Fréttablaðið - 27.12.2001, Blaðsíða 14
14
FRÉTTABLAÐIÐ
27. desember 2001 FIMMTUDACUR
ENSKI BOLTINN
Newcastle enn
á toppnum
fótbolti Newcastle heldur forystu
í ensku úrvalsdeildinni eftir leiki
jólanna og hefur þriggja stiga for-
skot á Arsenal og Liverpool.
ÚRSLIT GÆRDAGSINS
Arsenal-Chelsea 2-1
Bolton-Leeds 0-3
Fulham-Charlton 0-0
Southampton-Totenham 1-0
West Ham-Derby 4-0
Aston Villa-Liverpool 1-2
Blackburn-Sunderland 0-4
Everton-Man.Utd. 0-2
Ipswich-Leicester 2-0
Newcastle-Middlesbrough 3-0
2. DEILD
| Tranmere-Stoke 2-2. 1
FENWAY PARK
Heimavöllur Red Sox var byggður árið
1912.
Boston Red Sox:
Tilboð upp á
70milljarða
hafnabolti Eigendur hafna-
boltaliðsins Boston Red Sox hafa
fengið tilboð upp á 70 milljarða
króna í félagið, sem hefur verið til
sölu í rúmt ár. Liðið er eitt það
vinsælasta í Bandaríkjunum, þó
það hafi ekki unnið bandarísku
deildina síðan 1918. Nokkur óvis-
sa ríkir um framtíð heimavallar
liðsins, Fenway Park, en hann var
byggður árið 1912 og er einn
frægasti völlurinn í hafnabolta-
sögunni.
John Henry, eigandi hafna-
boltaliðsins Florida Marlins, leiðir
hóp fjárfesta sem hyggst kaupa
liðið, en 75% af eigendum allra
liða í deildinni þurfa að sam-
þykkja kaupin og því er ekki gert
ráð fyrir að þau gangi í gegn fyrr
en eftir hálft ár. Ef kaupin verða
samþykkt verður félagið það
dýrasta í sögunni, en í fyrra var
Cleveland Indians selt á um 32
milljarða króna. ■
KSÍ:
Landslidið
til Mið-Aust-
urlanda
fótbolti fslenska landsliðið fer í
æfingaferð til Mið-Austurlanda í
byrjun janúar, þar sem það leikur
gegn Kúveit í borginni Muscat í
Oman og Sádí-Arabíu í Riyadh.
Leikirnir fara fram 8. og 10. janú-
ar og greiða gestgjafarnir ferðina
að fullu.
Leikurinn gegn Sádí-Aráþíu er
liður í undirbúningi þeirra fyrir
Heimsmeistarakeppnina í Suður-
Kóreu og Japan á næsta ári. Atli
Eðvaldsson landsliðsþjálfari hef-
ur valið 18 leikmenn til fararinnar
og í þeim hópi eru tveir nýliðar,
þ.e. BaMur Aðalsteinsson, leik-
maður ÍA og Hjálmar Jónsson,
leikmaður Keflavíkur. ■
Formúla 1:
Ralf verður
að bæta sig
kappakstur Forráðamenn Williams
liðsins í Formúlu 1 segja að öku-
maðurinn Ralf Schumacher verði
að taka sig á ef hann ætli að halda
sæti sínu í liðinu. Schumacher hef-
ur verið í Formúlu 1 frá árinu
1997, en samt sem áður náði nýlið-
inn Juan Pablo Montoya betri ár-
angri en hann á síðari hluta síðasta
keppnistímabils. Það sama var
reyndar uppi á teningnum árið
2000, en þá sló Jenson Button hon-
um við á síðari hluta þess tímabils.
Patrick Head, yfirmaður tækni-
mála hjá Williams, sagðist hafa
áhyggur af fremur slökum árangri
Schumacher og að ökumaðurinn
þyrfti að fara smá naflaskoðun
fyrir komandi tímabil sem hefst í
mars. Schumacher sigraði í þrem-
ur keppnum á síðasta tímabili en
Montoya í einni. Hann sigraði hins
vegar þýsku formúluna eftir að
Montoya hafði neyðst til hætta
RALF schumacher
Schumacher sigraði í þremur keppnum á síðasta tlmabili en Montoya I einni.
vegna bilunar, en þá leiddi hann
keppnina.
