Fréttablaðið - 11.12.2001, Blaðsíða 15
ÞRIÐJUDAGUR 11. desember 2001
FRÉTTABLAÐIÐ
is
FR
Jeff Van Gundy:
Hættur með Knicks
körfubolti Jeff Van Gundy sagði
starfi sínu lausu sem þjálfari
körfuknattleiksliðsins New York
Knicks s.l. laugardag. Uppsögnin
kemur mjög óvænt en Knicks hafa
verið að spila frábærlega síðustu
daga. Ákvörðunin kom daginn eft-
ir að Van Gundy hafði flautað æf-
ingu af þar sem honum fannst leik-
menn sínir ekki leggja sig nægi-
lega fram. Hann sagðist samt hafa
verið að íhuga uppsögn frá því í
sumar og telur sig hafa misst ein-
beitinguna sem þarf við starfið.
Van Gundy er fyrsti þjálfarinn í
NBA sem segir upp starfi sínu á
þessu tímabili.
„Ég ætla að slaka á í fyrsta skip-
ti í þrettán ár,“ var haft eftir Van
Gundy á blaðamannafundi sem
sagði þetta þó hafa verið erfiða
ákvörðun.
„Þegar ég sagði dóttur minni
frá þessari ákvörðun sagði hún.
„Þýðir þetta að þú ætlar að koma
með mér í hádegismat. Það er frá-
bært.“
Van Gundy kom New York
Knick í úrslitakeppnina áfin sex
sem hann þjálfaði liðið, þar með
talið í úrslitin sjálf 1999. Liðið varð
tvívegis efst í austurdeildinni
undir hans stjórn. ■
JEFF VAN GUNDY
Ræðir hér við fréttamenn þar sem hann
tilkynnti að hann væri hættur sem þjálfari
New York Knicks.
Lennox Lewis:
Leggur hansk-
ana á hilluna?
hnefaleikar Núverandi heims-
meistari í þungavigt, breski
hnefaleikakappinn Lennox Lewis,
ætlar að leggja hanskana á hilluna
ef hann sigrar Mike Tyson í
hringnum þann 6. apríl á næsta
ári. Sumir vilja meina að bardag-
inn verði sá stærsti í sögunni og
segir Lennox að ef hann leggi
Tyson að velli verði það fullkom-
inn endir á ferli sínum.
„Þegar Muhammad Ali var
meistari voru menn á borð við Joe
Fraisér og George Foreman í
sama gæðaflokki,“ sagði Lewis.
„Á mínum ferli hafa það verið
Holyfield, ég og Tyson. Eg er tvis-
LENNOX LEWIS
Endurheimti WBC og IBF heimsmeist-
aratitlana þegar hann vann Hasim Rahman
f Las Vegas fyrir skömmu.
var búinn að berjast við Holyfield
svo Týson er síðasti bitinn í púslu-
spilinu.“
Lewis segir að Tyson sé jafn-
framt síðasta hindrunin
„Þegar ég er búinn að sigra
Tyson ætla ég að hleypa þeim
yngri að.“ ■
Alex Ferguson:
Vantar allt
bit í liðið
knattspyrna Alex Ferguson, fram-
kvæmdastjóri Man. Utd. viður-
kennir að hann sé enn að leita að
lausn á vanda liðsins. Að loknum
16 leikjum hefur Man. Utd .tapað
sex leikjum og er í 9. sæti Úrvals-
deildarinnar, 11 stigum á eftir
Liverpool sem á leik til góða. Á
laugardaginn tapaði liðið 1-0 fyrir
West Ham á heimavelli.
Ferguson sagðist ekki átta sig
nákvæmlega á því hvað væri að,
en að menn væru að leita að svör-
um. Augljóslega vantaði allt bit í
liðið og að líklega væri hægt að
skýra það að hluta með því hversu
auðveldlega liðið hefði unnið
deildina síðustu tvö ár. Leikmenn
héldu að þetta kæmi bara af sjálfu
sér.
Ensk dagblöð greindu frá því í
gær að Roy Keane væri ósáttur
ÓSÁTTUR
Ferguson segir að leikmenn haldi að þetta
komi bara af sjálfu sér.
við æfingar liðsins og að ákveðið
hefði verið að Bryan Robson,
fyrrverandi leikmaður Man. Utd.
