Fréttablaðið - 27.12.2001, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 27.12.2001, Blaðsíða 10
10 FRÉTTABLAÐIÐ 27. desember 2001 FIMMTUDACUR 11> i i i aöí \i m > Útgáfufélag: Fréttablaðið ehf. Útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson Ritstjóri: Gunnar Smári Egilsson Fréttastjórar: Pétur Gunnarsson og Sigurjón M. Egilsson Ritstjórn, auglýsingar og dreifing: Þverholti 9, 105 Reykjavík Aðalsími: 515 75 00 Símbréf á fréttadeild: 515 75 06 Rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is Símbréf á auglýsingadeild: 515 75 16 Rafpóstur: auglysingar@frettabladid.is Setning og umbrot: Fréttablaðið ehf. Plötugerð: ÍP-prentþjónustan ehf. Prentun: ísafoldarprentsmiðja hf. Fréttaþjónusta á Netinu: Vísir.is Fréttablaðinu er dreift ókeypis til allra heimila á höf- uðborgarsvæðinu. Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn greiðslu sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabonkum án endurgjalds. | BRÉF TIL BLAÐSINS~| Er Samkeppnisstofnun að misbeita valdi sínu? ióhannes Gunnarsson formaður Neytendasamtakanna. samkeppni í Fréttablaðinu, 19. des- ember 2001 skrifar Björgvin Guð- mundsson pistilinn „Mál manna“ með yfirskriftinni „Samkeppnis- stofnun beitir valdi sínu“. Óhjá- kvæmilegt er að gera stutta at- hugasemd við þessi skrif. í fyrsta lagi er nánast fullyrt að háir skatt- ar stjórnvalda á bensíni geri svig- rúm olíufélaga til verðsamkeppni á þessari vöru útilokað. í öðru lagi kemur fram mikil vanþekking um starfssvið samkeppnisyfirvalda og málsmeðferð þeirra mála sem koma til þeirra kasta. Með breytingu á samkeppnis- lögum 6. desember 2000 fengu samkeppnisyfirvöld ríkari heim- ildir til að sinna mikilvægu hlut- verki sínu. Þessi breyting var til samræmis við samkeppnislög í Evrópu og var nauðsynleg til að tryggja eðlilega samkeppni og fyr- irbyggja samkeppnishömlur og samráð milli fyrirtækja, en sam- ráð er án efa alvarlegasta brot á samkeppnislögum og er mjög and- stætt hagsmunum neytenda. Eins og fram hefur komið hjá forstjóra Samkeppnisstofnunar er stofnunin ekki að dæma einn né neinn heldur að rannsaka mál og hvort brotið hafi verið gegn sam- keppnislögum. Þetta er einfaldlega eitt af verkefnum Samkeppnis- stofnunar samkvæmt þeim lögum sem stofnunin starfar eftir. Vissulega er það rétt hjá blaða- manni að háir skattar á bensíni gera það að verkum að að verð- munur á bensíni hlýtur alltaf að vera minni í krónutölu en á ýmsum öðrum vörum. Það réttlætir hins vegar ekki í sjálfu sér að olíufélög- in selji bensín alltaf á sama verði og breyti einnig verði samtímis. En það koma án efa upp fleiri at- riði en verðsamráð inn í rannsókn Samkeppnisstofnunar og má þar nefna hvort olíufélögin hafi haft samráð sín á milli um skiptingu á markaðnum. Ef niðurstaða máls hjá Sam- keppnisstofnun er sú að telja megi að brotið hafi verið gegn sam- keppnislögum skilar stofnunin frá sér skýrslu sem send er viðkom- andi fyrirtækjum til athugasemda, en svo fer skýrslan til umfjöllunar og ákvörðunar samkeppnisráðs sem tekur ákvörðun um refsingu, þar á meðal hvort sekta eigi fyrir- tækin og hve há sektin skuli vera. Vilji fyrirtækin ekki una þessari niðurstöðu geta þau