Fréttablaðið - 07.12.2001, Page 1

Fréttablaðið - 07.12.2001, Page 1
Jólabakstur íþróttamannsins Sérajakob má ekki gleyma Jakobi Séra Jakob Ágúst Hjálmarsson ætlar ad elda skötu fyrir hádegisbænahópinn. Aðventa er mikill annatími hjá okkur prestunum," segir séra Jakob Ágúst Hjálmarsson, dómkirkju- prestur. „Bæði er mikið kirkjustarf á þessum tíma og undirbúningur fyrir hátíðina sem er að nokkru Ieyti á veg- um okkar prestanna. Svo má ekki gleyma því að á þessum tíma finna margir sárt til neyðar sinnar." Jakob segir að oft sé lítill tími aflögu heima fyrir. „Ég reyni nú samt að skreyta og bjóða heim fólki. Ég er svo heppinn að vera með Iangar svalir sem ég ætla að setja á grenirenninga með ljósum sem ég er ákaflega hrifinn af.“ Auk þessa segist Jakob halda skötuveislu fyrir há- degisbænahóp sem hittist í kirkjunni. „Ég elda skötu ofan í hópinn, enda sannur Vestfirðingur. Ég reyni þrátt fyrir annir á þessum tíma að gleyma ekki Jakobi. Honum verður að sinna líka,“ segir séra Jakob. Hann bætir því við að sess aðventunnar vaxi sífellt og hún sé að lengjast. „Menn nota ekki lengur gamla nafnið, jóiafasta, enda frá þeim tíma þegar menn gerðu dyggð úr skorti sínum. Orðið aðventa þýðir koma og vísar til þeirra eftirvæntingar og gleði sem á að fylg- ja jólum.“ ■ MIKLAR ANNIR Séra Jakob Ágúst Hjálmarsson reynir ma ekki sjálfum sér, þrátt fyrir miklar aðventunni. Skrifar persónulega til hvers og eins Gerður G. Bjarklind er mikið jólabarn. Hún býr til öll sín kort sjálf og sendir vinum sínum persónulega kveðju um jólin. Gerður Guðmundsdóttir Bjark- lind útvarpskona hefur svo lengi sem hún man eitthvað verið að nos- tra í höndunum. Jólaskraut er hennar uppáhald og þegar líður fram á haustið fer hún að hugsa sér til hreyfings. „Síðari ár hef ég aðallega verið að fást við jólakort. Þá dunda ég mér við að útbúa kort fyrir vini og ættingja og vinn þau öll fríhendis. Ég hef gjarnan í huga þann sem á að fá kortið áður en ég byrja á því. Ef það er einhver gamansamur þá geri ég kort í samræmi við það og svo fer það eftir því hve vel ég þekki við- komandi hvernig kort hann fær.“ Gerður gerir ekki aðeins jólakort. í gegnum árin hefur hún útbúið flest- ar sínar gjafir eða hluta þeirra að minnsta kosti. Hún segist ekki vera vön dýrum og miklum gjöfum og í sinni fjölskyldu tíðkist það ekki held- ur. „Við höfum frekar lagt áherslu á að útbúa snotra pakka sem hafa að geyma eitt- hvað fallegt sem við- komandi hefur unnið sjálfur. Ég hef aldrei skilið það viðhorf fólks að finnast í lagi að kaupa eitthvað til gjafa og láta verslunina síðan sjá um að ganga frá pakkanum. Mér finnst helmingurinn af öllu vera skreyting pakkans." Hún segir ekki síður gaman að gleðja fólk með fallega skreyttum gjöfum og viðurkennir að þeir sem fái frá henni jóla- kort séu afskaplega ánægðir. „Ég reyni líka að skrifa eitt- hvað persónulegt og fallegt í kortin en ekki þessi nokkur stöðluðu orð sem svo margir láta nægja.“ Margir hafa nefnt við Gerði að hún gæti framleitt kort og selt, en það er víðs fjarri þeim tilgangi henn- 'JoÍLX. rJLool MEÐ MÓTTAKANDANN í HUGA Gerður ákveður áður en hún býr til kortið hver- I jum hún ætlar það. ar að gleðja vini sína. „Það er ekki sama persónulega kortið sem við- komandi fær ef hann þekkir ekkert HEFUR GAMAN AF AÐ NOSTRA I HÖNDUNUM Gerður G. Bjarklind segir það róandi að vinna í höndunum þann sem bjó það til. Nei, það er af og frá að ég selji kortin mín.“ Það væri ekki hátt tímakaupið hennar Gerðar ef hún ætlaði að meta vinnustundirnar við kortagerðina eða það sem hún er nostra við til að gefa öðrum. „Ég er mjög lengi að dunda mér við gjafirnar og kortin en á móti fæ ég út úr því mikla útrás og slökun. Það er fátt sem róar eins mik- ið og sitja við að skapa eitthvað í höndunum. í því sambandi dettur mér í hug að þegar óhugnaðurinn í Bandaríkjunum helltist yfir okkur öll 11. september, þá tók ég það talsvert nærri mér. Það róaði mig mikið að geta talið út og saumað á vöktunum í útvarpinu. En það er alveg deginum ljósara að ég væri ekki að þessu nos- tri ef ég hefði ekki gaman af því, svo mikið er víst. “ ■ Árið 1913 stóð Vilhjálmur Stefánsson landkönnuður fyrir metnaðarfullum leiðangri norður í íshaf, 17. júní það ár lagði skipið Karluk upp frá Kanada. Sex vikum síðar var heimsskautsveturinn skollinn á, skipið teppt í ís og leiðangursstjórinn á bak og burt. Með því að nýta sér dagbækur skipbrots- mannanna hefur Jennifer Niven tekist að endurskapa atburðarrás þessa afdrifaríka leiðangurs og örvæntingarfullar tilraunir skipbrotsmanna til að komast heim úr auðnum norðursins. Þeir sem komumst lífs af urðu aldrei samir. Þessi kynngimagnaða mannraunasaga lætur engan ósnortinn. Kokkur án klæða 1 & 2 JamieOliverámyndbandi PP forlag V

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.