GEORGE BEST
Fyrrverandi leikmaður Man. Utd. skilur ekki
afhverju Ferguson hvílir sína bestu menn.
og framkvæmdastjóri Middles-
bro, myndi taka virkari þátt í
skipulagningu þeirra.
Margir hafg gagnrýnt aðferðir
Ferguson og þá sérstaklega það
hversu mikið hann sé að hræra í
liðinu og hvíla lykilmenn. George
Best, fyrrverandi leikmaður Man.
Utd., sagðist einfaldlega ekki skil-
ja þessa aðferðafræði. Leikmenn-
irnir væru á svimandi háum laun-
um studdir áfram af 67 þúsund
áhorfendum og gætu því vel leik-
ið nokkra leiki í röð án þess að
hvílast. Hann sagðist vel skilja að
menn væru hvíldir þegar þeir
væru meiddir, en ef þeir væru
heilir ættu þeir að leika. ■
Gæðaþvottur
- á 15 mínútum!
í jólaösinni er tíminn alltaf af skornum
skammti. Því býður Bílkó bíleigendum
uppá gæðaþvott á meðan þú bíður. Bíllinn
er tekinn og tjöruþveginn hátt og lágt. Því
næst er hann þveginn með sápu og borið
á hann fljótandi bón. Að lokum er bíllinn
handþurrkaður. Allt þetta á innan við 15
mínútum.
að verki!
Starfsfólk okkar hefur hlotið þjálfun í
þvotti og umhyrðu bifreiða sem og
meðferð bóna.
Jólabónið
- jólagjöf bílsins!
Bíllinn er tekinn í gegn að innan sem utan.
Sæti og gólf eru ryksuguð, gljáefni er
borið á innréttingar og rúður eru pússaðar.
Einnig eru vél og varadekk þrifin. Að utan
er bíllinn tjöruþveginn og borið er á hann
hágæða Autoglym bón ásamt Autoglym
Extra Glans sem fær bflinn til að skína yfir
allar hátíðarnar.
7e.»"9
sívinsæla
Nú þegar Vetur konungur er genginn í garð er nauðsynlegt að
verja laJkk bflsins gegn veðri og vindum með Teflonhúðun.
BILKO
- Betri verð!
ÞAÐ VERÐUR EKKERT GEFHD
jp
kccci ini i
rbwvl JUL ■
ÞORLÁKSMESS Kl. 15:55 LIVERPOOL - ARSENAL • ANNAH I JÓLUIVl Kl. 11:30 ARSENAL - CHELSEA • ANNAR í JÓlUM Kl. 14:50 EVERT0N - MAN. UTD.
FJÖLDI ANNARRA ÚTSENDINGA FRÁ ENSKA, (TALSKA OG EVRÓPUBOLTANUM, NBA OG HNEFALEIKUM í DESEMBER ÞAR SEM ALLT ER LAGT I SÖLURNAR.
10/18 kl. 20:00
11/12 kl. 19:35
12/12' kl. 19:50
16/12 kl. 02:00
16/12 kl. 13:45
16/1,2 kl. 15:55
16/12 kl. 20:00
Toppleikir
Enski boltinn (B)
Enski boltinn (B)
Hnefaleikar (B)
(talski boltinn (B)
Enski boltinn (B)
NBA (B)
Celtic - Juventus (31.10. 2001)
Blackburn Rovers - Arsenal
Uverpool - Fulham
John Ruiz - Evander Holyfield
Chelsea - Uverpool
Toronto Raptors - Washington Wizards
17/18 kl. 19:55 Enskl boltinn (B) Aston Villa - Ipswich Town
18/12 kl. 19:50 Enski boltinn (B)
23/15! kl. 13:45 Italski boltinn (B)
24/12 kl. 00:05 NBA(B)
30/15! kl. 15:40 Enski boltinn (B)
30/12 kl. 19:30 NBA(B)
Arsenal - Newcastle United
San Antonio Spurs - Milwaukee Bucks
Fulham - Manchester United
Sacramento Kings - Boston Celtics