áfrýjað mál- inu til Áfrýjunarnefndar sam- keppnismála en þar sitja aðilar óháðir bæði Samkeppnisstofnun og samkeppnisráði. Og ef fyrir- tækin vilja heldur ekki una þeim úrskurði geta þau farið með málið til dómstóla. Það er því af og frá að Samkeppnisstofnun hafi vald til að „framfylgja refsingu eftir eigin rannsókn" eins og blaðamaður F'réttablaðsins fullyrðir. Þessi greinarstúfur Frétta- blaðsins er greinilega ekki skrifað- ur út frá hagsmunum neytenda, heldur þvert á móti. Neytendasam- tökin fagna hins vegar þessu frum- kvæði Samkeppnisstofnunar. Það er hins vegar eðlilegt að gera þá kröfu til blaðamanna að þeir kynni sér þau mál sem þeir skrifa um og villi ekki um fyrir lesendum. ■ Líka hjá hinum stóru V iðbrögð forráðamanna olíufé- laganna, eftir atlögu Sam- keppnisstofnunar, voru um margt at- hyglisverð: Þeir hafa játað að hafa hist á fundum, en fyrirtaka með öllu að fundirnir hafi verið notaðir til þeirra verka sem Samkeppnis stof nun gefur þeim að sök. Það er til að sam- ræma verð, sem ávallt er það sama hjá félögunum þremur, og til að skipta markaðnum Við skulum ekki gleyma því að þetta eru einhverjir stærstu skatt- greiðendur ríkisins fyrir utan það að vera mjög öfl- ugir inn- heimtuaðilar á tekjum ríkis- sjóðs. —......: á milli sín. Eftir að dómari heimil- aði svo frekleg inngrip í rekstur félaganna hefur fátt gerst annað en forsvarsmenn þeirra hafa tjáð sig. Hafi Samkeppnisstofnun rétt fyrir og þær ásakanir sem fram komu reynast sannar og réttar er ljóst að forstjórarnir og aðrir stjórnendur fyrirtækjanna þrigg- ja falla í áliti. Samkeppnisstofn- unar bíður hins vegar að sanna það sem sagt var við dómarann. Af öllu því sem sagt hefur ver- ið og gert eru orð Kristins Björns- sonar forstjóra Skeljungs í DV eftirtektar verðust. Þar segir hann: Ég er sjálfur lögfræðingur og geri mér fulla grein fyrir hvað það er viðamikil aðgerð að beina spjótunum á þennan hátt að nokkrum stærstu fyrirtækjum Mál...manna Sigurjón M. Egiisson skrifar um viðbrögð landsins. Við skulum ekki gleyma því að þetta eru einhverjir stærstu skattgreiðendur ríkisins fyrir utan það að vera mjög öflug- ir innheimtuaðilar á tekjum ríkis- sjóðs. Við erum að innheimta 60% prósent af öllu því sem bensínlítr- inn kostar." Það er einmitt það. Ekki er annað hægt en að skilja forstjórann sem svo að sökum stærðar olíufyrirtækjanna hafi, að hans mati, ekki verið hægt að búast við að yfirvöld gerðu athug- anir eða rannsóknir á stórum og merkum fyrirtækjum. Flonum, ekkert frekar en kollegum hans, tekst að sannfæra fólk um að þeir séu saklausir af samráðum um verðlagningu og annað það sem lög í landinu hreinlega banna. ■ Hamborgarhrygg- ur og hangikjöt Halldór Gunnlaugsson skipherra hjá Landhelgisgæslunni var á sjó um þessi jól. Hann hefur oft áður notið jólanna íjarri fjölskyldu og vinum og finnst það ekki tiltökumál. LÝSUM UPP MASTRA Á MILLI Halldór Gunnlaugsson segir borðsalinn skreyttan og vitaskuld sé þár einnig jólairé. jól Halldór Gunnlaugsson skip- herra hjá Landhelgisgæslunni er einn þeirra sjómanna sem var á hafi úti um jólin. Það er ekki ný reynsla fyrir hann því oft áður hefur það verið hans hlutskipti. „Yfirleitt hefur mér liðið vel úti á sjó og ekki síður um jólin en á öðrum árstíma. Við skreytum borðsalinn, setjum upp jólatré og lýsum upp með ljósum mastra á milli. Maturinn um borð hefur oftast verið hamborgarhryggur á aðfangadagskvöld. Þó er ekki á vfsan að róa með það því engin sérstök hefð hefur myndast hvað þetta varóar og stundum er eitt- hvað annað. Á jóladag eða á ann- an í jólum er boðið upp á hangi- kjöt.