Fréttablaðið - 11.12.2001, Page 9
ÞRIÐJUDAGUR 11. despmber. 2001
mjOAn»JtPm«ji rnnc ■iqifr'm^M!) n
Greiðslur fyrir veiðiheimildir:
Verðupplýsingar
liggja ekki fyrir
VEIÐIHEIMILDIR „Við höfum Upplýs-
ingar um allar millifærslur á kvót-
um til og frá bátum en við höfum
ekki upplýsingar um hvenær var
um sölu fyrir beinharða peninga að
ræða og hvenær aðrar ástæður
voru fyrir flutningi", segir Árni
Múli Jónasson, aðstoðarfiskistofu-
stjóri um möguleika á því reikna út
greiðslur útgerða fyrir kvótasölu-
og leigu á undanförnum árum.
Sjávarútvegsráðuneytið svar-
aði fyrirspurn Jóhanns Ársæls-
sonar þessa efnis á þann veg að
ekki væri hægt að afla upplýsinga
Vandi f
til að reikna greiðslurnar út. Und-
ir þetta tekur Árni Múli. „Við skrá-
um allan flutning afla en það er
ekki gert ráð fyrir því í reglum að
útgerðarmenn geri okkur sérstak-
lega grein fyrir því hvort um er að
ræða sölu, tímabundinn flutning,
skipti eða að menn fái að geyma
þetta hver hjá öðrum. Við vitum
því ekki í hvaða tilfellum er verið
að ræða sölu fyrir beinharða pen-
inga eða einhverjar aðrar ástæð-
ur.“ Til að afla upplýsinga um það
þyrfti að leita til þeirra sem hafa
fært kvóta á milli skipa. ■
íelaga:
Samdráttur hjá SAS
svíþjóð Nóvember var slakur
mánuður hjá SAS- flugfélaginu.
Farþegum fækkaði um 6,8% og
stjórn félagsins útilokar ekki að
grípa þurfi til meiri sparnaðar ef
ekki fer að rætast úr. Samdráttur-
inn er fyrst og fremst í viðskipta-
ferðum, en sá víðskiptamanna-
hópur gefur mest af sér fyrir fé-
lagið. I Lundúnarflugi félagsins
fækkaði farþegúm á viðskiptafar-
rými um 30% og á heimamarkaði
á Nörðurlöndúnum var einnig
samdráttur. í Noregi fækkaði far-
þegum um 4,5%, í Svíþjóð um
6,1% og í Danmörku varð sam-
drátturinn mestur eða 13,9%.
„Fækkunin á viðskiptafarými
færir okkur heim sanninn um að
ástandið er alvarlegt;“ segir Stúre
Stölen talsmaður flugfélagsins.
Frá 11. september hefur 3.500
manns verið sagt upp og ferðum
Ný ensk or&abók
með hraðvirku uppflettikerfi
Ný og endurbætt ensk-íslensk/
íslensk-ensk orbabók meó hraóvirku
uppflettikerfi er komin út.
Bókin hefur aó.geyma 72.000 uppflettiorð
og var sérstaklega hugað aö fjölgun oröa
í tengslum við tækni, vísindi, tölvur, viðskipti
og feróalög.
Hún spannar því fjöldamörg svió og nýtist
vel hvort sem er á heimili, vinnustaö, í skóla
eöa bara hvar sem er.
Oróabókin er 932 bls. í stóru broti og inn-
bundjn' í sterkt band.
Kynningarverb: 7.800 kr.
Oj
ORÐABÓKAÚTGÁFAN
FÆRRI FARÞEGAR
Flugfarþegum heldur áfram að fækka hjá
SAS og nóvember var afar slakur í rekstri
félagsins.
fækkað. Sture Stölen segir að
framtíðin verði að leiða það í ljós,
hvort frekari niðurskurðar og
uppsagna sé að vænta, en slíkt sé
engan veginn útilókað við þessar
aðstæður. ■
Tónlist eftir
Carl Möller
Ljóð+Jazz