Fréttablaðið - 30.11.2001, Blaðsíða 6
SPURNING DAGSINS
FRÉTTABLAÐIÐ
Ætlar þú að sjá kvikmyndina
um Harry Potter?
„Ég fer án efa á hana með dóttur minni.
Hún er búin að lesa allar bækurnar og ég
býst við því að gera það líka."
Ingibjörg Hafsteinsdóttir
BLIKKANDI PUNKTAR
Þetta er eitt af nýu tækjunum. Það sýnir
strax hvar á líkamanum málmhlutir
leynast þegar fólk gengur í gegnum
málmleitarhlið.
Óttinn við hryðjuverk
í háloftunum:
Tækjafram-
leiðendur
taka við sér
atlantic city. ap Eftir hryðjuverkin
í Bandaríkjunum 11. september
hefur athygli manna beinst mikið
að öryggi í flugferðum. Hátækni-
fyrirtæki hafa heldur betur tekið
við sér og keppast við að setja á
markaðinn alls konar ný tæki,
sem eiga að tryggja betur öryggið
í háloftunum.
Eitt slíkt tæki getur skotið ör-
bylgjum í gegnum vínflösku um
borð í flugvélum, svona rétt til
þess að ganga úr skugga um að í
flöskunni sé raunverulega vín, en
ekki til dæmis nítróglyserín eða
bensín.
Annað tæki tekur stafrænar
ljósmyndir af fólki sem gengur í
gegnum málmleitarhlið á flug-
völlum. Blikkandi punktar sjást á
myndinni þar sem málmhluti er
að finna á líkama fólks.
Þriðja tækið ber saman
munstrið í augnasteinum fólks, og
er þá aðeins fátt eitt talið af slík-
um öryggistækjum sem voru til
sýnis alþjóðlegri ráðstefnu um ör-
yggisbúnað fyrir flugþjónustuna,
sem haldin var í Atlantic City í
Bandaríkjunum nú í vikunni. ■
Tveir menn handteknir á Ítalíu:
Grunaðir um tengsl við al-Qaeda
iviilan.ítalíu.ap ítalska lögreglan
réðst í gær inn í þónokkur bæna-
hús múhameðstrúarmanna í
norðurhluta landsins og handtók
tvo menn sem sakaðir eru um að
hafa verið í tengslum við al-Qa-
eda, hryðjuverkasamtök Osama
bin Laden. Mennirnir sem eru
frá Marokkó og Túnis, voru
teknir höndum á heimili skammt
frá menningasetri múslima í
borginni, þar sem þeir störfuðu.
Hafa þeir verið ákærðir fyrir að
hafa undir höndum sprengiefni,
eiturefni og fölsk skilríki.
Að sögn lögreglunnar hafði
annar maður að auki, Remadna
að nafni, sem er alsírskur og var
handtekinn af lögreglunni fyrr í
þessum mánuði, haft samband
við háttsetta samstarfsaðila bin
Laden í Afganistan í gegnum
gervihnattarsíma. Þar ræddi
hann um að senda þeim menn til
herbúða al-Qaeda í Afganistan.
ítalskir rannsóknarlögreglu-
menn höfðu fylgst náið með
bænahúsunum um nokkurra
mánaða skeið í samvinnu við
Bandaríkjamenn. Remadna
starfaði einnig við menningar-
setrið í Milan og segja Banda-
rískir ráðamenn að setrið ásamt
moskum í borginni hafi verið
notað undir starfsemi bin Laden
í Evópu. ■
HANDTEKINN
Yassine Chekkouri frá Marokkó er annar
mannanna sem handtekinn var í gær.
Hann er talinn hafa verið í nánum tengsl-
um við al-Qaeda hryðjverkasamtökin.
Óvissa hjá starfsfólki
j arðvinnu verktaka
Jarðvinnuverktakar verða að fækka fólki um þriðjung á næstunni.
