Fréttablaðið - 03.01.2002, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 03.01.2002, Blaðsíða 22
FRÉTTABLAÐIÐ HRADSOÐIÐ [ 22 3. janúar 2002 FHVIIVITUDACUR HERDÍS STORCAARD, slysavarnarfulltrúi Skoteldar í umferð eftir að sölu lýkur HVERSU algeng voru slys vegna flugelda um þessi áramót? Þessi áramót var mjög svipaður fjöldi slysa og verið hefur. Síðustu áramót voru, hinsvegar, nokkuð frá- brugðin. Þá var mjög mikið um slys vegna flugelda. Sérstaklega á full- orðnum. HVERJU viltu þakka að minna var um augnskaða en oftast áður? Augnlæknar segja að augnslysum um áramót hafi fækkað verulega og hafa gleraugun haft mikið að segja. Oft var um að ræða slys sem tengd- ust blysum og stjörnuljósum og urðu alveg óvart. Fyrir nokkrum árum frétti ég fyrir tilviljun af dönskum augnlækni, sem hafði skoðað þessi mál. Hann átti hugmyndina af því að nota gleraugu þegar verið væri að skjóta upp flugeldum. Næsta ár byrjaði áróðurinn fyrir þeim hér á landi sem hefur bersýnilega haft mikið að segja. HVERNIG slys hafa verið algeng- ust? Við skiptum flugeldaslyslunum í tvo flokka. Annarsvegar er um að ræða slys sem eiga sér stað dagana í kringum áramótin, og verða vegna þess að verið er að fikta með skot- elda. Hinsvegar þau sem eiga sér stað um sjálf áramótin, og er þá mest um að ræða bruna vegna hand- blysa. Hvað varðar svoköiluð „fikt- slys“ þá er um að ræða tvo aldurs- hópa. Krakkar sem eru ellefu til þrettán ára, sem eru ekki jafn stór- tæk og þau sem eldri eru. Þau sem eru fjórtán til átján ára eru hinsveg- ar að búa til rörasprengjur og slíkt, og valda því meiri skaða, bæði á sjálfum sér og búnaði. HEFUR eitthvað breyst á þeim árum sem þú hefur starfað að forvörnum? Við höfum töluverðar áhyggjur af því sem kom í ljós á síðasta ári, en þá voru um sextíu skemmdarverk framin um borgina eftir að löglegri sölu á flugeldum lauk. Þetta er breyting frá fyrri árum, þegar öllu fikti lauk um leið og sölunni. Það sýnir að heilmikið af skoteldum er í umferð eftir að sölu lýkur. Ég veit ekki fyrir víst hvar krakkarnir fá þá, en eitt er víst að þau hamstra þá ekki. Einkaaðilum er leyfilegt að fly- tja inn flugelda til eigin nota, utan hefðbundins sölutíma. Ég útiloka því ekki að um ólöglega sölu þeirra geti verið að ræða. Dómsmálaráðuneytið, lögreglan og hagsmunaaðilar hafa áhyggjur af þessari breytingu. Ég geri ráð fyrir að þessir aðilar muni taka á því máli, enda er um þessar mundir verið að vinna að breyting- um á reglugerð varðandi sölu og meðferð flugelda. Herdís Storgaard er slysavarnarfulltrúi hjá Ár- vekni og hefur unnið að forvarnarmálum í fjölda ára. Bretland: Tekist á um evruna stjórnmál Heseltine lávarður, fyrrverandi ráðherra í ríkisstjórn breska íhaldsflokksins, sagði í gær að vel væri mögulegt að vinna evrunni fylgi í þjóðarat- kvæðagreiðslu í Bretlandi, svo framarlega sem að Tony Blair, forsætisráðherra tæki málið heilshugar upp á sína arma. Að því er greint var frá á fréttavef BBC þá sagði Heseltine að ef allir flokkarnir þrír tækju höndum saman með fulltrúum iðnaðarins og verkalýðsfélaga þá yrði auð- velt að sannfæra Breta. Bretar eiga ekki aðild að evr- unni og hefur hún verið umdeild þar í landi. Lítill hópur andstæð- inga evrunnar safnaðist saman í fjármálahverfinu í London í gær og mótmæltu evrunni. Þeirra á meðal voru þingmenn íhalds- flokksins. Andstæðinga evrunnar óttast að missa stjórn yfir efna- hagsmálum ef evran verður tekin upp og forystumenn íhaldsflokks- ins hafa sagt að flestir Bretar séu mótfallnir henni. Heseltine sagði hins vegar að forystan í íhalds- flokknum væri mjög einangruð í málinu. ■ EVRUNNI MÓTMÆLT Ray Egan, mótmælti evrunni í gær fyrir utan Lundúnabanka með því að brenna eftirlíkingu af evruseðli og klæða sig upp. SURRLNPEB fTfHE EdR [flRifKRRT FRÉTTIR AF FÓLKI Aramótamynd Sigmunds á for- síðu B-blaðs Morgunblaðsins um áramótin markaði tímamót. í fyrsta skipti var þar ekki að finna teikningu af Árna Johnsen. Hingað til hefur Sigmund á einhvern hátt fundið afsökun fyrir því að koma þessum vini sínum í hóp þeirra sem helst hafa sett svip sinn á fréttir ársins. Aldrei hefði þó verið jafn- ríkt tilefni til þess og nú þegar Árni var fréttaefni ársins. Að- standendur áramótaskaups sjón- varpsins klikkuðu ekki á að gera sér mat úr málum Árna en Sig- mund tók hins vegar upp strokleðrið og þurrkaði Árna af myndinni, loksins þegar hans tími var ltominn. Mörgum þótti viðureign Björns Bjarnasonar og Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur í