Fréttablaðið - 27.12.2001, Side 2

Fréttablaðið - 27.12.2001, Side 2
KJÖRKASSINN LESENDUR NJÓTA SÍN Lesendur Vísis.is virðast sammála um það að tími jólanna sé góður. Þó eru alltaf nokkrir sem kvíða þessum stundum og eiga erfitt. Eru jólín góður tími? Niðurstöður gærdagsins á vwvw.vísir.is 181% 19% Spurning dagsins í dag: Sóttir þú kirkju um jóiin? Farðu inn á vísi.is og segðu þína skoðun Afbrotamenn: Innbrota- hrinaum jólin LðGRECLUMÁL Óvenju mikið var um innbrot um jólin í höfuðborginni að sögn Lögreglunnar í Reykja- vík. Um miðjan dag í gær hafði t.d. verið tilkynnt um fjögur inn- brot þann daginn og fjöldi inn- brota mun hafa verið svipaður á aðfangadag og á jóladag. í gærmorgun stóð vegfarandi innbrotsþjóf að verki í mynd- bandsleigu í Eddufelli. Þjófurinn lagði á flótta og ekki var ljóst hvort hann náði að taka með sér eitthvað af því sem hann hafði safnað saman og búið til flutnings. Tilkynnt var um innbrot í gær- morgun í verslunina Kíron í Graf- arvogi. Þar komst þjófurinn óséð- ur undan en utan við verslunina fundust ferðatöskur sem verslun- in selur. Þá var brotist inn í bíl í Húsa- hverfinu í Grafarvogi í gær og stolið úr honum geislaspilara og tilkynning barst um innbrot í geymslu í Krummahólum en óljóst var hvort einhverju var stolið úr henni. ■ ÓPERUHÚSÍÐ í SYDNEY Mikinn reykjarmökk leggur yfir Sydney í kjölfar skógareldanna í nágrenni borgar- innar. Óperuhúsið í Sydney er varla sýni- legt frá höfninni. Skógareldar í Ástralíu: Rannsaka ummerki um íkveikju skócareldar Um 3000 manns hafa orðið að yfirgefa heimili sín vegna mikilla skógarelda sem geisað hafa í nágrenni Sydney undanfarna viku. Eldar loguðu á um 100 stöðum í gær í nágrenni borgarinar og hafði þá fjölgað úr 70 frá deginum áður. Lögregla rannsakar nú hvort brennuvargar hafi kveikt einhverja elda á liðn- um dögum. Eldurinn kom upp 20. desember s.l. er eldingu laust í þurran trjágróður. Miklir þurrkar eru i Ástralíu um þessar mundir og hefur vindur átt þátt í dreifa eldinum og hamlað slökkvistörf- um. Fjölmörg hús hafa eyðilagst, þar á meðal 30 heimili og versl- anamiðstöð í Silverdale og Warragamba en alls hafa 140 heimili orðið eldi að bráð. Þá hafa eldar logað í næst elsta þjóðgarði i heimi sem staðsettur er suður af höfuðborginni. Ekkert manntjón hefur orðið í skógareldunum en fjölmargir hafa orðið aö leita að- stoðar vegna reykeitrunar. ■ FRETTABLAÐIÐ 27. desember 2001 FIMMTUDAGUR Opinber gjöld lögaðila: Verslun og þjónusta greiða nær hebning skattar Fyrirtæki í verslun og þjónustu greiða um 40% allra opinberra gjalda lögaðila ársins samkvæmt útreikningum Ríkis- skattstjóra fyrir Samtök iðnað- arins. Fyrirtæki í iðnaði greiða um 24% opinberra gjalda, út- gerðarfyrirtæki 4,5%, fisk- vinnslan 4% og aðilar í landbún- aði tæpt eitt prósent. Um fjórð- ungur opinberra gjalda leggst á opinbera aðila, mest megnis vegna tryggingagjalds af laun- um starfsmanna. Hið opinbera er stærsti greið- andi tryggingagjalds með 37% en 31% falla á fyrirtæki í versl- un og þjónustu og 21% á fyrir- tæki í iðnaði. Fyrirtæki í fisk- vinnslu og útgerð greiða samtals um tíu prósent en fyrirtæki í landbúnaði innan við eitt pró- sent. Fyrirtæki í verslun og