Fréttablaðið - 11.12.2001, Blaðsíða 18
ÁHVAÐA TÍMUM LIFUM VID?
Tölvuöld
Við lifum á tölvuöldinni.
Rakel Pálsdóttir
þjóðfræðingur og rithöfundur.
18
FRÉTTABLAÐIÐ
11. desember 2001 PRIÐJUDAGUR
Náttúruvernd í og við höfuðborg:
Fjaran og fjallahring-
urinn rædd í málstofu
mAlstofa Umhverfisstofnun Há-
skóla Islands og Landvernd halda í
dag málstofu þar sem náttúru-
vernd í og við höfuðborg verður
umræðuefnið. Þar verður velt upp
spurningunum hver séu helstu
náttúruverðmætin á höfuðborgar-
svæðinu og hvernig sé best að
tryggja framþróun nútíma borgar
án þess að skaða perlur í náttúru-
legu umhverfi hennar. Eins og all-
ir vita setja fjaran, fjallahringur-
inn og heiðarnar höfuðborginni
tignarlega umgjörð. Þetta eru
jafnframt mikilvæg útvistarsvæði
og mörg verðmæt frá sjónarhóli
náttúrverndar. Námur, úrgangur,
orkuvinnsla, vegir og vaxandi
byggð geta spillt þessum gæðum.
Frummælendur á málstofunni
verða þeir Freysteinn Sigurðsson,
jarðfræðingur og formaður Hins
íslenska náttúrufræðifélags og
Þorvaldur S. Þorvaldsson, skipu-
lagsstjóri Reykjavíkurbórgar. Að
loknum erindum munu þau Sigrún
Helgadóttir, kennari og náttúru-
fræðingur, Júlíus Vífill Ingvars-
son, borgarfulltrúi og Þorbjörg
Hólmgéirsdóttir, jarðverkfræð-
ingur, sitja í pallborði ásamt Frey-
steini og Þorvaldi.
FINNST PÉR EKKI ESJAN
VERA SJÚKLEG?
Söng Megas sem eins og fleiri hafa spáð í
fjallahring'inn og fjöruna.
Málstofan verður haldin í stofu
101 í Lögbergi, Háskóla íslands.
Aðgangur er ókeypis og öllum op-
inn. ■
Þjóðleikhúskj allarinn:
Didda syngur
Bessie Smith
tónleikar Skáldkonan Didda syng-
ur Bessie Smith til dýrðar í Þjóð-
leikhúskjallaranum í kvöld.
Bessie Smith, sem var ein þekk-
tasta blússöngkona Bandaríkj-
anna, var um tíma einn vellaun-
aðasti listamaður álfunnar og
stóð í eilífri baráttu vegna kyn-
þáttar síns.
Hún lést fyrir aldur fram.
Didda leggur textana upp sem
ferð um tilfinningaheim sinn og
Bessie Smith. Þekktir tónlistar-
menn koma fram með Diddu á
tónleikunum. Einnig verður
kynntur glænýr diskur með pró-
grammi kvöldsins. ■
METSÖLULISTI
SKÁLDSÖGUR1 EYMUNDSSON VIKUNA 3. - 9. DESEMBER
á% Ólafur Jóhann Ólafsson: HÖLL MINNINGANNA . ►
Hallgrímur Helgason: HÖFUNDUR ÍSLANDS ►
Éi Arnaldur Indriðason: GRAFARÞÖGN ►
É» Sigfús Bjartmarsson: Qt SÓLSKINSRÚTAN ER SEIN f KVÖLD
É% Álfrún Gunnarsdóttir: YFIR EBROFUÓTIÐ S»
Ólafur Jóhann Ólafsson: “ SLÓÐ FIÐRILDANNA
Arnaldur Indriðason: MÝRIN ▲
A Kristín María Baldursdóttir: KVÖLDLJÓSIN ERU KVEIKT Qi
'£zk Vigdís Grímsdóttir: FRÁ UÓSI TIL UÓSS ▼
*|í) Isabel Allende MYND ÖRLAGANA m
ÞRIÐJUDAGURINN
II. DESEMBER
MÁLPINC
METSÖLULISTI
Ólafur Jóhann Ólafs-
son situr sem fastast á
toppi skáldsögulista
Eymundsson og ýmis-
legt sem bendirtil
þess að bók hans verði
best selda skáldsagan
fyrir jól. í öðru sæti er
bók Hallgríms Helga-
sonar Höfundur (slands. Sú bók er útnefnd
til íslensku bókmenntaverðlaunanna eins
og bækur Sigfúsar Bjartmarssonar og Álf-
rúnar Gunnlaúgsdóttur. Næsta víst er að
útnefningin hefur fleytt þeim inn á listann.
