Fréttablaðið - 30.11.2001, Síða 12

Fréttablaðið - 30.11.2001, Síða 12
12 FRÉTTABLAÐIÐ 30. nóvember 2001 FÖSTUDACUR Lítið af tvö þúsund króna seðlum í umferð Landsbyggð og höfuðborg: Tekjumun- ur eykst tekiupróun í fyrra voru tekjur á höfuðborgarsvæðinu tíu prósent hærri en á landsbyggðinni. í Hag- vísum Þjóðhagsstofnunar kemur fram að fyrir fimm árum voru tekjur á milli þessara landsvæða svipaðar. Einnig hefur munur á tekjum í nágrannasveitarfélögum höfuðborgarinnar og landsbyggð- arinnar aukist. Þjóðhagsstofnun segir þessa þróun endurspegla minni fiskveiðiheimildir og minni framleiðslu í hefðbundum grein- um landbúnaðar annars vegar og vöxt þjónustugreina hins vegar. ■ peningamál Seðlabankinn setti nýj- an tvö þúsund króna seðil í umferð árið 1995. Samkvæmt Seðlabankan- um eru um 3,2 prósent af öllum seðlum, sem eru í umferð utan Seðlabankans, í tvö þúsund króna seðlum. Starfsmenn'Seðlabankans segja, aðspurðir um af hverju svo lítið af tvö þúsund króna seðlum séu í um- ferð, að hraðbankar á íslandi gæfu ekki þessa seðla til fólks sem tækju Peningaútgáfa Seðlabankans: út pening. Ein helsta leiðin til að koma seðlum í umferð sé í gegnum hraðbanka þar sem kortanotkun sé almenn og þegar fólk vanti reiðufé sækir það seðla í hraðbanka. Bank- arnir séu hins vegar ekki þannig forritaðir að þeir greiði fólki tvö þúsund króna seðla og bankar og sparisjóðir hafi ekki séð ástæðu til að breyta kerfinu þannig að það sé mögulegt. Svo gæti farið að Seðlabankinn HLUTFALL AF TVÖ ÞÚSUND KRÓNA SEÐLUM í UMFERÐ 1995 4,9% 1996 6,0% 1997 5,4% 1998 3,3% 1999 2,8% 2000 2,5% 2001 (okt.) 3,2% vildi auka hlutfall seðlanna í um- ferð en það væri ákvörðun yfir- PENINGAÚTGÁFA SEÐLABANKANS Seðlabankinn hefur einkaleyfi á peninga- prentun á íslandi. stjórnar bankans sem og útfærslan. Fréttablaðið fékk ekki upplýs- ingar frá stofnuninni um ástæður þess að taka upp þennan greiðslu- seðil eftir að fimm þúsund króna seðill var kominn í umferð. ■ Handboltamaður leggur KA í dómssal: Dani fær launin en borgar úlpu dómsmál Héraðsdómur Norður- lands eystra hefur dæmt KA til að greiða dönskum handknattleiks- manni jafnvirði 400 þúsund króna sem eru eins mánaðar laun sem hann á inni hjá félaginu. Bo Halskov Stage hóf að leika með KA í ágúst 1999 er hann hafði gert samning við félagið fyrir tvö komandi leiktímabil. Umsamin mánaðarlaun Stage voru að núvirði um 400 þúsund krónur og útvegaði KA honum vinnu á leikskóla samhliða hand- knattleiksiðkuninni. Launin sem Stage fékk fyrir vinnuna á leikskól- anum komu til frádráttar greiðsl- unni frá KA. Stage sagði upp samningnum við KA 12. janúar 2000 og gekk gekk í raðir spænska liðsins Cuidad Real í byrjun mars. Hann fékk ekki laun frá KA fyrir febrúarmánuð þrátt fyrir að hafa þá verið til taks fyrir KA. KA bar því við samkomulagi um að Stage fengi að losna undan samningi við félagið til að fara til Spánar gegn því að hann þægi ekki frekari laun þó hann væri um hríð áfram hjá liðinu. Þessu mótmælti Stage og héraðsdómur taldi ósann- að að slíkt samkomulag hefði verið gert. Héraðsdómur taldi hins vegar sannað að Stage hefði ekki skilað úlpu sem hann fékk að láni hjá KA og getur félagið því haldið eftir 18 þúsund krónum af launum leik- mannsins vegna hennar. ■ Blómálfurinn kominn í rokkandi jólabúning Blómálfurinn • Vesturgötu 4 Lagersala - Lagersala Lagersalan við hliðina á Rafha húsinu, Lækjargötu 30. Mikið úrval af gjafa- og jólavörum. Opið frá og með föstudaginn 30. nóv. alla daga frá kl. 11.00 - 18.00 fram að jólum. Nýjar vörur daglega. Þráðlaus tölvumús kr. 2.000.» Úlpur kr. 1.900.» Skartgripir frá kr. 50.- til kr. 300.» Snyrtivörur kr. 50.» Skór kr. 400.