Þau fáu verkefni sem til eru unnin langt undir kostnaðaráætlun.
samdráttur Talið er að jarð-
vinnuverktakar verði að fækka
starfsfólki sínu að meðaltali um
þriðjung á næstunni. Það gæti
haft í för með sér að hundruð
starfsmanna muni missa atvinn-
una á næstu vikum. í nýlegri
könnun meðal iðnfyrirtækja um
ástand og horfur kom í ljós að í
einstökum iðngreinum sé
ástandið hvergi verra en hjá
jarðvinnuverktökum. Þetta kem-
ur fram á heimasíðu Samtaka
iðnaðarins í grein sem Árni Jó-
hannsson skrifar.
Þar kemur
fram að í haust
hafi samdráttur-
inn í verkefnum
verið harkalegri
og víðtækari en
oft áður. Nær
ekkert sé boðið út
af nýjum verk-
efnum. Þá séu þau
fáu verk sem boð-
in eru út unnin
fyrir verð sem sé
Af hálfu jarð-
vinnuverktaka
er staðhæft
að síðasta
góðæri hafi
hvorki fært
þeim hærri
verð eða betri
afkomu held-
ur aðeins
meiri kostnað
..^.... langt undir kostn-
aðaráætlun eða á
hálfvirði. Af ein-
stökum landssvæðum sé ástand-
ið sýnu verst á suðvesturhorni
landsins eftir mikið þenslutíma-
bil. Af hálfu jarðvinnuverktaka
er staðhæft að síðasta góðæri
hafi hvorki fært þeim hærra
verð eða betri afkomu heldur að-
eins meiri kostnað. Fyrir vikið
hafi fyrirtækin ekki geta styrkt
eiginfjárstöðu sína og því sé tap-
þol þeirra lítið. Þá bætir það
ekki úr skák að stjórnvöld áfor-
mi að skera niður framlög til
JARÐVEGSVINNA
Svo virðíst sem harður vetur sé framundan hjá þeim, sem hafa atvinnu af jarðvegsfram-
kvæmdum
vegamála. Gangi það eftir er
talið að sá niðurskurður geti
jafngilt veltu 7 - 8 stærri jarð-
vinnufyrirtækja með samtals
um 300 ársverk. Eina ljósið sem
þessi fyrirtæki sjá er að ráðist
verði í stóriðjuframkvæmdir
með tilheyrandi virkjunarfram-
kvæmdum.
grh@frettabladid.is
Nýtt á ísiandi
Fyrsta sendingin af
OPTIMUM
vélunum er komin
OPTIMUM borvélar
OPTIMUM rennibekkir
OPTIMUM bandsagir
OPTIMUM borfræsivélar
og fylgihlutir
Gæðavörur sem létta mönnum lífið!
OPTIMUM, stærsta
vélasala Evrópu á þessu
sviði, valdi Fossberg sem
umboðsaðila sinn á
(slandi.
©FOSSBERfi
stórmarkaður iðnaðarman
■ iðnaðarmannsins
Suðurlandsbraut 14 - Sími 5757600
Baráttan gegn hryðjuverkamönnum:
Mannréttindasam-
tök hafa áhyggjur
london. genf. ap í gær sendu yfir-
menn þriggja alþjóðlegra mann-
réttindastofnana frá sér yfirlýs-
ingu þar sem stjórnvöld ríkja
heims voru hvött til þess að láta
ekki herta löggjöf gegn hryðju-
verkum brjóta á almennum mann-
réttindum.
„Tilgangur aðgerða gegn
hryðjuverkum er að vernda
mannréttindi og lýðræði, en ekki
að grafa undan þessum grundvall-
arverðmætum samfélaga okkar,“
sagði í yfirlýsingunni, sem þau
Mary Robinson mannréttindafull-
trúi Sameinuðu þjóðanna, Walter
Schwimmer, framkvæmdastjóri
Evrópuráðsins og Gerard Stoud-
mann, yfirmaður mannréttinda-
mála Öryggis- og samvinnustofn-
unar Evrópu, undirrituðu.
