hvort samtök bænda
eigi að standa að tilraunum með
innflutningi fósturvísa NRF-kúa-
kynsins frá Noregi.
Jarðgöngin lenda í
niðurskurðinum
Áhættustjórnun í
litlu opnu hagkerfi
fyrirlestur í dag fer fram ráðstefna
Viðskipta- og hagfræðideildar Há-
skólans í samvinnu við Hagfræði-
stofnun H.í. undir yfirskriftinni:
Áhættustjórnun í litlu en opnu hag-
kerfi. Ráðstefnan er öllum opin og
haldin í Þingsal A, Radisson SAS,
Hótel Sögu í Reykjavík, milli
klukkan eitt og fimm, í tilefni 60
ára afmælis kennslu í viðskipta-
fræði og hagfræði í Háskóla fs-
lands. Dagskrá og nánari upplýs-
ingar má finna á heimasíðu Hag-
fræðistofnunar: www.ioes.hi.is.
VEÐRIÐ í DAC|
REYKJAVÍK Suðvestan
5-10 m/s og él.
Vægt frost
VINDUR ÚRKOMA HITI
ísafjörður O 5-8 Él O'
Akureyri O 5-8 Bjart O5
Egilsstaðir O 5-8 Léttskýjað 08
Vestmannaeyjar Q 5-10 Él O2
Úrslit
kosningarimmu
sjávarútvecur Þingi Farmanna- og
fiskimannasambandsins lýkur í dag
og verður kosið bæði í stjórn og til
forseta. Tveir menn eru í kjöri til
forseta, þeir Grétar Mar Jónsson,
sitjandi forseti sambandsins og
Árni Bjarnason, skipstjóri á Akur-
eyri. Heimildir blaðsins herma að
búist sé við harðri kosningu á milli
þeirra. Grétar Mar gegndi áður
formennsku í Vísi, félagi skip-
stjórnarmanna á Suðurnesjum en
Árni er formaður Skipstjóra- og
stýrimannafélags Norðlendinga.
1KVÖLPIO í KVÖLD
Tónlist 18 Bíó 16
Leikhús 18 íþróttir 14
Myndlist 18 Sjónvarp 20
Skemmtanir 18 Útvarp 21
MEÐALLESTUR FOLKS A ALDRINUM 25 TIL 80 ARA A
HÖFUÐBORGARSVÆÐINU SAMKVÆMT
FJÖLMIÐLAKÖNNUN GALLUP I OKTÓBER 2001.
Niðurskurðartillögur ríkisstjórnarinnar ganga m.a. út á að draga úr samgönguframkvæmdum á
höfuðborgarsvæðinu. Ekki verður byrjað á byggingum ráðuneyta.Tillögur formlega kynntar
stjórnarliðum í dag.
fjárlög Formaður og varaformað-
ur fjárlaganefndar Alþingis hafa
átt marga fundi með embættis-
mönnum um hvað beri að skera
niður af fyrirhuguðum fram-
kvæmdum vegna samdráttar í
tekjum ríkisins. Ákveðið hefur
verið að skera gjöldin niður um
rúma þrjá milljarða króna. Þegar
hefur spurst út að áður samþykkt
fæðingarorlof feðra verður skor-
ið niður, orlofsréttur þeirra verð-
ur mánuður en ekki tveir eins og
núverandi lög segja til um. Með
því sparast um 700 milljónir
króna.
Annað sem hefur verið ákveðið
að skera niður eru jarðgöng, bæði
fyrirhuguð göng milli Fáskrúðs-
fjarðar og Reyðarfjarðar og
göngin milli Olafsfjarðar og
Siglufjarðar. Á vegaáætlun er
ætlað að verja um einum og hálf-
um milljarði í jarðgangnagerð -
en þeim verður frestað, að mestu
eða alveg.
Þá hefur Fréttablaðið heimildir
fyrir því að margar framkvæmdir
í samgöngumannvirkjum verði
blásnar af - alla vega að sinni. Þá
mun fyrst og fremst vera horft til
framkvæmda á höfuðborgarsvæð-
inu. Útlit er fyrir að hætt verði við
að ráðast í ný gatnamót á mótum
Stekkjarbakka og Reykjanes-
brautar. Til þess verks stóð til að
verja 330 milljónum. Eins er útlit
fyrir að hætt verði við færslu
Hringbrautar, en til þeirrar fram-
kvæmdar átti að verja um 300
milljónum. Á vegaáætlun er gert
ráð fyrir um 1.200 milljónum
króna til nýrra vegaframkvæmda
á höfuðborgarsvæðinu og hefur
blaðið heimildir fyrir því að þær
verði verst fyrir niðurskurðinum.
