Fréttablaðið - 30.11.2001, Blaðsíða 11

Fréttablaðið - 30.11.2001, Blaðsíða 11
FÖSTUDAGUR 30. nóvember 2001 Formaður UMFÍ um fjárveitingar: Harmar viðbrögð forseta ÍSÍ ÍÞRÓTTflHREYFINCAR Björn B. JÓnS- son, formaður Ungmennafélags íslands (UMFÍ) segist harma og undrast viðbrögð Ellerts B. Schram, forseta Iþróttasambands fslands (ÍSÍ), við tillögum fjár- laganefndar þingsins um 25 millj- ón króna viðbótarfjárveitingu til handa UMFÍ. Ellert mótmælti fjárveitingunni í bréfi til þing- manna. Björn segir sum orða Ell- erts ekki eiga við rök að styðjast, t.a.m. hafi UMFÍ ekki verið boðið samstarf um rekstur þjónustumið; stöðva eða ÍSÍ skammtað UMFÍ peninga. „Ég hefði frekar viljað sjá fyrirsögnina: ÍSÍ fagnar stuðn- ingi við æskulýðsstarf á íslandi," sagði Björn. „Það hafa reyndar ekki verið mikil samskipti milli UMFÍ og ÍSÍ síðustu misserin. Ég vissi ekki annað en að af þeirra hálfu, sem okkar, væri mikill vilji til að stórauka samstarfið milli hreyfinganna." Björn sagði ekki stefnt að sameiningu samtakanna og benti á niðurstöðu nýlegrar skýrslu ÍSÍ um að ekki væri vilji til þess. „Að okkar hálfu fögnum við auknum fjárframlögum, bæði til handa ÍSÍ og UMFÍ,“ sagði hann og bætti við að næðu tillögur fjár- laganefndar fram að ganga yrðu heildarframlög til UMFÍ 42 millj- ónir á næsta ári meðan framlög til ÍSÍ nema tæpum 85 milljónum. Framlög til hvors aðila eiga að hækka um 25 milljónir. ■ Grafarvogsbörn sögð vera hálfdrættingar í tónskóla- styrkjum: Askorun um að styrkja Tónskóla Hörpunnar SKÓLAMflL Hverfanefnd Grafarvog segir verulega hallað á börn í hverf- inu varðandi möguleika til niðurgreidds tónlistar- náms. Aðeins 12% barna hverfisins njóti slík náms þegar það ætti að eiga við um 21% barnanna ef jafn- ræði væri milli þeirra og annarra barna í borginni. Hverfanefndin skorar því á fræðsluráð Reykja- víkur að jafna möguleika grunnskólabarna að þessu leyti og skorar á ráðið að fara að úrskurði samkeppn- isráðs og endurskoða tafar- laust synjun sína á styrk til Tónskóla Hörpunnar, en hann er í Grafarrvogi. KJARTAN EGG- ERTSSON Eigandi Tónskóla Hörpunnar hefur fengið stuðning frá hverfanefnd Grafarvogs i bar- áttunni fyrir að njóta styrkja úr borgarsjóði. stuðning og úrskurð samkeppnis- ráðs um að borgin mismuni tónlist- arskólum hefur borgin ekki gert neinar úrbætur," segir hverfanefndin, sem telur Grafarvogsbúa ekki eiga að líða fyrir þunglamalegt kerfi. Sigrún Magnúsdóttir, formaður fræðsluráðs, seg- ir áskorunina verða tekna fyrir fundi ráðsins á mánu- dag og tekur ekki afstöðu til hennar að svo stöddu. „En það er ekki rétt að 21% grunnskólabarna njóti tón- listarfræðslu í Reykjavík al- mennt. Það þarf að skoða styrkina í heild og í nýjum kjarasamningi tómlistarkennara „Þrátt fyrir ítrekaðar óskir um felast ýmis tækifæri." | Langur laugardagur 20% afsldttur Laugavegi 83 • Sími 562 3244 MESSAGE Cinde^ella j SANYO ryksuga 1 8.995 kr. ■Hl WIRLPOOL veggofn 1 PHILIPS blandari 109.995 kr. 1 400 W 3.995 kr. Heimilistæki SÆTÚNI 8 • SÍMI 569 1500 umboðsmenn um land allt Opið laugardag frá kl. 10 til 16 Virka daga frá kl. 10 til 19.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.