16.00: Umhverfisstofnun Háskóla (s-
lands og Landvernd boða til mál-
stofu þar sem náttúruvernd f og
við höfuðborg verður umræðu-
efnið. Freysteinn Sigurðsson,
jarðfræðingur og formaður Hins
fslenska náttúrufræðifélags og
Þorvaldur S. Þorvaldsson.skipu-
lagsstjóri Reykjavíkurborgar. Að
loknum erindum munu þau Sig-
rún Helgadóttir, kennari og nátt-
úrufræðingur, Júiíus Vifill Ingv-
arsson, borgarfulltrúi og Þorbjörg
Hólmgeirsdóttir, jarðverkfræðing-
ur, sitja í pallborði ásamt Frey-
steini og Þorvaldi, Málstofan verð-
ur haldin í Lögbergi 101, Háskóla
íslands.
20.00: íslandsdeild Amnesty
International efnir til málþings um
börn og mannréttindi í Borgarleik-
húsinu. Á málþinginu ræðir Þór-
hildur Líndal umboðsmaður
barna um hlutverk og störf um-
boðsmanns barna, Kristín Jónas-
dóttir framkvæmdastjóri Barna-
heilla um tilurð Barnasáttmálans
og sögu Save the Children, Jó-
hanna K. Eyjólfsdóttir fram-
kvæmdastjóri íslandsdeildar Am-
nesty International ræðir um börn
og mannréttindabrot og Jónína
Einarsdóttir mannfræðingur um
börn f heimi fullorðinna.
UPPLESTUR___________________________
20.00: Lesið úr nýútkomnu Ijóðasafni
ungra skálda i ritstjórn Sölva B.
Sigurðarsonar á upplestrarkvöldi
á Súfistanum, í verslun Máls og
menningar Laugavegi.
KEPPNI_______________________________
19.30: Hönnunar- og hugvitskeppni í
Hátíðarsal Réttarholtsskóla.
Þetta er í þriðja sinn sem keppnin
er haldin en hún hefur heppnast
afar vel undanfarin tvö ár. Nem-
endur Réttarholtsskóla, Hagaskóla
og Fellaskóla etja kappi og von er
á hörkuspennandi keppni. Allir
sem áhuga hafa áhuga á
skemmtilegri keppni eru vel-
komnir í Réttarholtsskóla.
TÓNLEIKAR
Jólatónleikar
Kvennakórs Revkjavíkur
ÍDAG!
þriöjudagur f í. desemþer kl. 20:00
Hallgrímskirkja
20.00: Kvennakór Reykjavfkur heldur
sina árlegu aðventutónleika. Að-
ventutónleikar Kvennakórsins hafa
um árabil verið stór þáttur í jóla-
undirbúningi margra landsmanna.
Að þessu sinni er um all sértæða
tónleika að ræða þar sem frum-
flutt verður nýtt verk eftir Báru
Grímsdóttur, Da Pacem, domine,
en verkið er sérstaklega samið fyr-
ir Kvennakór Reykjavíkur. Auk
hefðbundinna jólalaga eru einnig
á efnisskrá Maríukvæði Atla
Heimis Sveinssonar, Það aldin út
er sprungið, Jól, sem einnig er eftir
Báru Grímsdóttur, og flutt verður
f heild sinni Ceremony of Carols
eftir Benjamin Britten. Á tónleik-
unum leikur Monika Abendroth
með á hörpu. Stjórnandi kórsins
er Sigrún Þorgeirsdóttir.
Nærmynd af Vigdísi
A laugardaginn verður frumsýnd heimildarmynd um Vigdísi Finn-
bogadóttur, fyrrverandi forseta. Hún er gerð af Ragnari Halldórs-
syni, sem fylgdi Vigdísi eftir á ferðum hennar, og hefur unnið að
myndinni í rúm þrjú ár.
kvikmynp „Þetta er mynd um
manneskju, sem er svolítið eins
og Lína langsokkur komin á eldri
ár. Vigdís er ekki bara fyrrver-
andi forseti heldur eldri dama,
sem er mikill persónuleiki," segir
Ragnar Halldórsson, leikstjóri
kvikmyndarinnar Ljós heimsins.
Ragnar fylgdi Vigdísi Finnboga-
dóttur eftir á ferðum hennar um
fimm lönd og í daglegu lífi.
„Nafnið Ljós heimsins vísar í
Guð, eilífðina, kærleika og dauða.
Gildi taka myndarinnar er ná-
lægðin, það var lítið batterí í
kringum þær. Ég þurfti að byggja
upp traust Vigdísar og lenti oft í
erfiðum kringumstæðum til að fá
leyfi fyrir tökunum. Myndin er
undir áhrifum dogma en ég kalla
hana cinema vérite. Hún býr til
sögu úr raunveruleikanum.“
Ljós heimsins er rúmlega 70
mínútna löng. Sigvaldi Kárason
klippir myndina en Hilmar Örn
Hilmarsson samdi tónlistiria.
Ragnar segir hana skiptast í þrjú
lög, innra líf Vigdísar, það ytra
sem áhórfendur fylgjast með og
minningar um liðna tíma. „Við
vinnum mikið með myndmálið,
segjum hlutina ekki hreint út.
