Fréttablaðið - 27.12.2001, Blaðsíða 17
FIMMTUDAGUR 27. desember 2001
FRÉTTABLAÐIÐ
17
Ocean’s 11 fmmsýnd:
Ellefu ræningjar
KVIKMYNPIR
Það hálfa væri nóg
HRINGADRÓTTINSSAGA:
kvikmynd Ocean’s 11 er endur-
gerð á samnefndri mynd frá ár-
inu 1960 með ekki minni mönn-
um en Frank Sinatra, Sammy
Davis Jr. og Dean Martin í aðal-
hlutverki. Margt er líkt með
myndinni og Out of Sight eftir
Soderbergh. Georg Clooney leik-
ur aftur geðþekkan glæpon, sem
er í fangelsi í byrjun hennar.
Honum er sleppt úr prísundinni
en í stað iðrunar taka áætlanir
um stærsta rán ferilsins við.
Hann fær til sín tíu vana
menn, þ.á.m. Brad Pitt, Matt
Damon og Don Cheadle og þeir
áætla að ræna þrjú stór spilavíti
í Las Vegas. Þegar á hólminn er
komið kemur í ljós að sami mað-
urinn á öll þrjú spilavítin, Andy
Garcia. Til að bæta gráu ofan á
svart er hann að halda við fyrr-
verandi eiginkonu Clooney, Juliu
Roberts. Þegar Clooney kemst
að því byrjar hann auðvitað eitt-
hvað að spá í henni og stofnar
öllu í hættu. En Garcia er skilj-
anlega ekki sáttur við ránið og
beitir öllum brögðum til að hafa
hendur í hári gengisins.
Leikstjórinn Steven Soder-
bergh er í góðum málum eftir
Óskarsverðlaunahátíðina í vor,
þar sem hann rakaði inn verð-
launum fyrir Traffic og Erin
Brockovich. Eftir að hafa vakið
mikla athygli fyrir Sex, Lies and
Videotape árið 1989 fór frekar
lítið fyrir honum í átta ár. Nú
gerir hann eina, ef ekki tvær,
myndir á ári. Sú næsta heitir
Full Frontal og er hálfgert fram-
hald af Sex, Lies og Videotape og
leikur Julia Roberts eitt aðal-
hlutverkið.
Til gamans má geta þess að í
VINIR CLOONEY
Brjótast inn í þrjú spilavíti og ræna fullt af
reiðufé.
Ocean’s 11 er sýndur bardagi
milli boxaranna Lennox Lewis
og Vladimir Klitschko. Þegar
Lewis var í góðu yfirlæti við tök-
ur myndarinnar í vor var stutt í
bardaga hans við Hasim Ra-
hman í Suður-Afríku. Æfinga-
skorturinn kostaði hann
heimsmeistaratitilinn.
Ocean’s 11 er sýnd í Háskóla-
bíó og í Sambíóum Kringlunni,
Álfabakka, Keflavík og Akur-
eyri. ■
Otrúlegar væntingar voru eft-
ir kvikmyndaaðlögun Peter
Jackson að Hringadróttinssögu
Tolkien. Svo var komið að aðeins
tveir möguleikar voru í stöðunni,
annaðhvort myndi þetta takast
eða ekki. Ég held að fáir verði
fyrir vonbrigðum með Föruneyti
hringsins. Hún er þvílík bíó-
veisla að það hálfa væri nóg.
Myndin ætti eiginlega að fá sér-
staka meðferð, vera ein í sýn-
ingu í einhvers konar ofurbíói.
Bókin kemst til skila á tjaldið og
það er vel staðið að öllu. Fróði,
Sómi, Gandalfur, Aragorn, Hér-
að, Rofadalur, Moría, Barad-dur.
Það er frábærlega skipað í hlut-
verk og staðir Miðgarðs eru vel
heppnaðir. Sérstaklega var
Sarúman í ísarngerði, liðssöfnun
hans og tilurð Háorkanna áhrifa-
mikil. Tölvubrellur eru snyrti-
legar, t.d. er smæð hobbitanna
Föruneyti hringsins
og dvergsins Gimla eins og nátt-
úruleg. Þær breytingar sem
Jackson gerir á sögunni falla vel
að kvikmyndinni. Því sem er
sleppt er ekki sárt saknað og
hann tímasetur hasarinn vel á
milli rólegri atriða. Það er ljóst
að hróður Nýsjálendingsins er
botnlaus um þessar mundir og á
hið sama vonandi eftir að vera
uppi á teningnum þegar búið er
að frumsýna seinni tvær mynd-
irnar. Þá er rétt að geta þess að
ekki aðeins lesendur bókanna
eiga eftir að njóta Föruneyti
hringsins. Allir munu falla fyrir
henni. Gæði myndarinnar gera
það að verkum að ársbið eftir
Tveggjaturna tali á eftir að líða
hjá á svipstundu.
Halldór V. Sveinsson
Áramótadansleikur á
Players Kópavogi
31. desember 2001
MILLJÓNAMÆRINGARNIR
ásamt
Bjarna Ara,
Páli Óskari &
Bogamil Font
Húsið opnar kl. 01:00
Forsala aðgöngumiða á
Players og Samspil-Nótan
Skipholti.