Silfri-Egils á gamlársdag taka af vafa um að Björn er á leiðinni í borgarmálin og að þetta hafi að- eins verið fyrsta lota í bardaga þeirra um borg- ina. Björn og Ingi- björg hafa oft áður mæst í sjón- varpssal og það brást ekki að þessu sinni frekar en venjulega að það gneistaði milli þeirra. Það verður ósvikin skemmtun fyrir áhugamenn um pólitík að fylgjast með næstu lotum í bardaganum sem lýkur síðasta laugardag í maí. egar Björn skiptir um vettvang og heldur áfram hinu kalda stríði við R-listann verður Sigríð- ur Anna Þórðardóttir þingflokks- formaður Sjálfstæðisflokksins, nýr menntamálaráðherra. Þá tek- ur við barátta um formennskuna í þingflokknum og þar þykir Þor- gerður Katrín Gunnarsdóttir stan- da með pálmann í höndunum þótt Arnbjörg Sveinsdóttir telji vafa- laust að hennar tími sé kominn. Aramótaskaup Óskars Jónas- sonar og félaga mælist feiki- sjónvarpsáhorf- enda, sem margir voru farnir að halda að það væri bara þjóðsaga að það hefði einhvern tímann verið gam- an aðhorfa á Skaupið. Örugg- lega er stemmning fyrir því meðal sjónvarpsáhorf- enda að semja strax við Óskar, Hallgrím Helgason og Hjálmar Hjálmarsson um að skrifa hand- ritið að næsta skaupi. Kaldhæðnir stjórnarandstæðingar fullyrða hins vegar að það sé borin von að Óskar fái að koma nálægt skaup- inu aftur. Með meðferðinni í Skaupinu á Davíð Oddssyni, Hann- esi Hólmsteini og félögum hafi Óskar skrifað undir eigið upp- sagnarbréf; hann fái ekki fleiri verkefni fyrir RÚV á þessu kjör- tímabili. Flestir bæta á sig 3 til 5 kílóum um jólin Jónína Benediktsdóttir, eigandi Planet Puls, sagði að eftir hátíðarnar hópaðist fólk á líkamsræktarstöðvarnar til að ná af sér aukakílóunum. Hún sagði að 60% fólks þyrfti á stuðningi að halda til að halda sér við efnið. JÓNÍNA BENEDIKTSDÓTTIR „Það er á hreinu að flest fólk endist ekki í þessu ef það kaupir sér ódýrt árskort og ætl- ar að fara í gegnum þetta upp á eigin spýtur, því það krefst mikils aga." heilsa Flestir bæta á sig þremur til fimm kílóum yfir jólin að sögn Jónínu Benediktsdóttur, eigenda Planet Puls líkams- ræktarstöðvanna. Hún sagði að enn væri töluvert algengt að fólk hópaðist út á líkamræktar- stöðvarnar eftir áramótin í þeim tilgangi að ná af sér aukakílóunum eftir hátíðarnar. „Flestir borða mikið saltan og reyktan mat yfir jólin og það tekur líkamann nokkrar vikur að losa sig við þennan úrgang,“ sagði Jónína. „Það sem ég held að skipti mestu máli er að fólk drekki mikið vatn, því það hreinsar líkamann." Að sögn Jónínu verður allt brjálað að gera á líkamsræktar- stöðvunum í janúar, en þó væri ástandið ekki jafnslæmt og fyr- ir nokkrum árum. „ILérna áður fyrr var þetta alveg rosalegt. Það flykktust allir inn í stöðvarnar í janúar og síðan aftur í september. Núna hefur þetta samt aðeins verið að breytast því fleiri eru byrjaðir að stunda líkamsrækt allt árið.“ Jónína sagði mikilvægt að fólk sem hygðist byrja í rækt- inni núna myndi ekki fara of geyst af stað. Þá sagði hún að til væru rannsóknir sem sýndu að 60% þeirra sem byrjuðu í lík- amsrækt héldu áfram ef þeir fengju stuðning og hugsað væri vel um þá, 20% héldu áfram sama hvað gengi á og 20% hættu. „Það er á hreinu að flest fólk endist ekki í þessu ef það kaup- ir sér ódýrt árskort og ætlar að fara í gegnum þetta upp á eigin spýtur, því það krefst mikils aga. Fólk á að vera tilbúið að greiða aðeins meira og fá betri hjálp, ekki vera að horfa í ein- hverja þúsund kalla.“ Jónína sagði að það væri fólk á öllum aldri sem byrjaði í lík- amsrækt eftir áramótin. Hún sagði reyndar að meira væri um yngra fólk á stöðvunum, en að almenningur væri smám saman að átta sig á því að það væri ekki hægt að lifa almennilegu lífi án þess að hreyfa sig. trausti@frettabladid.is Yfirlýsing Jón Baldvin Hanni- balssonar í Fréttablaðinu í gær um að hann kynni að vera til viðræðu um að snúa aftur í ís- lensk stjórnmál hefur að vonum vakið athygli og fengið menn til að hugsa málin. Þannig benti einn viðmælandi blaðsins á að í raun ætti enn eftir að kjósa for- mann Samfylkingar þar sem ekki hefði verið farið að lögum á landsfundi. Lögum samkvæmt á að kjósa formann skriflegri, óhlutbundinni kosningu þannig að hægt sé að kjósa hvern sem er en á landsfundinum voru hel- stu forystumenn einir í fram- boði og klappaðir upp. Segja því sumir að kominn sé tími til að kjósa forystu svo sem kveðið er á um í lögum og rökrétt skref að fá Jón Baldvin einfaldlega til að leiða flokkinn.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.