Þegar áhorfendurnir hafa séð
myndina í heild átta þeir sig á
henni. Vigdís er búin að sjá
myndina. Sumt tók aðeins á
hana.“
Margar helstu sjónvarps-
stöðvar Norðurlanda bíða eftir
því að sýna Ljós heimsins. „Við
erum einnig í sambandi við aðila,
EINS OG EASTWOOD
„Vigdfs er mikill töffari, eins og Clint Eastwood og Lukku Láki. En þó hún sé sterk eru
alltaf viðkvæmir þættir. Það eru ekki síst þeir, sem vekja áhuga f frásögn myndarinnar,"
segir Ragnar Halldórsson, leikstjóri Ljós heimsins.
Þar var hann í faðmi fjölskyld-
unnar en hann er bróðir strák-
sem hafa áhuga á að sýna hana í
kvikmyndahúsi í Kaupmanna-
höfn og Stokkhólmi. En það
myndi gleðja niig ef 500 manns
sæju hana í bíó hér heima," segir
Ragnar, sem er fyrrverandi
starfsmaður Ríkissjónvarpsins.
Hann er með mastersgráðu í
kvikmyndastjórnun og hefur
undanfarin ár starfað í Noregi.
anna fræknu í hljómsveitinni The
Boys.
Ljós heimsins, sem er fram-
leidd af kvikmyndafyrirtæki
Ragnars, íslensku kvikmynda-
stofunni, er frumsýnd í Smára-
bíói á laugardaginn.
halldor@frettabladid.is
20.30: Skáldkonan Didda syngur til dýrð-
ar Bessie Smith í Þjóðleikhúskjall-
aranurrt, en Bessie Smith var ein
þekktasta blússöngkona Bandaríkj-
anna. Um leið verður kynntur nýr
diskur með prógrammi kvöldsins.
20.30: Aðventutónleikar Landsvirkjun-
ar- og Landsbankakórsins í
Grensáskirkju. Á dagsskránni eru
jólalög. Einsöng syngja Þorgeir
Andrésson syngur og Þuríður G.
Sigurðardóttir. Stjórnendur eru
Páll Helgason og Björn Thoraren-
22.00: Stefnumót á Gauk á Stöng.
MYNDLIST
Jóhanna Helga Þorkelsdóttir sýnir por-
trettmyndir í gallerí Nema Hvað, nem-
andagalleríi Listaháskóla (slands. Sýning-
in opnar Föstudaginn 7.des. kl. 20:00 og
opið er frá 15:00 til 19:00 alla daganna.
Sýningunni lýkur 12. des.
Steinþór Marinó Gunnarsson listmálari
sýnir nú röð smámynda í Verksmiðju-
sölunní á Álafossi, Álafossvegi 23,
Mosfellsbæ. Þetta er jólasýning. Flest
verkin eru unnin á árunum 1980 -
1998. Hér er um að ræða alls 25 verk
unnin í pastell og myndir með blandaðri
tækni. Sýningin er opin á venjulegum
verslunartíma kl. 10.00 - 18.00, og laug-
ardaga kl. 10.00 - 14.00. Sýningin er
opin til 31. desember.
Sígraent eðaltré í hæsta geeöaflokki frá
skátunum prýðir nú Þúsundir íslenskra heimila.
J4,10 ára ábyrgð
12 stærðir, 90 - 500 cm
Stálfótur fylgir
Ekkert barr aö ryksuga
Truflar ekki stofublómin
BÆKUR
Hvíti skugginn
■m. Eldtraust
& Þarf ekki að vökva
ísienskar leiðbeiningar
;.s Traustur söiuaðili
Skynsamleg flárfesting
Bandalog islenskna skúto
■ ■■ ■■ ■ ............
IFIvíta skugganum eftir Þór-
unni Valdimarsdóttur segir
frá Sólveigu, Kristrúnu og Jó-
hannesi sem öll þurfa áð takast
á við drauga úr fortíð sinni. Þau
gera það með því að mæta í
sjálfshjáiparhóp sem auk þess
segja reynslusögur 'á fundum
skiptist á slíkum á Netinu. Trió-
ið kyhnist í gegnum hópinn,
veróur vel til vina og líf sögu-
hetjanna samþættist um stund.
Hvíti skugginn hefur verið
kynnt sem hálfgert uppgjör við
68 kynslóðina meðal annars og
virkaði það heldur illa á undir-
ritaða enda fátt leióinlegra en
kynslóðauppgjör. Bókin kom því
mjög skemmtilega á óvart. Hún
HVÍTISKUGGINN
Höfundur: ÞÓRUNN
VALDIMARSDÓTTIR
Útgefandi: JPV-ÚTGÁFA 2001.
160 bls.
er vel skrifuð og plottið í henni
er líka helvíti gott. Ilöfundur
nær að halda alveg utan urn sög-
una sem virkar hálf laus í reip-
unum til að byrja með en er það
svo sannarlega ekki. Söguper-
sónurnar eru einnig bæöi áhuga-
verðar og trúverðugar. Það má
lesa úr bókinni uppgjör við hug-
sjónir 68 kynslóðarinnar, vel
skrifuð skáldsaga nægir mér
hins vegar alveg og mæli ég
með henni sem slíkri.
Sigriður B. Tómasdóttir