Ef Schumacher stendur sig ekki
á komandi tímabili þykir allt eins
líklegt að Williams skipti honum út
fyrir Jenson Button, sem er samn-
ingsbuninn liðinu til ársins 2004,
en var í láni hjá Benetton á síðasta
tímabili. Montoya verður einnig
undir pressu á næsta tímabili, því
samningur hans við Williams renn-
ur út í lok ársins 2002. Schumacher
er samningsbundinn til ársins
2004. ■
Besta Mflkja“ í heimi
Portúgalinn Figo hefur verið valinn besti knattsp37rnumaður í heimi. Hann ólst upp hjá fátækri
Qölskyldu og hóf ferilinn með Sporting Lissabon. Árið 1995 fór hann til Barcelona og Iberíuskag-
inn nötraði í fyrra þegar hann var seldur til Real Madrid.
fótbolti Fátt hefur valdið jafn-
miklum deilum í knattspyrnu-
heiminum og þegar Luis Filipe
Madeira Caeiro, öðru nafni Figo
(sem þýðir fíkja á portúgölsku),
gekk til liðs við Real Madrid frá
Barcelona fyrir 37 milljónir
punda í fyrra. Íberíuskaginn nán-
ast nötraði og menn skiptust í
tvær fylkingar. íbúar Kastilíu til-
báðu hann sem guð - Katalóníu-
menn kölluðu hann Júdas.
Nú hefur þessi umdeildi knatt-
spyrnumaður, sem ólst upp hjá
frekar fátækri fjölskyldu í Lissa-
bon, verið valinn besti knatt-
spyrnumaður í heimi af Alþjóða-
knattspyrnusambandinu (FIFA).
Figo var 17 ára þegar hann lék
sinn fyrsta leik með Sporting
Lissabon, sem í gegnum tíðina
hefur verið talið eitt af þremur
sterkustu liðum Portúgals, en hin
eru Porto og Benfica. Hæfileikar
hans vöktu snemma athygli og
varð hann evrópumeistari með
U16 ára landsliði Portúgals og síð-
ar heimsmeistari með U20 liðinu.
Árið 1995 keypti Johan Cruyff
Portúgalann unga til stórliðsins
Barcelona, en bæði Juventus og
Parma höfðu verið á eftir honum.
Hjá Barcelona var honum „að-
eins“ ætlað að taka við af Michael
Laudrup. Hann varð
spænskur meistari
með liðinu árin 1997
og 1998 og með liðinu
vann hann einnig til
fjölda annarra titla.
Varð m.a. Evrópu-
meistari bikarhafa
árið 1997.
Árið 2000 gerðist
síðan það ótrúlega,
eftir að hafa leikið
172 leiki með
Barcelona og skorað
30 mörk og komið
portúgalska landslið-
inu í undanúrslit Evr-
ópukeppninnar, þar
sem það tapaði í víta-
spyrnukeppni fyrir
Frakklandi, var hann
seldur til erkifjend-
anna í Real Madrid.
Florentino Perez, sem
var í forsetaframboð-
ið hjá Real Madrid
þetta ár, lofaði því að
fá Figo til liðsins ef
hann yrði kjörinn. Ef honum
myndi ekki takast það lofaði hann
að endurgreiða öllum stuðnings-
mönnum ársmiðana þeirra. Niður-
staðan varð sú að Perez vann
kosningana með yfirburðum og
krækti í Figo fyrir um fimm millj-
arða króna.
Með Figo innaborðs, og auðvit-
að fjölda annarra frábærra knatt-
spyrnumanna, sigraði Real Ma-
drid í spænsku deildarkeppninni
og bikarkeppninni á síðasta tíma-
bili og komst í undanúrslit Meist-
aradeildar Evrópu, þar sem það
tapaði samanlagt 3-1 fyrir Bayern
Munchen. Eins og staðan er í dag
er Real Madrid £ efsta sæti spæn-
sku deildarinnar og á mikilli sigl-
ingu í Meistaradeildinni. Það er
kannski engin furða þar sem liðið
keypti Zinedine Zidane frá
Juventus í sumar fyrir metfé, en
hann var kosinn besti leikmaður í
heimi á síðasta ári. Þá varð Figo í
öðru sæti, en kjörinn besti knatt-
spyrnumaður Evrópu.