“ Halldór segir að þessa daga sé öll vinna í lágmarki en menn standi þó sínar vaktir en séu ekki að störfum þar fyrir utan nema eitthvað óvænt komi upp á. „Við leggjumst gjarnan fyrir akkeri inni í einhverjum firðinum sem næst landi enda lítið um að vera á hafi úti. Nú orðið eru fá skip á sjó og ekki ástæða til að halda uppi eftirliti ef ekki eru neinar veiðar." Á aðfangadagskvöld fara menn í sparifötin og borða sam- an á meðan hlustað er á messuna í útvarpinu. Síðan eru teknir upp pakkar frá konunum í Hrönn en þær hafa séð um það undanfarin ár að allir sjómenn fjarri heima- högum fái í pakka. „Menn hverfa síðan til sinna vistavera og taka upp pakka frá ættingjum og vin- um en ég held að flestir taki með sér pakkana sína á sjóinn. Eftir það hringja flestir heim í fjöl- skylduna en hér áður fyrr var erfiðara um vik því þá þurfti að hringja í gegnum Gufunesradio og það var aðeins einn sími. Nú eru nokkrir símar um borð og ekki vandamál að ná heim. Við erum líka oftast nálægt landi og ekki erfiðleikum bundið að ná sambandi." Halldór er á því að þessir dag- ar líði í eins miklum þægindum og við verði komið. Allt sé gert til að skapa jólastemningu og menn hafi gjarnan eitthvað gott að lesa eða horfi á sjónvarp. „En vissulega er það alltaf érfitt fyt- ir fjölskyldur sjömanna að sjá eftir þeim rétt fyrir jól. Sjálfur er ég orðin vanur því að vera að heiman og tek það ekki nærri mér og fólkið mitt tekur því með ró nú orðið. Við þessu er ekkert að gera og ég reyni að láta mér líða vel og er ekki að velta fyrir mér hvernig það hefði getað orð- ið.“ ■ Fimleikafélagið Björk: Fær til afnota 1700 fermetra fímleikasal félacsstarf Fimleikafélagið Björk fagnar 50 ára afmæli sínu á þessu ári með því að byggja yfir sig fé- lagsaðstöðu í fyrsta skipti í sögu félagsins. Húsið er byggt viö gamla íþróttahús Hauka við Haukahraun og hefur Hafnar- fjarðarbær afhent félaginu húsið til afnota. Áætluð verklok hússins eru 15. apríl á næsta ári og þá verður það tekið í notkun. Nýi fimleikasalurinn er um 1700 fermetrar að flatarmáli. Þar verður stór klifurveggur og er áætlað að stofna sérstaka deild innan félagsins í tengslum við hann. Þá verða í húsinu salir fyrir margar íþróttagreinar svo sem Tae Kwon Do sem er deild innan fimleikafélagsins, jóga, jassball- ett og boltagreinar. Dansíþrótta- félag Hafnarfjarðar fær einnig sína aðstöðu í húsinu. Eigandi að húsinu er Nýsir hf. sem sér um rekstur húsnæðisins en Fimleika- félagið Björk og Hafnarfjarðar- bær hafa notkunarrétt á því. ■ FULLKOMINN FIMLEIKASALUR Fáni var dreginn að húni 19. desember sl. í tilefni af því að husið er risið og þak komið á. Verktakafyrirtækið Istak byggir húsið en verkið hófst í september árið 2001.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.