þjónustu greiða rúman helmings alls tekjuskatts lögaðila og fyrir- t_æki í iðnaði ríflega fjórðung. Útgerðarfyrirtæki greiða innan við tvö prósent álagðs tekju- skatts og fiskvinnslufyrirtæki rúm þrjú prósent. Svipaða sögu er að segja um greiðslur eigna- skatta nema hvað hlutur fyrir- tækja í verslun, þjónustu, fisk- vinnslu og iðnaði er nokkuð meiri en hlutur hins opinbera minni sem því nemur. ■ MEST LAGT Á í REYKJAVÍK 63% gjalda lögaðila falla til í Reykjavík en 80% ef Reykjanesið er talið með. Snæfellsnes: VIÐ LANDAMÆRIN Indverskir hermenn voru I viðbragðsstöðu við landamæri Pakistans og Indlands I gær. Spenna hefur stigmagnast þar frá því Indverski herinn gaf út tilskipun um að íbúar I þorpum við landamærin skyldu yfirgefa heimili sln. Pakistanski herinn er einnig sagður I viðbragðsstöðu. Flugskeyti Indverja í viðbragðsstöðu Spenna hefur stigmagnast við landamæri Indlands og Pakistans á und- anförnum dögum. Skotbardagar voru með minna móti í gær en meðal- dræg flugskeyti beggja herja eru sögð í viðbragsstöðu. Hægt er með einföldum hætti að koma kjarnaoddum fyrir á þeim. pakistan-indland Varnarmálaráð- herra Indverja, Georges Fernand- es, greindi frá því í gær að flug- skeyti Indverja væru „í við- bragðsstöðu". Herþotur hafa ver- ið á flugi við landamæri Pakistans og Indlands og skotbardagar voru á fremstu víglínu í gær. Oryggis- ráð indverska þingsins kom sam- an til að ræða frekari aðgerðir gegn Pakistan. Meðal þess sem rætt var um var hvort banna ætti flug pakistanskra flugfélaga inn- an indverskrar lögsögu, ógilda vatnssáttmála ríkjanna tveggja, fækka sendiráðsfólki og afnema viðskiptavild í garð Pakistana. Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, tilkynnti í gær að bandarísk stjórnvöld hefðu ákveðið að frysta eigur hryðju- verkasamtakanna Lashkar-e- Tayyaba og Jaish-e-Mohammed sem Indverjar saka um að hafa staðið á bak við sjálfsmorðsárás við indverska þingið fyrr í mánuð- inum. Báðar þjóðir hafa yfir að ráða kjarnavopnum. Indverjar eiga meðaldrægar rússneskar flaugar og indverskar Prithvi I flaugar sem draga 150 kílómetra og hægt er að skjóta frá fjarstýrðum skot- pöllum. Þá hafa Pakistanar yfir að ráða kínverskum meðaldrægum flaugum. Fregnir herma að pakistanski herinn sé einnig í við- bragsstöðu með sínar flaugar en hægt er með einföldum hætti að breyta flaugunum þannig að þær beri kjarnaodda. Ekki er enn ljóst hvort Indverjar eða Pakistanar hafi breytt sínum flaugum. Að sögn talsmanns indverska hersins voru skotbardagar með minna móti í gær miðað við und- anfarnar vikur. Þá hafði dregið úr straumi flóttamanna frá þorpum sem eru við landamærin. Ind- verski herinn tilkynnti hins vegar að hætt hefði verið við árleg há- tíðarhöld hersins sem áttu að vera 15. janúar n.k. Átök milli Pakistana og Ind- verja hafa stigmagnast frá sjálfs- morðsárásinni við indverska þingið 13. desember s.l. Þrettán létust í árásinni. Hafa Indverjar sakað pakistönsku leyniþjónust- una um að hafa stutt árásina sem tvær herskáar aðskilnaðarhreyf- ingar, Lashkar-e-Tayyaba og Jaish-e-Mohammed, stóðu að. Báðar hreyfingar hafa barist gegn yfirráðum Indverja í Kasmír héraði. ■ Köstuðust úr bíl löcrecla Tveir menn