Það leikur ekki nokkur vafi á
því að Figo er gífurlega hæfileik-
aríkur og góður knattspyrnumað-
ur. Þó það henti Figo best að leika
á kantinum er hann einnig notað-
ur á miðjunni. Hans aðalstyrk-
leiki er fólginn í því að leika á
menn og leggja upp mörk. Hann
er útsjónarsamur, skapandi og
góður spyrnumaður og sóknar-
lega hafa íbúar Madrídar líkt hon-
um við Di Stefano. Varnarlega er
Figo hins vegar alls ekkert sér-
stakur.
trausti@frettabladid.is
Maðurinn og ferillinn
Nafn: Luis Filipe Madeira Gaeiro
(Fígo)
Fæddur: 4. nóvember 1972 I Almada
Portúgal
Hæð: 180 cm
Þyngd: 75 kg
Feríll: Os Pasthilas -1989
Sporting Lissabon 1989-1995
Barcelona 1995-2000
Real Madrid 2000-?
Eiginkona: Hellen
Börn: 1
Uppáhalds tónlist: Rokk (Queen)
Uppáhalds kvikmyndir: Gaman-,
drama- og hasarmyndir
Uppáhalds matur: Kjúklingur og önd
Áhugamál: flatmaga á ströndinni og
vera með vinum
Val á íþróttamanni ársins:
Guðni Bergsson er á meðal tíu efstu
ÍÞRÓTTAMENN Á lista Samtaka
íþróttafréttamanna yfir 10. efstu
í kjöri íþróttamanns ársins eru
þrír knattspyrnu- og sundmenn,
tveir frjálsíþróttamenn, einn
kylfingur og einn handboítamað-
ur. Tilkynnt verður hver varð í
efsta sæti í valinu í dag. Á síðasta
ári var stangarstökkvarinn Vala
Flosadóttir kjörin íþróttamaður
ársins.
Þrátt fyrir að eiga ekki sæti í
íslenska landsliðinu er Guðni
Bergsson á listanum, en hann hef-
ur staðið sig feikivel með Bolton í
ensku úrvalsdeildinni. Árni Gaut-
ur Arason hefur varið mark Ros-
enborgar af stakri prýði í norsku
deildinni sem og í Meistaradeild
Evrópu og Eiður Smári Guðjohn-
sen hefur slegið í gegn með Chel-
sea einu öflugasta liði ensku
deildarinnar.
Örn Arnarson fékk bæði silfur-
og bronsverðlaun í baksundi á
ÍÞRÓTTAMENN ÁRSINS (STAFRÓFSRÖÐ)
Árni Gautur Arason Knattspyrna 1
Birgir Leífur Hafþórsson Golf
Eiður Smári Guðjohnsen Knattspyrna 1
Guðni Bergsson Knattspyra
Jakob Jóhann Sveinsson Sundmaður 1
Jón Arnar Magnússon Frjálsar 1
Krístín Rós Hákonardóttir Sund
Ólafur Stefánsson Handbolti
Þórey Edda Elísdóttir Frjálsar §
örn Arnarson Sund
Edda Elísdóttir Frjálsar 1
Örn Arnarson Sund
Heimsmeistaramótinu í sundi í
Japan síðastliðið sumar og Jakob
Jóhann Sveinsson bætti sig gríð-
arlega á Evrópumeistaramótinu í
Antwerpen fyrr í þessum mánuði
og er kominn í fremstu röð í
bringusundi í heiminum. Katrín
Rós Hákonardóttir, sem íþrótta-
samband fatlaðra útnefndi
íþróttakonu ársins fyrir skömmu,
GUÐNI
Þrátt fyrir að eiga ekki sæti í íslenska
landsliðinu er Guðni Bergsson á listanum
yfir tíu bestu íþróttamenn ársins.
stóð sig frábærlega á árinu og
setti m,á. sjö heimsmet.
Þórey Edda Elísdóttir komst í
fremstu röð í stangarstökki þegar
hún lenti £ 6. sæti á Heimsmeist-
aramótinu í Edmonton í ágúst síð-
astliðinum og Jón Arnar Magnús-
son náði sínum öðrum besta ár-
angri í sjöþraut frá upphafi þegar
hann hafnaði í öðru sæti á Heims-
meistaramótinu innanhúss í
Lissabon í mars.
Handboltamaðurinn Ólafur
Stefánsson leiddi Magdeburg til
sigurs í þýsku deildinni og Evr-
ópukeppni félagsliða. Þá var hann
valinn besti leikmaður þýsku
deildarinnar, sem er mikil viður-
kenning. Kylfingurinn Birgir
Leifur Hafþórsson átti mjög gott
ár og var aðeins hársbreidd frá
því tryggja sér sæti á Evrópsku
mótaröðinni, en hann lenti í 41.
sæti á lokaúrtökumótinu, þar sem
35 efstu komust áfram. ■