Fréttablaðið - 03.01.2002, Side 1
HYUNDAI Mu!ti($)
Total IT Solution Provider
Hagkvæm og traust tölva
fr vTÆKNlBÆR Skiphoiti 50C
S: 551-6700 www.tb.is
Umboðsaðili HYUNDAI á íslandi
FRÉTTABLAÐIÐ
2. tölublað - 2. árgangur _____________________________________Þverholti 9, 105 Reykjavík - simi 515 7500__________________________________________Fimmtudagurinn 3. janúar 2002
FIMMTUDAGUR
Landafundir og
ragnarök
sýninc Sýningin Landafundir og
ragnarök er í Þjóðmenningarhús-
inu. Um er að ræða samstarfsverk-
efni við Landafundanefnd og fjall-
ar um landafundi og siglingar ís-
lendinga á miðöldum, með áherslu
á fund Grænlands og Vínlands.
Hulda á Mokka
sýninc Hulda Vilhjálmsdóttir sýnir
nú málverk sín á Mokka við Skóla-
vörðustíg.
IVEDRIÐ í DAC!
REYKJAVÍK Suðlæg átt 5-8m/s,
smáskúrír eða slydduél.
Hiti 1 til 3 stig.
VINDUR ÚRKOMA HITI
ísafjörður O 5-8 Dálítil él Q1
Akureyri o 3-5 Skýjað Q1
Egilsstaðir O 1-3 Slydda Q 0
Vestmannaeyjar o 5-8 Smáskúrir Q’
Svipir lands og
sagna
sýninc Svipir lands og sagna er yf-
irskrift sýningar á verkum Ás-
mundar Sveinssonar í Listasafni
Reykjavíkur, Ásmundarsafni. Sýn-
ingin spannar allan feril lista-
mannsins og er hún opin alla daga
frá klukkan tíu til sextán.
Trio 3 á Vídalín
tónieikar Trio 3 heldur tónleika á
Vidalin. Spiluð verða lög eftir Dav-
id Bowie, Tom Waits, Bítlana, Paul
Simon, James Taylor og fleiri.
IKVÖLDIÐ í KVÖLDi
Tónlist 18 Bíó 16
Leikhús 18 fþróttir 14
Myndlist 18 Sjónvarp 20
Skemmtanir 18 Útvarp 21
NOKKRAR STAÐREYNDIR UM
FRÉTTABLAÐIÐ
Hvaða blöð lesa 25 til 49 ára
MEÐALLESTUR FOLKS A ALDRINUM 25 TIL 80 ARA Á
HÖFUÐBORGARSVÆÐINU SAMKVÆMT
FJÖLMIÐLAKÖNNUN GALLUP I OKTÓBER 2001.
Eigendur Burnhcim
í milljónaábyrgðum
Húseign Guðmundar Franklín Jónssonar við Bergstaðastræti kyrrsett af sýslumanni. Oljóst
hvernig fer fyrir kröfum í þrotabúið sem streyma nú til skiptastjóra.
þrotabú „Þessa dagana er verið að
reyna að grípa utan um eignir
þrotabúsins, það eru mest ýmis-
.. konar fjárkröfur
sem Burnham á,“
sagði Sigurmar K.
Albertsson, hæsta-
réttarlögmaður og
skiptastjóri Burn-
ham. Blaðið hefur
heimildir fyrir því
að helstu eigendur
félagsins, þar á
meðal Guðmundur
Franklín Jónsson
og Burnham
Securities í New
York, séu þar á
muni kröfuhafar því
Tallð er víst að
kyrrsetningin sé
í tengslum við
80 milljóna
króna skuld
Guðmundar við
Lífeyrissjóð Aust-
urlands sem
hann gekkst í
við stofnun
Burnham á
Islandi.
—4—
meðal og
þurfa að reiða sig á þá til að eiga
von um að bera eitthvað úr být-
um. „Mér sýnist að svo verði,“
sagði Sigurmar þegar hann var
spurður hvort eigendur væru í
ábyrgðum, en vildi ekki nefna
upphæðir í því sambandi. „Það er
ekki komin nægilega góð mynd á
eignir búsins ennþá.“ Hann segir
innbú félagsins hafa verið með
veglegra móti og að þar hafi
nokkrar milljónir fengist.
