Fréttablaðið - 11.12.2001, Blaðsíða 13
ÞRIÐJUDAGUR 11. desember 2001
FRÉTTABLAÐIÐ
13
Nóbelsverðlaunin afhent í gær:
Annan hvatti til al-
þjóðlegrar samstöðu
osló.ap Friðarverölaun Nóbels
voru í gær veitt við hátíðlega at-
höfn í Osló í Noregi. Kofi Annan,
framkvæmdastjóri Sameinuðu
þjóðanna, hélt ræðu við tilefnið,
en honum voru veitt verðlaunin
ásamt Sameinuðu þjóðunum.
Vonaðist hann eftir alþjóðlegri
samstöðu til að vinna bug á fá-
tækt, fáfræði og sjúkdómum.
„Það mikilvægasta er að við
missum ekki vonina," sagði Ánn-
an skömmu fyrir afhendinguna,
en um 3000 norsk skólabörn tóku
á móti honum við komuna til
Osló. Gripið var til óvenju mik-
illa öryggisráðstafa í borginni
Vegna afhendingarinnar og
sveimuðu herþotur þar yfir til
að tryggja að athöfnin gæti farið
klakklaust fram.
í tilefni þess að 100 ár voru
liðin frá því verðlaunin voru
fyrst afhent, stigu rúmlega 20
fyrrverandi friðarverðlaunahaf-
ar á svið, þar á meðal Jose
Ramos-Horta, frelsishetja Aust-
ur-Tímorbúa og Desmond Tutu
VERÐLAUNAAFHENDING
Gunnar Berge, formaður norsku nóbels-
verðlaunanefndarinnar, veitir Kofi Annan
friðarverðlaunin í Osló f gær.
frá Suður-Afríku.
Nóbelsverðlaun voru einnig
afhent í Stokkhólmi í Svíþjóð í
gær fyrir bókmenntir, læknis-
fræði, eðlisfræði, efnafræði og
hagfræði. ■
Sjúkrahúsið á Akranesi:
Ilögreglufréttir
Tollkvótar vegna
innflutnings á blómum.
Með vísan til 53. gr. laga nr. 99/1993 um framleiðslu
verðlagningu og sölu á búvörum, með síðari breyting-
um, er hér með auglýst eftir umsóknum um tollkvóta
fyrir eftirfarandi innflútningsmagn blóma sem sótt skal
um í stykkjatölu:
Vara Tímabil Vörumag Verðtollur Magntollur
Tollnúmer: stk % kr./stk
0602.9095 Aðrar pottaplöntur til og með 1 m á hæð 01.01. - 30.06.02 3.400 30 0
0603.1009 Annars (Afskorin blóm) 01.01. - 30.06.02 175.000 30 0 .
Skriflegar umsóknir skulu berast til landbúnaðarráðu-
neytisins, Sölvhólagötu 7, 150 Reykjavík, fyrir kl.
15:00 föstudaginn 14. desember 2001.
Milljónir í kross-
bönd og gerviliði
heilbrigði Heilbrigðis- og trygg-
ingaráðuneytið hefur ákveðið að
veita Sjúkrahúsi Akraness um 11
milljónir króna til að fjölga kross-
bands- og gerviliðaaðgerðum. Þar
hefur að undanförnu verið gerðar
sautján krossbandaaðgerðir, þar
af fjórar svokallaðar opnar að-
gerðir og þrettán með speglun.
Biðtími eftir þessum aðgerðum
getur verið á bilinu þrír til fimm
mánuðir. Þá hefur ráðuneytið
ákveðið að verja níu milljónum
króna til Fjórðungssjúkrahússins
á Akureyri til að það geti fjölgað
aðgerðum vegna gerviliða. ■
AKRANES
Sjúkrahúsið Á Akranesi gegnir mikilvægu
hlutverki við það að ná niður biðlistum
eftir krossbands- og gerviliðaaðgerðum.
Landbúnaðarráðuneytinu, 7. desember 2001.
Sex ungmenni voru handtekin
á sunnudagsmorgun,grunuð
um neyslu fíkniefna. Hafði lög-
reglan í Hafnarfirði verið
kvödd að gistiheimili í Hafnar-
firði og ungmennin handtekin í
kjölfarið. Hald var lagt á lítið
eitt af efnum og tæki til neyslu
þeirra.
Olvun var með minnsta móti í
Hafnarfirði um helgina og
lítið um kvartanir um hávaða í
heimahúsum. Alls voru 11 um-
ferðaróhöpp tilkynnt til lögregl-
unnar. Öll voru þau slysalaus.
Betur fór en á horfðist þegar
strætisvagn fauk út af Alftanes-
vegi á föstudag en aðeins þrír
farþegar voru í vagninum og
slasaðist enginn. Einn ökumað-
ur var stöðvaður vegna ölvunar
við akstur en 17 ökumenn voru
kærðir vegna annarra umferð-
arlagabrota.
Lægsta verð frá 5.395 kr.
1. hæd Kringlunni
heilsa
Þú átt aðeins einn líkama - farðu vel með hann
Þjálfun
"Gjöf sem gerir gott...
...hugsaðu um þann sem þú elskar"
Bók með myndbandsspólu
Anna, Gunni og Magni Már leiða ykkur í allan
sannleikann um gott og hollt mataræði, rétta
hreyfingu og heiíbrigða hugsun.
Þjálfun og heilsa er fyrir byrjendur jafnt sem lengra
komna. Þjálfun og heilsa er sannkölluð lífstíðareign
þar sem sett eru fram langtímamarkmið í stað
skyndilausna.
Geir H. Haarde
«=>
^=lc3Lf=-Un.lS
Ég hef æft hjá Magna Má og hlakka mikið til þess
að eignast bók og spólu sem byggð er á hans reynslu.
Ég hef náð frábærum árangri hjá Magna og efast
ekki um að Þjálfun og heilsa mun skila ykkur
því sama "
Nanna Kristín Magnúsdóttir
Leikari
,,Góð bók um þarft málefni.
Ég þekkiþað afeigin raun"