köstuðust út úr bíl sem valt nálægt Rifi á Snæ- fellsnesi í fyrrinótt en slösuðust ekki alvarlega. Tæplega sjötugur maður slapp við alvarleg meiðsl eftir að hafa misst stjórn á bíl sínum og ekið á Ijósastaur á Gullinbrú í gær. Mað- urinn festist í bílnum og þurfti að klippa hann út úr flakinu. Talsvert var um önnur minni óhöpp í um- ferðinni í Reykjavík í gær. Menn sem talið er að hafi brot- ist inn í Menntaskólann við Hamrahlíð að morgni jóladags og unnið þar skemmdir á hraðbanka og gossjálfsala var sleppt eftir yf- irheyrslu hjá lögreglu. ■ Uppsögn ritstjóra DV: ViU ekkert segja fjölmiðlar Óli Björn Kárason, rit- stjóri DV og einn af hluthöfum í útgáfufélagi blaðsins, vildi ekki tjá sig um aðdraganda uppsagnar Jónasar Kristjánssonar, fyrrver- andi ritstjóra DV. í Fréttablaðinu á Þorláksmessu sagði Jónas að sér hefði verið sagt upp störfum frá áramótum með fjögurra mánaða uppsagnarfrest. Aðspurður um hvort búið væri að finna einhvern til að setjast í stól Jónasar vildi Óli Björn engu svara. ■ HAPPDRÆTTI Islendingur vann 44,6 milljónir króna þegar dregið var í Vik- ingalottói í gær. Fyrsti vinningur kom á einn miða sem seldur var hérlendis. Bónusvinningurinn sem var rúmar 3 milljónir gekk ekki út. Tölurnar voru 1 -12 -15 - 38 - 42 - 44. Bónustölur voru 11 og 47. Skipverjarnir á Jóni Vídalín reyndu að hafa jólin eins heimilisleg og kostur er um borð í togara: Hífðu trollið og hlustuðu á jólamessuna jólahald Skipverjarnir á Jóni Vídalín voru búnir að vera á veið- um í tíu sólarhringa þegar jólin gengu í garð. „Þetta var ósköp ró- legt. Gott veður og góður matur. Við reyndum að gera gott úr þessu,“ sagði Haraldur Bene- diktsson, skipstjóri. Búið var að gera borðsalinn huggulegan en ekki var skipst á gjöfum í þetta sinri. „Við stoppuðum á meðan og borðuðum allir saman,“ sagði Haraldur, sem geymdi trollið á dekkinu meðan á borðhaldi stóð. Áður höfðu skipverjarnir slappað af við jólamessuna í útvarpinu sem gerði stemninguna svolítið jólalegri. „Það er reynt að hafa þetta sem líkast því sem gerist heima hjá mönnum." Símasamband var í lánd svo skipverjarnir þurftu ekki að tala við f jölskylduna í gegnum talstöð- ina. „Við vorum yfir hátíðirnar í símasambandi svo það gátu allir hringt heim.“ Aðspurður hvort menn hefðu ekki verið leiðir yfir því að vera úti á'sjó þessa daga sagði Haraldur að Þeir létu sig hafa það. Eftir matinn hófst svo streðið á ný. Fjórtán menn eru um borð í Jóni og voru þeir að fylla skipið þegar Fréttablaðið hafði sam- band. Voru þeir að toga í Skerja- dýpinu í leit sinni að karfa til að sigla með til Þýskalands. „Þetta er að hafast," sagði Haraldur en veiðin hafði verið nokkuð treg. JÓN VÍDALÍN ÁR Á sjó um jólin. Stefnt er að því að selja á markaði í Þýskalandi annan janúar þegar gott verð fæst fyrir fiskinn. „Það er lágmarks mannskapur sem siglir. Það fara allir í frí sem geta,“ sagði skipstjórinn. „Þá komast þeir allir heim.“ Það verða því fleiri heima yfir áramótin en voru yfir jólin. Haraldur verðu þó fjarri heimili sínu enda fer hann sjálfur með bátinn til Þýskalands og hyggst halda af stað seint í kvöld. bjorgvin@frettabiaðið.is

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.