Allt bendir til að þingmönnum
stjórnarflokkanna verði gerð í
dag grein fyrir hvaða ákvarðanir
um niðurskurð verða teknar. Ekki
er enn vitað hvenær stjórnarand-
stæðingar fá að vita hvað stendur
til.
Þá er búið að ákveða að hætta
við áður ákveðnar byggingar
ráðuneyta í Reykjavík. Til hefur
staðið að byggja yfir umhverfis-
ráðuneyti og heilbrigðisráðuneyti
á svokölluðum stjórnarráðsreit,
það er á svæðinu neðan við Lind-
argötu í næsta nágrenni Arnar-
hvols. Áætlað var að verja 250
milljónum til þess verkefnis.
sme@frettabladid.is
KUNNINGI í GLUGGANUM Sú var tíðin að það þótti viðburður í borgarlífinu þegar Rammagerðin í Hafnarstræti stillti út jólaskrauti í
gluggann . Enn sem fyrr er skrautið alltaf komið út f glugga 1. nóvember þótt það sé liðin tíð að reykvískar fjölskyldur fari í bíltúr til að
skoða herlegheitin. Upprunalegi sveinninn er nú kominn á eftirlaun en arftaki hans fær sjálfsagt marga gesti nú þegar ákveðið hefur ver-
ið að opna Hafnarstrætið á ný fyrir bilaumferð.
Sprengjuregn í Kandahar en Muhammed Omar er herskár og hvetur talibana:
„Berjist fram í rauðan dauðann“
kabÚl, ap. Sprengjum rigndi á síð-
asta vígi talibana, Kandahar, í gær.
Að sögn eins leiðtoga Norður-
bandalagsins, Bismillah Khan voru
þeir komnir inn í borgina. Þær
fregnir fengust ekki staðfestar frá
Bandaríkjamönnum. Bismillah
Khan sagði AP-fréttastofunni að
hann hefði fregnir af bardögunum
frá sínum mönnum á víglínunni.
Talsmaður Pentagon í Washington,
John Stufflebeem, vildi ekki stað-
festa fregnirnar en hann sagði vel
geta verið að hermenn Norður-
bandalagsins væru komnir til
Kandahar. Blaðamönnum hefur
ekki verið hleypt til Kandahar enn.
Þrýstingur hefur síaukist á tali-
bana í vikunni en fregnir hermdu í
gær að áeggjan Mullahs Mo-
hammeds Omars, leiðtoga tali-
bana, til manna sinna hefði verið
útvarpað. Omar mun hafa sagt
mönnum sínum að „berjast fram í
rauðan dauðann."
Kandahar, er 450 km suðvestur
af höfuðborginni Kabúl. Þar eru
höfuðstöðvar talibana. íbúar borg-
arinnar sem flýðu til pakistönsku
landamæranna sögðu að sprengj-
um hefði verið varpað á borgina
stanlaust í fyrrinótt. Þeir gátu eng-
ar upplýsingar gefið um tölu lát-
inna. Einn íbúi Kandahar sem hafði
flúið sagði augljóst að talibanar
ætluðu að verja borgina. ■
Sjö látnir:
Ofbeldisalda
í Israel
RAMALLAH. ap Sjö manns létust í
Israel og á Vesturbakkanum í
gær. Fjórir létust í sjálfsmorðs-
árás í norðurhluta ísrael, tveir
Palestínumen í skothríð ísrael-
skra hermanna á bíl á Vestur-
bakknum, einn ísraeli lést í skot-
hríð annars staðar á Vesturbakk-
anum.
Þessi nýjasta alda ofbeldis reið
yfir landið sama dag og Anthony
Zinni, erindreki Bandaríkja-
stjórnar, hóf viðræður við Palest-
ínumenn.
Takmark ferðar Zinnis er að
hafa milligöngu um upphaf friðar-
viðræðna ísraela og Palestínu-
manna.
Sjónarvottur að sjálfsmorðs-
árásinni, Emanuel Biton, sagði að
líkamspartar hefðu þeyst út um
allt við sprenginguna. Enginn
hafði lýst yfir ábyrgð á tilræðinu
á hendur sér í gær. I flóttamanna-
búðum á Vesturbakkanum söfnuð-
ust 3.000 manns saman og fögn-
uðu sjálfsmorðsárásinni. ■
1 ÞETTA HELST |
Norðurbandalagið í Afganistan
leggst ekki gegn því að al-
þjóðlegt herlið gæti friðar í land-
inu. bls.10.
—♦—
Hæstiréttur hefur dæmt að
ákæruvaldið sé ekki bóta-
skylt gagnvart brotaþola vegna
þess að mistök leiddu til þess að
grunaður nauðgari komst úr
landi. bls. 2.
—♦—
Tveir starfsmenn Hringrásar
voru fluttir á sjúkrahús eftir
að eldur kom upp á svæði fyrir-
tækisins í gær. bls. 2.