Fréttablaðið - 03.01.2002, Blaðsíða 11

Fréttablaðið - 03.01.2002, Blaðsíða 11
FRÉTTABLAÐIÐ 11 FIIVIMTUDACUR 3. janúar 2002 Skógareldar geisa áfram í Ástralíu: 21 grunadur brennu- vargur handtekinn siNÐNEY. ap Lögreglan í Syndey í Ástralíu fann í gær leifar tveggja heimalagaðra eldsprengja sem talið er að brennuvargar hafi kveikt í til að koma af stað hluta þeirra 100 skógarelda sem geisað hafa í landinu undanfarna 11 daga. Að minnsta kosti 21 grunað- ur brennuvargur hefur þegar ver- ið handtekinn, þ.á.m. 14 börn, það yngsta aðeins 9 ára gamalt. Hinir sjö sem handteknir hafa verið eiga yfir höfði sér allt að 14 ára fangelsi verði þeir fundir sekir. Um 2000 íbúar í úthverfum Sydney í Ástralíu þurftu í gær að yfirgefa heimili sín vegna skógar- eldanna en engar fregnir hafa borist af manntjóni. Um 20 þúsund slökkviliðsmenn, flestir sjálfboða- liðar, hafa barist hart við eldana, sem þegar hafa eyðilagt að minns- ta kosti 150 heimili í landinu. 300 þúsund hektarar skóglendis hafa farið illa út úr eldunum, en búist er við því að þeir haldi áfram að geisa af fullum krafti á meðan veður helst þurrt og heitt. Björg- unarstarf var í fullum gangi í gær og var mikið vatnsmagn m.a. látið ÚTKEYRÐUR Slökkviliðsmaðurinn Chris Beasley, hvílir sig við vegarkantinn eftir erfiðan dag í bar- áttunni við skógarelda sem geisuðu í West Pymble-úthverfinu norður af Sydney. 20 þúsund slökkviliðsmenn, flestir sjálfboða- liðar, hafa staðið í ströngu frá því eldarnir hófust fyrir 11 dögum síðan. falla úr þyrlum til að reyna að slökkva eldana. ■ HÚS SKÁLDSINS Safn verður starfraekt að Cljúfrasteini festi ríkið kaup á staðnum. Gljúfrasteinn í eigu ríkisins: Hús skáldsins opið gestum og gangandi MENNINC „Ef af verður þá verður heimili Halldórs Laxness opið gestum og gangandi í þeirri mynd sem það er í“, segir Guðmundur Árnason, skrifstofustjóri í forsæt- isráðuneytinu, um hugmyndir um að ríkið eignist Gljúfrastein, heimili Halldórs Laxness. Forsæt- isráðherra greindi frá því í ára- mótaávarpi sínu að aðstandendur skáldsins hefðu ljáð máls á þvi við stjórnvöld. Guðmundur segir stefnt að því að koma upp Safni Halldórs Laxness að Gljúfrasteini ef af verður. Sú starfsemi yrði tengd þeirri starfsemi til minn- ingar um Halldór Laxness sem bæjaryfirvöld í Mosfellsbæ hafa kynnt. Að sögn Guðmundar eru nokkrir mánuðir frá því að hug- myndinni var komið á framfæri við ráðuneytið. Síðan hafi farið fram óformlegar viðræður enda hafi tillögunni verið vel tekið af hálfu forsætisráðherra og menntamálaráðherra. Guðmundur sagði of snemmt að tala um hvert kaupverð hússins yrði og hefði það ekki enn komið til umræðu heldur hefði verið rætt um hvernig húsið yrði nýtt. ■ ALMANAK fyrir ÍSLAND Útgefandi: Háskóli Islands Almanak Háskólans Nýtt ár - Nýtt almanak Almanak Háskólans er ómissandi handbók á hverju heimili. Fæst í öllum bókabúðum HEILBRIGÐISSKÓLINN Fjölbrautaskólinn við Ármúla Upphaf vorannar 2002 Eldri nemendur eiga að sækja töflur sínar og önnur gögn milli kl. 10.00 og 15.00 föstudaginn 4. janúar. Nýir nemendur eiga að koma kl. 13.00 sama dag og þá mun skólameistari ávarpa þá. Kennarafundur verður kl. 10.00 föstudaginn 4. janúar. Fundur með umsjónarkennara verður kl. 9.00 mánudaginn 7. jan- úar og kennsla hefst skv. sérstakri hraðtöflu kl. 10.35 sama dag. Hægt er að bæta við nemendum í eftirtalda áfanga skv. aðalnámskrá menntamálaráðuneytisins: BÓK 203, 303 og 403, DAN 303 og 403, EFN 203, 313, og 413, ENS 513 og 523, FRA 703, FÉL 303 og 313, HJÚ 203, 402, HJV 213 og 413, ÍSL 503 og 523, ÍÞF, JAR 103, LÍF 203, MAR 103, REK 103, SÁL 203 og 303, STÆ 403 og 503, ÞJÓ 103 og 203, ÞÝS 603. Loks skal ítrekað að skráning stendur yfir í fjarnám. Nánari upplýsingar eru á heimasíðu skólans, www.fa.is. Skólameistari G Fjölbrautaskólinn í Garðabæ Lyngási 7-9 - 210 Garðabæ - Sími 565 8800 - Fax 565 1957 - Kt. 581286-1639 Frá Fjölbrautaskóíanum í Garðabæ Byrjun vorannar 2002 4. janúar, föstudagur Nemendur fá afhentar stundatöflur og bókalista Id. 09.00 Töflubreytingar kl. 10.00 - 17.00 5. janúar, laugardagur Töflubreytingar kl. 10.00 - 17.00 7. janúar, mánudagur Kennsla hefst skv. stundaskrá Skólameistari Byrjendanámskeið morgun og kvöldnámskeið 48 kennslustundir Windows Word Excel Intemetið Tölvupóstur Margmiðlunardiskar sem fylgja eru: Windows á þfnum hraða. Word á þínum hraða. Excel á þínum hraða. Námskeiðsgjald 30.400 kr. Skrifstofunám morgun- og kvöldnámskeið 120 kennslustundir Kennt er á öll hellstu skrifstofufonitin og einnig verðurfarið í mannlega þætti eins og tjáning, velgengni f starfi, mannleg samskipti, hópverkefnavinnu o.m.fl. Margmiðlunardiskar sem fylgja eru: Windows á þínum hraða. Word á þínum hraða. Excel á þfnum hraða. Námskeiðsgjald 96.000 kr. Myndvinnsla og umbrot ^ kvöldnámskeið 108 kennslustundlr Námskeið þetta er fyrir alla þá sem vilja læra meðhöndlun og frágang prentverka. Allir nemendur fá aðgang að gríðariega öflugum Ijósmyndagagnagmnni. Hugbúnaðurinn sem kennt eráer. Photoshop, Freehand, Acrobat Distiller Námskeiösgjald 82.800 kr. Ath- Mörg stéttarfélög og fyrirtæki greiða hluta »B eða allan kostnað af námskeiðunum. Þekking - Bæjarlind 2, Kópavogi - Sími 533 3033 - toivuskolinn@tolvuskolinn.is - www.tolvuskolinn.is

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.