Alþjóðlegu mannréttindasam-
tökin Amnesty International hvöt-
tu jafnframt í gær stjórnvöld á
Spáni til þess að framselja ekki til
Bandaríkjanna fanga, sem grun-
aðir eru um að hafa starfað með
A1 Kaída, samtökum Osama bin
Ladens, nema tryggt sé að þeir
eigi hvorki yfir höfði sér dauða-
refsingu í Bandaríkjunum né
heldur að mál þeirra fari fyrir
herdómstól þar í landi.
Jose Maria Aznar, forsætisráð-
herra Spánar, hafði áður sagt að
ekki kæmi til greina að framselja
fangana nema að uppfylltum
þessum skilyrðum, en í ræðu sem
hann hélt í gær virtist hann draga
heldur í land með það.
30. nóvember 2001 FÖSTUDAGUR
Ástralskur togari:
Leikjatölva
varð háseta
aðbana
brisbane. ap Richard Wells, 19 ára
háseti á áströlskum togara, sat við
borð úr málmi í káetu togarans og
var að leika sér að leikjatölvu þeg-
ar brotsjór reið skyndilega yfir.
Leikjatölvan var tengd rafmagni
og þegar káetan fylltist af sjó
varð Wells fyrir raflosti með þeim
afleiðingum að hann lét þar lífið.
Þrír aðrir í áhöfn togarans urðu
einnig fyrir raflosti og minni hátt-
ar bruna þegar þeir reyndu að
bjarga Wells. ■
Rannsóknarnefnd
flugslysa:
Verklags-
reglur verði
yfirfarnar
flugöryggi Rannsóknarnefnd
flugslysa telur ástæðu til að Veð-
urstofan yfirfari vandlega reglur
sem veðurfræðingar styðjast við
þegar þeir gefa út tilkynningar
um hættulegt veður. Þetta er með-
al þeirra tillagna sem nefndin ger-
ir eftir rannsókn atviks í desem-
ber s.l. þegar Fokkervél Flugleiða
lenti í vandræðum vegna mikillar
ísingar.
Veðurstofan hafði gefið út við-
vörun um ísingarhættu en eftir að
flugmaður hafði tilkynnt að hann
hefði flogið í gegnum varúðar-
svæðið var viðvörunin ekki fram-
lengd. Fokkervélin lagði af stað
þegar viðvörunin rann út og lenti
í miklum vandræðum vegna ísing-
ar sem olli því að hreyfill stöðvað-
ist tvisvar og ekki sást út um rúð-
urnar. Flugvélin sem var á leið frá
Reykjavík til ísafjarðar varð að
lokum að leita til Egilsstaða.
Auk yfirferðar Veðurstofunnar
leggur RNF til að flugmenn verði
hvattir til að tilkynna um afbrigði-
leg veðurskilyrði og að Flugmála-
stjórn og Veðurstofa fari sameig-
inlega yfir verklagsreglur um til-
kynningar til flugumferðarþjón-
ustu. ■
LÖGREGLUFRÉTTIRl
Maður var fluttur á slysadeild
eftir árekstur fólksbíls og
strætisvagns. Áreksturinn varð
rétt fyrir klukkan átta í gærmorg-
un. Ökumaður fólksbílsins var
fluttur á slysadeild Landspltalans í
Fossvogi en hann kvartaði yfir
eymslum hálsi og baki. Barn sem
var í bílnum sakaði ekki. Þá sluppu
farþegar strætisvagnsins ómeidd-
ir. Fólksbíllinn skemmdist þannig
að nauðsynlegt reyndist að flytja
hann í burtu með kranabifreið.
KANADAÞING SAMÞYKKIR
HRYÐJUVERKALÖG
Víða á Vesturlöndum hafa stjórnvöld ann-
að hvort þegar samþykkt eða þau hafa í
hyggju að samþykkja hertar öryggisráðstaf-
anir vegna óttans, sem hryðjuverkamenn
hafa valdið. Þessi mynd var tekin á þjóð-
þingi Kanada þegar slík lög voru samþykkt
þar nú í vikunni.
Amnesty International sagði að
með því að standa fast við fyrri
yfirlýsingar sínar sýndu þau öðr-
um ríkjum, sem hugsanlega
kæmust í svipaða stöðu, gott for-
dæmi. ■
AP/CP, TOM HANSON