Sigurmar staðfesti að kröfur í
búið hafi verið að berast til hans
undanfarna daga en tók fram að
heildarmynd væri ekki komin á
skuldir, enda rynni kröfulýsinga-
frestur ekki út fyrr en um miðjan
febrúar. „Vinnan í kringum
þrotabúið frá gjaldþrotinu hefur
einna mest snúist um að koma
GUÐMUNDUR
FRANKLÍN
JÓNSSON
Sýslumaðurinn í
Reykjavík hefur
kyrrsett einbýlis-
hús eiganda
Burnham sem
bráðabirgðaveð
vegna fjár-
skulda.
fyrrum fjárvörsluþegum þess í
örugga höfn. í kjölfar þess hefur
vinna í tengslum við skulda- og
eignastöðu tekið við,“ segir Sig-
urmar, en frá því var sagt í blað-
inu að Landsbankinn-Landsbréf
keypti í desember sl. fjárvörslu-
samninga félagsins og greiddi
fyrir á bilinu 30 til 40 milljónir
króna.
Sýslumaðurinn í Reykjavík
kyrrsetti þann 17. desember sl.
húseign Guðmundar Franklín
Jónssonar fyrir ótilgreindri fjár-
skuld sem ekki er ljóst hvort
tengist þrotabúinu með beinum
hætti. Talið er víst að kyrrsetn-
ingin sé í tengslum við 80 millj-
óna króna skuld Guðmundar við
Lífeyrissjóð Austurlands sem
hann gekkst í við stofnun
Burnham á íslandi árið 2000.
Ekki náðist í Guðmund vegna
málsins, en hann festi kaup á hús-
eigninni við Bergstaðastræti fyr-
ir um tveimur árum. Fleiri eignir
Guðmundar gætu verið í upp-
námi í kjölfar gjaldþrotsins en
ekkert hefur fengist staðfest.
matti@frettabladid.ís
Sex þýsk herskip til Afríku:
Þýskir her-
menn eru
farnir í stríð
berlín. ap Sex þýsk herskip sigldu
í gær úr höfn í Þýskalandi áleiðis
til austurstrandar Afríku, þar sem
þau eiga að taka þátt í baráttunni
gegn hryðjuverkamönnum sem
Bandaríkjamenn hafa veitt for-
ystu. Búist er við að skipin komi á
áfangastað eftir þrjár vikur, en
innanborðs eru 750 þýskir her-
menn. Þýsk stjórnvöld hafa lofað
því að senda allt að 3.900 hermenn
til þessa verkefnis. Auk þess eiga
allt að 1200 þýskir hermenn að
taka þátt í friðargæslustörfum í
Afganistan undir forystu Breta.
Gerhard Schröder, kanslari
Þýskalands, sagði í áramótaræðu
sinni að brýn þörf væri til þess að
berjast gegn hryðjuverkum hvar-
vetna. ■
1 ÞETTA HELST [
Eyjamenn og Hólmarar berjast
um Keikó. Vestmannaeyingar
vilja ekki missa hann og Hólmar-
ar reikna með að fá Keikó í sum-
ar. bls. 2
-.♦..-
Sala eigna til að mæta kostnaði
vegna sameiningar spítalanna.
bls. 4
—
Stjórnsýslukæra send til ráð-
herra. Sjómannafélag Reykja-
víkur sækir gegn Atlantsskipum.
bls. 6
—♦—
Kasmírdeilan kraumar. Fimrn-
tíu herskáir múslimar hand-
teknir í Pakistan. bls. 12.
Tveir í gæsluvarðhald vegna innbrota:
Tvær haglabyssur
fundust við húsleit
innbrot Tveir menn voru úrskurð-
aðir í gæsluvarðhald vegna innbrota
yfir hátíðarnar. Að sögn lögreglu
var maður á þrítugsaldri handtek-
inn á föstudaginn og við húsleit hjá
honum fundust tvær af þremur
haglabyssum sem stolið hafði verið
úr versluninni Ellingsen. Þá er mað-
urinn grunaður um aðild að fleiri
innbrotum og situr hann í gæslu-
varðhaldi til 18. janúar.
Á gamlársdag var maður um
tvítugt handtekinn í söluturni og
við húsleit hjá honum fundust þrjár
fartölvur, sem stolið hafði verið úr
versluninni Smith & Norland að-
faranótt gamlársdags. Maðurinn er
einnig grunaður um innbrot í Húsa-
smiðjuna, verslanir Olís og Hans
Petersen og var hann úrskurðaður í
gæsluvarðahald til 21. janúar.
Lögreglan vinnur nú við rann-
sókn málanna en að hennar sögn
tengjast þau því talið er að menn-
irnir hafi staðið saman að einhverj-
um innbrotanna. ■
SIGLT ÚR HÖFN Þýsku hermennirnír kvöddu í gær ástvini sína í hafnarborginni Wilhelmshaven. Það er freigátan Köln sem siglir úr höfn
og eiginkona eins hermannsins horfir á eftir skipinu.
SÍÐA 12
Þjóðar-
gersemi
IÞROTTIR
SÍÐA 14
FÓLKj
Flestir
bœta á sig