- til 800.» Fatnaður kr 300.- til 1.500.- Vídeóspólur nýjar og notaðar eitt verð kr. 300.- Upplýsingar í síma 869 8171 Utanríkisráðherra áréttar stuðning við sjálfstætt ríki Palestínu: An breytinga á EES ógnar stækkun ESB mörkuðum alþingi „Ég á erfitt með að færa rök fyrir því að Alþingi samþykki aukin framlög í þróunarsjóð vegna stækkunarinnar, ef stækk- unin skerðir markaðsaðgang okk- ar og tækifæri í milliríkjavið- skiptum", sagði Halldór Ásgríms- son á þingi í gær þegar hann flut- ti skýrslu sína um utanríkismál. Halldór sagði að verði EES- samningurinn ekki endurskoðað- ur sé hætt við að markaðsaðgang- ur fyrir sjávarútvegsafurðir verði slakari eftir stækkun ESB en nú er þar sem fríverslunar- samningar við ný aðildarríki falla niður og óhagstæðari tollameð- ferð EES-samningsins tekur við. Við síðustu stækkun ESB hafi ís- land reyndar fengið tollfrjálsa innflutningskvóta miðaða við við- skiptareynslu en slíkt skilaði litlu nú þar sem markaðshlutdeild ís- lendinga væri lítil í væntanlegum aðildarríkjum. Hann sagði að formlega hafi ver- ið farið fram á það við ESB að EES- samningurinn yrði endurskoðað- ur en ráða megi af viðbrögðum ESB að sá róður verði þungur. Utanríkisráð- herra sagði gildis- töku evrunnar geta raskað sam- keppnisstöðu ESB og EFTA frá því sem EES-samn- ingurinn tryggði og áhrifin hér á landi jgeta orðið töluverð. Hann sagði Islendinga ekki vera að falla á tíma í þessu efni en nauðsynlegt að staðan verði skoðuð vandlega af þeim sem eiga hagsmuna að gæta. Baráttan gegn hryðjuverkum virðist hafa skapað grundvöll til HALLDÓR Áhersla á sókn á nýjum mörkuðum og sagði utanrík- isþjónustuna mik- ilvægan aðila á því sviði. lausna á erfiðum deilum sagði Halldór og vísaði þar til góðs sam- starfs Rússa og NATO. Annað má sem þyrfti að taka á væri ófriður- inn í miðausturlöndum. Þar sagði hann alþjóðasamfélagið verða að beita sér til að leysa deilur ísraela og Palestínumanna. Sú lausn yrði m.a. að byggja á sjálfstæðu ríki Palestínumanna og því að öryggi ísraela yrði tryggt innan alþjóð- lega viðurkenndra landamæra. binni@frettabladid.is Atvinnurekendur og launafólk: Samræmdur vilji gegn verðbólgu efnahagslíf Forystumenn heildar- samtaka atvinnulífs og launafólks á almennum vinnumarkaði eru sam- mála um að reyna að vinna að því að sá stöðugleiki sem kjarasamn- ingarnir eiga að verja geti haldist. Til að svo geti orðið þarf m.a. að lækka verðbólgu og ná niður vöxt- um. í þeirri glímu þurfa allir að leggjast á árarnar, ríkisvald og aðil- ar vinnumarkaðarins. Hvort það verði kallað þjóðarsátt eða eitthvað annað er ekki aðalatriðið heldur hitt að samstaða verði um aðgerðir sem skila árangri. Grétar Þorsteinsson forseti ASÍ segir að ástandið sé þegar orðið háskalegt ,enda sé verðbólga farin að bitna alvarlega á afkomu fólks. Ástæðan sé einkum sú þriðjungs lækkun sem orðið hefur á gengi krónunnar. Hann telur að það sé æði mikið á sig leggjandi til að ráð- ast gegn verðbólgunni og áhrifum GRÉTAR ARI EDWALD ÞORSTEINSSON FRAMKVÆMDA- FORSETI ASÍ STJÓRI SA Segir ástandíð orð- ið háskalegt Segist vonast eftir góðu samstarfi við stjórnvöld hennar. Boðað hefur verið til fund- ar um málið meðal allra formanna aðildarfélaga ASÍ10. desember n.k. Ari Edwald framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segist von- ast til að gott samstarf geti orðið við stjórnvöld, auk þess sem þeir hafa verið í reglulegu sambandi við ASÍ í allt haust. ■ Skrúfjárn f Kíttisprautur Brotvélar Lyklasett Verkfæri Juðarar Hæðarmælir Tappar mm Opið alla helgina Smiðjuvegi 5 | 200 Kópavogur | Sími 544 20201 www.hrim.is | hrim@vortex.is Háþrýstidælui

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.