Fréttablaðið - 07.12.2001, Blaðsíða 18
18
Ómótstæðileg djöflaterta
Terta sem erfitt er að standast.
Keith Vassell, körfuknattleiks-
maður hjá KR þurfti ekki að
hugsa sig lengi um þegar hann
var spurður hver væri uppáhalds
kakan hans. „Devils food cake,“
sagði hann, en það myndi útleggj-
ast „djöflaterta," á ástkæra yl-
hýra. „Ég reyni að borða ekki
mjög mikið af þessu,“ sagði hann
aðspurður um hvort hann gæddi
sér oft á veitingum af þessu tagi,
en játti því að erfitt væri að
standast freistinguna, svo góð
væri kakan. ■
r;»pwa" w—a—Bsaaw
I. 6 í U i ' r ^ ' ■ • * - ' ~
jfood cake
150 ml sykur
125 mlkakó
60 ml vatn
3 stór eg§
250 ml syrður rjómi
5 ml vamlludropar
375 ml hveití
5 ml matarsódi
1 ml salt
AÐFERÐ: Sykri, vatni og kakói er
blandað saman í lítilli skál. Eggin
eru þeytt í annari skál þar til þau
eru létt og freyðandi, en þá er
sýrða rjómanum og vanilludropun-
um bætt út í. „Kakómallið" er svo
hrært varlega saman við og bætt
við hveitinu, matarsódanum og
salti.
Deigið er svo jafnað í kringlótt
smurt kökumót og bakað í 30 mín-
útur við 175 gráðu hita. Þegar kak-
an er klár, er hún látin kólna og svo
smurt á hana súkkulaðikremi, eftir
smekk.
7. desember 2001
REYNIR AÐ BORÐA EKKI Á SIG GAT
Keith Vassel er leikur körfuknattleik með KR.
Öraarflimmiir
í^jin^toiBMtóiíáEBSiitm
lUtomJöiim
ÐWs
CWEEttrrtBE^toinnn
Whsm Á Cttiiy íffi ffiaaim
Domtric
Cttwisíma/#®iiiiteiæ I HtetolDtenmhms
j sM^íkÍRdi«sffCttniistmas|20'Sraat!iíiia<eSaing£
©jflttfn íRístf
PteanfMteiSto)
TiteCídtelftEiitter
Hér finnur þú mesia úrvai jólageisladiska á Jandinu!
JÓLASTEMNING
Fjölskyldan getur átt saman góða stund í
Fjölskyldu- og húsdýragarðinum.
Jólasveinar
og Grýla
í Laugar-
dalnum
IFjölskyldu- og húsdýragarðin-
um er sérstök jóladagskrá í des-
ember eins og verið hefur undan-
farin ár. Um síðustu helgi var
kveikt á jólaljósunum í garðinum
og þá var heimili jólasveinsins
einnig gert opinbert. Heimili jóla-
sveinsins er sýnilegt klukkutíma
á dag milli kl. 14 og 15 og þá geta
gestir og gangandi fylgst með
jólasveininum og samskiptum
hans við Grýlu, móður sína, í und-
irbúningi þeirra fyrir jólin.
Jólasveinn dagsins heimsækir
einnig Húsdýragarðinn alla daga
klukkan 14.45 frá og með næsta
miðvikudegi en eins og allir vita
kemur fyrsti jólasveinninn til
byggða 13 dögum fyrir jól. Hann
staldrar venjulega við um 15 mín-
útur í Húsdýragarðinum. Alla
morgna í desember er svo lesin
jólasaga í fjósinu kl. 10.40.
Um helgina verður hestateym-
ing í Húsdýragarðinum kl. 14 og
14.30 og frá og með miðvikudegin-
um verður hestateyming alla daga
fram að jólum á sama tíma. Um
síðustu helgi tók Fjölskyldu- og
húsdýragarðurinn í notkun nýtt
upplýsingakerfi og geta gestir nú
notað GSM til að fá upplýsingar
um dýrin og annað sem fyrir augu
ber beint í símann sinn. í Kaffi-
húsi garðsins er boðið upp á girni-
legt jólahlaðborð í hádeginu og
auk þess er jólakaffihlaðborð um
helgar milli kl. 14 og 16.30.
Fjölskyldu- og húsdýragarður-
inn er opinn frá kl. 10 til 17. ■
Leiðrétting:
Guðrún
Agústa
en ekki
Guðfinna
Igrein um Kirkjuveg 7 í Hafnar-
firði sem birtist í Heimilisblað-
inu þann 26. nóvember síðastliðinn
var ranghermt að ekkja Ásgríms
Sigfússonar útgerðarmanns hafi
borðið nafnið Guðfinna. Hún hét,
Guðrún Ágústa Þórðardóttir.
Fréttablaðið biður hlutaðeigandi
velvirðingar á þessu ranghermi. ■